Morgunblaðið - 10.02.2008, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 10.02.2008, Qupperneq 54
54 SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Laufey Svan-bergsdóttir fæddist í Lög- mannshlíð ofan Ak- ureyrar 4. maí 1923. Hún lést á líkn- ardeild Landspít- alans, Landakoti 18. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Svan- berg Sigurgeirsson vatnsveitustjóri, f. 14. júní 1887, d. 11. júní 1961, og Guð- rún Sigurðardóttir, f. 4. nóvember 1899, d. 4. febrúar 1926. Alsystkini Laufeyjar eru Sigurður Björgvin, f. 1920, Fann- ey Soffía, f. 1922, og Sigurgeir, f. 1924, d. 6. september 2007, einnig á hún fjögur hálfsystkini sam- og Hauk Má, b) Benedikt, í sambúð með Rut Þorgeirsdóttur, þau eiga tvö börn, Ástrós Erlu og Benedikt. 2) Eygló, f. 14. apríl 1950, gift Árna Matthíasi Sigurðssyni, þau eiga tvö börn, a) Sigurð Örn, í sambúð með Margréti Valdimars- dóttur, b) Ernu Geirlaugu, í sam- búð með Benedikt Heiðari Sig- urðssyni, þau eiga eina dóttur, Eygló. 3) Svanur Heiðar, f. 22. jan- úar 1956, kvæntur Hrefnu Guðna- dóttur. Laufey flutti til Reykjavíkur 16 ára gömul og byrjaði í vist eins og oft tíðkaðist á þeim tíma, síðan stundaði hún ýmis störf, meðal annars vann hún lengi í Bæj- arútgerð Reykjavíkur sem verk- stjóri, síðar stofnaði hún ásamt tveimur öðrum konum verslunina og saumastofuna Feldinn, þar sem þær hönnuðu og saumuðu leður- og mokkafatnað við góðan orðstír, síðustu starfsárin vann hún í mat- sal starfsmanna á Landspítalanum við Hringbraut. Útför Laufeyjar fór fram í kyrr- þey, að ósk hinnar látnu. feðra. Laufey giftist 31. desember 1944 Þor- móði Hauki Jónssyni, f. 31. desember 1919, d. 22. mars 2005. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir, f. 17. nóvember 1891 d. 14. mars 1986, og Jón Guðmundur Þorleifs- son sjómaður, f. 11. september 1893, d. 3. nóvember 1925. Laufey og Haukur eignuðust þrjú börn, þau eru: 1) Guðrún Erla, f. 7. nóv- ember 1945, d. 24. júní 1982, var gift Benedikt Benediktssyni, þau eignuðust tvö börn, a) Laufeyju, gift Tómasi Tómassyni, þau eiga þrjú börn, Erlu Mjöll, Tómas Aron Tengdamóðir mín Laufey Svan- bergsdóttir er látin, hún hafði átt við erfið veikindi að stríða með hléum síð- an í apríl á liðnu ári. Með Laufeyju er genginn einn af fulltrúum þeirrar kynslóðar sem af ósérhlífni og dugn- aði byggði upp það allsnægtaþjóð- félag sem við nú búum í. Hún fór ung að heiman og fór að vinna fyrir sér við ýmis þau störf sem til féllu. Laufey giftist Þormóði Hauki Jónssyni bifreiðarstjóra á afmælis- degi hans, gamlársdag 1944. Þau byrjuðu sinn búskap á Barónsstíg 16 en þar fæddist þeim dóttirin Guðrún Erla og síðar Eygló. Seinna fluttu þau á Hverfisgötu 125 en þar eignuðust þau Svan Heiðar. Það er af mörgu að taka þegar litið er til baka þau rúm fjörutíu ár sem liðin eru síðan ég kynntist Laufeyju og Hauki, bæði höfðu þau verið alin upp í sveit, hún fyrir norðan en hann í Kjósinni. Framan af áttu þau kindur sem hugsað var um af mikilli natni og voru börnin höfð með við heyskap og gegningar, þau voru sem eitt, sam- hent, lítillát og nægjusöm. Það var siður til margra ára að stórfjölskyldan hittist á laugardags- morgnum á Hverfisgötunni þar sem rædd voru málefni líðandi stundar og lauk með matarveislu sem Laufeyju var einni lagið, hún lagði mikið upp úr samverustundum með sínum nánustu og áttu yngstu afkomendurnir hug hennar allan. Veislurnar sem hún hélt á gamlárs- kvöld, afmæli Hauks, voru glæsilegar og ekkert sparað til að hafa allt sem best. Það var sama hvað hún gerði, sauma, mála á postulín, skera út eða smíða úr silfri, allt lék í höndunum á henni. Um tíma rak hún ásamt fleir- um saumastofuna Feldinn, þar naut hún sín í hönnun á mokkajökkum og allskonar flíkum og var fjölskyldan þá ugglaust sú best klædda í bænum, en það lýsir því best hve umhugað henni var um sína. Fjöllin, vötnin og litadýrðin á Þing- völlum vor og haust heillaði hana, hún sá allavega kynjamyndir úr klettum og trjám og lýsti þeim þannig að mað- ur komst ekki hjá því að sjá þær ljós- lifandi fyrir sér. Velferð afkomendanna var henni ætíð efst í huga, hún fylgdist vel með og var með öll afmæli, útskriftir og aðrar uppákomur hjá barnabörnun- um og barnabarnabörnunum á hreinu, hún vildi og var með. Tíminn líður hratt, þegar við lítum til baka þá er eins og lífið þjóti áfram og við fáum ekki við neitt ráðið, minn- ingar hrannast upp og við þökkum fyrir samferðafólkið sem við kynnt- umst og fyrir tímann sem við nutum með því. Ég þakka fyrir kynni mín af Lauf- eyju Svanbergsdóttur og allar sam- verustundirnar í gegnum árin. Megi algóður Guð blessa minningu hennar. Árni M. Sigurðsson. Þegar ég sest niður til þess að skrifa minningarorð um mína yndis- legu tengdamóður er mér þakklæti efst í huga. Mér finnst ég vera svo miklu ríkari eftir að hafa verið henni samferða. Minningarnar um Laufeyju og Hauk, sem lést árið 2005, eru svo margar og ljúfar og verða aðeins geymdar í hjörtum okkar sem áttum þau að. Mín fyrsta minning um hana er mér dýrmæt og sagði mér svo mik- ið um þann kærleika og umhyggju sem hún bar fyrir sínu fólki. Við Svanur vorum þá nýfarin að kynnast, höfðum bæði lent úti á rúmsjó lífsins eins og svo margir og gemsarnir voru komnir í spilið. Það að heyra þau mæðgin tala saman í símann sagði mér allt um þá virðingu og kærleika sem ríkti þar á milli. Ég hafði heyrt að ekki væri úr vegi að skoða sam- band sonar við móður í því skyni að vita hvernig framtíðin yrði með við- komandi. Þessi ár sem liðin eru hafa leitt í ljós að þessi fyrsta vísbending reyndist rétt og var ekki bara góð byrjun heldur áframhaldandi yndis- legt samband okkar og þeirra sem mér fylgdu. Hennar þáttur var stór í lífi okkar, hún fegraði og bætti allt í kringum sig og vildi alla gleðja. Laufey var mikil hagleikskona og vandaði allt sem hún tók sér fyrir hendur. Ótal listaverk prýða heimili okkar og fjölskyldunnar allrar og eru svo dýrmæt núna þegar hún er farin héðan. Þau hjón voru einstaklega samhent og ég skynjaði svo vel þá virðingu sem þau báru fyrir hvort öðru. Haukur var einstakt ljúfmenni þó hann hefði ákveðnar skoðanir á ýmsum málum.Hann hafði yndi af lestri góðra bóka og fróður um margt. Nokkrar línur úr ljóði sem ort var í tilefni áttræðisafmælis Laufeyj- ar og var kveðja frá Svani Heiðari og okkur stelpunum hans læt ég fylgja hér. Á „Norðurpólnum“ heima var oft í Koti kátt. Með kappsemi og dugnaði þið unnuð dag og nátt. En kalt var ekki á „Pólnum“ í kærleika og hlýju. Þá keyrði pabbi á stöðinni hundrað fimmtíu og níu. En bernskuárin liðu og æskan eftir það. Og áfram tíminn rennur og skrifar lífsins blað. Þótt margt á móti blési og mæddu höggin styrk. Þið stóðuð stælt við bak mitt svo sterk og mikilvirk. Við biðjum Drottin Jesúm að gefa nýja náð að nú þið megið uppskera það sem til var sáð. Hann launi ykkur margfalt og lýsi veginn heim. Lísa, Hrefna, Heiðar – kveðjan er frá þeim. (JFK) En þessi kona átti sér líka hlið sem hún geymdi með sjálfri sér en það var trúin á Jesú Krist sem hún játaði fyrst í fermingunni. Þegar áföllin dundu yfir veit ég að bænir hennar stigu upp. Hún var sterk kona sem átti æðruleysi þegar á móti blés. Þau eru þung sporin sem við fjölskyldan höfum stigið undanfarna daga. Það er erfitt að kveðja þá sem manni þykir vænt um. Fólk sem hefur gefið manni svo mikið af sjálfu sér, stutt á allan hátt í blíðu og stríðu. Við hlökkuðum til þess að fá að hafa hana hjá okkur lengur og launa henni kærleikann all- an. En svona er lífið og Guð ræður. Elsku Laufey mín! Takk fyrir að treysta mér fyrir einkasyninum. Lísa og afastelpan hún Hrefna Erla kveðja ömmu og fjölskyldan öll. Hrefna Elsku amma mín, nú er komið að kveðjustund. Ég kveð þig með miklum söknuði en jafnframt miklu þakklæti fyrir að hafa átt ömmu eins og þig. Síðustu daga hef ég verið að hugsa um allar þær yndislegu stundir sem við áttum saman og veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja. Mér er það ofarlega í huga hvað hún amma mín hafði mikinn áhuga á myndlist og hannyrðum, enda var hún á fullu í Gerðubergi og það liggja ófáir fallegir munir eftir hana á heim- ilum barna hennar og barnabarna. Þegar ég var uppi í Ugluhólum hjá ömmu og afa sýndi amma mér oft myndir sem hún var að mála eða gler- listaverk sem hún var að vinna að. Henni var margt til lista lagt. Ég fór oft um helgar með ömmu, mömmu og Eygló litlu í bæinn og þar áttum við góðar stundir, en ömmu þótti mjög gaman að vera með Eygló litlu og þær voru miklar vinkonur. Svo lengi sem ég man fór ég með ömmu og afa að sjá haustlitina á Þingvöllum, þessar ferð- ir eru mér afar minnisstæðar. Þessi tími okkar saman er mér ómetanlegur. Elsku amma, ég kveð þig með mikl- um söknuði og þakka fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Þín dótturdóttir, Erna Geirlaug Árnadóttir. Laufey Svanbergsdóttir fæddist árið 1923 á bænum Lögmannshlíð í Kræklingahlíð ofan Akureyrar. Hún var í miðju í hópi fimm barna Svan- bergs og Guðrúnar, ábúenda Lög- mannshlíðar á þeim tíma. Þriggja ára að aldri missti hún móður sína og yngsta bróður sinn Sumarliða sem þá var tæplega árs gamall. Þessi mikla sorg olli straumhvörfum í lífi fjöl- skyldunnar. Þau Guðrún og Svanberg höfðu hafið undirbúning að flutningi til Akureyrar og var hafin bygging framtíðarhúss fjölskyldunnar í Þór- unnarstræti. Svanberg lagði mikla áherslu á að halda fjölskyldunni sam- an, sem ekki var sjálfsagt á þessum tíma, og fluttist með börnin fjögur í Þórunnarstrætið og bjó þeim þar heimili. Erfið ár fóru í hönd við að draga björg í bú og fjölskyldan stækkaði. Laufey fór ung að vinna fyrir sér, fyrst á Akureyri en fluttist til Reykja- víkur 16 ára að aldri og settist þar að. Skólaganga var ekki löng en Laufey var vel að sér til munns og handa, ljóðelsk og listræn. Laufey var vík- ingur til allrar vinnu. Hvar sem leið hennar lá á vinnumarkaði var hún val- in til að leiða vinnuhópinn sem hún gerði af dugnaði og ósérhlífni. Skipti þá engu hvort um var að ræða fisk- vinnslu eða listasaum úr íslenskum skinnum. Eftir að launavinnu lauk gat hún notið þess að fást við fágaðri list- iðn og vílaði ekki fyrir sér að takast á við ný efni að vinna úr eins og gler, stein og silfur. Eftir hana liggja margir fagrir gripir. Hjá okkur í fjölskyldunni fyrir norðan gekk hún jafnan undir nafninu Laufey frænka í Reykjavík. Í þá daga var ekki mikið um frí frá vinnu eða ferðalög milli landshluta. En þegar það gerðist að fjölskyldan fór suður stóð heimili hennar opið fyrir okkur. Litla húsið við Hverfisgötu stendur ljóslifandi í endurminningunni. Lauf- ey frænka var miðpunkturinn sem gaf af hlýju sinni, natni og rausnar- skap. Þar var gott að koma. Húsið er nú horfið og annað stærra risið þar sem það var. Laufey var trygglynd og stóð með sínum. Hún og Haukur eiginmaður hennar eignuðust efnilegan hóp af- komenda. Móðurmissir var ekki eina sorgin sem henni mætti á lífsleiðinni því elsta dóttirin Erla lést í blóma lífs- ins og setti sá missir mark sitt á Lauf- eyju og fjölskyldu hennar. En Laufey mætti mótlætinu með þrautseigju og þeim dugnaði sem einkenndi hana. Á kveðjustund er þakklæti til Laufeyjar og hennar fjölskyldu efst í huga fyrir ræktarsemi og góðvild gegnum árin. Samskipti voru ekki tíð en tryggðar- strengur sameiginlegs uppruna ætíð til staðar. Blessuð sé minning um góða frænku. Eftirlifandi börnum og ástvinum er vottuð innileg samúð. Smári S. Sigurðsson. „Elskan mín, það var ekkert, þetta er nú svo lítið“ var Laufey vön að segja þegar henni voru þakkaðar góð- gerðir í gegnum árin. Lítillæti mik- illar konu var einstakt. Hún var ein af hetjum hversdagsins, afkastaði miklu á oft löngum vinnudögum. Hún gekk í gegnum sára sorg, dótturmissi, en horfði fram á veginn raunsæ, þakklát og gjafmild fjölskyldukona, sem kvartaði aldrei heldur hélt áfram á sinn hljóða hátt. Hún átti börnin sín og fjölskyldur þeirra, þau elskaði hún heitt og vildi allt fyrir gera, og hún átti hann Hauk. Haukur og hún voru samhent hjón sem báru einlæga virðingu hvort fyrir öðru í þau rúmlega sextíu ár sem þau áttu saman í hjónabandi. Hann er far- inn og nú er hún komin til hans. Þau voru einlægir og góðir vinir mömmu og pabba. Hún naut þess að búa til fallega hluti til gjafa, var mikil handavinnu- kona; það færi í raun betur að segja fjölhæf listakona, því eftir hana liggur svo margt sem hún málaði á postulín, skar út í tré, skartgripir, glerlista- verk, skinnfatnaður og er þá ekki allt talið. Það er alltaf erfitt að kveðja og er aldur afstæður í þeim efnum. Árni bróðir var lánsamur að tengjast góðu fólki og fengum við þess sannarlega notið með honum. Það er með hjartans þakklæti og virðingu sem ég og fjölskylda mín minnumst Laufeyjar. Gengin er góð kona. „Lífið er stutt og mun brátt taka enda en kærleiksverkin vara að eilífu.“ Þannig mun framkoma Lauf- eyjar lifa. Elsku Eygló, Heiðar og fjölskyld- ur, við Böddi, dætur okkar og fjöl- skyldur vottum ykkur okkar innileg- ustu samúð. Blessuð sé minning Laufeyjar Svanbergsdóttur. Valgerður Sigurðardóttir. Laufey Svanbergsdóttir Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLEIF ÓLAFSDÓTTIR hjúkrunarkona, Sogavegi 172, lést á Borgarspítalanum fimmtudaginn 7. febrúar. Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 28. febrúar kl. 15.00. Júlíus Helgi Helgason, Ásthildur Ketilsdóttir, Sigríður Ketilsdóttir, Guðmundur Júlíusson, Ágúst Júlíusson, Ólafur Júlíusson, Rósa Erlendsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Faðir okkar, GUNNAR REYNIR SVEINSSON tónskáld, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 12. febrúar kl. 15.00. Sveinn Gunnarsson, Sigríður Helga Gunnarsdóttir, Ingunn Ásta Gunnarsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.