Morgunblaðið - 02.03.2008, Síða 42
Fréttir
í tölvupósti
42 SUNNUDAGUR 2. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓÐLÍFSÞANKAR
Þetta er nú meira basliðmeð bankana! Í hverjumfréttatíma berast æ verrifréttir af starfsemi þeirra.
Þeir eru til sem hafa haldið því
fram að yfirstjórn sumra banka hafi
stundað einskonar fjárhættuspil
með ýmsum hætti í stað þess að
sinna um almenna bankastarfsemi
fyrst og fremst. Sé þetta staðreynd
hefur þarna verið farið út á nýjar
brautir sem í ljósi reynslunnar virð-
ast í meira lagi hálar.
Menn hafa að undanförnu lagt
ýmislegt til málanna til að bjarga
þessu grafalvarlega máli bankanna
fyrir horn. En það er víst hægara
um að tala en í að komast. Miklar
sögur hafa undanfarin ár farið af
kaupgreiðslum bankamanna í yf-
irstjórn, þar hefur mönnum þótt í
meira lagi vel í lagt - ótrúlega vel á
stundum.
Mér datt svona í hug hvort ekki
væri fær leið að stokka almenni-
lega upp hjá öllum bönkunum og
skipta bara um alla yfirstjórn eins
og hún leggur sig í hverjum og ein-
um þeirra banka sem nú riða á
barmi falls.
Ráða mætti svo í staðinn fólk
sem kann til starfa en gerir ekki
þvílíkar kaupkröfur og þeir gerðu
sem hættu sér úr á „hálu braut-
irnar“. Heilmargir vilja vera
bankastjórar og ekki er stjórn-
arfarslega úr háum söðli að detta
ef fregnir af ástandinu eru réttar.
En ef fólk sem stjórnar bönkum
væri t.d. með svona gegnumsneitt
milli 200 og 300 þúsund á mánuði,
sem er víst nálægt meðallaunum
almennings, og fengi svo mjög
hæfilegan bónus eftir langan tíma
ef starfsemin skilar arði þá myndu
sparast umtalsverðir peningar, - ef
rétt er hermt með hin góðu kjör
yfirstjórnenda og fleiri starfsmanna
banka og fjármagnsfyrirtækja.. En
auðvitað ættu hinir gömlu stjórn-
endur að hafa forgang ef þeir vildu
sætta sig við þessi kjör. Í sumum
bönkum er þessi þróun byrjuð, en
þótt yfirstjórnendur helmingi við
sig kaupið er það samt alltof hátt
til að af því hljótist sparnaður að
ráði, - betur má því ef duga skal.
Hætta þyrfti allri þeirri æv-
intýramennsku og peningasukki
banka sem birtar hafa verið fréttir
af reglulega undanfarin ár og snúa
sér að því sem mestu skiptir fyrir
landsmenn – að stunda almenna
bankastarfsemi þannig að ekki
komi til að bankar þurfi að hækka
svo vexti að landflótti hljótist af og
í kjölfarið algjört bankahrun. Nú er
staðan sú að almenningur óttast
fátt meira en endurskoðun vaxta
þeirra húsnæðislána sem bankarnir
lánuðu með 4,15% vöxtum hérna
um árið - fólk sefur varla af ótta
við að bankarnir hækki vextina svo
mikið að það missi heimili sín.
Þeir verða að missa sem eiga,
segir einhvers staðar - en það á
ekki bara að eiga við um þá sem
taka lán í bönkum. Ef menn kaupa
fyrirtæki og reka það eftir eigin
aðferðum þá verða þeir að taka
ábyrgð á stöðu þeirra þótt illa fari í
bili – rétt eins og hvert og eitt
heimili í landinu stendur og fellur
með því hversu ábyrg fjárhags-
stefna er rekin af húsráðendum.
Þetta gildir því vitaskuld um
bankaeigendur eins og aðra og
þeim sem eiga bankana dettur
enda varla annað í hug trúi ég.
Auðvitað geta komið upp aðstæður
sem gera rekstur heimila, fyr-
irtækja og banka erfiðan, en þá
reynir á og það þarf að herða sult-
arólina.
Það hefur aldrei þótt manndóms-
merki að velta byrðum sínum yfir á
aðra og ekki læt ég mér detta í
hug að þeir sem nú standa í banka-
rekstri láti sér hugkvæmast að láta
almenning í landinu gjalda þess
hve rekstur þeirra er orðinn erf-
iður. Þeir sem þegar hafa lækkað
kaupgreiðslur yfirmanna í bönkum
eiga heiður skilinn, en lækkunin
gengur alltof, alltof skammt. Það
er greinilega komið að skuldadög-
um og það þarf að grípa til allra
þeirra aðhaldsaðgerða sem færar
eru í bankastofnunum svo þær
standi af sér þessa erfiðleika. En
það er hins vegar ekki rétt og
raunar ófær leið að láta almenning
borga brúsann. - En fyrirfram er
ósanngjarnt og sjálfsagt ástæðu-
laust að væna ábyrga bankaeig-
endur um slíkan hugsunarhátt.
Eins og segir í Geðorðunum tíu -
maður á að hugsa jákvætt, það ger-
ir lífið léttara.
Hvað er til ráða?
Bankar í basli!
Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur
vissir
þú að...
Þjóðlendumál
og eignarréttur
Snorrastofu, reykholti
Laugardaginn 8. mars
Málþing um eignarrétt á landi, þjóðlendulögin og framkvæmd þeirra
13:00 Setningarávarp einar K. guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
13:10 Eignarréttur á Íslandi í sögulegu ljósi.
Kirkjueignir á fjalllendi.
einar g. Pétursson, rannsóknarprófessor við Árnastofnun.
Afréttarhugtakið í sögulegu ljósi.
guðrún Ása grímsdóttir, rannsóknarprófessor við Árnastofnun.
Heimildagildi Landnámu.
Sveinbjörn rafnsson, prófessor við Háskóla Íslands.
Umræður og fyrirspurnir.
14:40 Kaffihlé
15:00 Þjóðlendumál, eignarréttur og mannréttindi.
Inntak eignarréttar á landi: Dómaframkvæmd á Íslandi
Friðbjörn garðarsson, héraðsdómslögmaður.
Framkvæmd laga um þjóðlendur á Íslandi.
Ólafur Björnsson, hæstaréttarlögmaður
Um eignarréttarvernd MSE og Mannréttindadómstólsins.
Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Mannréttindadómstól evrópu.
Umræður og fyrirspurnir.
16:30 Kaffihlé
16:45 Alþingismenn í pallborði
Árni Þór Sigurðsson, Vinstri-grænum
guðjón a. Kristjánsson, Frjálslyndum
Kristján Þór Júlíusson, Sjálfstæðisflokki
Lúðvík Bergvinsson, Samfylkingu
Valgerður Sverrisdóttir, Framsóknarflokki
Stjórn málþings og umræðna:
Jósef Þorgeirsson, lögfræðingur og Birgir tjörvi Pétursson, framkvæmdastjóri rSe
gert er ráð fyrir að málþinginu ljúki eigi síðar en kl. 18:00
aðgangur er öllum opinn, svo lengi sem húsrúm leyfir.
nánari upplýsingar á:
www.rse.is
www.snorrastofa.is
www.arnastofnun.is
www.buvest.is
DAGSKRÁ
Stofnun Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum
Einstaklega vel staðsett 204 fm
einbýlishús á sjávarlóð. Húsið er
steinsteypt á einni hæð og
hannað af Kjartani Sveinssyni.
Árið 1990 var húsið að mestu
endurnýjað að innan á vandaðan
og smekklegan hátt.
Lambhagi - Álftanes - Sjávarlóð
Mb
l
97
88
15
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
Staðsetning er einstök þar sem lóðin er sjávarlóð á
móti suðri, fjaran er nánast inni á lóðinni, mikið fuglalíf
er við sjávarsíðuna og útsýni einstakt. Verð 59,9 millj.
HÚSIÐ VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG SUNNUDAG FRÁ KL.
15.00-16.00.