Morgunblaðið - 10.02.2008, Page 6

Morgunblaðið - 10.02.2008, Page 6
6 SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR É g hrökk við um daginn. Góður bóndi og nátt- úrubarn sagði mér frá kunnum manni, gömlum kunningja sínum reynd- ar, sem kominn væri á stjá og auðvit- að á skotskónum. Það hefur verið nokkurt frost undanfarið og fallegt veður. Því eru kjöraðstæður til anda- veiða, enda öll vötn að lokast. Rétt einstaka gat opið, þar sem eru kalda- vermsl eða volgrur. Og þegar þannig árar blandast allar tegundir saman á litlu svæði, endur sem má skjóta og endur sem ekki má skjóta. Í fyrri flokknum eru algengastar inn til landsins fyrir sunnan stokkönd, rauð- höfði og urtönd, en stokkönd og toppönd fyrir norðan. En af friðuðum öndum nefni ég gulönd eða stóru toppönd, húsönd og hvinönd, sem kemur frá Skandínavíu og hefur hér vetursetu, m.a. í Meðallandinu, kannski 50 til 100 einstaklingar. Hús- öndum hefur fækkað á síðustu árum, en þær verpa ekki annars staðar í Evrópu en hér á landi. Í bók sinni, Íslenskum fuglum, segir Ævar Pet- ersen, að húsöndin sé ein þeirra varptegunda, sem evrópskir fugla- skoðarar sækist hvað mest eftir að sjá og sé það orð sem fer af Mývatni sem andaparadís fyrir fuglaskoðara ekki síst húsöndinni að þakka. Ég hef áður vakið athygli á því á Alþingi og í Morgunblaðinu, að brögð eru að því, að skotveiðimenn skjóti friðaðar endur. Og er þá allt til, að þeir kunni ekki að greina sundur teg- undirnar, skjóti t.d. æðarkollu fyrir stokkönd, eða þeir fari laumulega og skammist sín fyrir feng sinn eða láti birta mynd af sér á netinu með tvo straumandarsteggi í fanginu eins og dæmi eru um. Ég vek athygli á þessu til umhugsunar. Og eins því, að óhindrað skuli leyft að skjóta endur fram í miðjan mars, þegar auðveldast er að ná þeim. Ég hreyfði því á Alþingi á sínum tíma að rétt væri að takmarka veiðar á öndum á lindasvæðum og tók þá- verandi umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, því vel og leitaði eftir umsögn Náttúrufræðistofnunar. Ég hef hana í höndum frá 25. júlí 2005, en þar leggur stofnunin til, að vetrarveiðar á fuglum (frá 1. nóv- ember til 31. mars) verði bannaðar á eftirfarandi votlendis- og lindasvæð- um: Kelduhverfi–Öxarfirði, Land- broti–Meðallandi, Sogi, Apavatni– Laugarvatni, Brúará og Ölfusforum við Ölfusá. Fuglaveiðar eru bannaðar á Laxár- og Mývatnssvæðinu og við Vestmannsvatn, en fuglagriðland er á jörðunum Sandi og Sílalæk í Aðaldal, sem eru mikil náttúruparadís. Mér er ekki kunnugt um, að um- hverfisráðherra hafi sýnt þessum til- lögum áhuga, en vel má vera, að það hafi farið fram hjá mér. Ég varð mjög undrandi, þegar rjúpnaveiði var leyfð á sl. hausti. Veiðitíminn var styttur og tíð rysjótt, sem betur fer. En svo hart var að stofninum sorfið, að veiði var lítil sem engin. Ég vil mega vænta þess, að ekki verði geng- ið til rjúpna á hausti komanda og að fuglaveiðar verði takmarkaðar á skil- greindum lindasvæðum. Það hefur ráðherrann í hendi sér, því að ekki þarf annað en að breyta reglugerð- inni. Og það er auðvelt að breyta PISTILL » Því eru kjöraðstæður til andaveiða, enda öll vötn að lokast. Halldór Blöndal Fuglaveiðar verði bannaðar á lindasvæðum reglugerð. Ég hef reynslu fyrir því. Það má vera, að það kosti ríkissjóð nokkrar krónur að friða lindasvæðin fyrir vetrarveiðum á fuglum, en því fé yrði þá vel varið. Og auðvitað er líka til í dæminu, að einhver ein- staklingur gangi fram fyrir skjöldu eins og Orri Vigfússon fyrir laxinn, ef ráðherra vill ekki beita sér í mál- inu. Og svo er auðvitað ekki vansa- laust, hversu illa er búið að minka- og refaveiðimönnum. Á meðan annað hefur ekki komið í ljós vil ég mega trúa því og treysta að ráðherra hafi fullan vilja og getu til að bæta þar úr brýnni þörf. Hljóðpistlar Morgunblaðsins, Halldór Blöndal les pistilinn HLJÓÐVARP mbl.is FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is GUÐMUNDUR Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Kirkjuráðs, segir að það hafi vissulega komið til um- ræðu innan kirkjunnar að selja prestssetrið Laufás í Eyjafirði og flytja prestssetrið annað. Þórarinn Pétursson, bóndi í Laufási, hefur hafnað tilboði sem stjórn prestssetra gerði honum um leigu til fjögurra ára, en Guðmundur segir að í tilboð- inu hafi kirkjan komið vel til móts við Þórarinn. Eins og fram hefur komið í Morg- unblaðinu snúast deilurnar um Lauf- ás um hvort Þórarinn Ingi Pétursson fái að nýta jörðina áfram undir sauð- fjárbúskap og hvort íbúðarhús hans sem þar stendur fái að vera þar áfram. Samningur um húsið kom til vegna fötlunar sr. Péturs Þórarinn er sonur séra Péturs Þór- arinssonar sem lést á síðasta ári. Fjölskylda Péturs rak búskap á jörð- inni af myndarskap og í tíð Péturs var búið stækkað. Þar er nú rekið um 600 kinda bú, auk hrossabúskapar. Búskapurinn var að stærstum hluta á verksviði Þórarins, enda átti séra Pétur við langvinn og erfið veikindi að stríða. Þórarinn fór fram á það að hann fengi að byggja hús fyrir sig og fjölskyldu sína á jörðinni. Stjórn Prestssetrasjóðs tók sér talsverðan tíma til að svara þessari beiðni. Ástæðan er sú að reglur kveða á um að þegar prestskipti verða á prests- setrum taki nýr prestur við allri jörð- inn og hlunnindum sem henni fylgja. Áður en gengið var frá leigusamn- ingi við Pétur og Þórarin í mars 1999 var gerð bókun í stjórn Prestssetra- sjóðs. Þar segir: „Það er því algerlega ljóst að þessa ákvörðun tekur stjórn Prestssetrasjóðs einungis vegna þeirrar miklu fötlunar sem sr. Pétur býr við og nauðsyn þess að hann hafi aðstoðarfólk við búskap en því starfi gegnir Þórarinn nú.“ Í leigusamningnum, sem bæði sr. Pétur og Þórarinn undirrituðu, kem- ur fram að fjarlægja skuli húsið þeg- ar Pétur lætur af prestskap og að ekki sé hægt að framlengja samning- inn. Húsið var byggt þannig að auð- velt væri að flytja það. Tilboð um leigusamning Eftir að séra Pétur lést óskaði Þór- arinn eftir að hann fengi að búa áfram á jörðinni. Kirkjuráð sam- þykkti hins vegar að beina þeim til- mælum til stjórnar prestssetra að Þórarni yrði boðinn fjögurra ára leigusamningur án hlunninda, en jafnframt var þess krafist að hann myndi flytja húsið af jörðinni eins og áður hafði verið samið um. Stjórn prestssetra samþykkti þessa tillögu. Þórarinn hefur hins vegar hafnað henni, en jafnframt sagði hann í bréfi til stjórnarinnar að ef þessari tillögu yrði ekki breytt sæi hann ekki annan kost en að fara fram á að fá að búa á jörðinni til næstu sláturtíðar svo hon- um gæfist færi á að bregða búi. Í samtali við Morgunblaðið sagði Þórarinn að hann væri hins vegar ekki tilbúinn til að leggja árar í bát og vonaðist til að sá mikli stuðningur sem hann hefði fengið úr héraðinu yrði til þess að kirkjan endurskoðaði afstöðu sína. Að frumkvæði Guðnýjar Sverris- dóttur sveitarstjóra hófu heimamenn undirskriftasöfnun þar sem skorað var á kirkjunna að verða við óskum Þórarins. Sveitarstjórn Grýtubakka- hrepps hefur einnig ályktað um mál- ið. Þá hafa einstaklingar haft uppi hótanir um að segja sig úr kirkjunni ef málið fari í þann farveg sem kirkju- ráð og stjórn prestssetra vill. Vilji heimamanna virðist vera nokkuð ein- dreginn í þessu máli, en þó hefur Morgunblaðið rætt við einstaklinga úr sókninni sem gagnrýna undir- skriftasöfnunina og segja að ekki megi halda þannig á málum að fram- tíð prestssetursins verði teflt í tví- sýnu. Guðmundur sagði kirkjuna aðeins vera að óska eftir að staðið verði við gerða samninga um ábúð á jörðinni, sem hann átti aðild að. Jafnframt að farið væri að lögum og reglum og ályktun Kirkjuþings 2007. „Telja verður vel boðið að hann fái fjögurra ára umþóttunartíma. Með þessu er verið að koma mjög langt til móts við Þórarinn,“ sagði Guðmundur. Þórarinn lítur hins vegar svo á að fyrst kirkjan sé tilbúin til að leigja honum jörðina áfram til búskapar geti það ekki skipt öllu máli þó húsið fái að vera áfram á jörðinni. Hann tel- ur auk þess að fjögurra ára leigu- samningur sé of stuttur. Margir tilbúnir að kaupa kirkjujarðir Talsvert hefur verið rætt um að mál Þórarins í Laufási sé fordæm- isskapandi, en í reynd eru mörg for- dæmi fyrir því í gegnum árin að kirkjujarðir hafi verið „bútaðar niður til afkomenda presta“, eins og einn viðmælandi blaðsins komst að orði. Innan kirkjunnar eru menn hins veg- ar almennt sammála um að þetta sé ekki til eftirbreytni og að kirkjan verði að halda betur utan um eignir sínar en gert hafi verið í fortíðinni. Einn heimildarmaður blaðsins benti á að prestssetrin séu einu eignir kirkjunnar sem eftir séu, en þau eru u.þ.b. 80. Árið 1997 var gerður samningur milli ríkisins og kirkjunnar þar sem kirkjan afsalaði sér miklum eignum gegn því að ríkið tæki að sér að greiða prestum laun. Dæmi eru um að eignir hafi á þessum tíu árum tí- faldast í verði. Eftirspurn eftir jörð- um hefur aukist mikið á síðustu ár- um. Í hverjum mánuði hafa áhugasamir kaupendur samband við kirkjuna og falast eftir að kaupa jarð- ir í hennar eigu. Laufás er mikil kostajörð. Bestu veiðistaðir í Fnjóská eru á jörðinni og þar er einnig æðarvarp sem fjöl- skylda sr. Péturs hefur lagt áherslu á að rækt og hlúa að. Mikill húsakostur er á jörðinni. Ekki ljóst hvaða verð fengist fyrir jörðina, en heimamenn hafa verið að giska á að hún kunni að fara á 300 milljónir. Fari svo að Lauf- ás verði seldur er líklegast að prests- setrið verði flutt á Svalbarðsströnd eða Grenivík. Ljóst er þó að kirkj- unar menn ganga ekki glaðir til þess verks að selja Laufás enda hefur þar verið prestssetur frá upphafi kristni á Íslandi. Margir merkir prestar hafa setið staðinn. Prestar hikandi að sækja um brauðið Fyrirhugað er að auglýsa prests- setrið laust til umsóknar, en það verður ekki gert fyrr en niðurstaða er komin varðandi ábúð Þórarins á jörð- inni. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa margir sýnt áhuga á að sækja um embættið, en jafnframt heyrist að deilurnar fæli menn frá því. Sumir vilji ekki koma nálægt málinu meðan þessi staða sé uppi. Kirkjuyfirvöld útiloka ekki sölu á Laufási í Eyjafirði Sonur fyrrverandi prests í Laufási sættir sig ekki við tilboð um leigusamning til 4 ára Morgunblaðið/Þorkell Prestssetur Kirkja hefur verið í Laufási í Eyjafirði frá upphafi kristni á Íslandi. Þar hafa í gegnum tíðina setið margir merkir prestar. BORGARRÁÐ hefur sent húsafrið- unarnefnd til meðferðar erindi eig- anda Unuhúss, Garðastrætis 15, sem fer fram á að húsið verði friðað þannig að fasteignagjöld verði felld niður. Að öðrum kosti fer hann fram á að tillaga að friðun á deili- skipulagi verði felld niður. Tillögur að friðun húsa eru gerð- ar í deiliskipulagsáætlun borgaryf- irvalda en friðun húsa er á vegum ríkisins í samræmi við Húsafrið- unarnefnd. Því hefur erindinu, sem var til umfjöllunar í borgarráði sl. fimmtudag, verið beint til Húsafrið- unarnefndar. Í umsögn skipulagsstjóra um málið, sem borgarráð samþykkti, er ekki lagt til að deiliskipulagi Grjótaþorps, sem samþykkt var ár- ið 2002, verði breytt og tillaga að friðun hússins verði afnumin. Húsið er byggt fyrir árið 1918 og því háð þjóðminjalögum um breyt- ingar og endurbætur. Gestur Ólafsson, arkitekt og skipulagsfræðingur, er eigandi Unuhúss. Hann segir í bréfi sínu til borgarinnar að borgaryfirvöld hafi ekki tekið afstöðu til tillögu um friðun hússins. Hann bendir á að fyrir röskum aldarfjórðungi hafi hann endurnýjað húsið fyrir eigin reikning og fært að verulegu leyti í fyrra horf. Hann segir viðhald nú orðið æði kostnaðarsamt og fer þess því á leit við borgina að fallist verði á tillögu um friðun hússins og að fasteignagjöld verði felld niður til jafnræðis við önnur friðuð hús. Aðsetur ungra skálda Unuhús er nefnt eftir Unu Gísla- dóttur (1855-1924), sem leigði þar út herbergi og hafði kostgangara og Erlendur sonur hennar eftir hennar dag. Una seldi fæði ódýrar og leigði herbergi lægra verði en aðrir hér í bæ. Þess vegna dróst einkum að húsi hennar fólk, sem lít- il hafði auraráð eða hvergi átti þak yfir höfuðið. Húsið var líka þekkt aðsetur ungra skálda og listamanna á fyrstu áratugum 20. aldar. Vilja friða Unuhús Morgunblaðið/Þorkell Þekkt hús Snemma á 20. öld var Unuhús aðsetur ungra skálda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.