Morgunblaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FRIDAY 15. FEBRUARY 2008 37
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, vinnustofa kl. 9–
16.30, verslunarferð í Bónus kl. 10, bingó kl. 14,
söngstund við píanóið kl. 15.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndbandssýning kl. 13, Máva-
hlátur, hárgreiðsla, böðun, almenn handavinna,
fótaaðgerð, morgunkaffi/dagblöð, hádegisverður,
kertaskreyting, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í handmennt opin kl.
9-16 m/leiðb. annan hvern föstudag kl. 13-16.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía, málm- og silf-
ursmíði kl. 9.30, jóga hjá Birgi kl. 10.50, hádeg-
isverður, heitt á könnunni til kl. 16, og félagsvist kl.
20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefnaður kl. 9, jóga
og ganga kl. 9.15, leikfimi kl. 10.30, hádegisverður.
Bingó kl. 14 og vetrarfagnaður kl. 20, harm-
onikkusveit Reykjavíkur leikur fyrir dansi, að-
gangseyrir er 500 kr.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl. 9-
16.30, m.a. bókband. Prjónakaffi/bragakaffi kl. 10,
leikfimi (frítt) kl. 10.30, í ÍR-heimilinu v/Skógarsel,
á eftir er kaffi og spjall. Frá hádegi er spilasalur op-
inn. Kóræfing kl. 14.20. Framtalsaðstoð Skattstof-
unnar verður veitt 10. mars.
Furugerði 1, félagsstarf | Aðst. við böðun í dag kl. 9,
smíðar og útskurður. Messa kl. 14, prestur sr. Ólafur
Jóhannsson, Furugerðiskórinn syngur undir stjórn
Ingunnar Guðmundsdóttur. Kaffiveitingar eftir
messu.
Hraunbær 105 | Baðþjónusta kl. 9-14, almenn handa-
vinna kl. 9-12, hádegismatur. Bókabíllinn kl. 14.45-
15.30, bingó kl. 14, kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl. 11.30, brids
kl. 13, boccia kl. 13.30.
Húnvetningafélagið í Reykjavík | Húnvetninga-
félagið er 70 ára 17. febrúar. Af því tilefni er boðið
upp á hátíðardagskrá og kaffiveitingar í Húnabúð
Skeifunni 11, 3. hæð ( lyfta), frá kl. 14.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-12, postu-
línsmálning. Jóga kl. 9-11, Björg F. Böðun fyrir hádegi.
Hádegisverður. Bíódagur kl. 13.30, kaffiveitingar í
hléi. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Skapandi skrif, Müllersæfingar,
Bör Börson, baráttuhópur um bætt veðurfar mið-
vikud. kl. 13.30, Páll Bergþórsson mætir. Þegar amma
var ung, hláturklúbbur o.s.frv. Hvað dettur þér í hug
þegar þú hugsar til Íslendingasagnanna er 22. febr., 3
skipti. Leiðbeinandi Trausti Ólafsson. Uppl. 568-3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgunkaffi og
blaðaklúbbur kl. 10, leikfimi kl. 11, opið hús, spilað kl.
13. Kaffiveitingar.
Norðurbrún 1 | Smíðastofa og handavinnustofa
eru opnar kl. 9-16. Myndlist kl. 9-12, leikfimi kl. 13.
Hárgreiðslustofa sími 588-1288. Fótaaðgerð-
arstofa sími 568-3838.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir,
handavinna, spænska – byrjendur, hádegisverður,
sungið v/flygilinn, kaffiveitingar og dansað í Að-
alsal.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leirmótun kl. 9,
morgunstund, leikfimi, bingó kl. 13.30. Uppl. í síma
411 9450.
Þórðarsveigur 3 | Opinn salur kl. 13, kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Áskirkja | Djákni Áskirkju verður með bænastund
/ morgunsöng á Dalbraut 27, kl. 9.30.
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12.
Hallgrímskirkja | Starf fyrir eldri borgara kl. 11-14.
Leikfimi, súpa, kaffi og spjall
Selfosskirkja | Þriðjudaga til föstudaga eru fluttar
morgunbænir kl. 10, kaffisopi í Safnaðarheimilinu á
eftir.
dagbók
Í dag er Friday 15. February, 46. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Daníel tók til máls og sagði: „Lofað verði nafn Guðs frá eilífð til eilífðar, því hans er viskan og mátturinn.“ (Daníel 2, 20.)
Félag um hugræna atferl-ismeðferð heldur í dag mál-þingið Afleiðingar áfalla ogmeðferð þeirra. Málþingið er
haldið í Þjóðminjasafninu frá 13 til 17.
Berglind Guðmundsdóttir sálfræð-
ingur er einn fyrirlesara: „Mikil um-
ræða hefur verið í þjóðfélaginu und-
anfarin misseri um alvarleg áföll,
sérstaklega af völdum ofbeldis og alvar-
legra slysa. Fjölmiðlar hafa átt viðtöl
við og rakið sögu fjölda einstaklinga, og
eins og þar hefur komið fram getur það
haft alvarlegar afleiðingar að verða fyr-
ir miklu áfalli,“ segir Berglind. „Hins
vegar vantaði á umfjöllun um nákvæm-
lega hverjar þessar aflæðingar eru, og
hversu víðtækar þær geta verið. Einnig
hefur lítið verið fjallað um þau meðferð-
arúrræði sem til eru, og höfum við sem
komum að meðferð þolenda orðið vör
við að almenningur veit oft ekki hvert á
að leita og hvaða stuðningur er í boði til
að hjálpa fólki að komast yfir þá erf-
iðleika sem fylgja áföllum.“
Fluttir verða fjórir fyrirlestrar á mál-
þinginu: „Margrét Blöndal hjúkr-
unarfræðingur fjallar um áfallahjálp:
hvað hún er og hvað ekki. Oft er minnst
á áfallahjálp í fréttum og umfjöllun, en
áfallahjálp er hins vegar ekki töfralausn
og gagnast sumum en ekki öðrum,“
segir Berglind. „Sr. Sigfinnur Þorleifs-
son flytur næsta erindi, um hlutverk
presta við áfallahjálp. Prestar gegna
stóru hlutverki við áfallahjálp, og eru
ekki endilega að veita trúarlega hjálp
heldur umfram allt mannlegan stuðn-
ing.“
Einnig mun Guðbrandur Árni Ísberg
sálfræðingur flytja erindi: „Hann fjallar
um þau áhrif sem áföll hafa á þroska
heilans,“ segir Berglind. „Við alvarlegt
áfall getur orðið oförvun á ákveðnum
svæðum heilans og til að vernda sig set-
ur heilinn í gang mismunandi sjálfs-
björgunarferli sem henta vel í hættu-
legum aðstæðum en ekki þegar hætta
er liðin hjá.“
Sjálf mun Berglind fjalla um hug-
ræna atferlismeðferð við áfallastreit-
uröskun: „Hún hefur sýnt sérstaklega
góðan árangur við að hjálpa fólki að
vinna úr þeim afleiðingum sem gjarnan
fylgja alvarlegum áföllum.“
Finna má nánari upplýsingar á
www.ham.is. Málþingið er öllum opið,
og aðgangseyrir kr. 1.000.
Heilsa | Málþing á vegum Félags um hugræna atferlismeðferð í dag kl. 13
Afleiðingar og meðferð áfalla
Berglind Guð-
mundsdóttir fædd-
ist í Reykjavík
1972. Hún lauk
BA-gráðu í sál-
fræði frá HÍ 1998,
meistaragráðu frá
Ríkisháskólanum í
Buffalo NY 2004
og doktorsgráðu
frá sama skóla 2006. Hún starfar nú
sem sálfræðingur hjá áfallamiðstöð
Landspítalans og situr einnig í stjórn
Félags um hugræna atferlismeðferð.
Berglind er gift dr. Benedikt Hall-
dórssyni jarðskjálftaverkfræðingi.
Tónlist
Café Rót | Hafnarstræti 17. Hljómsveitirnar Skítur, Muck og Kid Twist
leika fyrir dansi. Fyrsta hljómsveit stígur á svið kl. 20.30.
Dillon | Rokksveitin Noise spilar ásamt Ten Steps Away. Báðar sveit-
irnar munu spila nýtt efni af væntanlegum plötum, sem eru í vinnslu.
Tónleikarnir hefjast kl. 22, frítt inn.
Myndlist
Iceglass | Embla Dís opnar sýningu á myndlist 16. feb. kl. 15, á glerblást-
ursverkstæði Iceglass við smábátahöfnina í Keflavík. Hægt verður að
fylgjast með glerblásurunum að verki og boðið verður upp á léttar veit-
ingar. Sýningin stendur í mánuð.
Leiklist
Halaleikhópurinn | Næstu sýningar á Gaukshreiðrinu eftir Dale Was-
serman, í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar, verða í Halanum, Hátúni 12,
16. febrúar kl. 20 og 17. febrúar kl. 17. Uppl. og miðapantanir á midi-
@halaleikhopurinn.is og í síma 552 9188.
Fyrirlestrar og fundir
Háskóli Íslands | Ársfundur Rannsóknastofu í vinnuvernd er kl. 15-
16.30 í Odda, stofu 101. Fundurinn er helgaður umræðu um persónu-
vernd á vinnustöðum og skráningu heilsufarsupplýsinga vegna veik-
indafjarvista starfsmanna. Rætt verður hvort kerfisbundin skráning
veikindafjarvista sé brot á meðferð viðkvæmra persónuupplýsinga eða
sjálfsögð þjónusta við starfsmenn og stjórnendur.
Frístundir og námskeið
Orkuveita Reykjavíkur | Námskeiðið Undur orkunnar: vísindi fyrir fjöl-
skyldur: Hvað er orka? Hvers vegna eru sumar orkulindir endurnýt-
anlegar og aðrar ekki? Á námskeiðinu verður fjallað um þetta og ýmis
dæmi skoðuð. Þátttakendur prófa m.a. að framleiða sína eigin raforku.
Skráning á: www.endurmenntun.is.
VALENTÍNUSARDAGURINN var haldinn hátíðlegur víða um heim í gær, en Banda-
ríkjamenn hafa lengi haldið sérstaklega upp á daginn. Cristina Sosa var þar á meðal,
en hún gekk að eiga Jason Arreguin í Empire State-byggingunni í New York. Alls
gengu 13 pör í það heilaga í byggingunni í tilefni dagsins.
Stóra stundin nálgast
FRÉTTIR
ÁRSFUNDUR Rannsóknastofu
í vinnuvernd verður haldinn
föstudaginn 15. febrúar kl. 15–
16.30 í Háskóla Íslands, Odda,
stofu 101.
Ársfundurinn er helgaður um-
ræðunni um persónuvernd á
vinnustöðum og skráningu
heilsufarsupplýsinga í tengslum
við veikindafjarvistir starfs-
manna.
Fyrirlesarar verða Guðbjörg
Linda Rafnsdóttir, forstöðumað-
ur og dósent í Háskóla Íslands,
Bragi Rúnar Axelsson og Særún
María Gunnarsdóttir, lögfræð-
ingar hjá Persónuvernd, María
Ólafsdóttir læknir, sviðsstjóri
heilbrigðisþjónustu, Heilsu-
verndarstöðinni og Þórarinn Ey-
fjörð, framkvæmdastjóri SFR.
Fundarstjóri verður Sigurður
Thorlacius, stjórnarformaður
RIV og dósent við læknadeild
Háskóla Íslands. Að loknum
fundi verður boðið upp á léttar
veitingar. Nánari upplýsingar
eru á vefsíðunni www.riv.hi.is
Persónuvernd á vinnustað
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi ályktun frá stjórn
SUF, þar sem hún furðar sig á
framferði ríkisstjórnarinnar við
ráðningar og skipanir í opinber
embætti:
„Stjórn Sambands ungra fram-
sóknarmanna furðar sig á því
hvernig ríkisstjórnin hefur hagað
sér við ráðningar og skipanir í
embætti á hinum stutta valda-
tíma sínum en Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur m.a. náð nýjum hæð-
um í valdhroka við skipun í
embætti héraðsdómara. Þá virð-
ist alvarlegt minnisleysi hrjá
Samfylkinguna en stórar yfirlýs-
ingar um að fagleg sjónarmið og
gagnsæi skuli höfð að leiðarljósi
við mannaráðningar virðast
gleymdar og grafnar nú þegar
flokkurinn er kominn í ríkis-
stjórn. Mestu virðist skipta að
koma eigin fólki í stöður svo hratt
sem auðið er, hvert sem litið verð-
ur.
Stjórn SUF vill minna á orð
formanns Samfylkingarinnar í
ræðu sem hann flutti í Borgarnesi
í apríl 2003 en þar sagði formað-
urinn m.a.:
„… ég vil gagnsæjar ákvarðan-
ir um úthlutun embætta og gæða.
Ég vil jafnræði og jafnrétti. Ég vil
að stjórnsýsla ríkisins sé nútíma-
leg og árangursrík … fólk á að
geta treyst því að það njóti sann-
mælis og sanngirni. Að í því sam-
bandi skipti ekki máli hvar það
skipar sér í pólitíska sveit, hver
pólitísk sannfæring þess er …“
Nú er ljóst að orð Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur um þetta
voru, sem svo oft áður, innihalds-
laus og ómarktæk. Stjórn SUF
skorar á hana og ríkisstjórnina
alla að taka sig á hvað þetta varð-
ar.“
SUF furðar sig á fram-
ferði ríkisstjórnarinnar
BARÁTTUFUNDUR um verndun
neðri hluta Þjórsár verður í Frí-
kirkjunni í Reykjavík sunnudag-
inn 17. febrúar kl. 16.
Í fréttatilkynningu segir að
heimamenn, þjóðkunnir listamenn
og fræðimenn komi fram og leggi
baráttunni lið. Þeir sem fram
koma eru Guðmundur Páll Ólafs-
son rithöfundur, Birgir Sigurðs-
son rithöfundur, Finnbogi Jó-
hannsson bóndi, Sólveig
Arnarsdóttir leikkona, KK, Heiða í
Unun, Þjórsárkórinn og Lista-
gjörningar.
Baráttufund-
ur um neðri
hluta Þjórsár
90 ára afmæli. Karl MagnúsJónsson, fyrrum bóndi
Klettstíu, nú Eiðismýri 30, Sel-
tjarnarnesi, verður níræður 19.
febrúar. Karl Magnús verður að
heiman á afmælisdaginn, en tekur
á móti vinum og vandamönnum á
morgun, laugardaginn 16. febrúar,
kl. 15 til 17, í Sunnusal Hótel Sögu
(Radisson SAS).
SVIÐAMESSUR hafa verið haldnar um árabil á Vatnsnesi Norð-
anlands og í Djúpavogi Austanlands, en nú tekur Hótel Hvolsvöllur
upp þráðinn sunnanlands og efnir til veglegrar sviðamessu 23.
febrúar nk.
Valin svið, heit og köld, verða á boðstólum, verkuð upp á gamla
mátann, léttreykt svið, sviðalappir og margskonar góðgæti annað
svo sem hangikjöt, sviðasulta, svartfugl, fiskréttir og sitthvað í
gömlum þjóðlegum stíl auk eins nútímaréttar og síðan verður eft-
irréttahlaðborð.
Á dagskránni eru söngur og sögur. Fyrir messuna verður for-
drykkur í Sögusetrinu með frásögn séra Önundar Björnssonar,
Maríanna Másdóttir syngur, Hjónabandið úr Fljótshlíð skemmtir
og veislustjóri er Árni Johnsen alþingismaður. Sviðamessur hafa
notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár og ekki á að vera hægt að
kvarta undan hráefninu á Suðurlandi, segir í fréttatilkynningu.
Sviðamessa á
Hótel Hvolsvelli
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is