Morgunblaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 36
AFRAKSTUR af hinni árlegu sölu Thor- valdsensfélagsins á jólamerki ársins 2007 rann að þessu sinni til styrktar blindum og sjónskertum börnum. Barnauppeldissjóður Thorvaldsensfélagsins var stofnaður árið 1906 og hefur næstum óslitið síðan gefið út jólamerki sem skreytt hafa jólapóstinn. Helstu listamenn þjóðarinnar hafa lagt fram myndir sínar til styrktar málefninu og um leið lagt sinn skerf til listasafns sjónlista í landinu. Sjóðurinn blind börn á Íslandi hefur það að markmiði að styrkja blind og sjónskert börn til kaupa á ýmsu því sem getur orðið þeim til aukins þroska og ánægju í lífinu. Með þessu mynd- arlega framlagi Thorvaldsenskvenna mun sjóðurinn nú geta styrkt blind og sjónskert börn til fartölvukaupa sem skipta sköp- um þegar kemur að námi og starfi í nútímasamfélagi, segir í fréttatilkynningu. Styrkur Ragnar R. Magnússon, for- maður sjóðsins, tekur við gjöfinni úr hendi Sigríðar Sigurbergsdóttur, formanns Thorvaldsensfélagsins. Thorvaldsensfélagið styrkir blind og sjónskert börn 36 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Barnavörur Nú er frost á Fróni Hlý, undurmjúk ullarnærföt fyrir kalda kroppa. Barna- og fullorðinsstærðir. Þumalína, efst á Skólavörðustígnum. Sími 551 2136. www.thumalina.is Bækur Kaupi bækur Kaupi bækur og bókasöfn Upplýsingar í síma 898 9475. Heilsa REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI STREITU- OG KVÍÐALOSUN. Notuð er m.a. dáleiðsla og EFT (Emotional Freedom Techniques). Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur, sérfræðingur í EFT, sími 694-5494, www.EFTiceland.com. Mikið úrval fæðubótarefna Prótein - Kreatín - Glútamín - Gainer Ármúla 32. Sími 544 8000 Opið mán.-fös. frá kl. 10-18. Lr- kúrinn er tær snilld Viltu vita hvernig ég léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuðum? Aukin orka, vellíðan og betri svefn. www.dietkur.is - Dóra, 869 2024. Húsnæði í boði Lúxusíbúð í Florida til leigu! Höfum til leigu 3 herbergja íbúð í hjarta Orlando, 5 mín akstur frá öllum helstu skemmtigörðum, 8.500 kr nóttin. Myndir á http://www.evesta. is/Vacation-Rentals/34716.aspx og í síma 895 2489. 4ra herb. íb. við Baugakór í Kópa- vogi til leigu frá og með 1. mars 4ra herbergja íbúð á jarðhæð við Baugakór í Kópavogi til leigu. Stæði í bílageymslu fylgir. Uppl. í síma 820 2508. Húsnæði óskast Ungt par leitar að íbúð Ungt par með eina litla stelpu og aðra væntanlega á næstu vikum óskar eftir huggulegri íbúð m/a.m.k. 2 svefnherb. staðs. á höfuðborgarsv. Skoðum öll tilb. Má vera pínu-ódýr líka. S. 849 6543. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Microsoft-kerfisstjóranám MCSA-kerfisstjóranámið hefst 25. febr. Nýr Windows Vista áfangi. Nokkur sæti enn laus. Upplýsingar á www.raf.is og í síma 863 2186 (Jón). Rafiðnaðarskólinn. Tómstundir Föndurverkfæri í úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid.is. Til sölu Stórir skór.is hætta 30% afsláttur af öllum dömuskóm í stærðum 42-44 og herraskóm í stærðum 47-50. Opið í dag kl. 16-18.30. Ásta skósali, Súðarvogi 7, sími 553 60 60. Þjónusta Raflagnir og dyrasímaþjónusta Setjum upp dyrasímakerfi og gerum við eldri kerfi Nýlagnir og endurnýjun raflagna. Gerum verðtilboð Rafneisti sími 896 6025 lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Tískuverslunin Smart, Grímsbæ/Bústaðavegi Tilboð Góðir kuldaskór. Litur: svart, brúnt. St. 36 – 41. Verð áður kr. 9.900 kr. Verð nú kr. 6.990 kr. s. 588 8050. Tískuverslunin Smart, Grímsbæ/Bústaðavegi Skyrtubolir. 4 litir St. 42 – 56. Verð kr. 3.990. s. 588 8050. Vélar & tæki Til leigu með/án manns. Gerum einnig tilboð í hellulagnir og drenlagnir. Upplýsingar í síma 696 6580. Bílar Toyota Coroll Verso, 7 manna, '05 Toyota Corolla Verso, 7 manna, árg. 2005. Frábær fjölskyldubíll, ek. 35 þús. km, dráttarkrókur, þjónustbók, einn eigandi, verð 1.9 millj. Uppl. í síma 660 9607. Toyota Carina 2.0 árg. 1996 Sjálfskiptur, ekinn 153.000. Verð 320.000. Uppl. í s. 820 7378. Til sölu Nissan Terrano ´96 6 cyl., sjálfskiptur, rafmagn í rúðum, stillanlegar fjaðrir og skipting, topp- lúga, krókur. Útsöluverð 190 þús. stgr. Uppl. í s. 847 8432. Opel Corsa 1.2 Comfort Skráður 2001. Ekinn 115 þús. km. Nýskoðaður. Verð kr. 400 þúsund. Upplýsingar í síma 848 2146. Opel árg. '97 ek. 152 þús. km Vel með farinn Opel Astra á 190 þús. Upplýsingar í síma 893 2203 eða 694 8615. Sumar- og vetrardekk. MMC GALANT, ÁRGERÐ 1999 2,0, ssk., ekinn aðeins 69 þús. , nýtt í bremsum. Mjög vel með farinn. Vel búinn bíll í toppstandi. Uppl. í síma 866 9266. Landrover Discovery XLS til sölu. Árg. 1997, ekinn 148 þús. km. Bensín, V8, beinskiptur. Toppeintak. Verð kr. 300 þús. Uppl. í s. 893 8183, Þórður. Jeep, árg. '01 Hörkufínn og reisulegur 6 cyl. jeppi í toppástandi. Leðursæti, upphækkun, ekinn 75 þ. mílur. Ásett verð 1.770 þús. Tilboð 1.420 þ. S. 820 0864. Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza 2006, 4 wd. Öruggur í vetraraksturinn. Akstursmat og endurtökupróf. www.bilaskoli.is Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042. Í sundið eða sólina: Ofsa flott bh í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 5.665,- Mjög smart ”slå om” pils í stíl í stærðum S,M,L á kr. 3.995,- Tankini í D,DD,E,F,FF skálum á kr. 8.985,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán-fös 10-18, lau 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is. SELDUR HÁDEGISFYRIRLESTUR í boði Rannsóknastofu í vinnuvernd um vinnu í opnu rými verður haldinn föstudaginn 8. febrúar kl. 12.15-13.15 í Háskóla Ís- lands, Odda, stofu 101. Í fréttatilkynningu er spurt hvaða kostir og gall- ar fylgja því að vinna í opnu rými? Hvaða máli skiptir hljóðhönnun? Er hægt að taka tillit til ólíkra þarfa einstaklinga? Er vinnuandinn ólíkur meðal starfsmanna sem vinna í opnu rými og þeirra sem vinna á lokuðum skrif- stofum? Þetta er meðal þess sem Ólafur Hjálmarsson fjallar um í fyrirlestri sem hann nefnir: Samspil hljóðhönn- unar og menningar á vinnustað. Í fyrirlestrinum mun Ólafur fara yfir reynslu sína af hljóð- hönnun vinnustaða, hvaða sjónarmið hefur þurft að sætta og hvernig útkoman hefur verið. Hann hefur áratuga reynslu af ráðgjöf á þessu sviði og er verk- fræðingur hjá Trivium ráð- gjöf ehf og varaformaður Vinnuvistfræðifélagsins – VinnÍs. Fyrirlestur um vinnu í opnu rými MIREYA Samper var endur- kjörin formaður Vinstri grænna í Kópavogi á aðal- fundi félagsins í lok janúar. Aðrir í stjórn eru Guðbjörg Sveinsdóttir, Helgi Jóhann- esson, Andri Erlingsson og Ásdís Jóhannesdóttir. Vinstri græn hafa fest kaup á hús- næði í Hamraborg 1 í Kópa- vogi og verða þar opnir bæj- armálaráðsfundir á hverju mánudagskvöldi kl. 20. Þar verður einnig opið hús fyrsta fimmtudagskvöld í hverjum mánuði með léttum málsverði og skrafi og skemmtun. Næst verður mexíkönsk kjúklingasúpa í pottinum, í dag, fimmtudag- inn 7. febrúar, og mun Ög- mundur Jónasson þingmaður spjalla við gesti um stjórnmál og stöðuna í kjaramálum. All- ir eru velkomnir. Endurkjörin formaður VG í Kópavogi FRÉTTIR VERKFRÆÐIN í heimi framtíðarinnar er heiti fundaraðar sem verk- fræðideild HÍ efnir til á vor- misseri. Fyrsti fundurinn af sex verður í dag, fimmtu- daginn 7. febrúar, kl. 16 í stofu 157 í húsi verk- fræðideildar, Hjarðarhaga 6. Ber hann yfirskriftina: Þróun verkfræði á Íslandi í seinni tíð. Fyrsta fundinum er ætlað það hlutverk að skýra þróun verkfræði á Íslandi í seinni tíð og leggja þrír fyrirles- arar fram skerf til þess. Fyrst mun Ebba Þóra Hvannberg, forseti verk- fræðideildar HÍ, greina frá niðurstöðum erlendra út- tekta á deildinni. Þá mun Logi Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Verk- og Tæknifræðingafélaganna, greina frá úttekt sinni á þró- un fjölda verkfræðinga eftir greinum. Þriðji í röðinni er Helgi Þór Ingason, dósent í verkfræðideild HÍ. Hann mun segja frá umfangsmik- illi vinnu að stefnumótun í deildinni undanfarin ár. Loks munu tveir stúd- entar flytja stuttar hugleið- ingar sínar um framtíðina. Fundarstjóri verður Magnús Gíslason, stjórnarmaður í Verkfræðingafélagi Íslands. Fundirnir eru öllum opn- ir. Verkfræðin í heimi fram- tíðarinnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.