Morgunblaðið - 15.02.2008, Page 17

Morgunblaðið - 15.02.2008, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FRIDAY 15. FEBRUARY 2008 17 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐAKUREYRI TILLAGA Björns Ólafs arkitekts að breytingu á deiliskipulagi Kvos- arinnar við Ingólfstorg fékk góðar undirtektir á fundi skipulagsráðs Reykjavíkur í fyrradag. Skipulagsráð lýsti ánægju með til- löguna í bókun sem gerð var á fund- inum. Þar segir að vel hafi tekist til „sérstaklega varðandi samspil upp- byggingar og verndun þess sem fyr- ir er. Tillagan er vel unnin, í góðu samstarfi margra aðila og sýnir t.d. að öll eldri húsin á reitnum, eins og gamla sjálfstæðishúsið, Hótel Vík og Aðalstræti 7 fá að standa en þau áttu að fara samkvæmt fyrra skipulagi. Skipulagsráð er sammála um nauð- syn þess að nýta tillöguna til end- urbóta á umræddu svæði, sér- staklega Vallarstræti, en ítrekar þá afstöðu sína að umsækjendur skoði leiðir til að tryggja að sögufrægur salur, sem nú tilheyrir Nasa, fái að standa í sem upprunalegastri mynd.“ Björn Ólafs arkitekt kynnti skipu- lagsráði hugmyndir sínar um breyt- ingu á deiliskipulagi svæðisins 21. nóvember síðastliðinn. Málið hefur verið rætt á nokkrum fundum ráðs- ins síðan og fengin umsögn fram- kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar. Viðkvæmur hlekkur Í inngangsorðum tillögunnar kem- ur fram að sunnan við Ingólfstorg og meðfram Vallarstræti sé einn við- kvæmasti hlekkurinn í sögulegum minjum elsta hluta Reykjavíkur. Þar standi þrjú gömul timburhús sem æskilegt sé að varðveita á staðnum. Þau eru gamli Kvennaskólinn við Austurvöll, gamla Hótel Vík við Vall- arstræti og Brynjólfsbúðin, Að- alstræti 7. Lagt er til að Kvennaskól- inn verði á sínum stað en hin tvö húsin færð framar á Ingólfstorg og nær hvort öðru. Þessi hús verði gerð upp að utan sem innan og tengd ann- arri starfsemi við torgið. Húsin standa nú í skugga glugga- lausra fimm hæða hárra brunagafla Landssímahússins og Markaðarins. Tillagan nær til suðurhluta Ing- ólfstorgs, Vallarstrætis og lóðanna Thorvaldsensstrætis 2, Vall- arstrætis 4 og Aðalstrætis 7. Lagt er til að lóðirnar þrjár verði sameinaðar og hluti Ingólfstorgs, þar sem áður var Hótel Ísland, verði sameinaður fyrrnefndum lóðum ásamt gangstíg milli Aðalstrætis 7 og Vallarstrætis 4. Nýja lóðin verði alls 1.643,5 m2. Lagt er til að Vallarstræti verði ný verslunargata og að vesturhluti þess verði yfirbyggður og verði hluti hót- els. Innigatan á að tengja rými hót- els sem komið verði fyrir á neðri hæðum gömlu húsanna og í fram- haldi þeirra í nýbyggingu. Leyft verði að byggja fimm hæða hús með- fram brunagöflum Aðalstrætis 9 og Landssímahússins. Þá er lagt til að tvær smábygg- ingar, sem nú standa norðarlega á torginu, verði fjarlægðar svo að Fálkahúsið, sem myndar norðurhlið torgsins, fái notið sín í borgarmynd- inni. Sögulegar byggingar við Ingólfstorg njóti sín betur Tölvumynd/Björn Ólafs Ingólfstorg Suðurhlið Ingólfstorgs samkvæmt tillögunni. Fremst má sjá vernduðu húsin og nýbyggingu á bak við. Nýbyggingin kemur framan við brunagafla Landssímahússins og Markaðarins og gömlu húsin færð fram á torgið. Tölvumynd/Björn Ólafs Vallarstræti Horft inn eftir Vallarstræti frá Austurvelli. Gert er ráð fyrir að byggt verði yfir vesturhluta strætisins. Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is AKUREYRARBÆR ætlar að halda svokallaðan lýðræðisdag í vor, þar sem bæjarbúum gefst tækifæri til þess að koma saman og ræða um ýmislegt varðandi daglegt líf í bæn- um. „Það er ekki meiningin að ég sem bæjarstjóri sitji uppi með mörg hundruð hugmyndir sem fólk vill að ég láti bæinn koma í framkvæmd heldur hvað ég sem íbúi í þessu 17 þúsund manna samfélagi geti gert öllum til heilla,“ sagði Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri þegar Morgunblaðið forvitnaðist um hug- myndina. Stór íbúaþing hafa verið haldin hér á landi, t.d. Akureyri í öndvegi í höfuðstað Norðurlands, en Sigrún veit ekki til þess að boðið hafi verið upp á lýðræðisdag eins og hér um ræðir. Hugmyndina fengu bæjaryf- irvöld á Akureyri frá Sundsvall, tæplega 50 þúsund manna bæ við miðja austurströnd Svíþjóðar. Á lýðræðisdaginn, laugardaginn 12. apríl, verða nokkrar málstofur þar sem rædd verða fyrirfram ákveðin málefni. Þau verða ákveðin í samráði við hverfisnefndir bæj- arins og Sigrún segir að nú þegar hafi ýmislegt verið nefnt sem fólki liggur á hjarta. „Ég get nefnt svif- ryk, vistvernd, endurvinnslu, flokkun og ýmis fleiri samfélags- mál eins og hvernig við hlú- um að börnunum okkar. Þetta gæti orðið mjög skemmtilegt; við ætlum að bjóða fólki til sam- ræðna, niðurstöður verða síðan teknar saman og kynntar og verða vonandi til góðs.“ Íbúaþingið Akureyri í öndvegi, sem áður er nefnt, þótti takast afar vel. „Þetta er annað form á svip- uðum hlut; þingið brotið upp í minni einingar og fólk getur valið sér það málefni sem það hefur mestan áhuga á.“ Sigrún segir bæjaryfirvöld ekki ætla að leggja fram neinar tillögur; haldin verði inngangserindi og mál- in síðan rædd fram og til baka. „Við rennum auðvitað dálítið blint í sjóinn. Vitum ekki hvort 50 manns koma eða 500 en okkur finnst það þess virði að reyna og svo metum við stöðuna varðandi framhaldið eftir því hvernig til tekst,“ sagði bæjarstjóri í samtali við Morgunblaðið. Málstofur á lýðræðisdaginn verða í Brekkuskóla. Lýðræðisdagur um daglega lífið Sigrún Björk Jakobsdóttir TRYGGVI Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, vill að RES Orkuskóli, sem settur var í fyrsta skipti í Ketilhús- inu á Akureyri um síðustu helgi, verði sameinaður sambærilegum skóla Orkuveitu Reykjavíkur. RA- RIK er einn eiganda RES og Tryggvi ávarpaði einmitt samkom- una fyrir hönd eigenda og upplýsti raunar að stefnt hefði verið að sam- einingu skólanna síðustu mánuði. „Það er ljóst að samkeppnin er hörð og við öfluga keppinauta að etja. Þess vegna varðar miklu, að við Íslendingar stöndum saman um þetta mikilsverða frumkvöðlaverk- efni og deilum ekki kröftunum. Stofnað hefur verið til sambærilegs skóla á vegum Orkuveitu Reykjavík- ur. Tveir slíkir, mjög sambærilegir skólar, hér á Íslandi deila óhjá- kvæmilega kröftum okkar, hvort sem um er að ræða mannauð eða fjármagn. Ég bind miklar vonir við að takast muni að sameina þessar tvær stofnanir, eins og að hefur verið stefnt undanfarna mánuði, og við munum því í framtíðinni eiga enn öfl- ugri orkuskóla en til var stofnað hér, það yrði okkur öllum til heilla,“ sagði Tryggi. Forstjóri RARIK sagði það gamla sögu og nýja að þegar frumkvöðlar hryndu nýrri hugmynd í fram- kvæmd sæju aðrir umsvifalaust gildi hennar. Ekki hefðu aðeins verið kynnt áform um sambærilegar stofnanir á innlendum vettvangi, heldur reyndu aðrar þjóðir að ná for- skoti Íslendinga. Tryggvi sagði Ís- land eiga þess kost að verða alþjóð- leg miðstöð þekkingar og fræða á sviði vistvænnar orku. „Miðað við hvernig til hefur tekist hingað til, get ég ekki annað en verið bjartsýnn á að sá sproti sem við nú gróðursetj- um, verði á skömmum tíma gildur stofn með mörgum greinum sem bera ríkulegan ávöxt,“ en fleiri yrðu þá að leggjast á árarnar. „RES Orkuskóli hefur þá sérstöðu að vera einkafyrirtæki, í nánu og traustu sambandi við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Slíkt form skóla á háskólastigi er vissulega ekki einsdæmi, en sérstaðan felst ef til vill einkum í því, að skólinn nýtur ekki enn jafnstöðu við aðra háskóla á Ís- landi þegar kemur að framlagi hins opinbera. Ég vil því nota hér tæki- færið og hvetja menntayfirvöld til virkrar þátttöku í uppbyggingu þess skóla, sem byggður er vegna ríkrar þarfar á fleiri og betur menntuðum starfsmönnum fyrir jafnt innlendan markað sem og orkuútrás.“ Hann hvatti menntamálayfirvöld einnig til að taka virkan þátt í upp- byggingu skólans t.d. með því að leggja honum til nemendagildi: „það yrði ekki aðeins til að styðja við þessa nýsköpun í íslenskum mennta- málum, heldur einnig og ekki síður til að hvetja ungt fólk til að mennta sig á sviði endurnýjanlegrar orku.“ RES og skóli OR sameinaðir? Tíska og förðun Stórlæsilegt sérblað um tísku og förðun fylgir Morgunblaðinu 22. febrúar. • Húðin og umhirða hennar - krem og fleira • Hárið er höfuðprýði. • Gleraugnatíska. • Ásamt fullt af fróðleiksmolum og spennandi efni. Allar nánari uppl. veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is. Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 16, mánudaginn 18. febrúar. Meðal efnis er: • Vortískan 2008. • Fatnaður og fylgihlutir. • Ilmvötn - nýjustu ilmvötnin. • Umfjöllun um tískuhönnuði - innlenda og erlenda. • Snyrtivörur fyrir karlmenn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.