Morgunblaðið - 15.02.2008, Qupperneq 8
8 FRIDAY 15. FEBRUARY 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NÝIR kjölfestufjárfestar hafa kom-
ið að Capacent-samstæðunni með
kaupum á 20% hlut í IMG Holding,
eignarhaldsfélagi Capacent. Um er
að ræða Capa Invest, nýstofnað
fjárfestingafélag í meirihlutaeigu
Salt Investments, félags Róberts
Wessman, og Draupnis, félags í
eigu Jóns Diðriks Jónssonar, fv.
framkvæmdastjóra hjá Glitni.
Kaupverðið er sagt trúnaðarmál en
Glitnir veitti ráðgjöf og leiddi
samningaferlið milli kaupenda og
seljenda.
Capa Invest verður stærsti ein-
staki hluthafinn en meirihluti fé-
lagsins er þó áfram í dreifðri eign
stjórnenda og starfsmanna. Af
þeim fer Skúli Gunnsteinsson, for-
stjóri samstæðunnar, með stærsta
hlutann.
Að sögn Skúla hefur alltaf staðið
til að fá fagfjárfesta í hluthafahóp-
inn, til að styrkja félagið til áfram-
haldandi vaxtar og þá fyrst og
fremst á erlendri grundu, en Capa-
cent hefur t.d. komið sér vel fyrir í
Danmörku. Í tilkynningu lýsir Skúli
yfir ánægju með aðkomu fjárfest-
anna og telur að með virkri þátt-
töku í starfi félagsins geti þeir miðl-
að af reynslu sinni og haft jákvæð
áhrif á þróun mála.
Innan samstæðu Capacent starfa
nú um 340 manns, þar af um 120
hér á landi.
Kaup F.v. Árni Harðarson, Salt Investments, Jóhann G. Jóhannsson, Glitni,
Skúli Gunnsteinsson og Hrannar Hólm, Capacent, og Jón Diðrik, Draupni.
Róbert Wessman og Jón Dið-
rik Jónsson kaupa í Capacent
ÍSLANDSPÓSTUR gefur nú út
tækifærisfrímerki í annað sinn en
þau komu fyrst út árið 2005. Mynd-
efnin voru þá blóm en eru núna
kossar.
Tækifærisfrímerkin er hægt að
nota við ýmis hátíðleg tækifæri
m.a. á boðskort, vegna afmæla,
brúðkaupa o.s.frv. Verðgildi frí-
merkjanna er 65, 75 og 85 krónur.
Hönnuður er Anna Þóra Árnadótt-
ir, grafískur hönnuður hjá Enn-
Emm auglýsingastofu.
Einnig kemur út frímerki í tilefni
100 ára afmælis Kennaraskóla Ís-
lands. Hann er jafngamall op-
inberri fræðsluskyldu í landinu,
stofnaður með lögum 1907. Kenn-
araskólinn varð að Kennaraháskóla
Íslands, þegar kennaramenntun
var færð á háskólastig með lögum
árið 1971. Kennaraháskólinn og
Háskóli Íslands verða sameinaður
1. júlí 2008.
Hany Hadaya, grafískur hönn-
uður hjá H2hönnun, hannaði frí-
merkið sem hefur verðgildið 85 kr.
Kossar prýða
ný frímerki
STJÓRN Bandalags háskólamanna gerir alvarlegar athugasemdir við
kröfu Samtaka atvinnulífsins á hendur ríkisstjórninni í tengslum við gerð
kjarasamninga á almennum markaði. Þar er þess krafist að hið opinbera
fylgi sömu launastefnu og SA hefur sett fram gagnvart sínum viðsemj-
endum. „Ríki og sveitarfélög hafa ekki komið að mótun þeirrar stefnu,
hvað þá samtök opinberra starfmanna, og dæmalaust ósvífið að ætlast til
þess að kjör opinberra starfsmanna verði ákveðin af öðrum en þeim sem
um þau eiga að semja. Stéttarfélög Bandalags háskólamanna eru með sjálf-
stæðan samningsrétt og munu að sjálfsögðu standa á þeim rétti. Launa-
kannanir hafa ítrekað sýnt fram á að laun hjá hinu opinbera eru 20-30%
lægri en á almennum markaði og úr því þarf að bæta,“ segir í ályktuninni.
Stjórn Bandalags háskólamanna minnir einnig á að í stefnuyfirlýsingu
núverandi ríkisstjórnar er kveðið á um að dregið skuli úr kynbundnum
launamun og að sérstaklega verði hugað að því að bæta kjör kvennastétta.
Til að ná þessum markmiðum þarf verulegar leiðréttingar á kjörum stórra
hópa hjá hinu opinbera.
BHM segir kröfur SA ósvífnar
ÁRSFUNDUR Rannsóknastofu í
vinnuvernd, verður haldinn í dag,
föstudag, kl. 15-16.30 í Háskóla Ís-
lands, Odda, stofu 101.
Ársfundurinn er helgaður um-
ræðunni um persónuvernd á vinnu-
stöðum og skráningu heilsufars-
upplýsinga í tengslum við
veikindafjarvistir starfsmanna.
Ársfundur
BORGARRÁÐ fjallaði á fundi sín-
um í gær um niðurstöðu Hæsta-
réttar í málum, sem borgin höfð-
aði gegn olíufélögunum Skeljungi
hf., Olíuverzlun Íslands hf. og
Keri hf. Gerði borgarráð eftirfar-
andi bókun um málið:
„Borgarráð fagnar niðurstöðu
olíusamráðsmálsins og því mik-
ilvæga fordæmi sem það skapar í
sambærilegum málum. Þá vill
borgarráð þakka Vilhjálmi H. Vil-
hjálmssyni hrl. og öðrum lög-
mönnum sem að málsókn borg-
arinnar hafa komið fyrir
árangursríkt starf í þágu al-
mannahagsmuna.“
Borgarráð fagnar
Á FUNDI bæjarráðs Bolungarvíkur
hinn 12. febrúar var eftirfarandi
bókað: „Bæjarráð Bolungarvíkur
tekur heilshugar undir með sveit-
arstjórn Súðavíkur þar sem skorað
er á ríkisstjórn Íslands að hefja nú
þegar undirbúning að gerð jarð-
ganga á milli Álftafjarðar og Skut-
ulsfjarðar. Hættan á ofanflóðum í
Kirkjubólshlíð og Súðavíkurhlíð er
óviðunandi eins og nýleg dæmi und-
irstrika svo rækilega. Minnt er á að
þessi leið er hluti af vegi sem tengir
norðanverða Vestfirði við þjóðveg
eitt.“
Vilja ný göng
STUTT
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
ÍSLANDSHÁTÍÐIN Iceland on the
Edge hefst í Brussel í Belgíu í lok
febrúar og stendur yfir fram í júní,
en þar verður íslensk menning í fyr-
irrúmi að því er fram kom á kynning-
arfundi um hátíðina í gær.
Hátíðin verður formlega opnuð 26.
febrúar. Um er að ræða eitthvert
stærsta landkynningarverkefni sem
ráðist hefur verið í að því er Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir utanrík-
isráðherra sagði á blaðamannafundi.
Hún sagði markmið hátíðarinnar að
efla ímynd Íslands á alþjóðlegum
vettvangi og sýna þann kraft sem
byggi í íslensku menningar- og lista-
lífi. Hátíðin samanstendur af við-
burðum á fjórum sviðum: menning-
ardagskrá, kynningum á viðskiptum,
ferða- og ráðstefnumálum og orku-
málum.
Sendiráðið með frumkvæði
„Það skiptir verulegu máli fyrir
stöðu okkar í alþjóðlegu samhengi
vegna þess að menning og list og sá
kraftur sem í henni býr skapar verð-
mæti,“ sagði ráðherra. Hún sagði að
hátíðin væri haldin að frumkvæði ís-
lenska sendiráðsins í Brussel, en
sendiráðið hefur haft yfirumsjón með
framkvæmdinni fyrir hönd utanrík-
isráðuneytisins. Dagskráin hefur
m.a. verið unnin í samstarfi við
menntamálaráðuneytið, en ráðherra
sagði að auk þess hefðu fjölmargir
opinberir og einkaaðilar tekið þátt í
samstarfinu. Þar á meðal eru fjögur
ráðuneyti og Reykjavíkurborg.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra sagðist telja
mikilvægt að utanríkis- og mennta-
málaráðuneyti héldu áfram samvinnu
á sviði sem þessu. Hún sagði að
menningarkynning sem haldin var í
Frakklandi árið 2004 hefði tekist
mjög vel.
Þorgerður fór yfir það helsta sem
verður á boðstólum meðan á hátíð-
inni í Brussel stendur. Mikil áhersla
væri á að vekja athygli á yngri kyn-
slóð listamanna. Víða væri gróska, til
að mynda í tónlistinni, og nefndi Þor-
gerður Katrín Iceland Airwaves sem
dæmi.
Ráðherra sagði að í upphafi hátíð-
arinnar í lok febrúar færu fram þrjár
myndlistarsýningar. Íslensk sam-
tímalist verður sýnd, m.a. fossaverk-
efni listakonunnar Rúríar. Líka verð-
ur sýning á verkum Kjarvals,
Kristjáns Davíðssonar og Georgs
Guðna. Þá munu sviðslistamenn taka
þátt í kynningunni og til stendur að
gera bókmenntum skil, en Halldór
Guðmundsson stýrir bókmennta-
kvöldi um Halldór Laxness. „Inn í
þetta fléttast tónlistardagskrá í um-
sjón Einars Arnar Benediktssonar í
Smekkleysu,“ sagði Þorgerður Katr-
ín. Kvikmyndahátíð verður haldin í
lok maí í tengslum við kynninguna.
Í upplýsingum um verkefnið segir
að mikið hafi verið lagt í kynning-
arvinnu þess. Efni um Ísland hafi
m.a. birst í 350.000 eintökum í kynn-
ingarefni Bozar. Framundan séu
sjónvarpsauglýsingar, sjónvarps-
þættir um Ísland, plakataherferðir
og kynningarviðburðir.
Þorgerður Katrín kvaðst telja að
kynning sem þessi væri ákjósanleg
og heppileg leið til þess að kynna ís-
lenska menningu. „Við eigum að fara
markvisst í svona verkefni,“ sagði
hún.
Brussel „kjörlendi“
Stefán Haukur Jóhannesson,
sendiherra Íslands í Brussel, sagði
borgina „kjörlendi fyrir svona verk-
efni. Því hún er svo alþjóðleg“.
Brussel hefði í raun stærsta alþjóða-
samfélagið á eftir Washington. Stef-
án Haukur benti á að í borginni væru
160 sendiráð, fjöldi frjálsra fé-
lagasamtaka, 1.600 fjölþjóðafyr-
irtæki hefðu þar skrifstofur og ESB
væri með höfuðstöðvar. Þetta sam-
félag væri ákjósanlegur markhópur
fyrir það sem verið væri að gera. Auk
þess sem menning og listir sköpuðu
sess og kjarna væru viðskiptakynn-
ingar hluti af Íslandskynningunni. Þá
væri samstarf við ferðaskrifstofur
sem sérhæfðu sig í Íslandsferðum og
aðrar sem sérhæfðu sig í ráð-
stefnuferðum. „Markmiðið er líka að
kynna Ísland sem áhugaverðan vett-
vang fyrir ráðstefnur og fundi. Í
Brussel eru þúsundir funda og ráð-
stefna á hverju ári. Þáttur í dag-
skránni er sérstök arkitektakynning
á nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsinu.“
Árvakur/Frikki
Kynning Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kynntu Íslandshátíðina í gær.
Í HNOTSKURN
»Hátíðin stendur frá lokumfebrúar og fram í júní.
»Hátíðin er haldin í samstarfivið menningar- og lista-
miðstöðina Bozar, sem er sú
stærsta á sínu sviði í Belgíu.
»Kostnaður við kynninguna erum 120 milljónir að sögn ut-
anríkisráðherra. Þar af leggur
Ísland til um helming og Bozar
um helming.
Fjögurra mánaða menn-
ingarkynning í Brussel