Morgunblaðið - 10.02.2008, Side 20
Knattundrið Cristiano Ronaldo hefur
tekið eðlisfræðina í sína þjónustu
fer að verða nær að máta hann við
goðsagnir á borð við Pelé og Diego
Maradona.
Fróðlegt verður að sjá hvernig
Alþjóðaknattspyrnusambandið
(FIFA) ætlar að snúa sig út úr því í
framtíðinni að velja Ronaldo leik-
mann ársins en sem kunnugt er
hefur leikmaður með ensku fé-
lagsliði aldrei hlotið þá útnefningu
frá því kjörinu var hleypt af stokk-
unum 1991. Kannski þarf Ronaldo
að ganga í raðir Real Madríd eða
AC Milan til að láta drauminn ræt-
ast? Vonandi ekki, án hans yrði
enska knattspyrnan mun fátækari.
Æfingin skapar meistarann
Það er engin tilviljun að Ronaldo
hefur jafn mörg brögð uppi í erm-
inni og Harry Houdini. „Í hvert
skipti sem ég hafði tuðruna á tán-
um í æsku reyndi ég að brydda upp
á nýjungum. Draumurinn var að
skapa mér sérstöðu sem leikmað-
ur,“ rifjar hann upp.
Holdlegt atgervi spillir vissulega
ekki fyrir en þegar allt kemur til
alls er það æfingin sem skapar
meistarann. Það veit Ronaldo.
Þannig var undraspyrnan gegn
Portsmouth á dögunum engin
heppni, líkt og Sir Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri United, benti á.
Þessa frumlegu spyrnutækni hefur
Ronaldo æft aftur og aftur og aft-
ur …
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
H
onum eru allir vegir
færir. Sumt af því
sem hann gerir með
knöttinn fær mann til
að klóra sér í höfð-
inu.“
Það er ekki dauðlegur maður
sem mælir með þessum hætti úr
lazy boy-stólnum sínum á laugar-
dagssíðdegi heldur einn fremsti
sparkandi sinnar kynslóðar, Portú-
galinn Luís Figo. Og um hvern er
hann að tala? Kemur nema einn
maður til greina? Cristiano Ro-
naldo.
Portúgalski landsliðsmaðurinn
hjá Manchester United, sem varð
23 ára í vikunni, er enn að bæta á
sig blómum. Góður var hann fyrir
en í vetur hefur hann opnað nýjar
víddir í sparkheimum. Það getur
varla nokkur maður efast um það
lengur að hann sé besti knatt-
spyrnumaður í heimi. Eini leikmað-
urinn sem velgir honum undir ugg-
um er líklega Lionel Messi á góðum
degi. Því fer þó fjarri að Messi –
Ingemar Stenmark knattspyrnunn-
ar – sé jafn fjölhæfur og Ronaldo.
Portúgalinn hefur ótal vopn á
hendi. Haldi hann uppteknum hætti
VÍSINDI»
Eðlisfræðingurinn Það er ekki laust við að Cristiano Ronaldo hafi boðið þyngdarlögmálinu birginn með aukaspyrnu sinni gegn Portsmouth.
Vísindi | Glöggir sparkrýnendur hafa veitt því athygli að í stað þess að leggja knöttinn frá sér, líkt og flestir aukaspyrn-
endur, þrýstir Cristiano Ronaldo honum niður í svörðinn. Öfgar | Leiðtogi Frelsisflokksins í Hollandi, vill koma í veg
fyrir að fleiri múslímar flytji til landsins og þrumar að þeir sem þegar búi í landinu eigi að rífa hálfan Kórarninn vilji þeir fá að vera áfram.
VIKUSPEGILL»
Bestur? Verður
Cristiano Ronaldo
fyrsti „Englend-
ingurinn“ til að
hljóta nafnbótina
Leikmaður ársins
hjá FIFA?
20 SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
GEORGE heitinn Best er að margra áliti hæfi-
leikaríkasti leikmaðurinn í sögu Manchester United
og þótt víðar væri leitað. Hann var útherji með
kostulega knatttækni og kunni hvergi betur við sig
en með rammvillta varnarmenn í kringum sig –
nema ef vera skyldi á knæpunni.
Vegna leikstíls og getu er Cristiano Ronaldo iðu-
lega borinn saman við Best. Hann er raunar ekki
sá fyrsti á umliðnum áratugum en Paddy Crerand,
fyrrverandi leikmaður Manchester United, hittir
naglann á höfðuðið þegar hann trúir breska
blaðinu The Times fyrir því að Ronaldo sé frá-
brugðinn fyrri umsækjendum um nafnbótina „Hinn
nýi George Best“.
Sama hvatvísin
„Ronaldo er sá fyrsti sem komið hefur fram á
sjónarsviðið sem er þess umkominn að vera nefnd-
ur í sömu andrá og George,“ segir Crerand, sem
lék lengi með Best. „Þeir eru um margt líkir.
Leika auðveldlega á andstæðinga, jafnvígir á báða
fætur og frábærir skallamenn. Svo hafa þeir báðir
útlitið með sér! Umfram allt er Cristiano samt
gæddur sömu hvatvísinni og George. Ég hef séð
ófáa kappleikina um dagana en það fer ávallt fiðr-
ingur um mig þegar ég veit að Cristiano er að
fara að spila.“
Crerand segir Best og Ronaldo einnig
eiga hugrekkið sameiginlegt. „George
bað um boltann sama á hverju gekk.
Cristiano gerir það líka. Þeim mun
fastar sem varnarmennirnir sparka í
þá þeim mun ákveðnari verða þeir – og
leika betur. Leikurinn var bæði grófari
meðan George var upp á sitt besta – það
þurfti að skjóta mann til að fá brott-
vísun – og vellirnir verri. Hvað hefði
hann gert í dag á iðjagrænum völl-
um innan um varnarmenn sem
varla mega tækla?“
Blæs á baulið
Það eina sem skilur Best frá
Ronaldo á þessum tímapunkti,
að dómi Crerands, er stöðugleiki
þess fyrrnefnda í allra stærstu
leikjunum. „Því stærri sem leikurinn
var þeim mun betur lék George.
Cristiano hefur ekki alltaf gert þetta en það
kemur með tímanum. Hann er sterkur
karakter. Það hefur hann sýnt á útivöll-
um þegar áhorfendur baula á hann leik-
langt. George lenti aldrei í því. Áhorf-
endur nutu þess að horfa á hann, heima
og úti. En svona hefur fótboltinn breyst.
Því miður.“
Betri en Best?
Reuters
Hlébarði í
antilópuhjörð