Morgunblaðið - 10.02.2008, Page 33

Morgunblaðið - 10.02.2008, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2008 33 var þá nýkominn út úr fangelsi, og sagði honum frá yfirlýsingunni sem fulltrúi okkar las upp, fann ég hve einlægt þakklæti hans var. Og þótt slík skref séu lítil í sjálfu sér geta þau vakið von í hjörtum félaga okkar og vissu um að baráttu þeirra sé gefinn gaumur. Rottugangur og kuldi Franak lýsti fyrir mér aðstæð- unum í fangelsinu sem þau þurftu að dúsa í. Í glugganum á klefanum hafði ekki verið gler heldur þurftu fangarnir að láta sér nægja dag- blaðapappír í staðinn. Kuldinn hafði verið slíkur að hann var veik- ur eftir dvölina. Maturinn hafði verið heldur fábrotinn, enda er bannað að koma með matargjafir til fanga. Þá var rottugangur í klefanum þar sem tólf fangar dvöldu saman en klefinn var ekki meira en fimmtán fermetrar. Handtökur eins og þær sem fé- lagar okkar lentu í sæta að vísu ekki sérstökum tíðindum í Hvíta- Rússlandi. Flest það unga fólk sem við hittum og töluðum við hafði komist í kast við lögin og jafnvel setið í fangelsi fyrir það eitt að taka þátt í stjórnmálum á frið- samlegan hátt. Ung stúlka úr kristilegu samtökunum „Young Front“ sagði okkur frá því að síð- ustu tveir formenn samtakanna, 22 og 26 ára að aldri, hefðu báðir ver- ið dæmdir til eins og hálfs árs fangelsisvistar. Annar þeirra sat inni fyrir veggjakrot. Þjóðin mátt þola margt Segja má að ríkjandi stjórnarfar sé enn einn sorgarkaflinn í sögu þessarar þjóðar, sem hefur mátt þola margt undanfarna áratugi. Áður en einræðisherrann Alexand- er Lúkasjenkó varð forseti 1994, hafði Hvíta-Rússland verið undir oki kommúnismans allt frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Styrjald- arárin voru þjóðinni sérstaklega erfið, enda er landið staðsett mitt á milli Berlínar og Moskvu og talið er að um ein milljón Hvít-Rússar hafi fallið í stríðinu. Um þrír ára- tugir liðu þar til fólksfjöldi í land- inu varð sá sami og fyrir stríð. Hvernig er líf í einræðisríki? Ástæða þess að þrír Íslendingar þvældust til Minsk var heimsókn sem DEMYC, samtök ungra hægri manna í Evrópu, skipulögðu til landsins. Tilgangurinn var að hitta fulltrúa stjórnarandstöðunnar, einkum frá Belarus Popular Front, sem er stærsti stjórnarand- stöðuflokkur landsins. Fyrirfram vissum við ekki mikið um þetta land, annað en að það væri kallað síðasta einræðisríkið í Evrópu. Ég hafði sjálfur litla reynslu af því að vera gestur í einræðisríkjum – sennilega var það næsta sem ég hafði komist því að lesa 1984 eftir George Orwell. Það voru því blendnar tilfinn- ingar sem fylgdu því að stíga upp í flugvélina. Hvernig er manni tek- ið? Eru afskipti stjórnvalda áber- andi? Getur fólk fengið að lifa í friði í svona landi eða er það stöð- ug eymd? Eyðublöð og ítarlegt eftirlit Það fyrsta sem þurfti að gera við komuna til landsins, sem var raunar nálægt miðnætti, var að fylla út ítarleg eyðublöð með alls- konar upplýsingum um hitt og þetta í eigin lífi þótt vandséð væri hvernig þessar upplýsingar kæmu vegabréfsáritun til landsins við. Maðurinn sem tók við pappírunum gerði að vísu lítið meira en að renna augunum yfir blöðin og veita okkur vegabréfsáritunina – glotti aðeins yfir því hve hátíðlega við höfðum tekið fyrirmælum um að fylla út eyðublöðin. Við tók vegabréfaeftirlit – það ít- arlegasta sem ég hef upplifað. Vörðurinn sem tók við vegabréfinu mínu grandskoðaði það í um það bil 20 mínútur, gegnumlýsti hverja einustu blaðsíðu og setti svo upp einglyrni til þess að rýna nánar í passann. Ég fékk þó samþykki á endanum og hlýtur það að teljast fjöður í hatt Útlendingastofnunar sem útgefanda íslenskra vegabréfa. Þegar við höfðum fengið tösk- urnar í hendur á flugvellinum og héldum að útidyrunum sáum við að þar stóð hópur heldur skuggalegra manna og horfði á okkur. Þetta reyndust vera leigubílstjórar sem buðust til að keyra okkur í borgina fyrir 35 dollara. Það reyndist vera einkar sanngjarnt verð fyrir báða aðila – andvirði tveggja bíómiða á Íslandi en rúmlega einn tíundi af meðalmánaðarlaunum í Hvíta- Rússlandi. Að vísu er svört vinna algeng í landinu og margir eru í tveimur vinnum til þess að fram- fleyta sér þannig að opinberar töl- ur um mánaðarlaun eru ef til vill ekki alveg lýsandi. Söfnun valda Í Hvíta-Rússlandi hefur Alex- ander Lúkasjenkó ríkt sem ein- valdur frá því að hann var kosinn (lýðræðislega, að vísu) í fyrstu for- setakosningum landsins árið 1994. Eftir að Sovétríkin féllu og landið fékk sjálfstæði árið 1991 fögnuðu margir Hvít-Rússar en í hönd fór mikill óvissutími fyrir þjóðina þar sem verð hækkaði og stöðugleikinn minnkaði. Lúkasjenkó hlaut stuðn- ing einmitt vegna loforða sinna um að endurheimta stöðugleikann og berjast gegn spillingu en því miður fyrir þjóðina fékk hún í kaupbæti í síst vægari mynd einræðistilburði gamla Sovétsins. Hann var áður í sovéska hernum auk þess sem hann stýrði samyrkjubúi um tíma. Innan kommúnistaflokksins var Lúkasjenkó í forsvari fyrir hóp sem vildi aukið lýðræði innan Sov- étríkjanna þótt haldið yrði í gildi kommúnismans. Eftir fall Sov- étríkjanna leiddi hann nefnd sem rannsakaði spillingu og hafði frum- kvæði að ákærum gegn fjölda emb- ættismanna. Hann hafði nokkuð af- gerandi sigur í kosningunum árið 1994. Lúkasjenkó hefur á valdatíma sínum náð að safna til sín völdum og áhrifum með þeim hætti að hver kimi ríkisvaldsins er í hans höndum. Óháðum fjölmiðlum er varla til að dreifa í landinu – lang- flestir fjölmiðlar eru í eigu ríkisins og þeir örfáu sjálfstæðu miðlar sem gefnir eru út búa við þá hættu að vera lokað ef umfjöllunin verður forsetanum óhagfelld. Lúkasjenkó er raunar hvergi af baki dottinn. Eins og áður sagði kynnti hann nú í ársbyrjun ný lög sem gera atvinnurekendum erfitt fyrir en þeir halda uppi þeim litla hluta hagkerfisins sem er einka- rekinn og er forsetanum vitaskuld þyrnir í augum. Mótmælt hjá lokuðu þingi Atvinnurekendur efndu til mót- mælafundar í Minsk vegna laganna og svo vildi til að þunginn í mót- »Hluti af starfsemi Milinkevich núna felur í sér að aðstoða og vinna með þeim mikla fjölda fólks sem orðið hefur fyrir ofsóknum í kjölfar forsetakosninganna árið 2006 20 kr. af hverjum pakka Nicotinell hjálpar þér að hætta að reykja og styrkir Krabbameinsfélagið um 20 kr. af hverri seldri pakkningu Tvöfaldaðu möguleika þína til að hætta að reykja hvort sem þú kýst tyggjó, plástra eða mintur og þú styður gott málefni um leið. Nicotinell nikótínlyf fást án lyfseðils og eru notuð sem hjálparefni til þess að hætta eða draga úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðlinum með lyfinu. Skammtar eru einstaklingsbundnir og eru ákvarðaðir eftir því hversu mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Þeir sem hafa fengið ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, fengið hjartaáfall nýlega, óstöðuga eða versnandi hjartaöng, alvarlega hjartsláttaróreglu eða heilablóðfall nýlega, eiga ekki að nota Nicotinell nikótínlyf. Börn undir 15 ára aldri, þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu ekki nota lyfið nema að læknisráði. Lesið allan fylgiseðilinn áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhraun 12a, 210 Garðabæ. P L Á N E T A N

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.