Morgunblaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ STUTT Nepal. AP. | Indverskur læknir, grun- aður um að hafa skipulagt og fram- kvæmt stórfellda ólöglega líffæra- flutninga, hefur verið handtekinn í Nepal. Læknir- inn, Amit Kumar, hefur verið á flótta frá því í jan- úar og var leitað af Interpol. Hann fannst suður af Katmandu með andvirði rúmra 15 milljóna íslenskra króna í seðlum. Indverska lögreglan fullyrðir að Kumar sé aðalskipuleggjandi líf- færaflutninga, sem að hluta til hafi farið fram án samþykkis líffæragjaf- anna. Yfirvöld hafa ástæðu til að ætla að um 500 nýru hafi verið seld við- skiptavinum sem ferðast hafi til Ind- lands víða að úr heiminum undanfar- in níu ár. Lengi hefur verið vitað að fátækir Indverjar selji úr sér líffæri, en mál Kumars er það langstærsta og alvar- legasta hingað til. Ekki síst í ljósi þess að sumir líffæragjafanna voru að sögn lögreglu ólæsir verkamenn, sem ógnað var með byssum áður en líffærin voru tekin úr þeim. Öðrum hafði verið gefið loforð um atvinnu. Í janúar síðastliðnum réðst lög- reglan inn á skurðstofu Kumars í Gurgaon í Nýju-Delhí og batt enda á starfsemina, sem fór fram í fjórum indverskum héruðum. Að minnsta kosti fjórir læknar voru viðriðnir starfsemina auk nokkurra spítala, á þriðja tug hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Ökutæki innréttað sem skurðstofa fannst auk biðlista eftir líffæragjöf með 48 nöfnum. Kumar hefur hafnað ásökununum og heldur fram sakleysi sínu. Grunaður um rán á líffærum Amit Kumar Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is ERKIBISKUPINN af Kantaraborg hefur lagt til að sjaríalögin, lög múslima, verði að takmörkuðu leyti tekin upp í Bretlandi. Erkibisk- upinn, Dr. Rowan Williams, er æðsti leiðtogi Ensku biskupakirkjunnar og þar með æðsti kristni leiðtogi Bretlands. Williams sagði í útvarpsviðtali hjá BBC sl. fimmtudag að það væri óhjákvæmilegt að leyfa sjaríalög þegar kæmi að hjónbands- eða fjár- máladeilum múslima, með því yrði stigið mikilvægt skref í átt að sam- félagslegri einingu í Bretlandi. Ummæli erkibiskupsins hafa mætt harðri gagnrýni í Bretlandi. Opinber tals- maður Gordons Brown forsætis- ráðherra sagði að bresk lög sem byggðust á breskum gildum skyldu vera ráð- andi þar í landi. Ritari menning- armála gekk enn lengra í gagnrýn- inni og sagði orð Williams vera röng og varaði við samfélagslegri óreiðu og ringulreið yrði tillagan að veru- leika. Williams erkibiskup sagðist vilja sjá víðari laganálgun, að fólk hefði val um hvernig það leysti ágrein- ingsefni sín svo lengi sem allir aðilar væru sammála aðferðinni. Hann benti jafnframt á að nú þegar væri gyðingum leyfilegt að leysa persónu- leg ágreiningsefni sín í Bretlandi, samkvæmt hefðbundnum gyðing- legum lögum. Ummælum Williams hefur víða verið fagnað meðal forystumanna múslima í Bretlandi, sem segja mik- ilvægt að ræða þessa tillögu. Sjaría- lögin hafi legið undir gagnrýni á Vesturlöndum, aðallega vegna þess að eina umfjöllunin sem þau hafi fengið sé afskræmd öfgamynd. Rodney Barker, prófessor í stjórnmálafræði við London School of Economics, sagðist ekki undrandi á að biskupinn tæki á svo eldfimu efni. Hann sagði Williams erkibisk- up hvorki íhaldssaman né varkáran mann. Þvert á móti gerði hann sér grein fyrir því að í samfélaginu ríktu mismunandi hefðir sem taka yrði til- lit til. Fawaz Gerges, prófessor í Mið- austurlandafræðum við Sarah Lawrence-háskólann í New York, segir margar hættur fólgnar í marg- földu réttarkerfi. Með slíku fyr- irkomulagi yrði erfitt að setja mörk- in. Um leið og einu samfélagi væri leyft að nota eigin lög væri búið að gefa hættulegt fordæmi. Umræðan um stöðu múslima í bresku samfélagi hefur verið eldfim frá því að fjórir breskir múslimar drápu sig og 52 aðra breska borgara í árás í London árið 2005. 1,6 millj- ónir múslima búa í Bretlandi, sem er 2,7 prósent þjóðarinnar. Mælir með sjaríalögunum  Erkibiskupinn af Kantaraborg hefur valdið fjaðrafoki í Bretlandi  Segir óhjákvæmilegt að leyfa sjaríalögin að takmörkuðu leyti þar í landi Rowan Williams Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is AÐEINS um 30 af hundraði Banda- ríkjamanna lýsa yfir ánægju með störf George W. Bush, en nafn hans, ættarveldi og sterk tengsl við trúaða og íhaldssama kjósendur valda því að ekki ber að vanmeta mikilvægi stuðn- ings við forsetaframbjóðanda repúbl- ikana í haust. Ítök Bush í flokknum komu ber- lega í ljós á þingi íhaldsmanna í Washington í gær, þar sem viðstaddir hylltu forsetann sem ýmsir frambjóð- endur repúblikana hafa reynt að að- greina sig frá. Viðtökurnar voru allt aðrar og betri en þegar John McCain gekk inn í salinn daginn áður og upp- skar lófatak, á sama tíma og hópur flokksliða púaði á manninn sem telst nú öruggur með útnefningu sem for- setaframbjóðandi flokksins í haust. Eins og vænta má hefur Bush enn ekki formlega lýst yfir stuðningi við framboð tiltekins frambjóðanda. Engu að síður er öruggt að hann muni leggja sitt á vogarskálarnar og munu tengsl hans við íhaldssamasta arm flokksins verða gulls ígildi þegar framboð McCains, sem margir telja of frjálslyndan, fer í fullan gang, eins og útlit er fyrir nú. Jafnframt er Bush mjög öflugur þegar kemur að því að safna fé í kosn- ingasjóði, eiginleiki sem kann að ríða baggamuninn andspænis vel smurðri kosningavél demókrata, hvort sem Barack Obama eða Hillary Clinton leiða framboðið. Flókið samband við forsetann Vart þarf að taka fram að tvennar síðustu forsetakosningar hafa verið jafnar og spennandi – Bush sigraði Gore naumlega á Flórída og fjórum árum síðar hefði sveifla í Ohio gert John Kerry að forseta – og því kann aðkoma forsetans að vera stráið sem brýtur bak kameldýrsins, svo gripið sé til engilsaxnesks orðatiltækis. En þar með er ekki öll sagan sögð. McCain var í sárum eftir harðvítuga baráttu við Bush í forkosningunum 2000 og fjórum árum síðar kom til umræðu að sá fyrrnefndi byði fram með Kerry gegn forsetanum. Og ekki nóg með það. McCain hef- ur gagnrýnt stríðsreksturinn í Írak, ásamt því að greiða tvisvar atkvæði gegn skattalækkunum forsetans. Nánir samverkamenn tvímenning- anna segja átökin fyrir átta árum að baki og minna á að McCain hafi einn- ig stutt Bush í ýmsum málum. Hitt er annað mál að McCain á mikið verk fyrir höndum að byggja brýr yfir til íhaldssömustu repúblik- ananna í trúarlegum og félagslegum efnum og þarf hann m.a. að marka sér afgerandi afstöðu til stofnfrumu- rannsókna, svo dæmi sé tekið. Ekki skyldi vanmeta andstöðu ým- issa íhaldsmanna við McCain. Hann hefur verið uppnefndur McLame, McVain og McAmnesty og vísar síðastnefnda uppnefnið til af- stöðu hans til innflytjendamála. Annað dæmi er að kannanir benda til að í Kaliforníu hafi McCain fengið 45 af hundraði atkvæða þeirra sem telja sig „fremur íhaldssama“ en stuðning aðeins 21 af hundraði „mjög íhaldssamra“ kjósenda. Klofningur hjá evangelistum Evangelistar eru í hópi þessara íhaldssamari kjósenda og þykir það flækja stöðuna frekar að aðeins um þriðjungur þeirra styður gamla bapt- istaprestinn Mike Huckabee, fyrr- verandi ríkisstjóra Arkansas, eina keppinaut McCain sem eftir er. Þannig benda kannanir við kjör- staði til að McCain og Romney hafi fengið nokkurn veginn jafnmörg at- kvæði frá þessum hópi og að Hucka- bee hafi fyrst og fremst notið góðs af trúarlegum bakgrunni sínum á svæð- um þar sem baptistar eru stór hluti íbúafjöldans. Þá þykir Huckabee ekki höfða til þeirra repúblikana sem vilja lágmarka umsvif ríkisins, athyglis- verð staðreynd í ljósi þess að McCain hefur viðurkennt að efnahagsmálin séu ekki hans sterka hlið, nú þegar flest bendir til að þau verði mikilvæg- asta kosningamálið í haust. Það vekur einnig eftirtekt að á vef- síðunni Christianity Today var því lýst yfir eftir kosningarnar á þriðju- dag að útkoman hefði „afhjúpað gjá milli evangelískra kjósenda og tals- manna þeirra“. Með öðrum orðum: Trúarleiðtogar á borð við James C. Dobson höfðu minni áhrif en ætla mætti af vinsældum þeirra. Bush leggur sitt á vogarskálarnar  Tekur þátt í baráttunni  Snúið samband við McCain AP Leiðtogi George W. Bush forseti ávarpar 35. þing íhaldsmanna í Wash- ington, sem á ensku nefnist Conservative Political Action Conference. Í HNOTSKURN »„Ef Hillary Clinton fær útnefningu munu repúblikanar sameinastsvo hratt að þér mun ekki auðnast tími til að hrækja.“ – Joe Sullivan, ritstjóri Southeast Missourian, um þann frambjóðanda demókrata sem fær blóð íhaldsmanna til að renna hvað hraðast. »Að mati Jed Babbin, ritstjóra Human Events, er Huckabee ekki nóguíhaldssamur til að verða varaforsetaefni McCains. Vísar Babbin til stefnu baptistaprestsins fyrrverandi í efnahagsmálum og til þess að hann hafi léð máls á aðgerðum til að sporna gegn loftslagsbreytingum. YFIRVÖLD í Bandaríkjunum og á Ítalíu létu í gær til skarar skríða gegn maf- íunni í New York og á Sikiley og voru meira en 80 menn handteknir. Er litið á aðgerð- ina sem meiri- háttar atlögu að glæpasamtökunum. Saksóknarar í New York hafa stefnt 63 mönnum fyrir alls kyns sakir, morð, fjárkúgun, eiturlyfja- sölu og okurlánastarfsemi, en þeir tilheyra Gambino-, Genovese- og Bonanno-glæpafjölskyldunni. Í Pal- ermo á Sikiley voru 20 handteknir í mikilli aðgerð. Atlaga að mafíunni Handtökur í New York í fyrradag. ÞAÐ virðist ekki vera ofsögum af því sagt, að reykingar drepi, ekki ef marka má WHO, alþjóðaheilbrigð- isstofnunina. Hún áætlar, að á þess- ari öld muni tóbaksreykingar leggja einn milljarð manna að velli. Talið er, að þær hafi banað 100 millj. manna á síðustu öld. Tóbaksdauði Reuters Skaðvaldur Tóbakið deyddi 100 milljónum manna á tuttugustu öld. EF nauðið í konunni þreytir eig- inmanninn og hroturnar í honum halda vöku fyrir henni, þá er því miður lítil von um að staðan batni. Það kemur nefnilega fram í rann- sókn í Bandaríkjunum, að eftir því sem tíminn líður láta hjón hvort annað fara meira í taugarnar á sér. Hjónavandi BERNHARD Falk, næstráðandi í þýsku leyniþjónustunni, sagði í við- tali við dagblaðið Die Welt, að al- Qaeda-hryðjuverkasamtökin hefðu lagt á ráðin um árásir og hermd- arverk í Þýskalandi. Hafa þýskir múslímar verið í þjálfunarbúðum í Pakistan með það fyrir augum. Áformuðu árás FYRIRHUGUÐ eru í Tyrklandi mikil mótmæli gegn þeirri stefnu stjórnvalda að afnema bann við ísl- ömskum höfuðklútum í æðri menntastofnunum. Hefur tillaga um það verið samþykkt á þingi en veraldlega sinnaðir menn í landinu eru því ævareiðir. Slæðudeila VONIR hafa vaknað um, að innan ekki langs tíma verði unnt að hjálpa þeim, sem hlotið hafa mænuskaða. Felst hjálpin í því að flytja taugar úr öðrum stað í líkamanum og koma þeim fyrir í mænunni þar sem skaðinn varð. Bandarískir vísindamenn stefna að því að hefja tilraunir á mönnum innan fimm ára en þær tilraunir, sem hingað til hafa farið fram á rottum, hafa tekist mjög vel. Segja má, að aðferðin byggist á þeirri uppgötvun, að taugar fyrir neðan skaddaða svæðið deyja ekki þótt til þeirra berist engin taugaboð. Þess vegna taka þær strax við sér þegar ný taug er grædd í mænuna og hún látin brúa skaddaða svæðið. Skaði bættur? MYNDBAND háskólanema, sem með ögrandi hætti setja spurn- ingamerki við takmörkun stjórn- arinnar á ferðafrelsi almennings, ellegar hvers vegna þeim er meinað að dvelja á hótelum landsins, hefur valdið töluverðri ólgu. Ungmennin, sem birtu mynd- bandið á netinu, beindu spjótum sínum einkum að Ricardo Alarcon, háttsettum stjórnarliða, og þótti efni þess ganga svo langt að sam- særiskenningar fóru á kreik um að stjórnin hefði sjálf staðið á bak við það í pólitískum tilgangi. Ungir ögra Kúbustjórn ERLENT ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.