Morgunblaðið - 10.02.2008, Page 32
andóf og einræði
32 SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
É
g var við ýmsu búinn
meðan á dvölinni í
Hvíta-Rússlandi stóð.
Andstætt áhyggjum
mínum fékk ég þó
fyrst að kynnast harðræði stjórn-
valda í Hvíta-Rússlandi eftir heim-
komuna til Íslands þegar ég opnaði
tölvupóstinn minn. Þar beið mín og
ferðafélaga minna, þeirra Bolla
Thoroddsen og Páls Heimissonar,
tölvupóstur um að vinir okkar þeir
Franak, Yury og Anton auk nokk-
urra fleiri, hefðu verið handteknir
og væru á leið í fangelsi í 15 daga.
Tilfinningin sem vaknaði við lest-
urinn var skrýtin, allt í einu urðu
allar sögurnar sem við heyrðum
meðan á dvölinni stóð um framferði
stjórnvalda raunverulegar og áttu
við um einmitt fólkið sem hafði tek-
ið svo vel á móti okkur aðeins örfá-
um dögum áður.
Hlægilegar sakir
Sakagiftirnar sem vinir okkar
voru bornir voru hlægilegar. Í op-
inberum skjölum var talað um að
þeir hefðu viðhaft „ljótt orðfæri“
(e. bad language) á mótmælafundi
í Minsk nokkrum dögum áður. Ég
stóð með þessum félögum okkar á
fundinum umræddan dag – til þess
að mótmæla lögum sem kváðu á
um að fyrirtæki mættu aðeins
ráða ættingja sína í vinnu (vilji
þeir ráða starfsfólk utan fjölskyld-
unnar verða þeir að breyta skrán-
ingu fyrirtækisins og greiða tvö-
falt hærri skatta) og hvergi varð
ég var við ljótt orðfæri. Ég hafði
einmitt sérstaklega tekið eftir því
hve rólegir og þögulir þessir fé-
lagar okkar voru. Sennilega hirða
harðstjórar ekki mikið um stað-
reyndir þegar þeir framfylgja svo
gölnum lögum. Ekki þarf að hafa
mörg orð um hve freklega það
brýtur gegn nánast öllum hug-
myndum um tjáningarfrelsið að
ríki refsi borgurum sínum fyrir
„ljótt orðfæri“ en brotið var ekki
einu sinni framið!
Eftir að þessi tíðindi höfðu borist
fórum við sem höfðum tekið þátt í
heimsókninni á fullt við að reyna að
beita okkur í málinu. Aðildarfélög
DEMYC tóku sig saman um að
senda mótmælabréf á sendiráð
Hvíta-Rússlands í Evrópu og á
Evrópuþinginu samþykkti nefnd
sem fer með málefni Hvíta-
Rússlands yfirlýsingu þar sem
handtökunum var mótmælt. Hér
heima ákváðum við að leita til utan-
ríkisráðuneytisins og kanna hvort
vilji væri til þess að Ísland beitti
sér í þessu máli.
Yfirlýsing Íslands hjá ÖSE
Utanríkisráðherra og starfs-
menn ráðuneytisins tóku okkur af-
ar vel og eiga mikið hrós skilið fyrir
framgöngu sína í málinu. Fimmtu-
daginn 31. janúar sl. las fulltrúi Ís-
lands í fastaráði ÖSE (Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu) upp
yfirlýsingu þar sem handtökunum
var mótmælt og hörð gagnrýni á
mannréttindabrot stjórnvalda sett
fram. Yfirlýsingin vakti töluverða
athygli á fundinum en Hvíta-
Rússland á aðild að ÖSE og á full-
trúa í fastaráðinu, Sychov nokkurn,
sem hlýddi á yfirlýsinguna. Hann
reyndi að vísu að bera í bætifláka
fyrir handtökurnar en hét því einn-
ig að koma þessari yfirlýsingu á
framfæri við stjórnvöld í Hvíta-
Rússlandi. Viðbrögð hans voru, eft-
ir því sem okkur er sagt, enn-
fremur á þá leið að tala um að
hvetja ungt fólk frá Íslandi til að
heimsækja áfram Hvíta–Rússland!
Stjórnarfarið í landi eins og
Hvíta-Rússlandi riðlast vitaskuld
ekki út af „smámunum“ eins og
þeim að örþjóð í Atlantshafi lesi
upp yfirlýsingu og ekki heldur þó
fleiri þjóðir samþykki ályktun eða
sendi bréf. En þegar ég hringdi út
og talaði við Franak vin okkar, sem
Andóf í Minsk Mótmælendur þustu út á umferðargötu nálægt torginu og stoppuðu bíla. Nokkru síðar komu margir lögreglu- og sérsveitarmenn, hlupu inn í þvöguna og flæmdi hana burt.
Munnsöfnuður
í einræðisríki
Hvíta-Rússlandi hefur verið lýst sem síðasta einræðisríkinu í Evrópu.
Árni Helgason heimsótti landið í byrjun janúarmánaðar í ferð á vegum
evrópskra samtaka ungra hægrimanna og fékk að kynnast harðræði
stjórnvalda – eftir heimkomuna til Íslands.
Fáninn á loft Hópur mótmælenda lyfti hvítrússneska fánanum en á þaki
þinghússins blakti hinn opinberi fáni sem stjórn Lúkasjenkó notar.
Ljósmynd/Árni Helgason
Ljósmynd/Árni Helgason