Morgunblaðið - 15.02.2008, Qupperneq 14
14 FRIDAY 15. FEBRUARY 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÖKUMENN þeirra bíla, sem menga
mest, verða að greiða 25 pund, um
3.300 kr. ísl., í hvert sinn sem þeir
koma inn á mestu umferðarsvæðin í
London. Mengunarminnstu bílarnir
sleppa hins vegar alveg við gjald-
töku. Ken Livingstone, borgarstjóri í
London, tilkynnti þetta fyrir nokkr-
um dögum en í Bretlandi og víða á
meginlandinu sækir „herferðin“
gegn jeppum og öðrum eyðslufrek-
um bílum stöðugt í sig veðrið. Sem
dæmi um það má nefna, að fyrrver-
andi stjórnarformaður Shell hefur
lagt til, að bensínhákarnir verði með
öllu bannaðir innan Evrópusam-
bandsins.
Nýja gjaldið tekur gildi 27. októ-
ber í haust og er áætlað, að það muni
leggjast á 33.000 bíla daglega miðað
við umferðina nú. Því er hins vegar
spáð, að fljótlega muni draga úr um-
ferð bensínhákanna á fyrrnefndum
svæðum um tvo þriðju. Eru áætlaðar
tekjur borgarinnar af gjaldinu á
bilinu tveir til sex milljarðar kr.
Gjaldið leggst á alla bíla, sem láta
frá sér meira en 225 g af koltvísýr-
ingi á km og á bíla, sem voru skráðir
fyrir mars 2001 og eru með vélar
stærri en 3.000 cc. Bílar, sem sleppa
alveg, gefa frá sér minna en 120 g á
km. Talið er, að nú falli 17% bíla-
umferðarinnar undir háa gjaldið en
aðeins 2% nái lægstu mörkunum.
„Við eigum ekki að líða það, að
umhverfinu sé spillt með bensínfrek-
um jeppum í miðborginni,“ sagði Li-
vingstone. „Koltvísýringsmengun
frá öflugustu jeppunum og sportbíl-
unum er oft fjórföld á við mengunina
frá sparneytnustu bílunum.“
Aðgerðir víða
Víða í Bretlandi er verið að grípa
til aðgerða gegn stórum bílum, til
dæmis í Newcastle þar sem eigendur
þeirra verða að borga hærri bíla-
stæðagjöld í miðborginni og í Edin-
borg þar sem allir verða að greiða
nokkurt gjald fyrir að leggja bíl, líka
á götunni fyrir utan eigið heimili.
Gjaldið fyrir stóru bílana verður hins
vegar hækkað.
Mark Moody-Stuart, fyrrverandi
stjórnarformaður Shell, hvatti til
þess fyrir skömmu, að bensínhák-
arnir yrðu bannaðir innan ESB.
Sagði hann, að þeir væru „yfirleitt
með öllu ónauðsynleg farartæki“.
Morgunblaðið/Frikki
Bensínhákar „Yfirleitt með öllu
ónauðsynleg farartæki.“
Atlagan að bensín-
hákunum harðnar
Skorað er á Evrópusambandið að banna þá alveg
KÍNVERSK stjórnvöld sögðust í
gær harma þá ákvörðun banda-
ríska kvikmyndaleikstjórans Ste-
vens Spielbergs að hætta sem list-
rænn ráðgjafi skipuleggjenda
ólympíuleikanna í Peking vegna
óánægju með stefnu Kínverja í
málefnum Súdans.
Kínverjar eru á meðal helstu við-
skiptaþjóða Súdana sem selja um
tvo þriðju olíuframleiðslu sinnar til
Kína. Kínverjar hafa einnig selt
Súdönum vopn sem sagt er að ar-
abískir vígamenn hafi notað gegn
íbúum Darfur-héraðs. Kínverjar
hafa ennfremur verið gagnrýndir
fyrir að hindra tilraunir innan ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna til
að binda enda á grimmdarverkin í
Darfur.
Talsmaður kínverska utanrík-
isráðuneytisins hafnaði þessari
gagnrýni í gær, sakaði Spielberg
og skoðanabræður hans í málinu
um „leyndar hvatir“ og sagði að
það samræmdist ekki ólympíu-
andanum að tengja ólympíuleikana
við „pólitísk markmið“.
Breska dagblaðið The Independ-
ent birti í gær yfirlýsingu frá 80
handhöfum friðarverðlauna Nóbels,
íþróttakempum, listamönnum og
stjórnmálamönnum þar sem þeir
hvetja Kínverja til að beita áhrifum
sínum til að stuðla að „réttlátum
friði í Darfur“. „Með því að taka
ekki á sig þá ábyrgð jafngildir það
að okkar mati stuðningi við rík-
isstjórn sem heldur áfram grimmd-
arverkum gegn eigin þjóð.“
Hafna gagnrýni Spielbergs
Kínverjar segja það óviðunandi að ólympíuleikarnir séu
tengdir við baráttuna gegn grimmdarverkum í Darfur
Í HNOTSKURN
» Áætlað er að 200.000 mannshafi dáið af völdum átakanna
í Darfur. Um 2,5 milljónir Darf-
ur-búa hafa flúið heimkynni sín.
Kínverjar segjast hafa beitt sér
fyrir friði í Darfur, m.a. með því
að skipa sérstakan sendimann og
senda þangað friðargæslulið.
HALDIÐ var upp á Valentínusardaginn víða um heim í
gær en hann er kenndur við Valentínus, einn af písl-
arvottum frumkristninnar. Af þeim sökum hefur víða
verið amast við honum meðal fólks, sem játar aðra trú,
en engu að síður virðist sigurför hans um heiminn vera
óstöðvandi. Hann tengist líka ástinni og hana fær ekk-
ert stöðvað. Myndin er frá Peking en Kínverjar hafa
verið iðnir við að tileinka sér ýmsa vestrænu siðu.
AP
Rauðar rósir á Valentínusardegi
FULLTRÚAR stríðandi fylkinga í
Kenýa undirrituðu í gær sam-
komulag fyrir milligöngu Kofis
Annans, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, sem hefur reynt að binda
enda á átökin í landinu eftir um-
deildar forsetakosningar.
Ekki voru veittar neinar upplýs-
ingar um samninginn í gær en Kofi
Annan hyggst skýra frá honum á
blaðamannafundi í dag.
Rauði krossinn í Kenýa segir að
yfir þúsund manns hafi beðið bana í
óeirðum sem blossuðu upp eftir for-
setakosningarnar. Um 300.000
manns hafa þurft að flýja heim-
kynni sín.
Samkomulag í Kenýa fyrir
milligöngu Kofis Annans
Raila OdingaMwai Kibaki
VLADÍMÍR Pútín, forseti Rússlands, staðfesti
í gær, að hann myndi taka við embætti for-
sætisráðherra að loknum kosningunum 2.
mars og sagði, að hann hygðist beita öllu því
valdi, sem embættið heimilaði.
Pútín gagnrýndi vestræn ríki harðlega fyr-
ir að ætla að styðja sjálfstæðisyfirlýsingu Kos-
ovos og sagði, að Rússar myndu beina eld-
flaugum að þeim sovétlýðveldum fyrrverandi,
sem leyfðu NATO að setja þar upp herstöðvar
eða eldflaugavarnakerfi.
„Ég er reiðubúinn að taka við forsætisráð-
herraembættinu,“ sagði Pútín en öllum er
ljóst, að úrslit kosninganna eru nú þegar ráð-
in og Dmítrí Medvedev mun verða forseti.
Ljóst að Pútín ætlar sér að
stjórna áfram í nýju embætti
Vladímír Pútín á fundi með
blaðamönnum í gær.
KONUNGSMÖRGÆSIN, ein af
þekktustu dýrategundum Suð-
urskautslandsins, er í útrýming-
arhættu vegna loftslagsbreytinga,
að sögn franskra vísindamanna.
Langtímarannsókn þeirra á
helstu varpstöðvum konungs-
mörgæsanna leiddi í ljós að örlítil
hlýnun hafsins í grennd við Suð-
urskautslandið af völdum El Nino-
veðrakerfisins stórdró úr fæðu-
framboðinu og líkunum á því að
mörgæsirnar lifðu af. Hlýnunin
nam aðeins 0,25 gráðum á Celsíus
en líkurnar á því að fullorðnar
mörgæsir lifðu af minnkuðu um
9%.
Reynist spár vísindamanna um
enn meiri hlýnun á næstu áratug-
um af völdum gróðurhúsaáhrif-
anna svonefndu réttar er mikil
hætta á því að konungsmörgæsin
deyi út, að sögn frönsku vísinda-
mannanna.
Konungsmörgæsin er óvenjuleg
að því leyti að það tekur hana 14-
16 mánuði að verpa, klekja út og
koma ungunum upp. Mörgæsirnar
eru því mjög viðkvæmar fyrir
sveiflum í fæðuframboðinu.
Konungsmörgæsin talin
í hættu vegna hlýnunar
' () *
&(
&$
&+,(
#
! *
&
-( )
&
&+
&(
!&
) ( *
! ( .
'/01203
345/
!
"267
"
# $%
38&
9:0;'
# ()
% *+*,*
-
+.
/
! $%
0 $1
2
$% *
3
&
"4
'
56
'
! "
#$%"&'#
#
(
)
(
'*
(
&7874&9'7"&
5':;8
+ ,
-.
//0
12
3212
STUTT
Innrettingar www.innx.is
SKOTÁRÁS var gerð seint í gær-
kvöldi í háskóla í bænum De Kalb,
norðvestur af Chicagoborg í Banda-
ríkjunum.
Samkvæmt upplýsingum AFP-
fréttastofunnar í gærkvöldi særðust
alls 18 manns í árásinni en enginn
féll utan árásarmannsins sem skaut
sig eftir verknaðinn.
Starfsmenn Kishwaukee-sjúkra-
hússins, sem tóku við hinum særðu,
sögðu enn tvísýnt um fjóra þeirra, en
þeir höfðu hlotið skotsár á höfði og
bringu. Auk þeirra særðust átta
manns alvarlega, en sex hlutu minni-
háttar meiðsli.
Að sögn eins nemandans réðst
skotmaðurinn inn í fyrirlestrarsal og
hóf fyrirvaralaust að skjóta með
haglabyssu á rúmlega hundrað nem-
endur sem þar voru.
Chicago Sun-Times sagði frá því í
gærkvöldi að árásarmaðurinn hefði
litið út eins og venjulegur háskóla-
nemi. Hann var vopnaður hagla-
byssu og skammbyssu.
Skotárás í banda-
rískum háskóla