Morgunblaðið - 09.02.2008, Side 24

Morgunblaðið - 09.02.2008, Side 24
daglegt líf 24 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ sem þeir standa á bíla- stæðum eða ef mokað er fyrir innkeyrslur að bílskúrum. Víkverji ræddi í gær við eldri konu, sem átti ekki auðvelt með að komast leiðar sinnar vegna þess að búið var að koma snjóruðningi fyrir framan við bíl- skúr hennar. Kurt- eisleg hringing hennar til þeirra, sem stjórna snjóruðningi í hennar hverfi bar ekki mikinn árangur. Henni var sagt að það væri erfitt að gera þetta á annan veg. Er það virkilega svo? Í þessu til- viki hefði verið auðvelt að koma snjónum fyrir hinum megin við göt- una, þar sem engin hús eru. Það var ekki gert, þótt það blasti við að það þjónaði betur hagsmunum íbúanna við þessa götu en að loka aðgangi að bílskúrum þeirra. Auðvitað háttar ekki þannig til í öllum tilvikum en þá er að leita ann- arra leiða. Víkverji hefur hvað eftir annað upplifað það að snjóruðnings- tæki hafa lokað innkeyrslunni að húsi hans. Það er að vísu gott að snjónum er mokað af götunum en það er ekki gott ef það verður enn erfiðara en ella að komast út á göt- urnar! Þetta er áreiðanlega erfitt starf og Þeir, sem starfa viðsnjóruðning á höf- uðborgarsvæðinu við aðstæður eins og þær, sem skapast hafa síð- ustu sólarhringa, eru ekki öfundsverðir af starfi sínu. Það er auð- vitað erfitt að komast með þessi tæki í gegn- um þröngar íbúða- götur, að ekki sé talað um ef bílum er lagt meðfram götum. En þótt verkefnið sé erfitt og stundum snúið er það til lítils gagns að hreinsa snjó af götum ef bílar eru lokaðir inni, ýmist þar        víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Ég fékk þessa tenórrödd ívöggugjöf og er afskap-lega þakklátur fyrirhana. Ég veit ekki hvað- an þetta kemur því það er enginn söngvari í minni ætt. Mamma var reyndar mjög músíkölsk og ég hef alltaf verið áhugasamur um hvers- konar tónlist. Ég lærði á hin ýmsu hljóðfæri þegar ég var krakki en hélst aldrei lengi við neitt þeirra,“ segir Sveinn Dúa Hjörleifsson, sem á ættir sínar að rekja norður í land. Hann er fæddur og uppalinn á Ak- ureyri sem glöggt má heyra á mæli hans. „Ég kom aðeins við í kór barna- skólans á Akureyri og þar söng ég mitt fyrsta sóló sennilega átta ára, á jólaskemmtun á elliheimili og ég man einna helst hvað mamma var stolt af mér. En ég hætti í kórnum af því að mér var strítt svo mikið á því, það þótti frekar hallærislegt að vera eini strákurinn í kórnum.“ Sungið yfir kaffibollum Sveinn fór suður á sjóinn þegar hann var 17 ára og skellti sér í nám í Stýrimannaskólanum. „Ég bjó á heimavistinni með nokkrum vinum mínum og við hitt- umst oft yfir kaffibolla og sungum saman okkur til ánægju. En þegar ég flutti af heimavistinni þá vantaði okkur samastað til að syngja á og þá datt tveimur okkar í hug, mér og Tyrfingi Sveinssyni, að fara í karlakór. Inntökuprófin voru búin í Fóstbræðrum en þau stóðu enn yfir hjá Karlakór Reykjavíkur og við komumst báðir inn. Þá var ég 18 ára og yngstur meðlima í kórnum. Ég hefði því sennilega aldrei byrjað að læra að syngja ef ég hefði ekki farið á sjóinn.“ Sveinn er nú á fimmta ári sínu í Karlakór Reykjavíkur og söng í fjórða sinn einsöng með þeim á síð- ustu jólatónleikum. Gerður var sér- lega góður rómur að söng hans þar og segja kórfélagar hans að tár hafi blikað á hvörmum áheyrenda, bæði í Færeyjum og í Reykjavík. Sveinn segir hógvær að hann viti svo sem ekkert um það, hann horfi aldrei á fólkið úti í salnum þegar hann syngur einsöng. Kemst ekki upp með að fela neitt Fljótlega eftir að Sveinn byrjaði í Karlakór Reykjavíkur fór hann að sækja tíma í leiðsögn í söng hjá Friðriki kórstjóra. „Ég var í þessu samhliða náminu í Stýrimannaskól- anum því ég var ákveðinn í að verða sjómaður. En áhuginn á söngnum fór vaxandi og ég fékk mikla hvatningu og ákvað því að taka mér frí frá Stýrimannaskól- anum um óákveðinn tíma og ein- beita mér alfarið að söngnum. Ég hef verið í fullu námi í Söng- skóla Sigurðar Dementz undanfarin þrjú ár og Gunnar Guðbjörnsson er minn kennari, en hann er ynd- islegur maður og góður kennari. Ég tók framhaldsstig fyrir ári og tek burtfararpróf í vor,“ segir Sveinn og bætir við að söngnám sé marg- þætt. „Það snýst ekki aðeins um tæknivinnu þó að maður þurfi auð- vitað að vera góður tæknilega til að geta framkvæmt vissa hluti í söngn- um. Þetta snýst kannski fyrst og fremst um að læra að vera einlæg- ur og trúr listinni. Maður verður að vera galopinn þegar maður syngur, af því að maður kemst ekki upp með að fela neitt, áheyrendur skynja strax ef einlægnina skortir. En auðvitað snýst þetta mikið um þjálfun og ég er rétt að byrja. Ég vissi alveg að ég gæti sungið og haldið lagi en ég bjóst aldrei við að ég gæti það sem ég get í dag. Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera ef maður vinnur markvisst að því.“ Syngur Ferrando í vor Það er nóg að gera hjá Sveini, hann sækir söngskólann alla daga, æfir tvisvar í viku hjá karlakórnum og svo er hann líka á fullu að æfa fyrir uppfærslu Óperustúdíós Ís- lensku óperunnar á Cosi fan tutte sem sýnt verður í apríl, en þar fer hann með hlutverk Ferrando, sem er eitt af aðalhlutverkunum. Sveinn er að taka sín fyrstu skref á söngsviðinu og horfir bjartsýnn til framtíðar. Hann stefnir til útlanda til frekara söngnáms. „Ég þarf að safna mér reynslu og halda áfram að læra. Ég hef verið að skoða óperustúdíó og skóla úti en hef enga ákvörðun tekið. En ég mun aldrei að hætta í Karlakór Reykja- víkur, þó ég eigi kannski eftir að vera meira eða minna erlendis í vinnu og námi. Þó ég eigi líklega ekki eftir að mæta vel á æfingar, vona ég að strákarnir leyfi mér að vera með í stöku sólóhlutverkum og vonandi verð ég velkominn á skemmtanir hjá þeim. Maður má ekki gleyma uppruna sínum, ekki frekar en að ég gleymi aldrei að ég er Akureyringur.“ Mér liggur ekkert á Sveinn hefur sótt og sækir enn tíma hjá Bretanum David Bartleet sem kemur reglulega til Íslands og hann segir vera stórkostlegan kennara og þeir tímar hafi verið mjög gagnlegir, sérstaklega tækni- Með Stefánstösku í hendi á leið út í heim Stefánstöskur Dóttir Stefáns Íslandi, færði Karlakór Reykjavíkur að gjöf ferðatöskur hans, sem segja mikla sögu en þær eru þaktar límmiðum frá þeim stöðum sem hann heimsótti á ferðum sínum um heiminn. Stefán gekk í Karlakór Reykjavíkur árið 1929 og söng strax einsöng með kórnum á sínu fyrsta ári og oft sem gestur seinna. Ef Sveinn Dúa Hjörleifsson hefði ekki farið á sjóinn, þá hefði hann senni- lega aldrei farið að læra söng. Kristín Heiða Kristinsdóttir hitti ungan og efnilegan tenór sem snertir strengi í brjóstum með söng sínum. Rysjótt tíðarfar hefur sett svip á bæjarlífið þessar vikurnar, hvass- viðri, ofankoma og svo fljúgandi hálka ofan á allt saman, þannig að varla er stætt úti. Ekkert sjóveður er í slíkum umhleypingum og sagðist smábátaeigandi aðeins hafa komist í tvo róðra allan janúarmánuð, einnig virðist loðnuvertíð ætla hægt af stað. Þórshafnarbúar liggja þó ekki undir feldi í eymd og volæði heldur fara og skemmta sér saman. Hið árlega þorrablót var haldið í Þórsveri um síðustu helgi þar sem jafnt heima- fólk sem aðkomnir gestir gerðu sér glaðan dag og létu ekki hrakspár veðurfrétta á sig fá.    Sparisjóður Þórshafnar og nágrenn- is, sem verið hefur hornsteinn í heimabyggð í áratugi, stendur nú frammi fyrir miklum breytingum. Samrunaáætlun hans við Sparisjóð Keflavíkur var samþykkt á fundi stofnfjáreigenda í janúar en á fyrri fundi í desember hafði verið felld til- laga um aukningu stofnfjár, sem var forsenda þess að sameining gæti orðið. Stofnfjáreigendur eru ekki á eitt sáttir varðandi samrunann. Þeir sem eru fylgjandi töldu sameiningu vera hið eina rétta þar sem rekstrar- umhverfið væri óhagstætt litlum einingum en þeim sem andvígir eru fannst hins vegar að kynningu máls- ins hefði verið ábótavant og ámælis- vert að samrunaáætlunin skyldi vera unnin án samráðs við stofnfjáreig- endur. Stofnfjáreigendur, þar með sveitarstjórn, fréttu fyrst af samein- ingaráformunum í fjölmiðlum í nóv- ember.    Óeining var um málið í sveitarstjórn varðandi atkvæði sveitarfélagsins sem einnig er eigandi stofnbréfa í sjóðnum. Andstæðingar samrunans gagnrýndu að stjórn Sparisjóðsins skyldi ekki bjóða upp á neina aðra valkosti í sameiningu en stjórnin hafnaði því að kanna aðra samein- ingarmöguleika, þrátt fyrir að hafa fengið um það óskir frá minnihluta stofnfjáreigenda. Þeim síðarnefndu fannst of hratt farið í sameiningar- mál og betra að vinna málið hægar í samráði við stofnfjáreigendur og kynna fleiri möguleika en aðeins einn. Þeir töldu einnig að með sam- runa við svo miklu stærri sjóð væri hætt við að heimamenn hefðu fram- vegis lítið um rekstur Sparisjóðsins að segja. Þeir sem fylgjandi voru sameiningu álitu hins vegar sjóðinn standa sterkari fótum eftir samein- ingu og studdu ákvörðun stjórnar; kynningu töldu þeir vera næga og frestun málsins því óþarfa. Stjórn Sparisjóðsins telur sameininguna nauðsynlega þar sem viðskipta- umhverfi hafi breyst mikið á síðustu árum svo minni stofnanir eigi erfitt uppdráttar. Því hafi stjórnin ekki séð hagkvæmni í því til lengri tíma litið að kanna sameiningu við minni sparisjóði á Norðausturlandi. Framtíðin leiðir svo í ljós hvernig fyrirhugaðar breytingar munu reyn- ast í byggðarlaginu. ÞÓRSHÖFN Líney Sigurðardóttir fréttaritari Árvakur/Líney Sigurðardóttir Olíuleit Þorrablótsnefndin með listræna útfærslu á olíuleit á Drekasvæðinu. úr bæjarlífinu BARNAHREINLÆTISVÖRUR eins og sjampó, krem og púður eru m.a. taldar orsök þess að efnasamböndin þalöt fundust í þvagi allra banda- rísku ungbarnanna sem tóku þátt í nýrri rannsókn er febrúarhefti bandaríska tímaritsins Pediatrics segir frá. Magn þalata í þvagi 163 ungbarna á aldrinum 2 mánaða til 28 mánaða var athugað og í ljós kom að 81% sýnanna innihélt a.m.k. sjö gerðir þalata. Mesta magnið fannst í yngstu börnunum og þar sem þau eiga eftir að taka út mikinn þroska eru þalöt talin sérstaklega hættuleg þeim. Þalöt hafa verið notuð í efnaiðn- aði síðan snemma á 20. öld. Efna- samböndin hafa þá eiginleika að mýkja plasthluti og er algengast að þau séu notuð í PVC-plast. Sumar gerðir þalata geta dregið úr frjó- semi fólks og verið skaðleg börnum í móðurkviði, auk þess sem þau eru talin geta truflað starfsemi inn- kirtla. Samkvæmt reglugerð í samræmd- um aðgerðum á Evrópska efnahags- svæðinu voru settar takmarkanir í fyrra á magn þalata í leikföngum og vörum fyrir börn en engar slíkar reglur eru í gildi í Bandaríkjunum, að Kaliforníu frátalinni. Þalöt í hrein- lætisvörum fyrir börn Árvakur/Árni Sæberg Varasöm efni A.m.k. ein gerð þa- lata fannst í þvagsýni 163 ungbarna og má það m.a. rekja til hreinlæt- isvara fyrir börn. Aðferðirnar er að finna í þessari bók. Febrúartilboð - 1990 kr. Virkjaðu hugann til góðra verkja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.