Morgunblaðið - 19.01.2008, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
STJÓRN Samtaka um betri byggð
beinir þeim eindregnu tilmælum til
Sturlu Böðvarssonar, forseta Al-
þingis, að hann beiti sér fyrir að
tryggð verði réttlát og lýðræðisleg
skipun í samgöngunefnd og fjár-
laganefnd Alþingis. Bent er á að á
yfirstandandi þingi séu 6 af 9
nefndarmönnum í samgöngunefnd
og 7 af 11 nefndarmönnum í fjár-
laganefnd úr landsbyggð-
arkjördæmunum þremur. Kjör-
dæmin þrjú á höfuðborgarsvæðinu
ættu hins vegar að fá 5 nefnd-
armenn í samgöngunefnd og 6
nefndarmenn í fjárlaganefnd.
Árvakur/Golli
Gagnrýni Samtökin telja skiptingu
í nefndir þingsins ólýðræðislega.
Ójafnt í nefndum
ANNRÍKI hefur verið á heilsugæslu-
stöðvum á höfuðborgarsvæðinu
vegna bólusetningar gegn inflúensu.
Fram kom í fréttum að eitt tilfelli af
inflúensu A hefði greinst hér á landi
og að enn væri mögulegt að láta
bólusetja sig. Komum fjölgaði þess
vegna og margar fyrirspurnir bár-
ust símleiðis. Samkvæmt upplýs-
ingum frá heilsugæslustöðinni í
Mjódd eru birgðir bóluefnisins nú
nærri búnar og sömu sögu að segja
víðast hvar.
Nokkuð var um að fólk kæmi til að
láta bólusetja sig þótt það hefði áður
verið bólusett. Mun það hafa talið að
um aðra tegund flensu væri að ræða.
Mikið annríki
vegna inflúensu
SORPHIRÐAN í Reykjavík biður
borgarbúa um að moka frá sorp-
tunnum um helgina. „Þetta hefur
verið þung vika fyrir starfsfólk sorp-
hirðunnar,“ segir Sigríður Ólafs-
dóttir rekstrarstjóri hennar.
Ekki er nóg að moka frá bílum og
útidyrum heldur þarf einnig að
moka frá sorphirðugeymslum. Sig-
ríður segir að ef aðgengi að sorp-
tunnum sé slæmt og íbúar hafa ekki
sinnt því að greiða götu starfsmanna
Sorphirðunnar með því að moka,
verði stundum að sleppa því að
tæma tunnur. Hún segir að stundum
hafi fólk jafnvel mokað fyrir tunn-
urnar snjó frá bílum og útidyrum.
Duglegri að moka
STUTT
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
FUNDAÐ var með íslensku friðar-
gæsluliðunum, sem eru nýkomnir
heim frá Srí Lanka eftir uppsögn
vopnahléssamninga á milli stjórn-
valda og samtaka Tamíl-Tígra, í ut-
anríkisráðuneytinu í gærmorgun.
Allir Íslendingar nema einn, Jónas
Gunnar Allansson, hafa verið kallað-
ir heim og eru annaðhvort komnir
eða á leiðinni, en undanfarið hafa níu
Íslendingar og 22 Norðmenn verið
þar við eftirlitsstörf. Jónas Gunnar
verður áfram í höfuðstöðvum sam-
norrænu eftirlitssveitanna, SLMM, í
höfuðborginni Colombo ásamt tíu
Norðmönnum við lokafrágang sem á
að ljúka núna fyrir lok febrúar. Þetta
kom fram í máli Ingibjargar Sólrún-
ar Gísladóttur utanríkisráðherra á
blaðamannafundi í gær.
Varfærni gætir nú í yfirlýsingum
utanríkisráðuneytisins við fjölmiðla
og munu friðargæsluliðarnir ekki tjá
sig um ástandið á Srí Lanka að sinni,
eða þar til allir starfsmenn SLMM
verða farnir þaðan, af ótta við að
hafa bein áhrif á ástandið þar. Að
sögn Ingibjargar er verið að ganga
frá eignum, gögnum og skjölum
SLMM í Colombo, og fara yfir mál
þarlends fólks sem hefur starfað fyr-
ir Norðmenn og Íslendinga. Hafa að-
stæður hvers og eins verið skoðaðar
og litið til þess hvort hægt sé að
finna fólkinu önnur störf, jafnvel hjá
alþjóðastofnunum.
Starfsfólk ekki almennt í hættu
Norrænu sveitirnar hafa verið
gagnrýndar harðlega úr báðum átt-
um á Srí Lanka og m.a. fengið kaldar
kveðjur frá talsmanni stjórnarhers-
ins, sem segir þær gagnslausar. Að-
spurð sagði ráðherra mismunandi
eftir einstaklingum hvort þeir sem
hefðu starfað fyrir SLMM væru nú í
hættu staddir. „Það er sjálfsagt
mjög mismunandi eftir því hvaða
störfum þeir hafa gegnt. Ekki er
hægt að segja að það fólk sé almennt
í hættu. En það getur vel verið í ein-
hverjum tilvikum og það er verið að
fara yfir það,“ sagði hún.
Samskipti utanríkisráðuneyta Ís-
lands og Noregs hafa að hennar sögn
verið afar náin undanfarið og vildi
hún ekkert gefa út um hvort þeim
starfsmönnum sem hætta er búin
yrði boðið að flytjast hingað til lands.
Kvað hún það einfaldlega samstarfs-
verkefni Íslendinga og Norðmanna,
sem farið yrði yfir í framhaldinu.
Á fundinum með friðargæsluliðun-
um var farið yfir stöðu mála á Srí
Lanka, reynslu þeirra af verunni þar
og mat þeirra á mögulegu framhaldi
deilunnar. Þar komu fram mikil von-
brigði með þá þróun sem orðið hefur
að undanförnu. „Hins vegar fannst
mér koma mjög skýrt fram hjá okk-
ar fólki að þetta kom þeim í sjálfu sér
ekki á óvart. Þeim hefur fundist að
til þessara tíðinda væri að draga og
bjuggust jafnvel við því að þetta
gerðist strax í desember,“ sagði
Ingibjörg Sólrún, en tugir Tamíl-
Tígra féllu í átökum við stjórnarher-
inn rétt fyrir jól og pólitískur tals-
maður þeirra var felldur í nóvember.
Krefjandi aðstæður á Srí Lanka
„Vandamálið í þessu sambandi er
að það er ekkert samband á milli að-
ila þarna, engin pólitísk samtöl eiga
sér stað á milli þeirra. En hins vegar
er það mat okkar fólks eins og ann-
arra sem að þessu koma að á þessu
máli er bara til pólitísk lausn, beiting
hervalds mun ekki leysa þetta mál,“
sagði Ingibjörg Sólrún ennfremur.
„Við erum þakklát og afar stolt af
framlagi okkar fólks á Srí Lanka og
hvernig það hefur starfað þar við
mjög krefjandi aðstæður. Það skynj-
aði ég mjög sterkt þegar ég fundaði
með þeim hverju þau hafa orðið vitni
að, hvað þau hafa upplifað og séð.
Þau hafa staðið sig vel,“ sagði Ingi-
björg Sólrún.
Breyting fyrir friðargæsluna
Ljóst er að með þessari breytingu
losnar nokkuð um hjá íslensku frið-
argæslunni, enda var næststærsta
verkefni hennar á Srí Lanka. Um
framhaldið sagði ráðherra að farið
skyldi yfir stöðu hvers og eins.
„Sumir starfsmenn voru með samn-
ing sem var að klárast, aðrir eiga
lengri tíma eftir af sínum starfstíma.
Við munum fara yfir það hvaða öðr-
um verkefnum við getum sinnt og
höfum verið að ræða mögulega inn-
komu í verkefni á vegum Sameinuðu
þjóðanna nú í maí. Það er eflaust
enginn hörgull á verkefnum ef út í
það er farið, en það þarf alltaf dálít-
inn tíma til að undirbúa slíkt.“
Einn Íslendingur verður á Srí Lanka fram í febrúar, þrátt fyrir versnandi ástand
Stolt af okkar framlagi
Árvakur/Kristinn
Varfærin Íslensk og norsk yfirvöld vilja sem minnst segja sig um ástandið á Srí Lanka að sinni. Urður Gunnarsdóttir,
upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra á fundinum í gær.
Í HNOTSKURN
»SLMM hefur starfað á SríLanka frá 2002, á grundvelli
vopnahléssamnings á milli aðila,
sem nýlega var sagt upp.
»Átök eru hörðust í Tam-ílahéruðum í norðurhluta
landsins, en Colombo er við suð-
vestanverða strönd landsins.
»Þróunarsamvinnustofnun Ís-lands hefur sinnt verkefnum
á Srí Lanka og hefur enn starfs-
menn þar. Ekki er óttast um ör-
yggi þeirra enn sem komið er.
NEFND félags-
og trygging-
armálaráðherra
um úrbætur í
húsnæðismálum
hefur skilað nið-
urstöðum sínum.
Jóhanna
Sigurðardóttir
félags- og trygg-
ingarmálaráð-
herra segir að
áður en tillögurnar verði kynntar
þurfi m.a. að skoða aðkomu sveit-
arfélaganna að framkvæmd og
fjármögnun þeirra. „Félagslegur
þáttur húsnæðismálanna snýr að
miklu leyti að sveitarfélögum og
næsta skrefið er að taka upp við-
ræður við sveitarfélögin um fjár-
mögnun. Þær niðurstöður verða að
liggja fyrir og við þurfum að skoða
málið betur í heild áður en tillög-
urnar verða kynntar opinberlega,“
segir hún. Ríkisstjórnin er nú með
tillögur nefndarinnar til skoðunar.
Spurð hvenær tillögurnar gætu
komið til framkvæmda segir Jó-
hanna að taka verði mið m.a. af
viðbrögðum sveitarfélaganna og
markaðsaðstæðum svo tryggt sé að
þær skili fólki raunverulegum
ávinningi.
Ræða við
sveitarfélög
Jóhanna
Sigurðardóttir