Morgunblaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is BÆJARRÁÐ Akraness gagnrýnir vinnu stýrihóps um málefni Orku- veitu Reykjavíkur og REI, sem skil- aði skýrslu sinni formlega í gær. Í bókun bæjarráðs frá fundi 7. febrúar er lýst yfir furðu á því að skýrslan hafi verið birt án þess að kynna hana fyrir öllum eigendum. „Svo virðist sem skýrsluhöfundur telji að málefni REI sé einkamál borgarstjórnar Reykja- víkur, þar sem pólitískir fulltrúar sem þátt tóku í atburðarásinni geti rann- sakað sjálfa sig og komist að sameig- inlegri niðurstöðu. Bæjarráð telur lít- ið mark takandi á slíkri skýrslu og átelur vinnubrögðin, þar sem sameig- endum hefur verið haldið utan við málið á öllum stigum þess.“ Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri á Akranesi, sagði í samtali við Morg- unblaðið að gengið hefði verið beint framhjá Akranesi og Borgarbyggð. „Við eigum 5,57% hlut í Orkuveitunni og höfum fulltrúa í stjórn. Þegar stýrihópurinn var settur á fót hófst nýtt tímabil þar sem framkvæmt var alveg án þess að tala við okkur,“ sagði Gísli, sem ekki hafði séð skýrsluna þegar rætt var við hann. „Þetta er gert út frá naflasjónarmiðum borgar- fulltrúa í Reykjavík. Ég skil þetta sem svo að skýrslan sé hluti af borg- arpólitíkinni í Reykjavík. Óháður aðili hefði átt að leggja mat á þetta,“ segir hann. Stefnumótun á að vera innan OR Páll S. Brynjarsson, sveitarstjóri í Borgarbyggð, tekur í sama streng. Hann gagnrýnir þar að auki að stýri- hópnum hafi verið ætlað stefnumót- andi hlutverk. „Í inngangi að skýrslu stýrihópsins segir að honum hafi ver- ið falið að koma með tillögur um fram- tíðarstefnumótun Orkuveitu Reykja- víkur. Mér finnst að fyrirtæki sem er í sameign þriggja aðila eigi að móta sér stefnu, en ekki að sú stefnumótun fari fram hjá einum eignaraðilanum. Það finnst mér óeðlilegt,“ segir Páll. „Við hefðum viljað miklu meiri sam- skipti. Við þekkt- um til stöðu- skýrslunnar sem kom 1. nóvember og þetta efni var tekið fyrir á eig- enda- og stjórnar- fundum OR í sama mánuði. En skýrsluna fengum við fyrst senda til okkar eftir hádegið í gær, eftir að við óskuðum eftir því við Reykjavíkurborg.“ Aðeins ein úttekt af þremur Svandís Svavarsdóttir, borgar- fulltrúi Vinstri grænna, sem stýrði vinnu hópsins, segir gagnrýni þeirra Gísla og Páls réttmæta, betra hefði verið að hafa alla eigendur með í ráð- um. Hins vegar hafi stýrihópurinn verið á vegum borgarráðs og niður- stöðum hafi átt að skila þangað. „Við töldum rétt frá byrjun að það væri mátulegt á okkur stjórnmála- mennina að fara betur ofan í þetta ferli til að skilja það betur sjálf. Fleiri aðilar eru að skoða málið, bæði um- boðsmaður Alþingis og innri endur- skoðun Reykjavíkurborgar, sem eru óvilhallir aðilar. Enda segir í skýrslu stýrihópsins að þetta sé einungis inn- legg í umræðuna en ekki lokaniður- staða,“ segir hún. Hún kveður stjórn- armönnum í Orkuveitunni það í lófa lagið að leggja til sjálfstæða úttekt á þeim bænum, kjósi þeir það. Ennfremur játar Svandís því fús- lega að viss tilhneiging sé til þess al- mennt að minni hluthafar í Orkuveit- unni séu ekki hafðir með í ráðum og úr því þurfi að bæta. Gagnrýna stýrihópinn fyrir samráðsleysi Gísli S. Einarsson Páll S. Brynjólfsson Svandís Svavarsdóttir MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfar- andi yfirlýsing frá Vil- hjálmi Þ. Vilhjálmssyni borgarfulltrúa. „Vegna umfjöllunar Kastljóss um að ég hafi þann 4. október annars vegar og 8. október hins vegar orðið tví- saga um málefni kaup- réttasamninga vil ég taka eftirfarandi fram. Ég mótmælti þessu harðlega og sagði að snúið hefði verið út úr orðum mínum. Spyrj- andi Kastljós hélt öðru fram. Eftir að hafa skoðað málið nánar kemur í ljós að ég hafði rétt fyrir mér og hafði ekki orðið tvísaga, eins og stjórnendur Kastljóss hafa viðurkennt. Sömu stjórnendur hafa lofað að birta leiðréttingu vegna þessa í kvöld. Í sama viðtali talaði ég um ráðgjöf borg- arlögmanns. Þar átti ég við fyrrverandi borg- arlögmann, sem taldi að ég hefði umboð til að taka þessa ákvörðun sem fulltrúi eigenda. Í áliti núverandi borgarlögmanns á bls. 5 kemur fram að borg- arstjóri hafi stöðuum- boð til að taka ákvarð- anir fyrir hönd eigandans, Reykjavíkurborgar, á aðalfundum og eigendafundum OR. Auk þess komu engar athuga- semdir fram um umboð mitt á stjórnar- og eigendafundi OR.“ Yfirlýsing frá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni vegna Kastljóss á fimmtudag Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson „ÉG AUÐVITAÐ ber svona mál undir borgarlögmann. Ég fer ekki til lögfræðinga úti í bæ. Og það kemur fram í hans áliti að ég hafi haft þetta umboð. Mér hefði ekki dottið í hug að fara að undirrita svona nema ég hefði skýrt umboð til þess,“ sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgar- fulltrúi, aðspurður í Kastljósinu á fimmtudagskvöld um það álit lög- mannanna Andra Árnasonar og Láru V. Júlíusdóttur, að hann hefði ekki farið fram með lýðræðislegum hætti þegar hann samþykkti sam- runa Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy í haust. „Ég fer ekki til svona máls fyrr en ég er með það alveg á hreinu að ég hafi svona umboð. Mér bara dettur það ekki í hug og það er auðvitað al- veg ljóst að aðilar í kerfinu hefðu nú aldeilis aðvarað borgarstjóra um það ef hann hefði ekki slíkt umboð. Þetta hefur verið svona […] Ég fékk úr þessu skorið og það kemur líka fram í áliti borgarlögmanns að þetta hefur verið viðtekin venja […] Það kemur líka fram í skýrslunni að minnihlutinn á síðasta kjörtíma- bili[…] hafi þá velt því fyrir sér að breyta þessu og ég tek alveg heils- hugar undir það sem kemur fram í þessari skýrslu að það þarf að skýra þetta umboð betur og ekki síst vegna þeirra álita sem fram hafa komið í þessu máli og ég mun beita mér fyrir því að og hvetja til þess að það verði gert sem allra fyrst[…]“ Vilhjálmur segir í yfirlýsingu frá því í gær að hann hefði átt við ráðgjöf fyrrverandi borgarlögmanns, þegar hann var spurður um umboð sitt í Kastljósinu, ásamt því sem hann vitnar í nýja skýrslu stýrihóps borg- arstjórnar um málefni Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfyrirtækis hennar, REI, og samstarf þessara fyrirtækja við Geysir Green Energy. Innt eftir ummælum Vilhjálms í Kastljósinu í Ríkissjónvarpinu í gær vildi Kristbjörg Stephensen borgar- lögmaður ekki láta hafa neitt eftir sér um málið. Morgunblaðið náði ekki í Kristbjörgu í gær, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Á þessu stigi er ekki ljóst hvaða borgarlögmaður veitti Vilhjálmi um- boð en Kristbjörg hefur starfað sem borgarlögmaður frá 1. júlí 2007. Embættið hafði þá ekki verið til frá því í maí 2005 þegar Gunnar Eydal gegndi embættinu. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson gegndi því þar á undan, en lét af störfum í apríl 2004. Hjör- leifur B. Kvaran hafði þá gegnt emb- ættinu frá júní 1994. Hvorki náðist í Vilhjálm Þ. né Hjörleif símleiðis í gær. Gunnar Eydal vildi ekki tjá sig um málið í fréttum RÚV í gærkvöldi. Óljóst við hvaða borg- arlögmann var rætt ÓLÖF Guðný Valdimarsdóttir hefur verið ráð- in aðstoðar- maður Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra. Hún er arkitekt að mennt og með próf í hag- nýtri fjölmiðlun frá Háskóla Ís- lands. Ólöf Guðný var formaður Nátt- úruverndarráðs og Landverndar auk þess að vera stjórnarmaður í Umhverfisverndarsamtökum Ís- lands. Hún hefur setið á Alþingi sem varaþingmaður Framsókn- arflokksins í Vestfjarðakjördæmi en sagði sig úr flokknum vorið 2003. Ólöf Guðný hefur starfað mikið að skipulagsmálum, sem skipulagsráðgjafi og einnig var hún skipulagsfulltrúi í Akranesbæ. Ólöf Guðný á tvær dætur. Ólöf aðstoð- armaður borgarstjóra Ólöf Guðný Valdimarsdóttir LEITIN að Ívari Jörgenssyni, 18 ára pilti, sem saknað hefur verið frá því á sunnudag á norðurhluta Jótlands, hefur enn engan árangur borið. Danska lögreglan hefur fáar vísbendingar til að fara eftir. Í dag, laugardag, munu 200 bæjarbúar í Havndal, heimabæ Ívars, taka þátt í leitinni. Ívar hefur búið í Dan- mörku í 11 ár með foreldrum sín- um. Enn saknað STÓRT loðnuskip, Fiskeskjer frá Álasundi í Noregi, sigldi upp á enda gamla hafnargarðsins í Nes- kaupstað um kl. 15.30 í gær og strandaði þar. Verið var að færa skipið á milli bryggja þegar óhapp- ið varð. Systurskip Fiskeskjer, Strand Senior, dró skipið aftur á flot síðdegis í gær. Minni háttar skemmdir urðu á viðlegukanti og grjóthleðslu. Í gær kannaði kafari einnig skemmdir á Fiskeskjer. A.m.k. einn dýptarmæla skipsins virkaði ekki eftir óhappið. Hjálmar Ingi Einarsson, hafn- arstjóri í Neskaupstað, sagði að Fiskeskjer væri 1.960 tonna fjöl- veiðiskip og smíðað 1999. Hann sagði skipið hafa leitað vars á Norðfirði líkt og fleiri íslensk og norsk fiskiskip. Voru talsvert margir bátar þar að bíða af sér bræluna í gær. Hjálmar kvaðst ekki vita til þess að leki hefði kom- ið að Fiskeskjer við óhappið. Hann taldi líklegt að skipið héldi aftur á veiðar þegar lægði. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mátti líklega kenna bilun í stýringu skiptiskrúfu Fiskeskjer um óhappið. Stjórntæki skrúfunnar munu ekki hafa virkað og brugðu skipverjar á það ráð að nota neyð- arrofa til að drepa á aðalvélinni. Skipið var þá komið á svo mikið skrið að það rann upp á land. Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Strand Fiskeskjer, sem er tæplega 2.000 tonna norskt fjölveiðiskip frá Álasundi, náðist á flot í gær. Lét ekki að stjórn og strandaði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.