Morgunblaðið - 09.02.2008, Síða 1
STOFNAÐ 1913 39. TBL. 96. ÁRG. LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
JÓKERINN LIFIR
MYND AF ÞÝSKUM LEIKARA, LÖNGU LÁTNUM,
BIRTIST SEM ANDLÁTSMYND HEATH LEDGER >> 49
FRÉTTASKÝRING
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
MIKILL fjöldi lægða við Íslandsstrendur á umliðn-
um vikum og mánuðum hefur tæpast farið framhjá
neinum. Samkvæmt upplýsingum frá Einari Svein-
björnssyni veðurfræðingi skýrist þetta af því að svo-
nefndur kuldapollur, þ.e. staðurinn þar sem mesti
háloftakuldinn ríkir hverju sinni, liggur óvenju-
nálægt landinu um þessar mundir. Að sögn Einars
hefur háloftakuldinn yfir Grænlandi verið meiri og
nær Íslandi síðustu mánuði en mörg undanfarin ár.
Hins vegar sé tíðarfarið nú ekki ósvipað því sem var
nokkra vetur í kringum 1990.
Aðspurður segir Einar það nánast tilviljun hvar
þessi átakapunktur í háloftunum lendi hverju sinni.
Bendir hann á að sum árin sé mesti háloftakuldinn
yfir miðju Kanada, önnur ár lendi hann yfir Síberíu
eða nálægt Alaska og stundum sé hann yfir Sval-
barða. Kuldapollurinn hafi hins vegar ráðandi áhrif
á vetrarveðráttuna á stóru svæði í kringum hann.
Spurður hvort hægt sé að segja fyrir um stað-
setningu kuldapollsins ár hvert segir Einar menn
vissulega reyna það, en með misjöfnum árangri þó.
Bendir hann á að oft raði stóru línurnar á norður-
hveli sér upp snemma vetrar, í nóvember og desem-
ber, í ákveðið kerfi sem síðan haldist út veturinn.
Stundum brotni þetta hins vegar upp og raði sér
upp á nýtt um miðjan vetur og þá oft með skömmum
fyrirvara.
Aðspurður hvernig langtímaútlitið sé bendir Ein-
ar á að Evrópska reiknimiðstöðin (ECMWF) hafi í
þriggja mánaða spá sinni fyrir janúar til mars spáð
því að hérlendis yrði lægðagangur með úrkomu ofan
meðallags og hita um eða yfir meðallagi. „Ef veðr-
áttan tekur ekki miklum breytingum það sem eftir
er tímabilsins þá er þetta nú alveg í áttina.“
Er landinn orðinn góðu vanur?
Að sögn Trausta Jónssonar, veðurfræðings á
Veðurstofu Íslands, hafa Íslendingar búið við
óvenjuhægviðrasamt veðurfar á síðustu sex til sjö
árum og því sé ekki skrýtið að landanum bregði við
þegar komi umhleypingasamari vetur en hann eigi
að venjast. Trausti tekur þó fram að veðurfarið það
sem af er vetri sé ekki verra en oft áður á sama árs-
tíma á síðustu áratugum. „Þetta er bara hluti af al-
mennu tíðarfari á þessum slóðum á jörðinni.“
Árvakur/Árni Sæberg
Ótíð Umhleypingasamt hefur verið undanfarið.
Lægðir og úrkoma út mars?
STÓRTJÓN varð í aðstöðu sjö lista-
manna á Korpúlfsstöðum í gær-
kvöldi vegna vatnsleka og skemmd-
ust þar tugir listaverka af ólíkum
toga. Mittisdjúpt vatn komst inn í
kjallarann þar sem auk listaverk-
anna eru brennsluofnar, rennibekkir
og óunnið efni til listmunagerðar.
„Það er allt á floti hér og tjónið er
gífurlegt,“ sagði Laufey Jensdóttir,
Allt á floti og tjónið gífurlegt
Árvakur/Kristinn
Kerran fest Björgunarsveitarmenn lögðu hart að sér við að bjarga eignum fólks og festa niður lausa muni í gærkvöldi. Þeir festu m.a. þennan tengivagn tryggilega í borginni.
Samgöngur úr skorðum í veðurham Tugir listaverka fóru undir vatn
hins vegar að bæta í vind á Norður-
landi vestra og Vestfjörðum.
Óveðrið setti allar samgöngur úr
skorðum í gær. Flugsamgöngur inn-
anlands og milli landa lömuðust.
Þjóðvegum á Vestfjörðum, undir
Hafnarfjalli og um Kjalarnes var
lokað sem og Hvalfjarðargöngum og
þá urðu rafmagnstruflanir víða um
land. | 2
ein listamannanna. „Þetta er í annað
sinn sem þetta gerist, en fyrra skipt-
ið var um áramótin, þótt það hafi
ekki verið eins rosalegt og nú.
Reykjavíkurborg hefur ekki fundið
lausn á þessum vanda,“ segir hún, en
borgin leigir SÍM aðstöðuna.
Óveðrið var að byrja að ganga nið-
ur á Suðurnesjum og á höfuðborg-
arsvæðinu seint í gærkvöldi en þá fór
Í HNOTSKURN
»Undir miðnætti höfðu við-bragðsaðilar sinnt meira en
300 verkefnum á SV-horninu frá
því óveðrið skall á síðdegis í gær.
»Um 400 manns voru þar viðbjörgunarstörf vegna óveð-
ursins.
Skilaboðaskjóðan >> 48
Magnaðar stundir
í leikhúsinu
Leikhúsin í landinu
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
09
96
0
2
/0
8
TILBOÐ 7.–15. FEBRÚAR
+ Nánari upplýsingar á
www.icelandair.is
* Innifalið í verði: Flug, flugvallarskattar og gjöld.
Ferðatímabil: 21. apríl–31. desember.
H
A
LI
FA
X
V
e
rð
fr
á
19
.1
2
0
kr
.*