Morgunblaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 31 Það þyrmdi yfir okkur fyrir rúm- um þremur árum þegar ljóst varð að Unnur var haldin ólæknandi sjúk- dómi. Þegar ég heimsótti hana á sjúkrahúsið eftir aðgerð tók hún brosandi á móti mér og sagði að hún vissi að hún byggi yfir mikilli orku. Þessa orku ætlaði hún að nota til þess að hafa það skemmtilegt lengi. Hún tókst á við veikindin af miklu æðruleysi. Hún hélt áfram að ferðast með Sveini og njóta útivistar í gönguferðum, við veiðar og á skíð- um, alltaf jafn glaðleg og jákvæð. Brúðkaupið þeirra fyrir um 20 mán- uðum var einstaklega skemmtilegt. Skömmu síðar boðuðu þau komu sína á bóndabæ okkar hjóna austur á landi. Við vorum ekki á staðnum en drifum okkur af stað með næsta flugi. Þau voru komin á undan okkur, búin að fara í góða göngu og voru langt komin með að elda dýrindis kvöldmat með frumlegu ívafi. Unnur var ekki aðeins listamaður á sviði tónlistar. Þau Sveinn byggðu glæsilegt hús í Garðabæ sem þau innréttuðu af listfengi. Þau buðu okkur hjónunum í hádegisverð í haust. Borðið var hlaðið girnilegum veitingum sem Unnur hafði sjálf lag- að. Meðal veitinganna var stórt hringlaga brauð með innbakaðri fyll- ingu úr litskrúðugu grænmeti og ostum, sannkallað listaverk sem mig skortir orð til að lýsa. Við kveðjum nú yndislega konu sem kom inn í fjölskylduna eins og ferskur andblær með sínum dillandi hlátri og hlýju nærveru. Þótt sorgin sé nú sár mun smitandi hlátur henn- ar og gleði bera hæst í minningunni. Það er einlæg von okkar og bæn að minningarnar hjálpi Sveini og Gunn- ari Má syni Unnar að vinna úr sorg- inni. Blessuð veri minning Unnar. Guðrún Sveinsdóttir. Nú er mín kæra frænka, Unnur Fadila Vilhelmsdóttir, fallin frá eftir erfið veikindi. Það er mikil missir fyrir okkur öll. Unnur var allt í senn, skemmtileg og hlý frænka, afburða listamaður og kennari, auk þess að vera fyrirmyndar foreldri og hús- móðir. Ég man fyrst eftir Unni þegar hún kom í heimsókn til okkar fyrir norð- an sem unglingur. Þá kynntist ég röggsemi Unnar fyrst, það var góður tími. Unnur var þá fremst í flokki af okkur krökkunum og þá var margt skemmtilegt brallað. Svo seinna þeg- ar mér bauðst að heimsækja þau í Keilufellið, þá voru kynnin endur- nýjuð og fram kom hve öguð Unnur var. Unnur lét píanóæfingarnar sitja fyrir öllu, hún var mín fyrirmynd. Kynni okkar Unnar endurnýjuð- ust á svo skemmtilegan máta fyrir nokkrum árum þegar við bjuggum báðar í Vesturbænum. Við náðum vel saman og höfðum töluverðan fé- lagsskap af hvor annarri. Maður kom aldrei að tómum kofanum hjá Unni, hún gat galdrað fram ilmandi brauð með lítilli fyrirhöfn. Síðan kynntist Unnur Sveini og ég man eftir hve hamingjusöm hún var með það, þau voru myndarlegt par og brúðkaupið glæsilegt. Unnur og Sveinn buðu mér reglu- lega í heimsókn í Garðabæinn eftir að þau fluttu þangað og þá var kátt á hjalla. Við Unnur hlógum mikið sam- an, oft af litlu tilefni. Unnur reyndist fyrirmyndar húsmóðir, eins og heim- ilið í Garðabænum bar merki. Það var síðan í desember að þau hjónin komu í mat til mín og við átt- um ánægjulega kvöldstund saman, Unnur lék á als oddi og ekki hvarfl- aði að mér þá að þetta yrði okkar síð- asta ánægjustund saman. Ég sakna þín, Unnur. Ég sendi Sveini og öðrum að- standendum Unnar innilegar sam- úðarkveðjur. Helga Kristjánsdóttir. Það er erfitt að sætta sig við það þegar ungu og gáfuðu fólki er svipt burtu af sjónarsviðinu langt um ald- ur fram. Unnur Fadila Vilhelmsdótt- ir lést sunnudaginn 27. janúar eftir langa og hetjulega baráttu við illvíg- an sjúkdóm. Sú stund er ég sá Unni fyrst fyrir mörgum árum stendur mér enn í fersku minni. Heimsþekktur píanó- leikari var að halda námskeið í sal Tónlistarskólans í Reykjavík. Er ég leit yfir áheyrendahópinn komst ég ekki hjá því að sjá fallegt og gáfulegt andlit stúlku sem ljómaði af áhuga, reiðubúin að meðtaka allt sem fram færi. Ég komst að því hver þessi stúlka var er hún varð nemandi minn í píanóleik. Það var haustið 1984 sem samvinna okkar Unnar hófst, en þá hafði hún þegar fengið góða og sterka undirstöðu í píanóleik hjá Málfríði Konráðsdóttur. Ég er forsjóninni þakklátur að hafa fengið að kynnast Unni. Auk tónlistarhæfileika sinna var hún fluggáfuð, vel að sér í bókmenntum og bjó þegar að talsverðri lífs- reynslu. Það var því gaman í tímum okkar, því auk þess að glíma við tækni- og túlkunarhliðar píanóleiks- ins var margt rætt því tengt, sem stundum opnaði dýpri skilning á við- komandi verki. Á milli okkar varð til dálítið sérstakur húmor og stundum mikið hlegið. Auk þess að ljúka pí- anókennaraprófi árið 1990 bauð skólinn henni að leika píanókonsert nr. 2 eftir Sjostakóvítsj sem hún lék á eftirminnilegan hátt með hljóm- sveit skólans. Ári síðar lauk hún glæsilegu einleikaraprófi, en á efnis- skrá tónleika hennar voru m.a. són- ata Beethovens í c-dúr op. 2 nr. 3, g- moll sónata Schumanns og Estam- pes eftir Debussy, en hún valdi píanókonsert í b-dúr K 456 eftir Mozart sem hún mat mikils til að leika með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands. Þetta sama ár kom hingað til lands bandarískur píanóleikari, William Black, til að leika 4. píanó- konsert Rachmaninoffs. Með okkur tókust góð kynni og fór Unnur síðar til Bandaríkjanna til náms hjá hon- um við Tónlistarháskólann í Cincin- nati. Námsstaða Unnar var það vel metin, að hún fór beint í meistara- nám og doktorsprófi lauk hún nokkr- um árum síðar. Það var mikill hugur í Unni er hún snéri heim að námi loknu, svo að hún fór ekki aðeins að starfa sem kennari og meðleikari í Tónlistarskóla Kópa- vogs, heldur undirbjó hún einnig ein- leikstónleika. Verkin nú voru ekki af léttara taginu. Nokkur þeirra komu síðar út á geisladisk, en þar má nefna fjórðu ballöðu Chopins og áttundu sónötu Prókofíeffs. Það hélst ávallt samband á milli okkar Unnar eftir heimkomuna, hún tók t.d. við for- mannsstöðu EPTA (Evrópusam- bands píanókennara) á Íslandi 1999, en á þeim vettvagi hafði ég áður starfað í allmörg ár. Það sýndi dugn- að hennar og framsýni, að hún stóð að því ásamt meðstjórnendum sín- um, Arndísi Björk Ásgeirsdóttur og Sigrúnu Grendal, að hleypa af stokk- unum píanókeppni EPTA sem hefur mælst svo vel fyrir, að þar verður örugglega framhald á. Í einkalífi sínu var Unnur sann- arlega lánsöm að kynnast einstak- lega góðum manni, Sveini Bene- diktssyni, en þau giftu sig snemma sumars 2006. Það er huggun harmi gegn að vita, að þau Unnur og Sveinn áttu hamingjuríka daga sam- an. Síðastliðið sumar og í haust var Unnur að undirbúa verk fyrir ein- leikstónleika, enn og aftur með kröfuhörðum verkum. Allt virtist á góðri leið er ég heyrði hana leika verkin, nú síðast í haust, en hún stefndi að tónleikum í janúar. Þá tók fyrrnefndur sjúkdómur sig upp aftur varð að lokum yfirsterkari, en stund- um virtist hún vera að ná yfirhend- inni bæði með hjálp lækna og ekki síst með óbilandi elju sinni og vilja- krafti. Við hjónin sendum Sveini og Gunnari Má, syni Unnar, okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Halldór Haraldsson. Kveðja frá Tónlistarskóla Kópavogs Fyrir hönd fyrrverandi samstarfs- fólks Unnar Fadilu Vilhelmsdóttur við Tónlistarskóla Kópavogs rita ég örfá kveðjuorð. Unnur starfaði sem píanókennari og meðleikari við skólann í áratug og var kröftugur liðsmaður meðal kenn- arahópsins. Hún ræktaði gott sam- band við nemendur sína og hafði metnað fyrir þeirra hönd. Hún var áhugasöm um starf sitt og vann það af ábyrgð og samviskusemi. Unnur hafði létta lund og var frískleg í allri framgöngu. Samskipti hennar við nemendur og starfsfélaga báru alla tíð vott um hennar jákvæða viðhorf. Hennar verður sárt saknað af sam- starfsfólki sem nú sér á eftir kærum félaga. Fyrir hönd skólans, starfsfólks hans og nemenda þakka ég ánægju- lega samfylgd og vel unnin störf. Eiginmanni, syni og fjölskyldunni allri sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Unnar Fadilu Vilhelmsdóttur. Árni Harðarson, skólastjóri. Elskulega og fallega vinkona okk- ar, hún Unnur, kvaddi þennan heim að kvöldi dags 27. janúar síðastlið- inn. Við sjö ólíkar stelpur sem stund- uðum nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti; Alla, Gunna G., Gunna Þ., Jóga, Stebbý, Sylvía og Unnur, stofnuðum saman saumaklúbb fyrir liðlega þrjátíu árum. Fortíðarþræðir okkar vinkvenna eru því langir og hlykkjóttir og verða þeir ekki rifj- aðir upp í þessari stuttu grein. Við geymum þá í hjarta okkar og tjáum hver á sinn máta. Við vinkonurnar viljum hér sam- eiginlega þakka fyrir allt sem Unnur kenndi okkur og gaf með sinni sér- stöku nærveru og ekki síst hlýrri og einlægri framkomu. Enda kom hún frá elskulegu heimili þar sem bjarta brosið og hlýja höndin hennar Ásu móður hennar var í okkar huga í að- alhlutverki. Við sem eftir sitjum í sauma- klúbbnum erum líka þakklátar fyrir að Unnur var ein af okkur og fyrir þessi síðustu ár með henni, þar sem við tengdumst enn sterkari böndum. Það var ekki síst að þakka vikulegum gönguferðum sem Unnur kom á í okkar hópi eftir að sjúkdómur henn- ar greindist á ný. Þar var hún að- alvítamínsprautan, mætti í öllum veðrum, rigningu og roki og lýsti það vel kraftinum í henni og skaplyndi. Hún bauð veðri og vindum birginn þrátt fyrir að hún væri misvel upp- lögð. Unnur var sterk allt til hins síð- asta. Við vissum að Sveinn stóð á bak við hana og verkin hennar, ástkær eiginmaður sem studdi hana í einu og öllu. Skarðið sem Unnur skilur eftir sig hjá honum, augasteininum hennar honum Gunnari Má og fjöl- skyldunni allri er stórt og við vottum þeim okkar dýpstu samúð. Þú sem heyrir hrynja tár, hjartans titra strengi, græddu þetta sorgarsár, svo það blæði’ei lengi. (Erla) Við biðjum góðan Guð að styrkja og styðja okkur öll. Saumaklúbburinn. Unnur er eiginlega of stór persóna fyrir mér til að hægt sé að skrifa ein- falda minningargrein um hana. Langar samt að skrifa það sem kem- ur í hugann. Við áttum mjög náið vinkonusam- band sem unglingar. Við vorum skrítnar skrúfur og svolitlir nördar. Við þurftum ekki að segja brandara til að springa úr hlátri. Aðeins horf- ast í augu og hugsa eitthvað fyndið og við það fengum við hláturskast. Eitt og annað brölluðum við sam- an og eitt af því var að fara fimmtán ára á framkomunámskeið hjá Unni Arngríms. Okkur fannst það seinna svo mikil tilgerð og húmbúkk að við rifum diplómað við hátíðlega athöfn. Ég held nú að þrátt fyrir það hafi það kennt okkur ýmislegt þarflegt. Við börðumst í sjálfsmyndarkreppu á milli þess að vera hippar eða skvís- ur. Vorum með annan fótinn í Fjala- kettinum og hinn í jazzballett. Þó að leiðir lægju að ólíkum hugð- arefnum þegar við urðum eldri viss- um við alltaf hvor af annarri. Við héldum tengslum í gegnum saumó og svo vorum við saman þegar við eignuðumst börn með mánaðar milli- bili 1986. Þá sátum við á Hressó með ungana okkar sumarið eftir. Hún með Gunnar Má, ég með tvíburana mína Tobba og Völu og auðvitað fékk stóra systir, Eva dóttir mín, að fylgja með. Þar gleymdum við okkur oft í einhverju rabbi eða við skoðun mat- reiðslubóka eða tískublaða. Unnur kenndi mér svo margt, eins og hvernig ætti að taka hrósi, enda var hún svo dugleg að gefa hrós. Hún hafði þann eiginleika að taka eftir hinu góða hjá fólki og sjá hið fallega í veröldinni. Þegar við vorum unglingar vorum við að æfa saman á stofugólfinu ein- hvers konar flikkflakk, heljarstökk. Unnur lenti á bakinu og gat illa stað- ið upp. Ég dró þá fram bókina Gróð- ur í gjósti og las upphátt fyrir okkur um sérvitra en klára stelpu og bóka- orm sem ólst upp við erfiðar aðstæð- ur. Smám saman gleymdist bakið og við héldum áfram við æfingarnar eins og ekkert hefði í skorist. Unnur átti margt sameiginlegt með þessari viljasterku stelpu í gjóstinum. Hún fékk nýja vindhviðu til að berjast við þegar ein var farin framhjá. Hún var ótrúlega seig og elskaði að sigra, vann þá marga en síðasta hviðan reyndist henni um of. Hún átti þrátt fyrir þennan mót- vind fallegt og innihaldsríkt líf. Hún hafði tónlistina sem gaf henni svo mikið og var hún auðvitað eldklár pí- anóleikari. Elskulega fjölskyldu og síðar einnig tengdafjölskyldu sem reyndist henni og hinum fluggreinda syni hennar, honum Gunnari Má, einstaklega vel. Síðast en ekki síst fann hún stóru ástina með honum Sveini, en kærleikurinn þeirra á milli var djúpur og áberandi laus við alla tilgerð. Unnur var og verður mikilvæg manneskja í mínu lífi og okkar allra sem kynntumst henni og ég þakka fyrir að leiðir okkar lágu saman í upphafi og trúi því einlæglega að þær muni liggja saman á ný og við förum þá aftur í okkar flikkflakk, heljarstökk! Guð geymi þig Unnur mín og verndi og styrki allt þitt ynd- islega fólk. Jóhanna Magnúsdóttir (Jóga). Elsku vinkona mín til þrjátíu ára hún Unnur er dáin. Með hjartað fullt af sorg verður mér hugsað til baka. Vinkonurnar sjö saman í menntaskóla, fullar for- vitni og bjartsýni unglingsáranna. Unnur var alltaf stór hluti sauma- klúbbsins, einlægni hennar og hlýja á eftir að lifa í minningunni alla tíð. Hún var metnaðargjörn og dugleg án þess nokkurn tíma að stæra sig af eigin afrekum sem voru mörg, af- burða námsmaður og hæfileikaríkur tónlistarmaður. Ég man vel þegar við Unnur komum í eitt sinn úr ís- lenskuprófi, henni fannst að sér hefði ekki gengið nægilega vel og táraðist Sjá næstu síðu  ✝ Kæru vinir og vandamenn, þökkum ykkur öllum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, FRIÐÞJÓFS HRAUNDALS, fv. rafmagnseftirlitsmanns, Guðmundur Antonsson, Ómar Friðþjófsson, Friðþjófur Friðþjófsson, Berglind Friðþjófsdóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR JENSDÓTTUR ÞÓR. Guðrún Þór, Jónas Þór, Anna Bára Árnadóttir, Ólöf Helga Þór, Björn Marteinsson, Arnaldur Þór Jónasson, Jóhanna Jóhannesdóttir, Katrín Sif Þór, Elsa María Þór, Magnús Eyjólfsson, Gunnar Sveinn Magnússon, Inga Hrönn Kristjánsdóttir og barnabarnabörn. ✝ Kveðjuathöfn um bróður okkar, KRISTJÁN ÁRNASON frá Kistufelli, síðar á Skálá í Sléttuhlíð, verður haldin á Dvalarheimili aldraðra á Sauðár- króki í dag, fimmtudaginn 7. febrúar, kl. 16.30. Útförin fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 16. febrúar kl. 14.00. Jarðsett verður að Lundi. Systkini hins látna. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og dóttir, GUÐRÚN GÍGJA INGVARSDÓTTIR, Fossheiði 17, lést á Landspítalanum að morgni 6. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Magnús Gunnarsson, Ingvar Magnússon, Ragnheiður Magnúsdóttir, Hjalti Magnússon, Sveinfríður H. Sveinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.