Morgunblaðið - 15.02.2008, Side 1
STOFNAÐ 1913 45. TBL. 96. ÁRG. FRIDAY 15. FEBRUARY 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
GRÆNMETISDAGAR
MATLYSTUGIR KRAKKAR Á LEIKSKÓLANUM
RAUÐHÓLI HÁMA Í SIG HOLLUSTUNA >> 22
FRÉTTASKÝRING
Eftir Soffíu Haraldsdóttur
soffia@mbl.is
ÁLIT Seðlabankans um
heimild til handa Kaup-
þingi að gera upp í evr-
um hafði ekki nein áhrif
á ákvörðun ársreikn-
ingaskrár um að meina
Kaupþingi að gera upp í
evrum. Þetta sagði Dav-
íð Oddsson seðla-
bankastjóri á fundi þar
sem tilkynnt var stýrivaxtaákvörðun bank-
ans í gær. Hann sagði fráleitt að ásaka
Seðlabankann um að hafa haft áhrif þar á.
Ársreikningaskrá hefði farið yfir þær tölur
sem fyrir lágu og talið að Kaupþing upp-
fyllti ekki skilyrði gildandi laga.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
er ársreikningaskrá í engu bundin umsögn
Seðlabankans í ákvörðun sinni. Einungis sé
skylt að leita álitsins, en það eigi aðeins við
þegar um fjármálafyrirtæki sé að ræða.
Til þess að fá heimild til uppgjörs í er-
lendri mynt þarf félag að uppfylla a.m.k.
eitt eftirtalinna skilyrða: vera með meg-
instarfsemi sína erlendis eða vera hluti er-
lendrar samstæðu þar sem notaður er er-
lendur starfrækslugjaldmiðill, að
meginviðskipti félags séu við erlend dóttur-
eða hlutdeildarfélög, vera með verulegan
hluta tekna sinna frá erlendum aðilum í er-
lendum starfrækslugjaldmiðli, eða hafa
verulegan hluta fjárfestinga sinna í erlend-
um fjárfestingarvörum og að skuldir þeim
tengdar séu í erlendri mynt.
Skilyrðin gilda um hvers kyns félög. Þó
er þess getið í reglugerð um veitingu heim-
ildarinnar, að þegar um fjármálafyrirtæki
sé að ræða, sem skilgreint sé sem lánastofn-
un, skuli ársreikningaskrá leita umsagnar
Seðlabankans um umsóknina. Sem var gert
hvað varðaði umsókn Kaupþings og sagði
Seðlabankinn, í umsögn sinni, ekki for-
sendur til að fallast á umsókn Kaupþings.
Ákvörðun ársreikningaskrár hefur ekki
verið birt en fram hefur komið að í heimild
til Kaupþings hafi verið sett skilyrði um að
kaupum á NIBC, sem nú hefur verið hætt
við, yrði lokið fyrir síðustu áramót. Kaup-
þing kærði þá niðurstöðu til fjármálaráðu-
neytisins og fjallar ráðuneytið nú um málið.
Skylt að
leita um-
sagnar
Ársreikningaskrá
bar ekki að fara að
áliti Seðlabankans
Vígaguðinn >> 41
Allir í leikhús
Leikhúsin í landinui i í l i
„ÞARNA sjáum við lægstu laun
hjá Starfsgreinasambandinu
hækka yfir 32% á samningstíman-
um og byrjunarhækkunin er um
16%. Þarna eru miklir og góðir
áfangar t.d. varðandi slysatrygg-
ingamál verkafólks, sem hafa verið
í miklum ólestri. Við sjáum einnig
mikla aukningu á orlofi upp í 30
daga og jafnar það stöðu okkar
gagnvart opinberum starfsmönn-
um á samningstímanum,“ segir
Kristján Gunnarsson, formaður
Starfsgreinasambands Íslands, um
það samkomulag sem tekist hefur
við Samtök atvinnulífsins.
Vonast er eftir að skrifað verði
undir nýja kjarasamninga um
helgina ef ekkert óvænt kemur upp
á. Í dag verður leitað eftir fundi
með stjórnvöldum varðandi þátt-
töku þeirra í gerð kjarasamninga.
Forystumenn aðila vinnumarkað-
arins hafa verið í sambandi við for-
menn stjórnarflokkanna eftir að
ljóst varð að samningar myndu
takast.
Upphafshækkun verkafólks
verður 18.000 krónur
Áætlað er að heildarkostnaður
við launabreytingarnar sé 3,8-4% á
ári. Samkomulagið felur í sér að
kjarasamningar gildi til nóvember-
loka árið 2010. Allir launataxtar
munu hækka um 18.000 kr. við
undirskrift, 13.500 kr. árið 2009 og
6.500 kr. árið 2010. Launataxtar
iðnaðarmanna munu hækka um
21.000 kr. við undirskrift, 17.500
kr. árið 2009 og 10.500 kr. árið
2010. Heimilt verður að lækka
álagsgreiðslur á móti taxtabreyt-
ingum.
Samkomulagið gerir jafnframt
ráð fyrir launaþróunartryggingu. Í
því felst að allir sem starfað hafa
hjá sama vinnuveitanda og ekki
fengið að lágmarki 5,5% launa-
hækkun frá 2. janúar 2007 til und-
irritunar samninga fá það sem á
vantar. Á árinu 2009 verður
launaþróunartrygging 3,5%.
Að sögn Kristjáns munu yfir
70% félagsmanna SGS á lands-
byggðinni njóta góðs af taxta-
hækkuninni einni og sér.
„Þetta er allt saman á ágætri
ferð,“ segir Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins.
Í gær hafi verið reynt að loka
eins mörgum útistandandi málum
og mögulegt var og hafi það gengið
vel. Í dag verði reynt að ljúka allri
vinnu er snýr að efnislegum
ákvörðunum og á morgun taki við
umfangsmikil vinna við að fara yfir
skjöl og raða öllu saman. Þá komi í
ljós hvort skrifað verður undir á
laugardaginn. Hann segir myndina
smám saman vera að skýrast en
stærsti óvissuþátturinn sé aðgerð-
ir ríkisstjórnarinnar.
Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, segir allt vera á réttri leið.
Málum hafi miðað með viðunandi
hætti í gær og óleystum sérkröfum
fækkað.
Árvakur/Árni Sæberg
Samkomulag Það var létt yfir samningamönnum þegar þeir settust niður við samningaborðið í gærkvöldi.
Samkomulag í höfn
Lægstu laun hækka um 32% á samningstímanum Heildarkostnaður við
kjarasamningana er 3,8-4% á ári Orlofsdögum fjölgar og þeir verða 30 á ári
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
TILLAGA Graeme Massie frá Skotlandi varð
hlutskörpust í hugmyndasamkeppni um upp-
byggingu í Vatnsmýrinni. Verðlaunaafhending
fór fram í Listasafni Reykjavíkur í gær. Massie
er með hugmyndaauðgi sinni orðinn áhrifamik-
ill í skipulagsmálum hér á landi, enda sigurveg-
ari í svipaðri keppni sem fram fór um miðbæ
Akureyrar árið 2005.
Keppendum var gefið frjálst hvort flugvöll-
urinn ætti að fara eða vera, en forsenda verð-
launatillögunnar var að hann færi og þétt,
blönduð en lágreist byggð tæki við ásamt
stækkuðum Hljómskálagarði.
Tvær Reykjavíkurtjarnir
Samkvæmt tillögunni verður ný og stærri
Reykjavíkurtjörn miðpunktur byggðar í Vatns-
mýri. Dagur B. Eggertsson, formaður dóm-
nefndar og upphafsmaður keppninnar, sagði í
ræðu sinni að tillagan væri grunnur að því að
hægt yrði að fullgera miðborg Reykjavíkur.
Hægt að fullgera miðborgina
Mýrin Svipmynd úr verðlaunaverkefninu.