Morgunblaðið - 15.02.2008, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FRIDAY 15. FEBRUARY 2008 25
Ég hef ekki séð koma fram nein ný
rök fyrir því að það finnist betra eða
öruggara flugvallarstæði en Vatns-
mýrin,“ sagði hann.
Borgarstjóranum þótti síður en
svo óþægilegt að sjá fulltrúa
tveggja stærstu flokkanna í borg-
inni ná svo miklum samhljómi í
þessu máli „Ég virði bara skoðanir
annarra og framtíðarsýn. Það verð-
ur svo að koma í ljós hvort hún er
framkvæmanleg og möguleg. Það
ræðst af niðurstöðum rannsókna á
flugvallarstæðum, en ekki á póli-
tískum ákvörðunum einum saman.
Ákvörðunin um mögulegan flutn-
ing flugvallarins hefur ekki verið
tekin og verður ekki tekin á næst-
unni. Aðalatriðið er að fagleg vinnu-
brögð og almannahagsmunir séu
leiðarljós kjörinna fulltrúa. En þeg-
ar svona vel og faglega er unnið að
hlutunum treysti ég því að við fáum
að lokum bestu niðurstöðuna fyrir
borgarbúa og almenning allan. Ég
tel á þessu stigi málsins líklegast að
hún verði sú að flugvöllurinn verði
áfram í Vatnsmýri í breyttri mynd,“
sagði hann.
Ólafur kvað gott að líta heildrænt
á Vatnsmýrina í skipulagsmálum,
ekki síst í útjöðrum hennar, þar sem
háskóla- og vísindaþorp sé þegar að
rísa. „Það er bara til bóta.“
launatillagan? Er sú framtíðarsýn
sem þar er kynnt honum að skapi?
„Ég ætla að skoða þessar hug-
myndir betur, enda hef ég ekki séð
afrakstur þessarar vinnu fyrr en nú.
Það er svo gríðarlegt magn af frjó-
um og góðum hugmyndum sett
fram í þessari vinnu að ég ætla að
taka mér góðan tíma í að kynna mér
þær,“ sagði Ólafur.
Flugvöllur í breyttri mynd
ennþá líklegasti kosturinn
Verðlaunatillagan byggist á þeirri
forsendu að flugvöllurinn hverfi úr
Vatnsmýrinni. Stangast það ekki á
við framtíðarsýn Ólafs? „Sú vinna
sem þarna er að baki mun nýtast í
framtíðarskipulagi hvort sem flug-
völlurinn fer eða ekki. Um það er
fólk almennt sammála, a.m.k. for-
maður dómnefndar, Dagur B. Egg-
ertsson, og forveri hans, Hanna
Birna Kristjánsdóttir. Það er frá-
leitt annað en að nýta þessa vinnu
eins og hægt er við framtíð-
arskipulag, sem skýrist betur þegar
niðurstaða flugvallarmálsins liggur
fyrir. Hún gerir það hins vegar
ekki.
Núna eru í gangi rannsóknir sem
munu skera úr um hvort hægt verð-
ur að finna betra flugvallarstæði
fyrir Reykjavík en Vatnsmýrina.
urborgar,“ sagði hann. Þá tilkynnti
Dagur nýjan starfshóp á vegum
borgarráðs sem settur verður sam-
an á næstunni. Honum verður falið
það hlutverk að halda utan um
skipulagsvinnu í kringum Vatns-
mýrina, enda er þar að mörgu að
huga.
Samhljómur hjá borgarfulltrú-
um í minni- og meirihluta
Auðséð var að verk þeirra Massie,
Dickson og Keane féll dómnefnd af-
ar vel í geð. Hanna Birna Kristjáns-
dóttir, formaður skipulagsráðs,
sagði framlag þeirra félaga geyma
öfluga sýn fyrir alla Reykvíkinga.
Það væri raunhæf tillaga að alvöru
borgarskipulagi. Í samtali við
Morgunblaðið sagði Dagur sig mest
hafa undrað að tillagan væri ekki ís-
lensk. Hún væri í miklum sam-
hljómi við skipulagssögu Reykja-
víkur og mjög íslensk á allan hátt.
Með henni væri hægt að fullgera
miðborgina. „Þetta er áreynslulaust
framhald af þeirri Reykjavík sem
við þekkjum nú þegar,“ sagði hann.
Ólafur F. Magnússon, borg-
arstjóri í Reykjavík, var viðstaddur
verðlaunaafhendinguna. Hann
gerði góðan róm að hugmyndavinn-
unni sem var kynnt í gær. En
hvernig fannst borgarstjóra verð-
mtíðarskipulag Vatnsmýrar kynntar Vinningstillagan er kunnuglegur en um leið sérstæður borgarhluti
gð og ný Reykjavíkurtjörn
$% & ' ( )%
%*
2
<
6&
!"
)
#=
!
( %
# #,
* -
&
=&
> $
& ?
)!-
#
$
=&
##$%
( ,
&
& ( +,
!
0 #=
(
! %
#=
0 #=
1& %
&'
(
2 &
/(& (
&+(
1 %
(
%
!"
#
kur/Golli
andi. Í
VERÐLAUNATILLÖGURNAR sjö
áttu það sammerkt að vera vel unn-
ar, enda fremstar á meðal 136 inn-
sendra úrlausna. Þær tillögur sem
hlutu 15.000 evru verðlaun, eða
tæplega 1,5 milljónir króna, voru
frá:
Manuel Lodi á Ítalíu, sem setti
fram hugmyndir um skiptingu
Vatnsmýrar í stóra hluta með mis-
munandi aðskilin hlutverk. Guðjóni
Þór Erlendssyni í London, sem setti
fram sterka og heildræna áætlun
með nákvæmum reglum um mynst-
ur og formgerð húsa til að tryggja
samræmi. Rose Bonner frá Írlandi,
sem hannaði net íbúðarbyggðar
tengt aðliggjandi svæðum og
gatnakerfinu. Belindu Lea Kerry
frá Ástralíu, sem sneiddi hjá form-
um flugbrautanna í tillögum sínum
en tók þess í stað rúmmyndir úr ná-
grannahverfunum. Þetta var talið
skapa notalegt og kunnuglegt and-
rúmsloft í reykvísku samhengi.
2.-3. sæti hollenskt og franskt
Tvær tillögur hlutu 40.000 evrur í
verðlaun, eða sem nemur um 3,9
milljónum hvor.
Annars vegar voru það Johanna
Irander og Nuno Fontarra frá Hol-
landi. Þau lögðu til skýra aðgrein-
ingu á opinberum svæðum og
einkasvæðum og notuðu mismun-
andi mynstur byggðareininga til að
fá hana fram. Dómnefnd veitti því
eftirtekt að þau skoðuðu Vatnsmýri
ekki einungis í samspili við borgina
heldur einnig í samhengi við norð-
anverðan Reykjanesskagann, allt
frá Keflavík til Esjuróta. Þó þótti
hin ráðgerða móða, sem jók á töfra-
mátt tillögunnar, óraunhæf.
Hins vegar var það tillaga Jean
Pierre Pranlas-Descours frá
Frakklandi. Hún byggðist skv. um-
sögn dómnefndar á skýrri og
sveigjanlegri eyjalausn. Eyjunum
var ætlað að endurspegla kafla-
skiptan vöxt höfuðborgarsvæðisins
um leið og þær varðveittu minn-
inguna um flugvöllinn. Þar var gert
ráð fyrir grænu belti allt frá miðbæ
að Fossvogi og þar með opnu útsýni
úr miðju Vatnsmýrar til hafs, en
einnig járnbrautarsamgöngum.
g-
n væri
innig
r frá
end-
ar rætt
standa
fihús.
Öskjuhlíð, almenningsgarð, menntastofnanir, þjónustu og miðbæ er ekki amaleg.
Mýrin í víðu
samhengi og
Eyjalausn