Morgunblaðið - 15.02.2008, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 15.02.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FRIDAY 15. FEBRUARY 2008 9 FRÉTTIR Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is SKIPULAGSSTOFNUN telur að tilkynna beri fyrirhugaða landfyll- ingu við Ánanaust til ákvörðunar um matsskyldu þar sem framkvæmdin sé hluti þeirrar 35 hektara landfyll- ingar sem Aðalskipulag Reykjavík- ur 2001-2024 geri ráð fyrir á um- ræddu svæði. Þetta kemur fram í bréfi dagsettu 11. febrúar sl. sem Skipulagsstofnun hefur sent skipu- lags- og byggingarsviði borgarinnar. „Reykjavíkurborg telur greini- lega að þar sem þessi áfangi, sem er 3 ha, nái ekki þeim mörkum sem tal- in eru upp til þess að um tilkynning- arskylda framkvæmd sé að ræða, sem er 5 ha, þá þurfi ekki að til- kynna þetta. Skipulagsstofnun er hins vegar þeirrar skoðunar að þessi landfylling sé bara hluti af 35 ha fyll- ingu og þess vegna beri að tilkynna hana inn í heild og síðan sé hægt að framkvæma hana í áföngum,“ segir Stefán Thors, skipulagsstjóri rík- isins, í samtali við Morgunblaðið. Hefur engin lagaleg úrræði Í fyrrgreindu bréfi minnir Skipu- lagsstofnun jafnframt á að í grein- argerð Aðalskipulags Reykjavíkur 2001-2024 segi m.a.: „Við gerð heild- arskipulags af landfyllingunni verð- ur stærð hennar og afmörkun end- urskoðuð í samráði við íbúa á nærliggjandi svæði og Seltjarn- arneskaupstað. Áður en fram- kvæmdir hefjast við gerð landfyll- ingarinnar mun fara fram mat á umhverfisáhrifum framkvæmdar- innar.“ Í bréfinu komi fram að sam- kvæmt svarbréfi Reykjavík- urborgar til Skipulagsstofnunar, dagsettu 29. október sl., komi fram að framkvæmdaleyfi hafi ekki verið gefið út og að mat á umhverfisáhrif- um framkvæmdarinnar hafi ekki farið fram. Í samtali við Morgunblaðið bendir Stefán á að Skipulagsstofnun hafi ekki nein lagaleg úrræði til þess að þvinga Reykjavíkurborg til að til- kynna framkvæmdina kjósi hún að gera það ekki. Hins vegar sé al- menningi, samkvæmt 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/ 2000, heimilt að tilkynna fram- kvæmd eða bera fram fyrirspurn um matsskyldu framkvæmda til Skipulagsstofnunar og skal stofn- unin þá leita upplýsinga um fram- kvæmdina hjá framkvæmdaraðila og leyfisveitanda og taka ákvörðun um hvort hún heyri undir viðkom- andi grein. „Til þess að almenningur geti til- kynnt um framkvæmd þarf að skila inn viðeigandi gögnum til þess að Skipulagsstofnun geti fjallað um málið,“ segir Stefán. Spurður hvað þá taki við segir hann að viðeigandi gögn málsins yrðu send til umsagn- ar hjá Umhverfisstofnun og vænt- anlega líka Hafrannsóknastofnun og í framhaldi af því myndi Skipulags- stofnun taka ákvörðun um hvort framkvæmdin þurfi að fara í mat á umhverfisáhrifum. Vilja að borgin fari að lögum „Þetta er áfangasigur og stað- festir það sem höfum allan tímann haldið fram, þ.e. að þessi fram- kvæmd sé tilkynningarskyld varð- andi umhverfismat,“ segir Einar Arnarsson, íbúi við Vesturgötu, sem sendi Skipulagsstofnun fyrirspurn um málið. Spurður um næstu skref segir hann ljóst að íbúar á svæðinu muni halda áfram að berjast á móti landfyllingunni. „Við munum gera það sem þarf til þess að stoppa þetta og tryggja að borgin fari að lögum,“ segir Einar og ítrekar að íbúar á svæðinu hafi aldrei lagst gegn nauð- synlegum sjóvörnum á svæðinu heldur aðeins landfyllingunni sjálfri. Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri fram- kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar, vildi ekkert tjá sig um málið á þessu stigi þegar eftir því var leitað. Landfyllingin tilkynningarskyld Mótmæli Íbúar við Ánanaust hafa lagst gegn landfyllingunni. Íbúi við Ánanaust telur um áfanga- sigur að ræða AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 M bl .9 66 52 6 FALLEGIR JAKKAR Drangajökull Grímsey Hofsjökull Húnaflói Blöndulón F í t o n / S Í A Hátíð á hálendinu Gríptu augnablikið og lifðu núna Nokkrum ferðamönnum var brugðið þegar þeir náðu óvænt GSM sambandi þar sem þeir voru staddir skammt aasuður af Hofsjökli, en þar hefur ekki náð t slíkt samband frá landnámi. Eina tiltæka skýringin er sú að hópurinn hafði meðferðis farsíma frá Vodafone. – Sönn saga frá 1414. Með tilkomu langdræga GSM kerfisins býður Vodafone nú stærsta GSM þjónustusvæðið á Íslandi. Skiptu yfir til Vodafone, án þess að skipta um símanúmer, með einu símtali í 1414 – strax í dag. Stærsta GSM þjónustusvæðið Heimsferðir bjóða frábært lúxustilboð til Vilnius 27. apríl. Upplagt tækifæri til að njóta vorsins í þessari fallegu borg og dekra við sig í aðbúnaði. Fararstjórar okkar kynna þér sögu borgarinnar og heillandi menningu. Bjóðum frábært sértilboð á Hotel City Gate sem er frábærlega staðsett í miðborginni og einnig á frábært lúxustilboð á Hotel Radisson SAS Astorija sem er glæsilegt og frábærlega staðsett fimm stjörnu hótel. Vorið í Vilnius er komið á fleygi- ferð á þessum tíma og þetta er því einstakur tími til að heimsækja borgina. Gríptu tækifærið og skelltu þér í til þessarar frábæru borgar og njóttu þess að hafa allan aðbúnað í toppi. Tíminn í þessari ferð nýtast einstaklega vel þar sem flogið er í beinu flugi frá Keflavík að morgni og komið til Vilnius um kl. 14, en heimflugið er síðan að kvöldi fimmtudags. Ath. aðeins fá herbergi í boði á þessum kjörum. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Vilnius 27. apríl frá kr. 36.990 Einstök vorferð til Vilnius! Verð kr. 44.990 ***** - 3 nætur Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði í 3 nætur á Hotel Radisson SAS Astorija ***** með morgunmat. Munið Mastercard ferðaávísunina Frábært lúxustilboð 5 stjörnu gisting Radisson SAS Astorija ***** frá kr. 44.990 Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Verð kr. 36.990 *** - 3 nætur Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði í 3 nætur á Hotel City Gate *** með morgunmat. Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Verðhrun Vandaður fatnaður á ótrúlega lágu verði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.