Morgunblaðið - 09.02.2008, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
MÉR ÞYKIR LEITT
HVERNIG FÓR MEÐ
STEFNUMÓTIÐ, LÍSA
ÞAÐ VAR
FREKAR
SKRÍTIÐ
ÉG HEF ALDREI HEYRT UM
AÐ VEITINGAHÚS VERÐI
UPPISKROPPA MEÐ MAT
ÞAÐ KEMUR
SAMT
STUNDUM
FYRIR
MÉR HEFUR HELDUR ALDREI
VERIÐ HENT ÚT ÚR
SÆDÝRASAFNI ÁÐUR
ÞAÐ
LÍKA...
ALLT Í LAGI!
ÉG SKAL
SENDA BRÉF
TIL GRASKERS-
INS OG SEGJA
HVAÐ ÉG VIL
HVERT Á ÉG AÐ
SENDA ÞAÐ?
EN EKKI HVAÐ?...GRASKERIÐ MIKLA BÝR AÐ
SJÁLFSÖGÐU ÚTI Á AKRI...
HVAR ANNARS STAÐAR?
HVERNIG VIRKA
LJÓSAPERUR?
GALDRAR EN ÞÚ
SAGÐIR
ÞAÐ SAMA
ÞEGAR ÉG
SPURÐI
UM RYK-
SUGUNA!
ÞETTA ERU
ALLT GALDRAR
ÞÚ VEIST
BARA EKKI
HVERNIG
NEITT
VIRKAR!
FÍNT! EF ÞÚ
VILT EKKI
TRÚA PABBA
ÞÍNUM, SEM
VEIT MEIRA
EN ÞÚ, ÞÁ
MÁTTU ÞAÐ
SJÁÐU!
GALDRAR!
ÞETTA ERU
EKKI GALDRAR
EF ÞÚ ÞYRFTIR AÐ GERA ÞETTA
ALLT AFTUR, HVERNIG MANN MUNDIR
ÞÚ VELJA ÞÉR?
ÉG MUNDI VELJA MANN SEM ELSKAÐI AÐ
VINNA HÚSVERKIN OG HANN ÞYRFTI HELST AÐ
VERA MEÐ OFNÆMI FYRIR BJÓR
ÞETTA ER
ALLT Í LAGI!
LÆKNIRINN
ÞINN HEFUR
SJÁLFUR
FARIÐ Í
MARGAR
LÝTA-
AÐGERÐIR
ÞAÐ ER ENGINN SKÓLI Í
DAG, KRAKKAR. KENNARAR-
NIR FÓRU Í VERKFALL
HVAÐ
ÞÝÐIR ÞAÐ
EIGINLEGA?
ÞAÐ ÞÝÐIR AÐ KENNARARNIR ERU
EKKI ÁNÆGÐIR MEÐ ÝMSA HLUTI
OG ÞEIR NEITA AÐ KENNA YKKUR
FYRR EN ÞEIM ER KIPPT Í LIÐINN
ER ÞETTA ÚT AF
ÞVÍ AÐ ÉG VAR
ÓÞEKK SÍÐASTA
VETUR?
NEI, ÞETTA
KEMUR YKKUR
KRÖKKUNUM
EKKERT VIÐ
GERA
KENNARAR
EITTHVAÐ
ANNAÐ?
ERTU SORGMÆDD YFIR DAUÐA HÚGÓ?
EN HANN REYNDI AÐ DREPA ÞIG!
EN HANN
ELSKAÐI MIG!
ÞETTA VAR LEIKSIGUR
LÍFS MÍNS... EN ÞAÐ
SÁ MIG ENGINN
REYNDAR...
ER ÞAÐ EKKI
ALVEG SATT
MYNDATÖKUVÉLIN
VAR Í GANGI
dagbók|velvakandi
Takk fyrir stoppið!
ÞAÐ er ekki með öllu þrautalaust
að ferðast á hjólinu sínu um borgina
eins og snjóalögin hrannast upp.
Ruðningar liggja þvers og kruss og
saltið berst ótæpilega á stígana svo
erfiðara verður að fá grip undir
reiðhjóladekkin. Hugsanir þjóta út
og suður og stundum ekki allt jafn
fallegt sem flýgur í gegn.
Því er svo ljúft þegar aðdáun-
arvert viðmót verður á vegi manns í
umferðinni.
Ég þarf að fá að þakka bílstjór-
anum sem stöðvaði bifreið sína aft-
an við gangbraut í hægri beygju á
gatnamótum Háaleitisbrautar og
Kringlumýrarbrautar. Hann stöðv-
aði bifreiðina tímanlega og það var
alveg ljóst að hann bauð mér hjól-
andi hreinan forgang.
Án þess að almenningur geri sér
grein fyrir því, þá er hönnun um-
ferðarmannvirkja óvart unnin á
skjön við umhverfisvænan ferða-
máta. Biðskyldan er höfð „hinum
megin“ við gangbrautina og því
eðlileg hugsun bílstjóra að vera
stopp þvert á gönguæðar gatna-
móta. Auk þess eru götuljósin líka
„hinum megin“ svo þú sérð mjög
vel til ljósanna þrátt fyrir að vera
kominn langt fram yfir stöðv-
unarlínu.
Þetta hljóta að vera „slysabörn“
verkfræðinga, frekar en hugmynd
um að flýta umferð. Þessi hvatning
að vera nánast kominn yfir gatna-
mót áður en þú stöðvar bílinn þinn
er varla neitt sem átti að gerast.
Þegar samgönguráðuneytið snýr
sér að því að laga þetta verður það
svolítill peningur en ekki nema
brotabrot af því sem t.d. jarðgöng á
afskekktum landshornum kosta.
Eða pínulitlir bátar sem óvart kosta
voða mikið.
Á mörkuðum heimsins eru græn-
ar fjárfestingar í uppsveiflu. Þegar
íslenska þjóðin ákveður að verða
græn, þá tileinkar hún sér það líka í
einum grænum eins og hvert annað
fiskeldi eða minkarækt.
Ég óska þess eins að stjórnvöld
séu viðbúin sveiflunni og taki henni
opnum örmum. Það er eitthvað gott
handa börnunum okkar og ég held
að það gleðji líka ömmu og afa. Þau
vilja líka gera vel við barnabörnin.
Konan í gula stakknum.
Henry Birgir og ofurskálin
ÉG, ásamt nokkrum kunningjum,
ákvað að gefa mér tíma til að horfa
á Super Bowl aðfaranótt mánu-
dagsins síðasta. Misdjúpt var á
vitneskju um amerískan fótbolta í
hópnum en öll skemmtum við okkur
konunglega, enda frábær leikur.
Eitt af því sem stuðlaði að því að
þessi nótt verður ógleymanleg,
a.m.k. næsta hálfa árið, var lýsing
Henrys Birgis. Hún var lífleg og
skemmtileg og ég veit að ég tala
fyrir hönd fimm manns þegar ég
segi: Takk fyrir, Henry!
Já, hann Henry er viðbjóðslega
mælskur.
Kári.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
EINS og nú er ástatt á götum borgarinnar þarf bæði mikinn vilja og ekki
síður áræði til að fara ferða sinna á reiðhjóli. Ökumenn bifreiða ættu að
sýna þessum hvunndagshetjum fyllstu tillitssemi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hvunndagshetjur
FRÉTTIR
GARÐBÆINGAR náðu í lok jan-
úar þeim áfanga að verða í fyrsta
sinn fleiri en tíu þúsund. Garðbæ-
ingur númer tíu þúsund er, sam-
kvæmt upplýsingum frá þjóðskrá,
stúlka sem fæddist 30. janúar sl.,
dóttir hjónanna Hrannar Sigríðar
Steinsdóttur og Jóns Vilbergs
Magnússonar.
Fyrirtækin í Kauptúni, nýja
viðskiptahverfinu í Garðabæ,
Bónus, BYKO, IKEA og Max,
buðu tíu þúsundasta Garðbæing-
inn velkominn í heiminn með því
að gefa fjölskyldu hennar 10 þús-
und króna gjafabréf hvert. Páll
Hilmarsson, forseti bæjarstjórnar
Garðabæjar, fagnaði þessum
áfanga með því að afhenda fjöl-
skyldunni gjafabréfin ásamt
blómvendi frá Blómabúðinni á
Garðatorgi.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að í heimsókn sinni til fjölskyld-
unnar minnti Páll Hilmarsson á
að rúm þrjú ár eru síðan níu þús-
undasti íbúinn var boðinn vel-
kominn í bæinn.
Fjölgar í Garðabæ Páll Hilmarsson heldur á tíu þúsundasta íbúanum. Með
á myndinni eru foreldrarnir, Hrönn Sigríður og Jón Vilberg.
Tíu þúsundasti
Garðbæingurinn