Morgunblaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÓTEL Rangá, sem er á bökkum Eystri-Rangár, hefur gerst félagi í markaðssamtökum lúxuxhótelanna Special Hotels of The World. Fimmtíu hótel um heim allan eru í sam- tökunum og er lagð- ur metn- aður í að bjóða vand- aða þjónustu og einstaka markaðs- aðstöðu í viðkomandi landi. Nú er verið að endurhanna Hótel Rangá, nýja hönnunin er innblásin af landslagi og umhverfi í kringum hótelið, segir í tilkynningu. Sérstaða samtakanna, Special Hotels of The World, felst í sam- starfi við hótel sem bjóða gestum sínum einstæða þjónustu og upp- lifun og hafa þannig sérstöðu á markaðnum í viðkomandi landi og þótt víðar sé leitað. Í markaðssam- tök lúxushótela Í Hótel Rangá. BESTU nemendur Háskólans í Reykjavík voru í vikunni heiðraðir við hátíðlega athöfn í skólanum. Að þessu sinni hlutu 70 nemendur við- urkenningu fyrir frábæran náms- árangur á síðustu önn. Þessir nem- endur komast þar með á hinn svokallaða forsetalista HR, en þeim heiðri fylgir niðurfelling skóla- gjalda á yfirstandandi önn. Straumur greiðir skólagjöld þessara nemanda, en Straumur hef- ur um árabil styrkt nemendur HR. Að þessu sinni hlutu heiðurinn 23 nemendur úr tækni- og verk- fræðideild, 20 úr viðskiptadeild, 13 úr lagadeild, 11 úr tölvunarfræði og 3 úr kennslu- og lýðheilsudeild. Bestu nemend- urnir heiðraðir Í ÁLYKTUN félagsfundar VG í Reykjavík á fimmtudag er Rei- skýrslunni fagnað og Svandísi Svavarsdóttur þökkuð vel unnin störf. „Niðurstöður og störf hópsins eru til marks um breytt og bætt vinnubrögð í stjórnmálum þar sem þverpólitísk samvinna er höfð að leiðarljósi,“ segir þar m.a. Svandísi þakkað RÍFLEGA þrjú- hundruð manns mættu á kynn- ingarfund vegna ferðar 66° norð- ur og Íslenskra fjallaleiðsögu- manna á Hvannadals- hnjúk. Mikill áhugi er fyrir ferðinni og æf- ingaprógramminu sem búið er að setja upp til þess að búa fólk undir ferðina, segir í tilkynningu. Nú þegar hafa um 160 manns skráð sig en farið verður á toppinn tvo daga, annars vegar 31. maí og hins vegar 7. júní. Mikill áhugi á hnjúknum STUTT STJÓRN Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum, fagnar fríverslunarsamningi sem gerður hefur verið á milli Fríversl- unarbandalags Evrópu (EFTA), sem Ísland er aðili að, og Kanada. „Vert er af þessu tilefni að minna á að vegna stöðu Íslands utan Evr- ópusambandsins höfum við Íslend- ingar fullt frelsi til að gera þá al- þjóðasamninga sem við kjósum og teljum þjóna okkar hagsmunum best, t.a.m. fríverslunarsamninga og samninga um skiptingu sameig- inlegra fiskistofna, svo dæmi séu tekin,“ segir í ályktun Heimssýnar. Fagna fríverslun ÞÉTTRIÐIÐ tengslanet, upplýsing- ar og notenda- og markaðsgreining var fyrirlesurunum ofarlega í huga á alþjóðlegri netmarkaðsráðstefnu, sem haldin var í gær í samvinnu Ár- vakurs og Nordic eMarketing. Til- efni ráðstefnunnar var meðal annars 10 ára afmæli mbl.is. Fyrirlesarar voru frá ýmsum löndum og höfðu ólíka sýn á við- fangsefnið. „Gamla slagorðið valdið til fólksins er loksins orðið að raun- veruleika,“ sagði Hollendingurinn Ton Wesseling í ávarpi sínu, en Wesseling lýsir sjálfum sér sem net- fíkli, bloggara og ráðgjafa. Sagði hann að netið væri að þróast í átt að risastóru tengslaneti einstaklinga, sem skiptust á upplýsingum og hug- myndum. Þeir sem vildu selja vöru og þjónustu á netinu yrðu að hafa þetta ofarlega í huga og nýta sér þá mörgu samskiptavefi sem nú er að finna á netinu. Netauglýsingar á krepputímum Steffen Gausemel Backe, yfirmað- ur rannsóknar- og greiningarsviðs Aftonbladet í Svíþjóð, sagði hins vegar að efnisrík netsvæði gæfu bestu möguleikana og þangað litu auglýsendur helst eins og þeir hefðu löngum gert, til efnismikilla og út- breiddra fjölmiðla. Auglýsinga- tekjur á netinu færu ört vaxandi og væru greinilega að færast frá prent- miðlum og sjónvarpi og að netinu. Backe sagði að áhugavert yrði að sjá hvort netið héldi sínu, ef efna- hagslíf heimsins væri að sigla inn í samdráttarskeið, eða hvort það sama gerðist og árin 2000 og 2001 að aug- lýsendur snúi á ný til hefðbundinna fjölmiðla. Í samtali við Morgunblaðið sagði Backe hins vegar að staða net- miðla væri nú allt önnur en fyrir sjö árum, þeir væru stærri og meira lesnir en áður og auglýsendur væru betur upplýstir um kosti þess að auglýsa á netinu. Því byggist hann ekki við því að draga mundi úr net- auglýsingum í þeim mæli sem gerst hefði árin 2000 og 2001 þegar net- auglýsingar hurfu nánast algerlega. Öflun upplýsinga Ólafur Örn Nielsen, sérfræðingur á netdeild mbl.is, fræddi ráðstefnu- gesti um það hvernig mbl.is hefur nýtt sér vefgreiningar og hvernig auglýsendur geti nýtt sér upplýsing- ar sem fást með þeim hætti. Sagði hann að breytingar hefðu verið gerð- ar á vefsíðunni vegna upplýsinga sem fengist hefðu með greiningu. Viðmótið hefði verið einfaldað, frétt- ir aðskildar frá öðru efni og vinsælt efni, eins og slúður og skemmtiefni væri nú á meira áberandi stöðum. Þetta hefði skilað mun meiri lestri á mbl.is. Sagði Ólafur að vefgreining hefði gert það að verkum að stjórnendur mbl.is vissu meira um hegðun les- enda sinna og gætu tekið ákvarðanir byggðar á staðreyndum í stað til- finninga, eins og kannski hefði verið raunin áður. Þá byggju þeir yfir meiri og ítarlegri upplýsingum fyrir auglýsendur sjálfa, sem auðveldaði þeim að ná til sinna markhópa. Ingvar Hjálmarsson, netstjóri mbl, segir að markmiðið með ráð- stefnunni sé að kynna auglýsinga- og markaðsfólki hvaða tækifæri netið býður upp á. Einnig skipti miklu að þeir sem ætla að ná árangri á netinu meti í upphafi þá grunnþætti sem eiga að ráða för. Þessa þætti megi síðan draga saman í þar til gerðum forritum og nota til að sjá hvort til- teknar markaðasðgerðir hafi heppn- ast. Ingvar segir að netið og fjölmiðlun taki stöðugum breytingum. Nú sé til dæmis ljóst, að sjónvarp á netinu sé að verða fyrirferðarmeira en áður. Þá sé netið komið í vasann á fólki því í nýjustu farsímunum geti menn vafrað á netinu og bæði lesið þar texta og skoðað myndskeið. Rúmlega 300 manns sátu ráð- stefnuna og segir Ingvar ljóst, að mikill áhugi sé á þessu viðfangsefni. Til standi að ráðstefnur af þessu tagi verði haldnar árlega héðan í frá. „Gamla slagorðið um valdið til fólksins orðið að raunveruleika“ Ljósmynd/Jón Svavarsson Ráðstefna Viðskiptaráðherra, Björgvin Sigurðsson, setti ráðstefnu Árvakurs og Nordic eMarketing í gær. Í HNOTSKURN » Tíu ár eru liðin frá því aðmbl.is-vefurinn var opnaður og var ráðstefnan haldin í tilefni þess, en ætlunin er að halda slík- ar ráðstefnur árlega héðan í frá. » Fyrirlesarar ræddu meðalannars mikilvægi þess að eig- endur vefsíðna öfluðu sér eins ít- arlegra upplýsinga og unnt væri um notendur sína, enda gætu slíkar upplýsingar skipt sköpum fyrir auglýsendur. Mikilvægt að greina hegðun vefnotenda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.