Morgunblaðið - 09.02.2008, Side 38
38 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR/KIRKJUSTARF
AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Óskar H. Óskarsson. Félagar
úr Kór Akureyrarkirkju syngja, organisti
Ágúst Ingi Ágústsson. Sunnudagaskóli
kl. 11. Steini P. lögregluþjónn kemur og
ræðir við börnin. Afmælishátíð æðru-
leysismessunnar kl. 20. Sr. Jóna Lísa
Þorsteinsdóttir og prestar kirkjunnar
þjóna saman. Létt tónlist, söngur o.fl.
Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur undir
stjórn Arnórs B. Vilbergssonar.
ÁRBÆJARKIRKJA | Sameiginleg barna-
starfshátíð fyrir alla sunnudagaskólana í
prófastsdæminu. Hátíðin verður í Graf-
arvogskirkju kl. 11 en farið verður með
rútum frá Árbæjarkirkju kl. 10.20. Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11 í Árbæj-
arkirkju. Kaffiveitingar á eftir.
ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 í
umsjá Elíasar og Hildar Bjargar. Messa
kl. 14. Kór Áskirkju syngur, organisti
Magnús Ragnarsson. Kaffisopi í boði
sóknarnefndar að messu lokinni.
BESSASTAÐASÓKN | Messa kl. 11. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og þjón-
ar fyrir altari, Álftaneskórinn leiðir safn-
aðarsöng undir stjórn Bjarts Loga
Guðnasonar organista. Á sama tíma er
sunnudagaskóli í hátíðarsal Álftanes-
skóla undir stjórn Matthildar, Sunnu
Dóru og Bolla Más.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi |
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristín Þórunn
Tómasdóttir héraðsprestur annast
messuna.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Gísli Jónasson. Vetrarhátíð
Breiðholts. Senjórítur Kvennakórs
Reykjavíkur syngja. Léttur málsverður í
safnaðarsal efitr messu. Rútuferð á
sunnudagaskólahátið í Grfarvogskirkju,
brottför frá Breiðholtskirkju kl. 10.40.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
Samvera fyrir alla fjölskylduna. Ung-
mennahljómsveit spilar undir stjórn
Skarphéðins Hjartarsonar. Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Petrína Mjöll Jóhann-
esdóttir messar. Kór Bústaðakirkju syng-
ur undir stjórn Gunnars Gunnarssonar.
Molasopi eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Yrsa Þórðardóttir, organisti Bjarni
Þ. Jónatansson, Kór Digraneskirkju B
hópur. Rútuferð sunnudagaskóla á
barnastarfshátíð í Grafarvogskirkju kl.
10.30. Léttar veitingar eftir messu.
Kvöldmessa á vegum æskulýðsfélags
Digraneskirkju kl. 20. www. digra-
neskirkja.is
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Hjálm-
ar Jónsson prédikar, Dómkórinn syngur,
organisti er Marteinn Friðriksson. Barna-
starf á kirkjuloftinu.
FELLA- og hólakirkja | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Guðmundur K. Ágústs-
son. Í tilefni af Breiðholtshátíðinni syng-
ur kór Gerðubergs undir stjórn Kára Frið-
rikssonar, organisti Guðný Einarsdóttir.
Sunnudagaskólinn fer frá kirkjunni kl.
10.30 á barnastarfshátíð í Grafarvogs-
kirkju. fellaogholakirkja.is
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Umsjón hafa Sigríður Kristín
og Erna. Kvöldvaka kl. 20. Gestur kvöld-
vökunnar verður sr. Bernharður Guð-
mundsson, fyrrv. prestur safnaðarins.
Kór og hljómsveit Fríkirkjunnar leiðir
sönginn. Kaffi í safnaðarheimilinu á eftir
kvöldvöku.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl.
11. Kennsla, söngur, leikir o.fl. Almenn
samkoma kl. 14 þar sem Hreimur H.
Garðarsson prédikar. Á samkomunni
verður lofgjörð, barnastarf og fyrirbænir.
Að samkomu lokinni verður kaffi og sam-
félag.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta
fyrir alla fjölskylduna kl. 14. Barn verður
borið til skírnar. Anna Sigga sér um söng
og Carl leikur undir, Hjörtur Magni Jó-
hannsson predikar og þjónar fyrir altari.
Nanda María Maack fer með börnin í
safnaðarheimilið þar sem verður lesið
og sungið.
FÆREYSKA sjómannaheimilið | Sam-
koma kl. 17. Hópur unga manna frá
Bandaríkjunum, „24-7 prayer“ Eric og
Katie St.Clair og Mark og Magdelana Da-
ley predika og syngja. Kaffi og spjall eftir
samkomu.
GRAFARVOGSKIRKJA | Árleg barna-
messuhátíð Reykjavíkurprófastsdæmis
eystra verður haldin í Grafarvogskirkju kl.
11. Stígur og Snæfríður úr Stundinni
okkar koma í heimsókn. Einnig verður
Skessa á svæðinu. Unglinga-, barna- og
krakkakór Grafarvogskirkju syngur.
GLERÁRKIRKJA | Barnastarf og messa
kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjón-
ar, félagar úr Kór Glerárkirkju syngja, org-
anisti er Hjörtur Steinbergsson. Fimm
ára börnum (f. 2003) er boðið sér-
staklega ásamt foreldrum til að fá að
gjöf bókina Kata og Óli fara í kirkju. Létt-
ar kaffiveitingar og svali í safnaðarsal.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10-
10.40. Bænastund kl. 10.15. Barna-
starf kl. 11 í umsjá Lellu, Lilju Irenu o.fl.
Messa kl. 11. Altarisganga, samskot til
Hjálparstarfs kirkjunnar. Messuhópur
þjónar. Kirkjukór Grensáskirkju leiðir
söng, organisti Árni Arinbjarnarson,
prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi
eftir messu. Tómasarmessa kl. 20. Orð
guðs, fyrirbæn, tónlist, altarisganga.
Samskot til kristinboðsins. Molasopi eft-
ir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Barnakórinn syngur
og Gleðigjafarnir leika. Allir leiðtogar
sunnudagaskólanna taka þátt. Sr. Þór-
hallur Heimisson sýnir glærusögur. Boð-
ið er upp á hressingu í safnaðarheimilinu
eftir stundina.
HALLGRÍMSKIRKJA | Fræðslumorgunn
kl. 10. Benedikt Jóhannesson sálfræð-
ingur flytur erindi. Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Þorvaldi Víð-
issyni og messuþjónum. Drengjakórinn
syngur undir stjórn Friðriks S. Krist-
inssonar, organisti er Hörður Áskelsson.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Guðbjörg Jóhann-
esdóttir þjónar, kór kirkjunnar leiðir safn-
aðarsöng, organisti Douglas A. Brotchie.
Erla Guðrún og Páll Ágúst leiða barna-
stundina. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu eftir messu.
HEILSUSTOFNUN NLFÍ | Guðsþjónusta
kl. 11.
HJALLAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Íris
Kristjánsdóttir þjónar, félagar úr kór
kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng,
organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnu-
dagaskóli fellur niður eftir hádegi vegna
barnastarfshátíðar í Grafarvogi kl. 11.
Rúta fer frá Hjallakirkju kl. 10.45.
www.hjallakirkja.is
HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Fjöl-
skyldusamkoma kl. 11. Krakkarnir taka
þátt.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma kl. 20. Þema: „Orðið í öndvegi.“
Gestir: Kommandörshjónin Guðrún og
Carl Lydholm. Heimilasamband fyrir kon-
ur verður mánudag kl. 15. Námskeiðið
„Góð spurning“ er þriðjudag kl. 19. Sam-
koma fimmtudag kl. 20. Opið hús dag-
lega kl. 16-17.30, nema mánudaga
HVERAGERÐISKIRKJA | Sunnudagaskóli
kl. 11.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Engl-
ish service kl. 12.30. Entrance from the
main door. Everyone welcome. Almenn
samkoma 16.30. Ræðumaður Jón Þór
Eyjólfsson, Gospelkór Fíladelfíu leiðir
söng. Aldursskipt barnakirkja, börn 1-13
ára velkomin. www.filadelfia.is
INNRRA-Hólmskirkja |
Messa kl. 14. Barn borið til skírnar,
kirkjukór Saurbæjarprestakalls leiðir
söng, organisti Örn Magnússon, prestur
sr. Skírnir Garðarsson.
ÍSLENSKA kirkjan í Lundúnum | Guðs-
þjónusta verður í Sænsku kirkjunni (6
Harcourt St.,London W1H 4AG) kl. 15.
Íslenski kórinn í London syngur undir
stjórn Þóru Hallgrímsdóttur. Sunnudaga-
skólinn að venju. Kaffihlaðborð eftir
guðsþjónustu og þau sem, hafa tækifæri
til eru beðin um að koma með meðlæti.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnastarf kl.
11. Fræðsla fyrir fulloðna, Kristleifur
Kristjánsson læknir talar um: Trúvörn,
hvernig færum við rök fyrir trú okkar?
Samkoma kl. 20 með lofgjörð og fyr-
irbænum. Friðrik Schram predikar.
KAÞÓLSKA kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og
laugardag kl. 18.
Kapúsínaklaustrið á Kollaleiru Reyðarf.
| Messa kl. 11.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30.
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl.
14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl.
10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er
messa kl. 18. Mánudaga, miðvikudaga
og föstudaga er messa á latínu kl. 8.10.
Laugardaga er barnamessa kl. 14 að trú-
fræðslu lokinni.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa 2. og 3. sunnudag í
mánuði kl. 16.
Suðureyri | Messa 1. og 4. sunnudag í
mánuði kl. 16.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa
kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laug-
ardaga er messa á ensku kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16, miðviku-
daga kl. 20.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Messað kl. 14.
Nýr hökull verður tekinn í notkun. Dr.
Gunnar Kristjánsson prófastur þjónar fyr-
ir altari ásamt sr. Báru Friðriksdóttur,
Frank Herlufsen organisti stýrir kór kirkj-
unnar. Hátíðarmessukaffi verður í þjón-
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kálfatjarnarkirkja
ORÐ DAGSINS:
Freisting Jesú.
(Matt. 4)
Sunnudagaskólahátíð
kirkjunnar
Í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
er barnastarf í kirkjunum á hverj-
um sunnudegi. 10. febrúar munu
sunnudagaskólarnir í prófasts-
dæminu sameinast í hátíð sem hald-
in verður í Grafarvogskirkju kl. 11.
Þar verður boðið upp á allt það
besta sem börnin þekkja úr barna-
starfinu. Sérstakir gestir kirkj-
unnar þennan dag verða Snæfríður
og Stígur úr Stundinni okkar auk
þess sem Skessan úr fjallinu mun
fræðast um sunnudagaskólann. Þá
munu barnakórar Grafarvogs-
kirkju syngja og tónlistarfólk
kirkjunnar stjórna söng. Síðast lið-
in þrjú ár hafa verið haldnar sams-
konar hátíðir í kirkjum prófasts-
dæmisins með þátttöku fjölda
barna. Öll sunnudagaskólabörn eru
velkomin ásamt fjölskyldum sínum.
Fyrirlestur í safn-
aðarheimili
Landakotskirkju
Fyrirlestur undir yfirskriftinni
„Iðrun og yfirbót í lífi kristins
manns“ verður mánudaginn 11.
febrúar, kl. 20, í safnaðarheimili
kaþólskra á Hávallagötu 16. Að-
gangur er ókeypis. Fjallað er um
Maríu frá Egyptalandi sem er flest-
um frekar ókunnugur dýrlingur.
En á miðöldum var hún mikils met-
in sem fyrirmynd iðrunar og yf-
irbótar og naut þess vegna vin-
sælda meðal kristins almennings.
Sr. Jürgen Jamin ætlar að segja
sögu hennar í máli og myndum.
Helgihald í
Seljakirkju
Sunnudagaskólinn tekur þátt í
barnastarfshátíð prófastsdæmisins,
sem haldin verður í Grafarvogs-
kirkju. Rúta verður frá Seljakirkju
og leggur hún af stað kl. 10.50. Al-
menna guðsþjónustan verður á sín-
um stað kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann
Borgþórsson prédikar, Hlín Ólafs-
dóttir leikur á þverflautu og fé-
lagar úr kór Árskóga syngja,
kirkjukórinn leiðir almennan safn-
aðarsöng undir stjórn Jóns Bjarna-
sonar.
Freyja Haraldsdóttir
talar í
Laugarneskirkju
Kvöldmessa verður kl. 20 þar sem
guðsorð og bænir fléttast saman
við djass og gospelsöng. Freyja
Haraldsdóttir verður ræðumaður
kvöldsins að þessu sinni en hún hef-
ur vakið þjóðarathygli þar sem hún
hefur varpað ljósi á gátu hamingj-
unnar og gefið fötluðu fólki og ást-
vinum þeirra nýja von. Sr. Bjarni
Karlsson mun einnig flytja ávarp
og kór Laugarneskirkju syngja við
undirleik djasskvartetts Gunnars
Gunnarssonar, en í messukaffi
munu börnin í Harðjaxlahópnum
selja vöfflur til styrktar starfi sínu í
þágu fatlaðra og fullfrískra barna.
Djassinn mun óma í kirkjuskipi
nokkru fyrir messu, svo hægt er að
koma snemma.
Tómasarmessa í
Grensáskirkju
Tómasarmessa kl. 20. Tóm-
asarmessa er kennd við Tómas
postula sem leitaði áþreifanlegrar
staðfestingar á trú sinni. Jesús
mætti honum og styrkti trú hans.
Jesús mætir okkur í orði sínu og
altarissakramentinu. Hvort
tveggja skipar stóran sess í Tóm-
asarmessunni.
Auk þess er gefið svigrúm til
bænar og íhugunar. Lifandi tón-
list.
Lok Breiðholtshátíðar í
Breiðholtskirkju
Messan kl. 11 sem er hluti af dag-
skrá lokadags „Breiðholtshátíð-
arinnar – menningarhátíðar eldri
borgara í Breiðholti“. Af þessu til-
efni koma Senjórítur Kvennakórs
Reykjavíkur í heimsókn og syngja í
messunni undir stjórn Ágotu Joó.
Að messu lokinni verður boðið upp
á léttan málsverð í safnaðarheim-
ilinu.
Næsta samverustund aldraðra
verður miðvikudag, 13. febrúar kl.
13.30 að lokinni kyrrðarstundinni
sem hefst kl. 12. Eftir kyrrð-
arstundirnar er boðið upp á léttar
veitingar, súpu og brauð.
Föstumessa
í Digraneskirkju
Föstumessa verður kl. 11. Á sama
tíma verður barnastarfshátíð
Reykjavíkurprófastsdæmis eystra í
Grafarvogskirkju. Rútan fer frá
Digraneskirkju kl. 10.30. Kvöld-
messa verður í Digraneskirkju kl.
20 í umsjá æskulýðsfélagsins. Alla
þriðjudaga er kirkjustarf aldraðra
í kirkjunni og næsta þriðjudag, kl.
13, sjá bræðurnir Kristján og Bern-
harður Guðmundssynir um alla
dagskrá, helgistund, tónlist og
kaffibrauð ásamt fleirum úr fjöl-
skyldunni.
Fræðslumorgunn
og messa í
Hallgrímskirkju
Á Fræðslumorgni í suðursal kl. 10-
11, flytur Benedikt Jóhannesson,
sálfræðingur hjá Fjölskylduþjón-
ustu kirkjunnar, erindi um for-
eldra og börn. Benedikt gerði
rannsókn árið 2006 um líðan barna
eftir fjölskylduaðstæðum og mun í
erindi sínu skoða farsæld barna í
því ljósi. Messa hefst kl. 11 í
kirkjuskipinu. Sr. María Ágústs-
dóttir héraðsprestur prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Þor-
valdi Víðissyni miðborgarpresti og
messuþjónum. Drengjakór Reykja-
víkur syngur í messunni undir
stjórn Friðriks S. Kristinssonar,
organisti er Hörður Áskelsson
kantor. Sunnudagaskólinn er á
sínum stað og börnin eru hvött til
Árvakur/Árni Sæberg
Neskirkja.