Morgunblaðið - 15.02.2008, Page 2
2 FRIDAY 15. FEBRUARY 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
TILRAUNABORANIR vegna gerð-
ar nýrra Hvalfjarðarganga eru
komnar vel á veg, að sögn Gísla
Gíslasonar, stjórnarformanns Spal-
ar. Ráðgert er að þeim ljúki í lok
þessa mánaðar.
„Þetta lítur bara vel út,“ sagði
Gísli. Bundnar eru vonir við að nið-
urstöður borananna geri kleift að
grafa nýju göngin 20-30 metrum
grynnra en núverandi göng sem fara
alveg niður á 165 metra dýpi undir
sjávarmáli. Með því verða nýju
göngin styttri, ódýrari og veghallinn
upp úr þeim minni. Hugmyndin er að
nýju göngin verði um 40 metrum
innar í Hvalfirði en núverandi göng.
Gísli segir að Skipulagsstofnun
hafi sagt að ný göng þyrftu ekki að
fara í sérstakt umhverfismat. Spölur
hf. hafi talið rétt að kanna betur
jarðfræðilegar aðstæður, þrátt fyrir
að rannsóknir sem gerðar voru áður
en núverandi göng voru grafin hafi
reynst mjög góðar. Spölur stefnir að
því að ljúka öllum undirbúningi á
miðju þessu ári, á tíu ára afmæli
ganganna, þannig að næsta skref
verði hönnunarvinna. „Þá eru menn
klárir í að tvöfalda þegar þeir hafa
náð niðurstöðu um hvernig á að fjár-
magna og hvernig þeir vilja sjá fram-
tíðina í þessu,“ sagði Gísli.
Í upphafi voru Hvalfjarðargöng
hugsuð fyrir 5.000 bíla á sólarhring,
en umferðin nú er allt að því 5.500-
6.000 bílar. „Ég er þeirrar skoðunar
að þegar þetta er farið að nálgast
6.000 bíla verði ekki undan því kom-
ist að gera ný göng. Til að leysa fyr-
irsjáanlegan vanda sé ég ekki annað
en að menn verði að komast af stað á
næstu tveimur árum,“ sagði Gísli.
Menn ættu að horfa til þess að hafa
tvöfaldað göngin og gert tvöfaldan
veg á Kjalarnesi innan fjögurra ára.
Borholurnar voru boraðar út frá
Hvalfjarðargöngum neðst í göngun-
um. Hefur verið borað til suðurs og
norðurs á ská upp á við. Fyllsta ör-
yggis er gætt gagnvart hugsanleg-
um vatnsleka inn í göngin.
Bergið hefur reynst mjög þétt og
ekki hefur orðið vart við teljandi
leka. Hugmyndin var að bora alveg
upp í setlögin í botni Hvalfjarðar og
kanna eðli þeirra, að því er fram
kemur á heimasíðu Spalar. Það verð-
ur í fyrsta sinn sem borkjarnar fást
úr setinu ofan við göngin.
Spölur samdi við Alvarr hf. um að
annast verkefnið í samvinnu við
sænska fyrirtækið Drillcon AB.
Þessi fyrirtæki hafa áður unnið sam-
an að tilraunaborunum, m.a. vegna
Sundabrautar og vestur á fjörðum.
Nýju Hvalfjarðargöngin
munu verða á minna dýpi
Ljósmynd/Atli Rúnar Halldórsson
Sýnataka Kjarnaborinn er á botni Hvalfjarðarganga og sækir borkjarna
til að kanna bergið þar sem ný göng gætu komið á næstu árum.
Tilraunaboranir
undanfarið lofa
mjög góðu
HÆSTIRÉTTUR hefur ómerkt dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur í nauðgun-
armáli þar sem maður var sýknaður
af ákæru fyrir að nauðga konu á sal-
erni Hótels Sögu. Hefur málið verið
sent til héraðsdóms á ný, m.a. vegna
þess að Hæstiréttur telur að lögskýr-
ingar héraðsdóms fái ekki staðist.
Sakborningnum og konunni bar
saman um að hún hefði gengið inn á
kvennasalerni í kjallara hótelsins en
önnur kona þar hefði hindrað ákærða
í að komast inn. Brotaþoli sagðist
hafa farið inn í klefa og lokað á eftir
sér en þegar hún hefði komið út hefði
ákærði verið kominn inn á kvennasal-
ernið og verið einn fyrir framan klef-
ana. Um atvik upp frá þessu bar þeim
mikið í milli. Konan sagði ákærða
hafa ýtt sér inn í klefa, læst að þeim,
dregið niður sokkabuxur hennar og
nærbuxur og ýtt henni niður á gólfið
og haft við hana mök. Sagðist hún
sökum andlegs áfalls hvorki hafa kall-
að á hjálp né veitt mótspyrnu fyrr en
hún fann fyrir miklum sársauka af
völdum samfaranna og henni tókst að
komast undan. Ákærði sagði hins
vegar að þau hefðu haft samfarir í
kjölfar atlota og samtals. Hún hefði
síðan viljað hætta samförunum og
farið út úr klefanum.
Fjölskipaður dómur héraðsdóms
komst að þeirri niðurstöðu að ef
byggt yrði á frásögn konunnar um að
ákærði hefði tekið hana úr fötunum
og ýtt henni niður á gólfið væri ekki
hlutrænt séð um ofbeldi að ræða í
skilningi kynferðisbrotakafla hegn-
ingarlaga, en þetta eitt nægði ákærða
til sýknu. Hæstiréttur taldi hins veg-
ar að þessi ályktun um lögskýringu
stæðist ekki í ljósi dómaframkvæmd-
ar. Hæstarétti fannst hér skorta á að
héraðsdómur tæki skýra afstöðu til
þess hvort byggja ætti á frásögn kon-
unnar um þessi atriði eða hver atvik
að öðru leyti yrðu lögð til grundvallar.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Árni Kolbeinsson, Garðar Gísla-
son, Gunnlaugur Claessen og Markús
Sigurbjörnsson og Stefán Már Stef-
ánsson prófessor.
Sýknudómur í nauðg-
unarmáli ómerktur
Í HNOTSKURN
»Hæstiréttur segist ekki getahorft fram hjá því að mað-
urinn fór inn á salerni eingöngu
fyrir konur og beið þar fyrir
framan lokaðan bás. Ekki var
hægt að sjá að hann hefði talið að
konan hefði viljað að hann kæmi
inn á salernið eða hvatt hann til
þess.
»Hugræn afstaða mannsins íþessu sambandi skipti því
máli að mati Hæstaréttar.
ÍVAR Jörgens-
son, 18 ára pilt-
urinn sem fannst
látinn á Norður-
Jótlandi á þriðju-
dag, var fæddur
25. júlí 1989 og
bjó í foreldra-
húsum á Hjort-
hsvej 6 í bænum
Havndal. For-
eldrar hans eru
Hallfríður Arnarsdóttir og Jörgen
Erlingsson.
Ívar hafði átt heima í Danmörku í
11 ár. Hans hafði verið saknað í á
aðra viku þegar hann fannst látinn
sl. þriðjudag í um 1 km fjarlægð frá
yfirgefnum bíl sínum.
Danska lögreglan telur dán-
arorsök vera drukknun og að slysið
verði ekki rakið til saknæmrar
háttsemi utanaðkomandi aðila.
Fannst látinn
í Danmörku
Ívar Jörgensson
TÓLF mánaða verðbólga mun mæl-
ast 6,5% í febrúar, en hún var 5,8% í
janúar, gangi spá greiningar-
deildar Landsbankans eftir. Það
svarar til 1,1% hækkunar vísitölu
neysluverðs, en verðbólgan hefur
ekki mælst hærri frá því í febrúar
2007, þ.e. áður en matarskattur var
lækkaður. Helstu áhrifavaldar
hækkunar eru útsölulok og hús-
næðisliður vísitölunnar, auk verð-
hækkana á bensíni, en bensínverð
er nú 22% hærra en fyrir ári.
Þá hefur heimsmarkaðsverð á
hrávöru hækkað umtalsvert og
krónan veikst á móti. Verðbólgunni
er spáð hámarki, 7,5%, í mars nk.
Verðbólga í
febrúar 6,5%?
HALLDÓR Sæv-
ar Guðbergsson
var kjörinn for-
maður Ör-
yrkjabandalags
Íslands á aukaað-
alfundi í gær.
Halldór hefur
verið formaður
Blindrafélagsins
frá 2005. Hann
hefur unnið sem
íþróttakennari, sundþjálfari hjá
Íþróttafélagi fatlaðra, markaðs-
fulltrúi Blindrafélagsins og sinnt
fullorðinsfræðslu fatlaðra.
Halldór
formaður
Halldór Sævar
Guðbergsson
LJÓST er að mikil hætta skap-
aðist þegar bíll hafnaði í Elliða-
ánum á miðvikudagskvöld þegar
ökumaður missti stjórn á bílnum
á mótum Bústaðavegar og
Reykjanesbrautar. Hann er grun-
aður um ölvun við akstur og var
próflaus að auki. Lögreglan er
með málið til rannsóknar og seg-
ir manninn, sem er 21 árs að
aldri, hafa komið við sögu lög-
reglu m.a. vegna umferð-
arlagabrota.
Maðurinn er ekki eigandi bíls-
ins en hafði hann til umráða að
sögn lögreglunnar. Er bíllinn
töluvert skemmdur eftir óhappið.
Maðurinn kom á talsvert mikilli
ferð niður Bústaðaveginn og ók
þvert yfir Reykjanesbrautina og
þaðan út af, niður brattan fláa og
loks út í á. Lögreglan segir að
maðurinn hafi mátt þakka fyrir
að sleppa lítið meiddur úr óhapp-
inu, að ekki sé talað um þá hættu
sem hefði getað steðjað að gang-
andi fólki við ána.
Maðurinn yfirgaf bílinn og
gekk til baka og fann lögreglan
hann við Tunguveg og færði á
slysadeild.
Mikil hætta skapaðist
við útafaksturinn
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut-
anríkisráðherra setti í gær Bridge-
hátíðina 2008 – Icelandair Open, á
Hótel Loftleiðum.
Við sama tilefni opnaði Björg-
ólfur Jóhannsson, forstjóri Ice-
landair, nýja heimasíðu mótsins.
Talið er að þúsundir innlendra sem
erlendra bridge-áhugamanna muni
fylgjast með gangi hátíðarinnar
gegnum heimasíðuna.
Á annað hundrað para er skráð
til leiks í tvímenningi sem fór fram í
gær og heldur áfram í dag en um
helgina fer fram sveitakeppni þar
sem tæplega sjötíu lið etja kappi.
Á myndinni má sjá Ingibjörgu
Sólrúnu segja fyrstu sögnina en
skömmu áður fékk hún kennslu í
grundvallaratriðum spilsins.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir setti Bridgehátíðina 2008 í gærkvöldi
Þúsundir
fylgjast með
Árvakur/Eggert