Morgunblaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 4
4 FRIDAY 15. FEBRUARY 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
GEIR H. Haarde, forsætisráðherra,
sagði eftir fund með stjórnendum
helstu fjármálafyrirtækja að þær
aðstæður sem nú eru uppi á fjár-
málamarkaði kæmu utan frá. Að-
spurður sagði hann að ekki væri
hægt að segja að bankarnir hefðu
brugðist með einhverjum hætti. „En
það er alveg ljóst að þeir hafa
stækkað mjög hratt. Þeir hafa verið
mjög kaldir að sumu leyti við að fjár-
festa og þenja sig út. En ég tel ekki
að það sé nein hætta, sérstök, á ferð-
um umfram það sem annars staðar
er,“ sagði hann.
Engar ákvarðanir voru teknar á
þessum fundi fjögurra ráðherra rík-
isstjórnarinnar og stjórnenda fjár-
málafyrirtækja sem haldinn var í
ráðherrabústaðnum í gær. Það var
heldur ekki tilgangurinn með fund-
inum, að sögn forsætisráðherra,
heldur var til hans boðað til að rík-
isstjórnin gæti kynnt sér viðhorf
bankanna til þeirra aðstæðna sem
nú eru uppi á fjármálamörkuðum og
hvernig ríkið og bankarnir gætu
unnið saman, m.a. við að leiðrétta
ranghugmyndir um íslenskt efna-
hagslíf.
Ráðherrar báðu um fundinn
Bankastjórar Landsbankans og
forstjóri Glitnis svöruðu spurning-
um fjölmiðlamanna fyrir utan fund-
arsalinn eftir að fundinum lauk.
Sigurjón Þ. Árnason, annar af
tveimur bankastjórum Landsbank-
ans, sagði að á fundinum hefðu
menn farið yfir stöðuna með ráð-
herrunum, alveg á sama hátt og
fundir væru haldnir með forsvars-
mönnum útvegsmanna þegar menn
væru að velta fyrir sér stöðu sjáv-
arútvegsins. Stjórnendur fjármála-
fyrirtækja hefðu oft hitt ráðherra á
fundum þótt það hefði ekki vakið svo
mikla athygli fjölmiðla fyrr. Þetta
hefði verið upplýsingafundur sem
ríkisstjórnin hefði óskað eftir.
Bankastjórarnir voru fremur
ófúsir til að svara efnislegum spurn-
ingum um það sem rætt var á fund-
inum og Halldór J. Kristjánsson,
bankastjóri Landsbankans, taldi
eðlilegra að ráðherrarnir tjáðu sig
um fundinn enda hefðu þeir beðið
um hann. „Þetta var reglubundinn
samráðsfundur sem við höfum oft
haft áður með ráðherrum,“ sagði
hann. Það væri gott að skiptast á
upplýsingum og gagnkvæmt traust
ríkti á milli manna.
Lárus Welding, forstjóri Glitnis,
sagði að margar góðar hugmyndir
hefðu verið ræddar á fundinum og
hann hefði verið fróðlegur.
Munu standa saman
Geir H. Haarde og Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, utanríkisráðherra,
voru sammála um að fundurinn hefði
verið gagnlegur. Geir sagðist hafa
rætt við nánast alla þá forsvarsmenn
fjármálafyrirtækja sem sóttu fund-
inn í gær á undanförnum vikum,
enda alþekkt að á Íslandi væri stutt
á milli manna. „Við höfum nú
kannski ekki haldið nákvæmlega
eins fundi og þennan en aðstæðurn-
ar eru náttúrlega aðrar,“ sagði hann
ennfremur. Á alþjóðafjármálamörk-
uðum væri ólga og lánsfjárskortur
sem yrði mjög vart hér á landi. „Og
við viljum ræða það í fullri alvöru við
þá hvernig eigi að bregðast við og
hvað sé hægt að gera sérstaklega í
okkar aðstæðum til þess að mæta
þessu,“ sagði hann.
Ingibjörg Sólrún minnti á að erf-
iðleikar steðjuðu að fjármálamörk-
uðum um allan heim og líkt og Sig-
urjón Þ. Árnason greip hún til
líkingar við sjávarútveginn. „Ef það
væri eitthvað að gerast í hafinu í
kringum Ísland þá myndum við að
sjálfsögðu standa saman, sjávarút-
vegurinn og ríkisstjórnin, og það
ætlum við líka að gera núna meðan
þetta gengur yfir,“ sagði hún.
Í tengslum við Viðskiptaþing
Ingibjörg sagði að til fundarins
hefði verið boðað í tengslum við Við-
skiptaþing, m.a. til að kalla eftir
hugmyndum frá fjármálafyrirtækj-
um um hvernig ríkisvaldið gæti
komið að málum. Hún nefndi sem
dæmi að utanríkisráðuneytið myndi
sjá til þess að í sendiráðum Íslands
væru ávallt til reiðu nýjustu upplýs-
ingar um stöðu mála í íslensku hag-
kerfi, sérstaklega í sendiráðunum á
Norðurlöndum, í Bretlandi og í
Bandaríkjunum. Ekki væri þó ætl-
unin að fara í e.k. kynningarferð,
heldur styrkja almenna upplýsinga-
gjöf.
Spurður hvort hann teldi hættu á
að einhverjir gætu túlkað fundinn í
gær sem e.k. kreppufund, aftók Geir
það með öllu. Hann sagði að þetta
væri að sjálfsögðu ekki slíkur fundur
og það væri í hæsta máta eðlilegt að
stjórnvöld hittu fulltrúa fjármálafyr-
irtækja að máli.
Ræddu stöðuna á mörkuð-
um en tóku ekki ákvarðanir
Hefðbundinn sam-
ráðsfundur – en ekki
haldinn fyrr en nú
Í HNOTSKURN
» Geir H. Haarde, forsætisráð-herra, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, utanríkisráðherra,
Árni M. Mathiesen, fjár-
málaráðherra og Björgvin G.
Sigurðsson viðskiptaráðherra,
sátu fundinn af hálfu ríkisstjórn-
arinnar.
» Úr ranni fjármálageiranskomu Lárus Welding, for-
stjóri Glitnis, Hreiðar Már Sig-
urðsson, forstjóri Kaupþings,
Halldór J. Kristjánsson og Sig-
urjón Þ. Árnason, bankastjórar
Landsbankans, Guðmundur
Hauksson, forstjóri Spron,
Tryggvi Þór Herbertsson, for-
stjóri Aska Capital og Guðjón
Rúnarsson, framkvæmdastjóri
Samtaka fjármálafyrirtækja.
Árvakur/Kristinn
Stjórar Fjórir ráðherrar úr ríkisstjórninni hittu bankastjóra og forstjóra fjármálafyrirtækja í gær.
ÓSKAR Bergs-
son, borgarráðs-
fulltrúi Fram-
sóknarflokksins,
lýsti yfir áhyggj-
um sínum af mik-
illi starfsmanna-
veltu yfirmanna í
Reykjavíkurborg
á borgarráðs-
fundi í gær.
Það gerði hann í kjölfar þess að
samþykkt var að veita Birgi Hlyni
Sigurðssyni skipulagsstjóra lausn
frá störfum og í kjölfarið ráða Ólöfu
Örvarsdóttur aðstoðarskipulags-
stjóra í hans stað.
Óskar sagði að á undanförnum ár-
um hefði mikil hreyfing verið meðal
æðstu embættismanna borgarinnar.
Frá árinu 2002 hefðu verið starfandi
sex borgarstjórar, fjórir skipulags-
stjórar, þrír sviðsstjórar fram-
kvæmdasviðs, fjórir borgarlögmenn
og þrír fjármálastjórar. Þar að auki
hefðu orðið sviðsstjóraskipti á vel-
ferðarsviði, menntasviði, leikskóla-
sviði og umhverfissviði.
Óskar sagði þessa upptalningu
sýna svart á hvítu að starfsmanna-
velta lykilstarfsmanna Reykjavíkur-
borgar væri orðin að verulegu
áhyggjuefni. Hann varpaði að lokum
fram tveimur fyrirspurnum, annars
vegar hvað gerði það að verkum að
yfirmenn í borginni stöldruðu svo
stutt við og hvað borgarstjóri hygð-
ist gera til að koma á nauðsynlegum
stöðugleika.
Yfirmenn
staldra
stutt við
Óskar Bergsson
SAMFYLKINGIN hefur mest fylgi
allra stjórnmálaflokka og stóreykur
fylgi sitt miðað við úrslit síðustu
þingkosninga samkvæmt skoðana-
könnun sem gerð var fyrir vefsvæðið
heimur.is dagana 5. til 7. febrúar.
Niðurstöður könnunarinnar leiða í
ljós að Samfylkingin mælist nú með
38,8% fylgi en hún fékk 26,8% í síð-
ustu kosningum. Sjálfstæðisflokkur
mælist með 33,9%, 11,9% segjast
styðja VG, 8,6% Framsóknarflokk-
inn og Frjálslyndir mælast með 6,7%
fylgi.
Fylgi allra flokka nema Samfylk-
ingar minnkar miðað við úrslit þing-
kosninganna samkvæmt þessari
könnun. Sjálfstæðisflokkur missir
2,7%, VG 2,4% og Framsókn 3,1%.
Könnunin náði til 688 einstak-
linga. Um 21% vildi ekki svara, 9%
sögðust ekki ætla að kjósa eða skila
auðu og 6% voru óviss.
Mikil fylgis-
aukning
Samfylkingar
„ÞÓTT finna megi að einu og öðru við
yfirfærslu á mannvirkjum og rekstri
á Keflavíkurflugvelli eftir brottför
varnarliðsins […] telur Ríkisendur-
skoðun mjög hæpið að álykta sem svo
að umrætt vatnstjón megi rekja til
beinnar vanrækslu þeirra sem
ábyrgð báru á svæðinu, þ.e. utanrík-
isráðuneytisins og vinnuhópsins.“
Þetta er meginniðurstaða greinar-
gerðar Ríkisendurskoðunar á eftirliti
utanríkisráðuneytisins, stofnana þess
og annarra aðila með byggingum á
varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli
þegar vatnsskemmdir urðu á nokkr-
um bygginganna í nóvembermánuði
ársins 2006.
Þá kemur fram í úttektinni að lík-
legast megi rekja tjónið til atvika sem
erfitt var að sjá fyrir, sérstaklega
óvenjulegs veðurfars sem og óvenju-
legs frágangs vatnslagna. Því væri
ósanngjarnt að ásaka þá aðila sem
báru ábyrgð á svæðinu á þeim tíma
sem tjónið varð um vanrækslu á eft-
irlits- og viðhaldsskyldum.
Vatnslekinn olli umtalsverðu tjóni í
byggingum á varnarsvæði Keflavík-
urflugvallar helgina 18. og 19. nóv-
ember 2006. 106 íbúðir í þrettán fjöl-
býlishúsum skemmdust auk þess sem
vatnslagnir sprungu í sjö öðrum
mannvirkjum. Talið er að tjónið
hlaupi á bilinu 79 til 108 milljónir kr.
Yfirtakan leyst vel af hendi
Í fyrrnefndri greinargerð kemur
fram að yfirlýsing Bandaríkjanna um
brotthvarf hersins hafi komið ís-
lenskum stjórnvöldum í opna skjöldu.
Ljóst þótti að bregðast yrði skjótt við
hinu viðamikla og margþætta verk-
efni að flytja rekstur Keflavíkurvall-
ar yfir til íslenskra stjórnvalda eftir
brotthvarf hersins.
Það sé hins vegar álit Ríkisendur-
skoðunar að yfirtakan hafi í meginat-
riðum verið leyst vel af hendi miðað
við aðstæður, þ.e. þegar tekið er tillit
til umfangs hennar og þess skamma
tíma sem gafst til undirbúnings og
skipulagningar verksins.
Vatnstjón ekki
vegna vanrækslu
Nær að rekja tjón til óvenjulegs veðurs
♦♦♦
ARNA Schram, formaður Blaða-
mannafélags Íslands, hefur sent
Sjálfstæðisflokknum bréf í tilefni af
framkomu starfsmanna flokksins við
blaðamenn á blaðamannafundi með
Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, borgar-
fulltrúa, fyrr í vikunni.
Í bréfinu segir að hópi fjölmiðla-
manna hafi verið meinaður aðgangur
að fundinum. „Til að tryggja opið og
lýðræðislegt samfélag þarf að greiða
leið allra fjölmiðla að fréttaviðburð-
um. Blaðamannafélagið varar við til-
raunum til þess að standa í vegi fyrir
því.Vinnubrögð af því tagi sem við-
höfð voru í vikunni eru auk þess ein-
ungis til þess fallin að skapa tor-
tryggni. BÍ fer fram á að þau
endurtaki sig ekki. Í lýðræðislegu
samfélagi verða fjölmiðlar að hafa
frelsi til að sinna skyldum sínum.“
Gagnrýna
vinnubrögð
♦♦♦
BAUGUR Group íhugar yfirtökur
á þremur verslunarkeðjum; Saks
í Bandaríkjunum og Moss Bros.
og Debenhams í Bretlandi. Þetta
kemur fram á vef bandaríska við-
skiptablaðsins Wall Street Journ-
al og er vitnað í viðtal við Jón
Ásgeir Jóhannesson, starfandi
stjórnarformann Baugs. Ekki
kemur þó fram hvort um er að
ræða viðtal við blaðið sjálft.
Haft er eftir Jóni Ásgeiri að
Baugur hafi lagt til hliðar einn
milljarð punda, um 131 milljarð
króna, til þess að fjárfesta fyrir á
næstu tveimur árum en í kjölfar
lánakreppunnar gæti félagið
þurft að breyta fjármögn-
unarblöndu sinni og reiða sig
minna á lánsfé.
Segir Baug íhuga yfirtökur