Morgunblaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 25
>BE
99E
9<E
9?E
F
G%
>:E
99E
-
"
;=E
>BE
9<E
9@E
3
-FD
>=E
>>E
>;E
AAE
9BE
9<E
A@E
>:E
>;E
B?E
A=E
A@E
9@E
A9E
A=E
>>E
99E
9<E
>=E
9;E
=AE
;=E
9<E
9>E
;;E
:?E
;AE
=AE
;=E
ABE
ABE
;<E
9=E
9<E
;BE
9@E
9;E
9AE
9=E
99E
9AE
- F%
>AE
A<E
;?E
>AE
>AE
9@E
!1H(0'+'- '4'
I-
J3I-
40(
5!66'
7
9
*+)1? 31@A#B 6 C 5 (6" (1D,
!
!
"
#$ E63 D3F?G
E63 D3F?G % #
#
&
)%
&
.
O #
A7
. % :;(<:56==
2'
+Q
/
4<
8
-H
>
H
(
6D 'P
'
G
&$DG
I4
D'
+/ -+
-G
-
-4
'
'( 2'
4+
0(
+Q
/
4<
8
-H
>
+
0'
-!
(
RQ
6D
:A9 =;9 ;<> @;B <B?
er afstöðunni til þeirra eftir kyni
og hörundslit.
Á hinn bóginn sýndi Obama
fram á að hann getur höfðað til
hvítra - eftir að hafa hlotið aðeins
um fjórðung atkvæða þess hóps í
S-Karólínu tókst honum, eins og
dagblaðið Los Angeles Times
bendir á, að sigra Clinton í ríkjum
þar sem hvítir eru í miklum meiri-
hluta, svo sem Connecticut,
Minnesota, Utah, Norður-Dakota,
Alaska og Idaho, auk þess að
hljóta stuðning næstum annars
hvers hvíts kjósenda í Kaliforníu.
Forkosningarnar snúast um að
vinna nægjanlegan fjölda fulltrúa í
ríkjunum 50 til að tryggja útnefn-
ingu og fer það eftir kosninga-
reglum í einstökum ríkjum hvern-
ig valið ber að. Í mörgum ríkjanna
fer fjöldi fulltrúa eftir atkvæðum,
ekki eftir því hver nær meirihluta,
og þýðir gott gengi Obama því að
hann er nú með mikinn fjölda full-
trúa á bak við sig.
Ekki nógu íhaldssamur
Þótt stríðshetjan McCain sé talinn
njóta góðs af langri reynslu sinni
og sé vinsælasti frambjóðandi
repúblikana utan landsteinanna
telja nokkrir áhrifamiklir íhalds-
menn vestanhafs að hann sé með
öllu óhæfur.
Meðal þeirra er hin umdeilda
útvarpsstjarna Rush Limbaugh og
trúarleiðtoginn James C. Dobson
og hefur sá fyrrnefndi ráðlagt
hægrimönnum að kjósa frekar
Clinton en flokksbróður sinn,
McCain.
Auðvitað er allt of snemmt að
segja til um hver afstaða íhalds-
samra kjósenda og skoðanamót-
andi manna af þessu tagi verður í
haust en ef fram heldur sem horfir
má ljóst vera að andstaða þeirra
sem telja McCain of frjálslyndan
gæti orðið honum fjötur um fót í
kosningunum.
George W. Bush forseti hafði
byggt sterkar brýr yfir til ev-
angelista, mikilvægs kjós-
endahóps, þegar hann náði kjöri
árið 2000 og þyrfti McCain því að
ná mjög vel til hófsamra hægri-
manna til að eiga góða möguleika
á að sigra í kosningunum í haust,
nái hann á annað borð útnefningu
repúblikana.
Á hinn bóginn myndi McCain
skapast svigrúm til að slíðra
sverðin hjá íhaldsmönnum á með-
an Clinton og Obama berjast til
síðasta blóðdropa um útnefningu,
gangi sú atburðarás eftir.
Að samanlögðu geta Romney og
Huckabee vel við unað. Þeir eiga
enn möguleika, raunar litla, og
hefur Huckabee, fyrrum rík-
isstjóri Arkansas, komið á óvart
með sterkri útkomu á þriðjudag.
Eins og áður segir hafa heyrst
raddir úr herbúðum Romneys um
að Huckabee sé með hugann við
embætti varaforseta og sýndu for-
kosningarnar á þriðjudag fram á
að enginn skyldi vanmeta þann
síðarnefnda, frambjóðandann með
litla kosningasjóðinn en ríka
trúarsannfæringu og mælskulist.
Erfitt verður fyrir Romney,
sem varð fyrir miklum von-
brigðum með útkomuna í Kali-
forníu, að draga nóg fylgi frá
McCain og Huckabee, jafnvel þótt
þekking hans á viðskiptalífinu falli
mörgum repúblikönum vel í geð.
Sveiflan er með McCain og þótti
stefið úr kvikmyndinni Rocky,
sem leikið var er hann gekk inn í
Arizona Biltmore-hótelið í fyrra-
dag, minna á að þar fer harð-
skeyttur og baráttuglaður fram-
bjóðandi.
rnar á þriðjudag myndu tryggja útnefningu hans sem
ss enn um sinn, en spennan er mun meiri hennar megin.
ær, spennan
mókrötum
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 25
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
Líf og fjör hefur verið und-anfarið í gamla Mjólkur-samlagshúsinu í Borgar-nesi. Þar hafa farið fram
æfingar fyrir gamanóperuna Sí-
gaunabaróninn sem frumsýnd
verður í kvöld, en sýningin er ein af
þeim fyrstu sem settar eru upp í
húsinu eftir að hafist var handa við
að gera það upp. Húsið var teiknað
af Guðjóni Samúelssyni en um tíma
stóð til að rífa það. Haustið 2005
keyptu hjónin Páll Björgvinsson
arkitekt og Áslaug Þormóðsdóttir
húsið og hafa þau látið gera það
upp.
Húsið var í niðurníðslu þegar
Páll og Áslaug keyptu það en þá
var búið að taka það af deiliskipu-
lagi bæjarins. „Við keyptum húsið
til þess að bjarga því, enda var
komið að niðurrifi. Ég sem arkitekt
ga ekki hugsað mér að húsið yrði
rifið, enda sá ég strax mikla nýting-
armöguleika fyrir það,“ segir Páll.
Páll segir að gríðarlega mikil
vinna hafi farið í að lagfæra húsið.
Frá því að þau hjónin keyptu það
hafi verið stefnt að því að þar yrði
listamiðstöð fyrir innlenda og er-
lenda listamenn. Hugmyndin hafi
verið að listamenn gætu komið og
unnið að list sinni í húsinu og fengið
þá bæði íbúð til þess að dveljast í
og verkstæði og vinnusali.
Gert er ráð fyrir að í húsinu verði
fimm íbúðir og eru tvær þeirra svo
að segja tilbúnar og verða leigðar
út fyrst í stað. „Svo verða þarna
fjölnotasalir og einn stór sýning-
arsalur í gamla mjólkursamlags-
salnum,“ segir Páll. Sá salur sé
einn af fáum iðnaðarsölum sem eft-
ir eru á Íslandi frá þessum tíma og
sennilega sá eini heillegi sem til er
og teiknaður var af Guðjóni Sam-
úelssyni.
Páll segir að vel miði við að gera
húsið upp. „Gamla húsið sjálft er
tilbúið að utan hvað þrjár hliðar
varðar, búið er að skipta þar um
alla glugga og gera við steypu-
skemmdir og pússa það upp ásamt
því að fjarlægja þakið sem fyrir var
og setja nýtt í staðinn,“ segir Páll.
Um þessar mundir er verið að
vinna í að lagfæra húsið að innan.
Auk íbúðanna tveggja sem eru til-
búnar er stóri salurinn kominn í
gagnið þótt hann sé alls ekki end-
anlega endurgerður en þar verður
Sígaunabaróninn nú settur upp.
Rými er fyrir 80-90 gesti í salnum.
Páll segir að mesta vinnan hafi
falist í því að lagfæra ytra byrði
hússins, sem hafi þurft á mikilli við-
gerð að halda. Húsið var klætt að
utan og segir Páll að á sínum tíma
hafi staðið til að rífa húsið. Þá hafi
Ólafur Sverrisson, sem var kaup-
félagsstjóri í Borgarnesi, látið
breyta því í verslun. Þá var húsið
klætt að utan og nýtt þak sett á
það. „Það var í raun hann sem
bjargaði húsinu því með þessu var
húsinu pakkað inn og svo beið það
síns tíma þar til aftur var hafist
handa við að gera það upp vorið
2006,“ segir Páll. „En það var gríð-
arlega mikið verk að rífa utan af
húsinu og hreinsa það af þeim efn-
um sem var búið að dæla á það
jafnt utan sem innaní.“
Páll segir ekki ákveðið hvað tek-
ur við í salnum að lokinni sýningu á
Sígaunabaróninum. „ Ekki er
reiknað með að frekari starfsemi
fari fram í salnum fyrr en að end-
urgerð lokinni, nema einhverjir
aðrir listamenn hafi þörf fyrir að fá
hann að láni í stuttan tíma. Við
sjáum hvað setur,“ segir hann.
Það eigi við um fyrrum mjólk-
ursamlagið sem og önnur gömul
hús sem misst hafa hlutverk sitt, að
mikilvægt sé að húsið fái hlutverk
og það sem allra fyrst.
Fyrsta óperusýningin
í Borgarnesi
Sígaunabaróninn, sem sýndur
verður í húsinu á næstunni, er
fyrsta óperusýningin sem sett er
upp í Borgarnesi, að sögn Theó-
dóru Þorsteinsdóttur skólastjóra
Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Hún
hefur kennt söng í 20 ár og segir
það hafa verið draum sinn frá því
að hún hóf kennsluna að setja upp
óperu í bænum. Sér hafi þótt til-
valið að láta verða af því á 40 ára
afmæli skólans, sem nú er fagnað.
Spurð hvers vegna ákveðið hafi
verið að setja sýninguna upp í
þessu húsi segir Theódóra að þegar
ákveðið hafi verið að setja upp sýn-
inguna hafi aðstandendur hennar
leitað fyrir sér með húsnæði. „Ég
fór ásamt Ásu Hlín Svavarsdóttur
leikstjóra og Garðari Cortes tón-
listarstjóra og skoðaði húsið í
fyrravor. Þeim leist mjög vel á hús-
ið og ákveðið var að athuga hjá eig-
endunum hvort þetta væri mögu-
leiki. Þeir tóku því mjög vel,“ segir
hún. Umgjörðin um sýninguna í
Mjólkursamlagshúsinu sé afar að-
laðandi og fundin hafi verið mjög
góð lausn á nýtingu hússins með
því að nýta það í starfsemi sem
þessa. „Húsið er bæjarprýði,“ segir
Theódóra.
Æfingar fyrir sýninguna hófust
af krafti í haust. „Margir þeirra
sem eru í sýningunni hafa verið
duglegir að hjálpa til við að útbúa
sviðið og aðstöðuna inni fyrir okk-
ur,“ segir Theódóra. Hún segir
sýninguna koma afar skemmtilega
út í salnum og að fallegur leikhús-
stíll sé yfir honum. Salurinn henti
líka vel til söngs. „Það er mikill
hljómur í honum og hátt til lofts,“
segir Theódóra.
Þeir sem taka þátt í sýningunni
eru allir Borgfirðingar, en þátttak-
endur eru vel á fjórða tuginn. „Eini
utanaðkomandi maðurinn er Garð-
ar Cortes [tónlistarstjóri],“ segir
Theódóra. Bæði börn og fullorðnir
taka þátt og er fólkið búsett víða í
Borgarfirði, eða allt frá Borgarnesi
og upp í Hálsasveit.
Mikill söngáhugi
Theódóra segir mikinn söng-
áhuga í Borgarfirði. „Hér býr
margt fólk sem tekur þátt í söng-
starfi, er í kórum eða er að læra að
syngja,“ segir hún.
Stefnt er að því að sýna Sígauna-
baróninn a.m.k. sex sinnum. Verkið
er eftir Johann Strauss og segir
Theódóra sýninguna vera kröftuga
og tónlistina jafnframt fallega.
„Þetta er blanda af söng og tali og
gengur út á að vera fyndið.“
Árvakur/Olgeir Helgi Ragnarsson
Fyrsta óperusýningin Gamanóperan Sígaunabaróninn æfð í Mjólkursamlagshúsinu í Borgarnesi. Er þetta
fyrsta óperusýningin sem sett er upp í bænum. Þeir sem taka þátt í sýningunni eru allir Borgfirðingar.
Mjólkursamlagið
í notkun að nýju
Í HNOTSKURN
»Gamla Mjólkursamlags-húsið var reist í nokkrum
hlutum.
»Mjallarhúsið, sem varfyrsta húsið, var byggt ár-
ið 1925. Byggður var vélasal-
ur árið 1932. 1935 var svo
gamla Mjallarhúsið end-
urbyggt.
»Viðbyggingar voru reistar1937 og 1939. Þá var
byggt við húsið 1961 en sú við-
bygging hefur verið fjarlægð.
Bæjarprýði Mjólkursamlagshúsið í Borgarnesi, teiknað af Guðjóni Sam-
úelssyni. Um tíma stóð til að rífa húsið og það var í niðurníðslu.
i sitt í ýmsum ríkjum á síðustu metrunum fyrir
ag en óvíst er að sveiflan muni duga þegar upp
fulltrúaatkvæði í boði hjá demókrötum en þeim
yggja útnefningu. Atkvæði 3.253 fulltrúa ráðast
gunum, 796 „ofurfulltrúar“ (e. superdelegates)
þeir velja og eru þingmenn og ríkisstjórar í
ngu Real Clear Politics hefur Clinton stuðning
127.
með fleiri
ltrúa“
gismenn Johns Edwards, sem dró framboð sitt
i til að styðja Obama en Clinton.
atkvæði á flokksþingi repúblikana í Vestur-
umferðinni marði Huckabee sigur eftir að
ns kusu hann og fullyrtu stuðningsmenn Rons
erið við þá um að styðja Huckabee.
ýkur með kjöri flokksþings repúblikana í Ne-
ðan tekur við landsþing demókrata í Denver
ng repúblikana í Minnesota 1.-4. sept.
fram 4. nóvember á hausti komanda en þá
enn kjósa til þings og sinn 44. forseta.