Morgunblaðið - 09.02.2008, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 21
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | Þrjú öflug bókasöfn eru
rekin í Sveitarfélaginu Árborg, Bæj-
ar- og héraðsbókasafnið á Selfossi,
Bókasafn Umf. Eyrarbakka og bóka-
safnið á Stokkseyri. Margrét I. Ás-
geirsdóttir, bókasafns- og upplýs-
ingafræðingur, veitir söfnunum
forstöðu en hún tók við stöðu for-
stöðumanns Bæjar- og héraðsbóka-
safnsins 1986 og við bókasöfnunum á
ströndinni þegar Árborg varð til
1998.
Í safninu á Selfossi er einnig rekin
upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn í
Árborg. Miðstöðin er svæðismiðstöð
sem veitir upplýsingar til innlendra
og erlendra ferðamanna um ferða-
þjónustu og afþreyingu í Sveitarfé-
laginu Árborg og á Suðurlandi.
Móðursafn fyrir pólsku
Bæjar- og héraðsbókasafnið á Sel-
fossi er almenningsbókasafn og upp-
lýsingamiðstöð sem þjónar íbúum
Árnessýslu og bókasöfnum þar.
Safnið fær ákveðið rekstrarframlag
ár hvert frá Héraðsnefnd Árnesinga
en Sveitarfélagið Árborg greiðir þó
stærstan hluta rekstursins. Bóka-
safnið er menningar- og fræðslu-
stofnun sem býður fjölþætta þjón-
ustu; aðgang að interneti, þráðlaust
netsamband, þjónar fræðimönnum,
námsmönnum, þeim sem leita að af-
þreyingu og hugmyndum s.s. um
handiðnir, listir og híbýli. Fjöldi
tímarita, hljóðbóka, mikið tónlistar-
og myndefni er einnig í boði. Í bóka-
safninu er sýningarsalur, Listagjáin.
Þar er sett upp ný sýning í hverjum
mánuði í samvinnu við listamenn og
handverksfólk.
Bókasafnið tekur þátt í og stendur
fyrir viðburðum og er í góðu sam-
starfi við stofnanir í sýslunni. Bóka-
safnið er fjölþjóðlegt og opið, enda er
safnkostur þess fjölþjóðlegur þótt
stærstur hluti hans sé á íslensku.
„Mikið af innflytjendum, sem búa á
svæðinu til lengri eða skemmri tíma,
leitar til safnsins eftir ýmiskonar
þjónustu. Safnið hefur það hlutverk
meðal almenningsbókasafna á Ís-
landi að vera móðursafn fyrir tungu-
málið pólsku og hefur nýlega fengið
styrk frá Þróunarsjóði félagsmála-
ráðuneytisins til að skrá nokkur
hundruð pólskar bækur í gegni.is
sem er landskerfi bókasafna og öllum
landsmönnum aðgengilegt,“ sagði
Margrét þegar hún var beðin um að
segja frá starfsemi safnsins á Sel-
fossi.
Áttatíu ár á Eyrarbakka
Bókasafn Umf. Eyrarbakka varð
80 ára á síðasta ári og starfar af
krafti sem aldrei fyrr. Almennings-
bókasafnið á Stokkseyri er einnig
skólabókasafn og nýtist því mjög vel.
Millisafnalán eru tíð milli bókasafn-
anna í Árborg og þannig nýtist bóka-
kosturinn. Bókasafnskortið gildir
jafnt í bókasafnið á Selfossi, Stokks-
eyri og á Eyrarbakka.
„Almenningsbókasöfn eru mikil-
væg í samfélagi nútímans varðandi
aðgengi að menningu, fræðslu, af-
þreyingu og ekki síður til stuðnings
við lestraruppeldi. Breiður hópur
notenda með mjög misjafnar þarfir
sækir bókasöfnin. Mikilvægt er að
vera vakandi yfir því hverjar þarf-
irnar eru í samfélaginu til að geta
þjónustað vel og hafa gott starfsfólk
sem er lipurt og þjónustufúst.“ Útlán
bókasafnanna í Árborg eru um
96.000 á ári og gestir að meðaltali um
270 til 300 á dag í Bæjar- og héraðs-
bókasafninu á Selfossi.
Þegar Margrét er spurð að því
hvort fólk sé duglegt að lesa stendur
ekki á svarinu. „Já, fólk les almennt
mikið, þ.e. blöð og tímarit og efni á
netinu þannig að lestur hefur trúlega
ekki minnkað heldur frekar að af-
þreyingarlestur sé ekki eins mikill.
Þeir sem hafa uppgötvað þann fjöl-
breytta heim sem býr í bókasöfnum
eru duglegir að nýta sér þau og þeim
sem þurfa skyndilega á einhverju
efni að halda dettur yfirleitt fyrst í
hug bókasafnið sitt. Mikilvægt er að
foreldrar séu fræddir um mikilvægi
lesturs fyrir börnin sem leiðir til
betri orðaforða og málskilnings fyrir
utan ánægjulegar samverustundir.“
Ljóð og örsögur
Bæjar- og héraðsbókasafnið á Sel-
fossi auglýsti nýlega eftir ljóðum og
örsögum, skálda, skúffuskálda og
ljóðskálda í Árnessýslu sem vilja
deila hugverkum sínum með almenn-
ingi um páskana í sundlaugunum á
Selfossi og Stokkseyri. Frekari upp-
lýsingar um þennan viðburð og fleira
tengt bókasafninu er að fá á heimsíðu
safnsins, www.arborg.is/bokasafn.
„Samvinna milli bókasafna á Suð-
urlandi er einstaklega góð.
Millisafnalán eru milli allra safnanna
með góðum stuðningi Þingvallaleiðar
sem flytur pakkana. Margar hug-
myndir eru ræddar og verkefni kom-
in af stað, eins og t.d. útgáfa lestr-
ardagbókar sem nú er stefnt á að
gefa út í annað sinn,“ sagði Margrét
Ásgeirsdóttir.
Fjölbreyttur heimur
er í bókasöfnunum
Bókavörður Margrét I. Ásgeirsdóttir er forstöðumaður almennings-
bókasafnanna í Árborg. Hún segir að bókasöfnin séu mikið notuð.
Margrét Ásgeirs-
dóttir veitir bóka-
söfnunum forstöðu
-hágæðaheimilistæki
Kraftmiklar ryksugur
fyrir öll heimili
Verð frá kr.:
16.900
Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar. Þær eru með
stillanlegu röri og mikið úrval fylgihluta er fáanlegt með vélini.
Verið velkomin í glæsilegar verslanir Eirvíkur á Akureyri
og í Reykjavík og kynnið ykkur Miele ryksugurnar.
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Suðurlandsbraut 20 Reykjavík | Baldursnes 6 Akureyri | Sími 588 0200
Miele
ryksugur
www.eirvik.is
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
ⓦ
Upplýsingar í síma
461 6011/ 840 6011
Helgamagrastræti
Oddeyrargötu
Huldugil
Innbæ
Eyrarlandsveg
Blaðburður verður
að hefjast um leið og
blöðin koma í bæinn.
Á AKUREYRI
Eftir Andrés Skúlason
Djúpivogur | Nýr vegur um Öxi er
nú í hönnunar- og matsferli. Mikil
ánægja er með þetta verkefni og
stuðning samgönguráðherra við
það, á opnum fundi sem Kristján
Möller efndi til á Djúpavogi.
Ráðherra fór yfir stöðu vegamála
á svæðinu og framkvæmdir næstu
árin, ásamt Guðmundi Heiðreks-
syni frá Vegagerðinni. Athygli
heimamanna beindist mest að nýrri
stórframkvæmd á veginum um Öxi
sem ráðherra sagðist afar stoltur
að geta tilkynnt heimamönnum að
væri ákveðin. Vegurinn um Öxi hef-
ur lengi verið baráttumál íbúa
Djúpavogs.
Stefnt er á að útboð á veginum
geti farið fram á haustdögum 2009
og eru verklok áætluð síðla árs
2011.
Á fundinum var einnig farið yfir
stöðu fjarskiptamála, en mikil þörf
er m.a. á átaki í háhraðanetteng-
ingum í dreifbýli á svæðinu svo
bæði bændum og ferðaþjónustunni
séu sköpuð heilbrigð samkeppn-
isskilyrði á þessu sviði. Ráðherra
greindi frá því að útboð væru að
fara í gang vegna háhraðanetteng-
inga í dreifbýli víða um land og
vænta mætti byltingar á þessu sviði
á næstu misserum.
Fundurinn var vel sóttur og fóru
gestir hinir ánægðustu af honum.
Segja má að í Djúpavogshreppi ríki
meiri bjartsýni meðal heimamanna
í málefnum samgöngu- og fjar-
skiptamála eftir heimsókn ráð-
herra.
Fagna nýjum vegi um Öxi
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Samgöngur Fundur samgönguráðherra og samstarfsmanna hans með íbúum á Djúpavogi var vel sóttur.
LANDIÐ
Fáðu úrslitin
send í símann þinn