Morgunblaðið - 19.01.2008, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
BOBBY FISCHER
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
SÁ ÍSLENDINGUR sem
þekkti Bobby Fischer hvað
lengst er Friðrik Ólafsson
skákmeistari. Í ár eru fimm-
tíu ár liðin frá því að þeir
hittust fyrst – á skákmóti –
en þeim kom ávallt vel sam-
an frá þeim kynnum. Í seinni
tíð hittust þeir annað slagið
og fóru meðal annars yfir
skákir.
„Við áttum mikið saman að sælda á yngri ár-
um og núna þann tíma sem hann var á Íslandi,“
segir Friðrik og rifjar upp fyrstu kynnin. „Hann
kom mér vel fyrir sjónir. Nokkuð myndarlegur
strákur, þá fimmtán ára, og heilmikill töggur í
honum. Hann var með það á hreinu hvert hann
ætlaði. Ég var með sömu hugmyndir þannig að
við vorum bæði keppinautar og kunningjar.“
Friðrik og Fischer öttu oft kappi á skákvell-
inum, mest á sjötta og sjöunda áratug síðustu
aldar. Oftast nær hafði Fischer sigur í viður-
eignum þeirra eða að undanskildum tveimur
skákum. „Ég kynntist honum vel og gat því
fylgst vel með hans árangri, framförum, skákstíl
og styrkleika. Það var mér fróðlegt.“
Skoðaði að tefla gotneska skák
Eftir að Fischer kom til Íslands árið 2005
glæddist sambandið og á milli þeirra hélst gott
samband. Þrátt fyrir það segir Friðrik að þeir
hafi aldrei dregið upp taflborðið. „Hann var á
móti þessari klassísku skák sem hann taldi tölv-
una hafa eyðilagt, eða þá hugkvæmni sem menn
þurfa að beita. Sagði þetta orðið svo vélrænt.“
Í stað þess að tefla fóru þeir yfir skákir í sam-
einingu, bæði gamlar og nýjar. „Það var einnig
eitt form sem við skoðuðum og möguleikar á að
hann fengist að tefla það, gotneska skák. Við
vorum svolítið að rjátla við það, því það kom til
tals að keppa einvígi við einhvern sterkan skák-
mann í þessu tafli, en það varð nú reyndar ekki,“
segir Friðrik og nefnir að Anatoly Karpov og
Viswanathan Anand, núverandi heimsmeistari í
skák, hafi verið í umræðunni.
Friðrik segist síðast hafa hitt Fischer um ára-
mótin og þá hafi hann litið þokkalega út og verið
að braggast eftir spítaladvöl undangenginna
mánaða.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
1972 Bobby Fischer á leið inn í Laugardalshöllina til að takast á við Boris Spasskí árið 1972.
„Bæði keppinautar og kunningjar“
Friðrik Ólafsson
GUÐMUNDUR G. Þórarinsson, fyrr-
verandi forseti Skáksambands Íslands,
segist telja að sagan muni dæma
Bandaríkjamenn hart fyrir það hvern-
ig þeir komu fram við skáksnillinginn
Robert Fischer sem lést hér á landi í
gær.
„Þetta var ein skærasta stjarna
skákheimsins fyrr og síðar og það er al-
veg hörmulegt hvernig komið var fram
við hann,“ sagði Guðmundur í samtali
við blaðamann fréttavefjar Morgun-
blaðsins. „Hann var útskúfaður og hundeltur fyrir það eitt
að færa trémenn af hvítum reitum á svarta í Júgóslavíu á
grundvelli reglugerðar sem bannaði samskipti við Júgó-
slavíu. Hann er eini maðurinn sem ákærður hefur verið
fyrir brot á þessari reglugerð en vopnaframleiðendur sem
brutu gegn henni hafa ekki einu sinni verið ákærðir.“
Fékk að vera í friði
Guðmundur segir að það fyrsta sem komi upp í huga
sinn við fráfall Fischers sé gleði yfir því að stuðningshópi
hans hér á landi hafi tekist að ná honum úr fangelsi í Tókýó
og að honum skyldi vera veitt hæli hér á landi þannig að
hann gæti átt nokkur þolanleg ár undir lok ævi sinnar.
„Hann var einfari og einstæðingur en átti vini hér sem
studdu hann. Mér fannst færast ákveðin ró yfir hann fyrst
eftir að hann kom hingað enda fékk hann að mestu að vera
í friði hér. Undir það síðasta leið honum hins vegar ekki vel
og maður fann það.“
Guðmundur var einn af skipuleggjendum heimsmeist-
araeinvígisins í Laugardalshöll árið 1972 og segir það hafa
verið átakasaman tíma sem hafi reynt á alla sem unnu að
framkvæmd mótsins. „Loftið var þrungið spennu og það
gekk á ýmsu. Oftar en einu sinni riðaði öll framkvæmdin
og við héldum að við værum að missa hana út úr hönd-
unum á okkur,“ segir hann.
Allra manna hjálplegastur
Guðmundur segist þó ekki hafa haft mikil bein sam-
skipti við Fischer á þessum tíma heldur hafi hann aðallega
verið í samskiptum við lögfræðinga hans og aðstoðarmenn.
Hann hafi h.v. kynnst Fischer persónulega er hann heim-
sótti hann í fangelsið í Japan og eftir að Fischer flutti hing-
að. „Þá kynntist ég því að hans innri maður var ólíkur þeim
harða keppnismanni sem þjóðin kynntist árið 1972. Hann
var vissulega haldinn ákveðinni þráhyggju en var einnig
mikill hugsjónamaður og allra manna hjálplegastur.“
Fannst færast ákveðin
ró yfir Fischer á Íslandi
Árvakur/Sverrir
Skáksnillingur „Þetta var ein skærasta stjarna skák-
heimsins fyrr og síðar,“ segir Guðmundur um Fischer.
Guðmundur G.
Þórarinsson
ENGAR ákvarðanir hafa verið tekn-
ar um útför Bobbys Fischers en von
er á Miyoko Watai, unnustu Fisc-
hers, til landsins um helgina og
skýrast þá málin. Formaður RJF-
hópsins, sem beitti sér fyrir því að
Fischer yrði leystur úr fangelsi í
Japan, segir hann hafa átt við heilsu-
brest að stríða í töluverðan tíma.
„Við hvöttum hann mjög til þess
að láta rannsaka sig og fara í al-
mennilega læknisskoðun eftir að
hann kom til landsins. En hann var
þeirrar gerðar að hafa ekki mikla
trú á vestrænum lækningum og var
erfiður sjúklingur þannig séð,“ segir
Einar S. Einarsson, formaður RJF-
hópsins.
Talið er að dánarorsök Fischers
hafi verið nýrnabilun en hann þurfti
á aðhlynningu að halda vegna nýrna-
veiki í október sl.
RJF-hópurinn var stofnaður í
október 2004 og hafði það markmið
að frelsa Fischer og fá honum ís-
lenskan ríkisborgararétt. Á aðeins
nokkrum mánuðum náðist mikill ár-
angur og í mars 2005 var Fischer
kominn á íslenska grundu. „Ef mað-
ur lítur til baka má segja að þetta
hafi gengið hratt fyrir sig en þetta
var náttúrlega langur tími fyrir
mann sem situr í prísund í Japan út
af einhverju vegabréfi,“ segir Einar
sem þekkti Fischer ekki persónu-
lega áður en hann barðist fyrir lausn
hans. Þeim varð vel til vina fyrsta
árið eftir að hann kom hingað til
lands og höfðu haldið kunningsskap
síðan.
Árvakur/Golli
Til fundar Borís Spasskí, Alex Títomírov og Einar S. Einarsson, þegar
Spasskí kom hingað til fundar við Bobby Fischer árið 2005.
Skýrist um helgina
„AFAR sláandi var að fá þessar
fréttir. Ég átti von á því að við ætt-
um eftir að heyja marga hildi sam-
an. Ég mun mjög svo sakna hans og
vona að guð taki vel á móti honum,“
sagði Sæmundur Pálsson í samtali
við fréttavef Morgunblaðsins,
mbl.is. Sæmundur kynntist Bobby
Fischer árið 1972, þegar Fischer
háði sögulegt skákveinvígi við Bor-
ís Spasskí í Reykjavík. Vinskapur
þeirra hélst alla tíð – þótt á stund-
um væri Fischer skapmikill – og
minnist Sæmundur hans með mik-
illi hlýju.
Spurður um hvað standi upp úr á
langri tíð svaraði Sæmundur því til
að það hlyti að vera þegar honum
tókst, með dyggum stuðningi, að ná
Fischer út úr japönsku fangelsi á
vormánuðum 2005, en þar hafði
hann dúsað í níu mánuði. „Þá var
ég sérstaklega ánægður og það
stendur upp úr að hafa komið hon-
um hingað og hann hafi getað dáið
frjáls maður,“ sagði Sæmundur
sem efast um að nokkurn tíma komi
fram á sjónarsviðið annar eins
skákmaður. „Ég minnist hans sem
góðs vinar og einstaks snillings
skáksögunnar.“
Annar góðvinur Fischers, Garðar
Sverrisson, baðst undan viðtali á
þessari stundu en sagði í samtali við
Morgunblaðið að Fishcers yrði sárt
saknað.
Góður
vinur og
einstakur
snillingur
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Fylgdarmaður Bobby Fischer ræðir við aðdáendur og gefur áritun við
Bessastaði í september árið 1972. Sæmundur er honum til hægri handar.