Morgunblaðið - 09.02.2008, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 47
TIL BARCELONA
* Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur m.v.
2 saman í herbergi á Hótel Albinoni
með morgunverði.
AUKAKRÓNUTILBOÐ
Ógleymanleg helgarferð
til einnar vinsælustu
borgar Evrópu. – á aðeins
39.995 kr.*
fyrir Aukakrónukorthafa
Brottfarir eru 15. febrúar, 22. febrúar,
29. febrúar og 7. mars.
Kynntu þér málið á www.aukakronur.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
B
I
40
99
7
02
/0
8
MY Bloody Underground kallast 13.
breiðskífa Íslandsvinarins Jasons
Newcombes og hljómsveitar hans
The Brian Jonestown Massacre. Plat-
an kemur út á vegum a recordings,
sem Newcombe sjálfur rekur, og er
útgáfudagurinn 15. apríl næstkom-
andi. Aðdáendur þessarar alræmdu
sveitar hafa beðið í fjögur ár eftir
nýrri plötu en síðasta plata kallaðist
And This is Our Music og fékk stór-
góða dóma víðast hvar. Newcombe er
á svipuðum nótum og áður, þ.e.a.s.
víruðum hippanótum í bland við indí-
tónlist, en ef tónlistin sjálf á eftir að
valda vonbrigðum munu heiti laganna
væntanlega vega það eitthvað upp, til
að mynda heitir fyrsta lagið Bring Me
The Head Of Paul McCartney On
Heather Mill’s Wooden Peg (Dropp-
ing Bombs On The White House).
The Brian Jonestown Massacre kom
hingað til lands á síðasta ári og lék
fyrir fullu húsi á NASA.
Ný plata vænt-
anleg í apríl
Morgunblaðið/Eyþór
Anton Newcombe Aðalsprauta
The Brian Jonestown Massacre.
EITTHVAÐ seg-
ir manni að villt-
ustu órar leik-
stjórans Woodys
Allens hafi ræst
við upptökur á
nýjustu mynd
hans, en á meðal
atriða í myndinni
er lesbískt ást-
aratriði með
þokkadísunum Penelope Cruz og
Scarlett Johansson. Kvikmyndin nýja
hefur fengið titilinn Vicky Christina
Barcelona og er samkvæmt þeim sem
fylgst hafa með upptökum verulega
erótísk. Fjallar hún um listmálara,
leikinn af Javier Bardem, sem lendir
mitt í ástarsambandi tveggja ferða-
langa, sem fyrrnefndar þokkadísir
leika. Reiknað er með að myndin fari
í sýningar síðar á þessu ári.
Erótískur
Allen
Penelope Cruz
Reuters
Stjörnur Scarlett Johansson, Javier
Bardem og Woody Allen við tökur.
NAHSHID Sulaiman, sem síð-
ar tók sér nafnið OneManArmy
og svo One.Be.Lo, sem hann
notar í dag kemur fram á Org-
an í kvöld ásamt írska skífu-
skankaranum DJ Flip, en hann
vann ITF plötusnúðakeppnina
um árið.
Sulaiman stofnaði rapp-
tvíeykið Binary Star með Se-
nim Silla, en þeir kynntust í
fangelsi í Pontiac í Michigan-
fylki. One.Be.Lo notaði tímann
í fangelsinu vel, lærði á útgáfu-
iðnaðinn, kynnti sér höfunda-
réttarmál og tilheyrandi og
þegar þeir félagar fengu
reynslulausn gáfu þeir út skíf-
una Waterworld. Vegna
reynslulausnarinnar máttu þeir
ekki fara út fyrir Michigan sem
setti þeim eðlilega nokkrar
skorður við kynningu á skíf-
unni. Hún var síðan gefin út að
nýju, endurunnin að hluta, á út-
gáfufyrirtæki sem One.Be.Lo
stofnaði, Subterraneous Re-
cords, undir nafninu Masters of
the Universe og seldist mjög
vel.
Skammstafanir vinsælar
Um það leyti sem Masters of
the Universe kom út hafði slest
upp á vinskapinn hjá þeim fé-
lögum og svo fór að þeir hættu
samstarfinu, en héldu þó stöku
tónleika saman. Næsta verk-
efni One.Be.Lo var svo safn-
skífa ýmissa rappara, Water-
world Too, en hann hóf líka að
vinna að sinni fyrstu sólóskífu
með taktsmiðnum Decompoze,
en saman kölluðu þeir sig Trac-
kezoids. Fyrsti vísir þess sam-
starfs var safnskífan F.E.-
T.U.S. (For Everybody That
Under Stands) sem gefin var út
í takmörkuðu upplagi 2002, en
fyrsta sólóskífan, S.O.N.O.-
G.R.A.M. (Sounds Of Nahshid
Originate Good Rhymes And
Music) kom út 2005 hjá Fat
Beats og fékk frábæra dóma. Á
síðasta ári kom svo út skífan
The R.E.B.I.R.T.H. (Real Em-
cee’s Bring Intelligent Rhymes
To Hip-Hop) og L.I.F.E. (Lo Is
For Everybody) kemur vænt-
anlega út á þessu ári.
Sama kvöld kemur einnig
fram DJ Flip eins og áður
sagði, Larry Mullen yngri, sem
sigraði í ITF World Cham-
pionship plötusnúðakeppninni
2003/2004 í scratch-flokki.
Einnig koma fram Vivid Brain,
Brjánsi og Regnskóg.
Hiphop-veisla í boði TFA
One.Be.Lo. Mikill fengur er að rapparanum hingað til lands.
One.Be.Lo, DJ Flip og fleiri troða upp á Organ í kvöld