Morgunblaðið - 15.02.2008, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 15.02.2008, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FRIDAY 15. FEBRUARY 2008 15 MENNING SPIKE Lee, kvik- myndaleikstjór- anum bandaríska, hefur verið veittur styrkur sem kall- ast Wecner Prize, að andvirði ríflega þrjár milljónir króna. Styrkurinn er viðurkenning fyrir frumleika, gæði og heiðarleika í fari listamanns. Spike Lee er þrettándi listamað- urinn sem hreppir þetta hnoss. Spike Lee fær styrk Þrjár milljónir fyrir frumleika og gæði Spike Lee VERÐUR íslenska brátt ónothæf í vísindasamfélaginu á Íslandi? Þess spyrja Vísindafélag Íslendinga og Íslensk málnefnd á málþingi sem fram fer í dag kl. 14-17 í stofu 101 á Háskólatorgi Háskóla Íslands. Framtíð íslenskrar tungu í vísinda- samfélaginu á Íslandi er aðal- umræðuefnið, en að margra mati eru þar blikur á lofti. Aðstandendur mál- þingsins minna á eftirtaldar stað- reyndir: – Fræðiskrif á íslensku eru minna metin í vinnumatskerfi Háskóla Ís- lands en skrif á öðrum tungumálum, einkum ensku. – Kennsla í íslenskum háskólum fer sums staðar fram á ensku. – Margar deildir Háskóla Íslands gera þá kröfu að doktorsritgerðir séu skrifaðar á ensku. – Innan við þriðjungur dokt- orsritgerða við Háskóla Íslands á ár- unum 2000-2007 er á íslensku. Aðstandendur málþingsins benda á að Háskóli Íslands stefni nú að því langtímamarkmiði að verða meðal 100 bestu háskóla heims og aðrir ís- lenskir háskólar stefni líka hátt. Spurt er hvort það samrýmist þeim markmiðum að tala og skrifa ís- lensku. Einar Sigurbjörnsson, prófessor og formaður Vísindafélagsins, stýrir þinginu. Hann segir að frummæl- endur hafi verið valdir úr öllum greinum vísinda, og að þeir eigi það sameiginlegt að hafa bæði tekið þátt í erlendu samstarfi á háskólastigi og látið mjög til sín taka hér heima einnig. Þeir eru Ástráður Eysteins- son, prófessor í bókmenntafræði við Háskóla Íslands, Haraldur Bern- harðsson málfræðingur, Íslenskri málnefnd, Sigurður J. Grétarsson, prófessor í sálfræði við Háskóla Ís- lands, Þorsteinn Vilhjálmsson, pró- fessor í vísindasögu og eðlisfræði við Háskóla Íslands, og Örnólfur Thorlacius, fv. rektor. Málþingið er hið þriðja í röð ellefu málþinga sem Íslensk málnefnd stendur fyrir á vormisseri um ýmsar hliðar íslenskrar málstefnu en nefndin vinnur nú að tillögu að mál- stefnu fyrir menntamálaráðuneytið. Verður íslenskan ónothæf? SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT áhugamanna heldur tónleika sunnudaginn kl. 17 í Seltjarn- arneskirkju. Leikin verða Quiet City eftir Aaron Copl- and, Concertino í G-dúr fyrir englahorn eftir Donizetti og Sinfónía nr. 5 eftir Ralph Vaughan Williams. Einleikari á englahorn og ástaróbó er Peter Tompkins og á trompet Jens B. Guðjónsson. Stjórnandi er Óli- ver Kentish. Með tónleikunum minnist hljómsveitin þess að hálf öld er liðin frá láti breska tónskáldsins Ralphs Vaughan Williams, sem margir telja með- al merkustu tónskálda síðustu aldar. Tónlist Englahorn og ástaróbó Peter Tompkins AUÐMÝKT er heiti myndlist- arsýningar Birgis Snæbjarnar Birgissonar sem verður opnuð í Gallery Turpentine kl. 18 í dag. Birgir segir titilinn hæfa verkunum vel, þau séu hógvær og auðmjúk. „Þetta eru verk sem byggja á nokkrum postu- línsstyttum sem ég hef fundið og málað,“ útskýrir hann. „Ég hef átt farsælt samstarf við Vigfús Birgisson ljósmyndara og í sameiningu hefur okkur tekist að skapa heim eða andrúm í kringum þessar styttur. Andrúm sem á í raun fátt skylt við ljósmyndir og er einnig komið ansi langt frá upprunalegu hlutnum.“ Sýning Birgis stendur til 1. mars. Myndlist Auðmýkt Birgis í Turpentine Birgir Snæbjörn Birgisson EIN þekktasta djasssveit Letta, Riga Groove Electro, heldur tónleika á Gauki á Stöng í kvöld. Riga Groove Electro hefur tekið þátt í fjöl- mörgum djasshátíðum um all- an heim, og er nú komið að Ís- landi. Í tilkynningu segir að tónlist sveitarinnar sé blanda af nokkrum stefnum, þ.á.m. electro jazz, groove og drum & bass, ásamt svonefndum funky & free jazz. Sveitin hefur starfað með lista- mönnum á borð við Sofiu Rubin, Neff Irizarry, Valerius Ramoska, Brian Melvin og Toomas Rull. Sérstakur gestur er Seth Sharp. Húsið verður opnað kl. 19 og aðgangur er ókeypis. Tónlist Lettneskur djass á Gauki á Stöng Seth Sharp Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is ÞAÐ er akkúrat núna, þegar þú heldur að fyrsta blessaða vornálin sé farin að stinga sér upp úr iðrum jarðar, að … Æ! það byrjar allt upp á nýtt, snjór, kuldi, kóf og bítandi bölvuð ísnál, og þig langar í sól- arferð. Og nú er hún einmitt í boði á verði sem þú hefur aldrei séð fyrr. „Sólarferð hefur staðist tímans tönn. Ég er mikill aðdáandi þessa verks, og reyndar fleiri verka eftir Guðmund Steinsson, eins og Stund- arfriðar og Garðveislu. Þetta er stór- brotin íslensk klassík sem hlýtur að verða partur af leikhefðinni og þeirri „karúsellu“ leikrita sem rúlla gegn- um leikhúsin á 10 ára fresti, rétt eins og Shakespeare, Ibsen og Strind- berg eru leiknir reglulega. Þetta eru stóru verkin okkar, verkin sem tala til okkar, alltaf.“ Þetta segir Benedikt Erlingsson, en hann leikstýrir uppfærslu Þjóð- leikhússins á Sólarferð eftir Guð- mund Steinsson sem frumsýnd verð- ur á stóra sviðinu í kvöld. Það ósagða æpir á mann „Það sem sérstaklega höfðar til mín er leikstíllinn. Gagnrýnendur á sínum tíma skutu fast á Guðmund og sögðu að þetta væri fátæklegur texti. Það er engin eftirminnileg setning í leikritinu. En það er snilld Guðmundar, hvernig fólk talar um ekki neitt, fánýta hluti, en milli orðanna eru þagnir og sagnir sem segja okkur allt. Það ósagða æpir á mann. Þetta er leiktexti. Það hefur verið óskaplega gaman og stórkost- leg skemmtun fyrir okkur leikhús- fólkið að vinna með þennan fánýta texta. Hann gefur okkur tækifæri. Og svo ég haldi áfram að mæra handverkið, þá er líka mikil drama- túrgía innbyggð í þá undarlegu framvindu, sem varla er framvinda, en heldur okkur við efnið.“ Að halda prímatanum við efnið Benedikt segir að það sé starf leikstjórans að vinna með dramatúr- gíu sýningarinnar, halda „prímat- anum“ í salnum við efnið, með fram- vindu og breytingum á tempói og öðrum tiltækum meðulum. Hins vegar sé þessi vinna innbyggð í verk Guðmundar. „Með vinnu minni í verkinu er ég að hneigja mig fyrir höfundarleikhúsinu. Við höfum öll lagt á það gífurlega áherslu að læra textann okkar orð- rétt utan að, og leika þankastrik Guðmundar sem þagnir og hlýða honum. Það hefur verið prinsipp að hnika engu til. Gamlir málfars- brandarar, þar sem Guðmundur læt- ur fólk staðfastlega tala vitlaust mál, fá að halda sér og það heyrist líka hvernig málsnið okkar hefur breyst á þrjátíu árum.“ Benedikt segir heimspeki verks- ins liggja í leit manneskjunnar að paradís, í hjónabandinu og sam- böndum fólks. „Það eru stórar til- vistarspurningar í verkinu. Við þekkjum þetta öll í einhverri mynd, jafnvel þótt við höfum ekki farið á sólarströnd. Þeir sem hafa farið í sumarbústað eða laumast eitthvað í burtu, eða átt í ástarsambandi um lengri tíma, geta fundið til sam- kenndar með Nínu og Stefáni.“ Ólafía Hrönn Jónsdóttir fer með hlutverk Nínu og Ingvar E. Sigurðs- son er Stefán. „Þetta eru stærstu hlutverk í íslenskum leikbók- menntum. Þau eru á sviðinu allan tímann, allt verkið á enda – sjö þætti, og tala saman um fánýta hluti.“ Þjóðleikhúsið sýnir Sólarferð eftir Guðmund Steinsson í leikstjórn Benedikts Erlingssonar Snilld í fánýtum orðum Við fylgjumst með hópi íslenskra ferðamanna sem er samankominn á spænskri strönd. Þessa dugnaðarforka, afkomendur víkinganna, þyrstir í að njóta lífsins lystisemda á þessum heita, framandi stað, þar sem allt flóir í ódýru áfengi og boð og bönn hins venjubundna lífs eru víðs fjarri. Leit ferðafélaganna að lífshamingju í þessu „himnaríki holdsins“ birtist okkur á bráðfyndinn hátt, en undir niðri kraumar sársauki sem erfitt er að leyna. Á sandölum og ermalausum bol ÞANN fyrsta janúar sl. felldi Listasafn Reykjavík- ur niður aðgangseyri að söfnum sínum, þ.e. Kjar- valsstöðum, Ásmundarsafni og Hafnarhúsi. Þótt stutt sé liðið frá þessu, aðeins einn og hálfur mánuður, er marktækur munur á að- sókn, að sögn markaðs- og kynningarfulltrúa safnsins, Soffíu Karlsdóttur. Sé sama tímabil árið 2006 skoðað (Kjarvalsstaðir voru lokaðir á þessum tíma í fyrra þannig að þar var ekki hægt að bera þetta tímabil saman við tímabilið í ár) hef- ur aðsókn aukist um heil 240%. „Það er rosaleg aukning,“ segir Soffía. Soffía segir að engar stórsýningar hafi verið á þessum tíma, enginn Ólafur Elíasson, þannig að ekki sé hægt að skýra aðsóknina með því. „Við erum að bera saman sambærilega hluti,“ segir Soffía. Aðsóknin sé mæld í söfnunum þó svo að ekki sé rukkað inn og meira að segja sé fylgst með aldri og kyni sýningargesta. Það sé iðulega fullt af fólki í söfnunum, einkum þó á Kjarvalsstöðum og í Hafnarhúsi. Þá hefur vörusala aukist um 160% og veitingasala um 230%. Soffía telur tvennt koma til, fleiri komi í safnið og fólk eyði frekar peningum í vörur og veitingar þurfi það ekki að greiða aðgangseyri. Hún segir erfitt að spá fyrir um hvort aukin veitinga- og vörusala vegi upp á móti því að fá ekki lengur tekjur af sölu á aðgöngumiðum. Þá verði einnig að hafa í huga að opið sé í Hafn- arhúsi á fimmtudagskvöldum og boðið upp á viðburði sem eru vel sóttir, að sögn Soffíu. Að- gangur hafi aukist að Listasafni Reykjavíkur undanfarin ár, en greinilegt stökk hafi verið nú í upphafi sýningarárs með ókeypis aðgangi. Aðsókn að söfnum jókst um 240% Morgunblaðið/Einar Falur Í Hafnarhúsi Feneyjasýning Steingríms Eyfjörð, Lóan er komin, stendur enn yfir í Hafnarhúsi og allir geta séð hana ókeypis. Soffía Karlsdóttir ♦♦♦ Sólarströnd Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson í notaleg- heitum sem Nína og Stefán í leikriti Guðmundar Steinssonar. Sólarferð Róbert Arnfinnsson og Þóra Friðriksdóttir í frumupp- færslu Sólarferðar árið 1976. Höfundur: Guðmundur Steinsson Leikstjóri: Benedikt Erlingsson Leikmynd: Ragnar Kjartansson Búningar: Margrét Sigurðardóttir og Ragnar Kjartansson Tónlist: Kristinn Árnason Lýsing: Lárus Björnsson Leikarar: Edda Arnljótsdóttir, Est- her Talía Casey, Halldóra Björns- dóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Juan Camilo Ronán Estrada, Kjartan Guðjónsson, Ólafía Hrönn Jóns- dóttir og Þröstur Leó Gunnarsson. Sólarferð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.