Morgunblaðið - 15.02.2008, Síða 40

Morgunblaðið - 15.02.2008, Síða 40
… ég væri alveg til í að vera frægari en ég er í dag … 45 » reykjavíkreykjavík  Þeir sem voru viðstaddir afhend- ingu Íslensku bókmenntaverð- launanna á Bessastöðum hinn 31. janúar síðastliðinn hafa ef til vill tekið eftir því þegar rithöfundurinn Andri Snær Magnason strunsaði út í miðri athöfn. Ástæðan var ekki óánægja Andra Snæs með athöfn- ina, heldur eignaðist hann litla stúlku þann dag. Um miðja athöfn- ina varð honum litið á farsíma sinn og sá hann þá að hann hafði fengið sjö símtöl á mjög stuttum tíma. Grunur hans reyndist réttur því eiginkona hans, Margrét Sjöfn Torp, hafði þá misst vatnið. Andri Snær náði að vera viðstaddur fæð- inguna sem mun hafa gengið mjög vel. Litlu stúlkunni heilsast vel, en hún vó 15 merkur. Þetta er fjórða barn þeirra hjóna, og þriðja stúlk- an. Andri Snær strunsaði út af Bessastöðum  Rokksveitin Noise spilar á Dillon við Laugaveg í kvöld ásamt Ten Steps Away. Báðar sveitirnar munu spila nýtt efni af væntanlegum plöt- um, sem eru í vinnslu. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og frítt er inn. Rokk á Dillon Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÉG vissi ekki að þið dönsuðuð á Íslandi. Ég var hálfhissa á að heyra það. Frá því ég var krakki hef ég heyrt ýmislegt um Ísland en ég ímyndaði mér það ekki sem dansland, ég veit í raun og veru ekki hvað ég hélt um það,“ segir bandaríski dans- arinn Shane Sparks sem dvelur hér á landi um helgina ásamt Dan Karaty til að kenna á sérstöku Dansfestivali á vegum DanceCenter Reykjavík í Laugardalshöllinni. Blaðamaður segir Sparks að Íslendingar dansi mikið til að halda á sér hita. Honum finnst það ekki fjarri lagi. „Ég er spenntur fyrir því að sjá þá hæfileika sem búa í landinu og þá ást sem er á dansinum á Íslandi,“ segir Sparks sem ferðast mikið um heiminn með dansnámskeið en hefur ekki komið hingað til lands áður. Sparks og Karaty eru líklega þekktastir fyrir að starfa sem dómarar og danshöfundar í raun- veruleikaþættinum So You Think You Can Dance? (Svo þú heldur að þú getir dansað?) sem hefur verið sýndur hér á landi. Ákveðið hefur verið að framleiða íslenska þætti að erlendu fyr- irmyndinni á Dansfestivalinu og munu Shane og Dan verða Stöð 2 innan handar við gerð þeirra. Vill vera á bak við tjöldin Sparks er svokallaður götudansari og kennir aðallega hipp hopp. Hann segist hafa byrjað að dansa þriggja ára og muni varla eftir sér öðruvísi en dansandi. Spurður hvort hann dansi mikið sjálfur í dag, þegar hann er ekki að kenna, segir hann það vera minna en áður. „Þegar ég fer út að skemmta mér dansa ég á klúbbunum en ég kem ekki mikið fram lengur. Ég vil frekar starfa sem danshöfundur. Mér finnst æðislegt að vera á bak við tjöldin og sjá sköpun mína verða lifandi á sviði.“ Hann segir vinnuna við So You Think You Can Dance? eiga mjög vel við sig og farsæld þáttarins eigi þátt í því að gera dansinn vinsælli í heiminum. „Þátturinn setti dansinn í sviðsljósið, gerði hann lifandi fyrir mörgum. Dans hefur alltaf ver- ið alls staðar, en þátturinn lét heiminn vita hversu mikilvægur dans er og hvað allir hafa gaman af því að dansa,“ segir Sparks sem vann áður sem danshönnuður fyrir kvikmyndir, tónlistar- myndbönd og verðlaunahátíðir. Hipp hoppi blandað við ballett Sparks kveður danslistina vera í stöðugri þró- un. „Stærsta þróunin síðan ég byrjaði er að nú eru allir óhræddir við að blanda ólíkum dans- stílum saman, hipp hoppi er jafnvel blandað við ballett. Það eru kannski ekki allir sáttir við þá blönd- um og finnst mér það gamaldags hugsunarhátt- ur. Dans er dans þó að hann heiti ólíkum nöfnum og sé með ólíkan stíll. Allur dans kemur af sama grunni, tjáningu líkamans. Ég þoli ekki þegar fólk segir að þú getir ekki tjáð þig á ákveðinn hátt ef þér er ekki kennt það spor fyrir spor. Dans þarf ekki að vera ákveðin spor. Þú átt að geta gert það sem þú vilt og ef þú vilt blanda sam- an ólíkum dansstílum áttu að vera óhræddur við að fara á námskeið og kynna þér aðra stíla. Það er rétt eins og þú velur að gera það.“ Sparks segir að allir geti dansað. „Það geta kannski ekki allir snúið sér á höfðinu og farið í splitt en það geta allir smellt fingrum og stigið til hægri og vinstri og það er að dansa.“ Sparks og Karaty koma hingað til lands í dag og dvelja í tvær nætur og munu nýta tímann vel til kennslu, að sögn Sparks. „Hvernig er annars veðrið?“ spyr hann að lok- um. Shane Sparks úr So You Think You Can Dance? kennir hér á landi um helgina Hipp hopp Shane Sparks er götudansari af bestu gerð og miðlar nú hæfileikum sínum hérlendis. Allir geta dansað Upplýsingar um Dansfestivalið er hægt að nálg- ast á www.dancecenter.is og á www.mys- pace.com/dancecenterreykjavik. „Frumsýning í Hafnarfjarðarleikhúsinu er alltaf tilhlökkunarefni. Í þetta sinn stigu flinkir leikarar á svið með skemmtilega sýningu.“ Elísabet Brekkan, Fréttablaðið. Midasala: 555 2222. www.midi.is „Hjálmar Hjálmarsson fer á kostum í hlutverki sjón- varpsins“ „ ... get ég ekki annað en mælt með sýningunni, sem er troðfull af skemmtilegum atriðum ...“ Martin Regal, Morgunblaðið. „ ... konan sem sat tveim sætum frá mér hló oft hátt og snjallt. Og ég er viss um að hún var í raun og veru að skemmta sér...“ Jón Viðar Jónsson, DV. Næstu sýningar: Lau. 9. febr. Kl. 20.00 Lau. 16. febr. Kl. 20.00 Lau. 23. febr. Kl. 20.00 Lau. 1. mars. Kl. 20.00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.