Morgunblaðið - 02.03.2008, Side 60
60 SUNNUDAGUR 2. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Geir H. Haarde,
forsætis-ráðherra, heim-sótti
í vikunni Lúxemborg og
Belgíu. Þar átti hann m.a.
við-ræður við full-trúa í
framkvæmda-stjórn
Evrópu-sambandsins og
framkvæmda-stjóra
Atlantshafs-bandalagsins.
José Manuel Barroso,
for-seti
fram-kvæmda-stjórnar
Evrópu-sambandsins, sagði
á blaðamanna-fundi með
Geir H. Haarde á miðviku-dag
að upp-taka evru kæmi
aðeins til greina ef Ísland
gengi í Evrópu-sambandið.
Barroso sagði einnig að
aðildar-ríki yrði að ganga í
gegnum hið form-lega ferli og
upp-fylla skil-yrði
sam-bandsins fyrir upp-töku
evru.
Geir H. Haarde sagði að
það hefði komið fram á
fundum hans með
forystu-mönnum ESB að
Ísland gæti lent í póli-tískum
erfið-leikum, yrði upp-taka
evrunnar reynd ein-hliða, m.a
í kringum EES-samn-inginn
og Schengen-sam-starfið.
ESB-aðild for-senda evrunnar
Árvakur/Ólafur Stephensen
Geir H. Haarde ræðir við José Manuel Barroso.
Þrjú gefa kost
á sér
Vilhjálmur
Þ. Vilhjálms-
son gaf fyrir
viku út
yfir-lýsingu um
að hann muni
sitja áfram
sem
borgar-fulltrúi og odd-viti
borgar-stjórnar-flokksins.
Hann segir að enn sé „opið
hver taki við em-bætti
borgar-stjóra“ í mars á næsta
ári. Eðli-legt sé að allur
borgar-stjórnar-flokkur
Sjálfstæðis-flokksins ákveði í
sam-einingu hver verður
borgar-stjóri fyrir hönd
flokksins. Þau Hanna Birna
Kristjánsdóttir, Gísli Marteinn
Baldursson og Júlíus Vífill
Ingvarsson hafa öll sagt við
Morgun-blaðið að þau muni
gefa kost á sér sem
borgar-stjóra-efni
Sjálfstæðis-flokksins.
Fyrst inn-flytjenda
Stanislaw Bukowski tekur
sæti í stjórn Eflingar
stéttar-félags 23. apríl nk.
Hann er frá Póllandi og hefur
búið á Íslandi í 7 ár. Hann
verður þar með fyrsti er-lendi
starfs-maðurinn sem tekur
sæti í stjórn félagsins.
Tatiana K. Dimitrova hefur
verið ráðin leikskóla-stjóri á
leik-skólann Berg á
Kjalar-nesi. Tatiana er fyrsti
út-lendingurinn sem ráðinn er
í stöðu leikskóla-stjóra hjá
Reykjavíkur-borg. Hún er
búlgörsk að upp-runa en
hefur búið á Íslandi í 20 ár.
Amal Tamimi,
varabæjar-fulltrúi
Samfylkingar, tók sæti í
bæjar-stjórn Hafnar-fjarðar í
vikunnu, fyrst inn-flytjenda.
Amal er af pale-stínskum
upp-runa. Hún flutti til Íslands
1995.
Júróvision hiti
Fyrir viku
kom í ljós að
lagið
Full-komið líf
eftir Örlyg
Smára í
flutn-ingi
Regínu Óskar og Friðriks
Ómars, verður fram-lag
Íslands í Söngva-keppni
evrópskra sjónvarps-stöðva í
ár.
Friðrik Ómar sagði við það
tæki-færi: „glymur hæst í
tómri tunnu“. Fólk hefur mikið
velt þessum ummælum fyrir
sér og á sunnu-dag loguðu
blogg-heimar.
Mikil óánægja er nú meðal
flytjenda í söngva-keppninni,
því þeir hafi ekki gefið
sam-þykki fyrir því að
flutn-ingur þeirra yrði notaður
á safn-diski. FÍH kannar nú
rétt þeirra.
Stutt
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Friðrik Ómar
Sjávar-útvegs-ráðuneytið
hefur heimilað loðnu-veiðar á
ný, eftir að
Haf-rannsókna-stofnun
endur-mældi loðnu-gönguna.
Mæld voru um 470.000 tonn.
Leyft verður að veiða alls
70.000 tonn til við-bótar, en
vegna samninga um nýtingu
loðnunnar fá Fær-eyingar og
Græn-lendingar um 10.000
tonn samtals, Íslendingar
60.000 til við-bótar við það
sem áður var veitt.
Loðnu-vertíðin samt sú
lakasta í um 20 ár.
Magn-framboð af
loðnu-hrognum er lítið, en
markaðir fyrir hrognin verða
stöðugt mikil-vægari. Það
getur gefið hámarks-verðmæti
fyrir þetta magn og nú fer allt á
fullt.
Allt á fullt í
loðnunni
Í ár var alþjóð-legri bragur á
Óskars-verðlauna-hátíðinni en oft áður.
Há-tíðin var haldin í 80. sinn í Los Angeles
aðfara-nótt mánu-dags. Öll leikara-verðlaunin
féllu Evrópu-búum í skaut, og þakkar-ræður
voru fluttar á spænsku og frönsku.
Eng-lendingurinn Daniel Day-Lewis þótti
besti karl-leikari í aðal-hlutverki, fyrir hlut-verk
sitt í There Will Be Blood. Hin franska Marion
Cotillard var valin besta leik-konan í
aðal-hlutverki fyrir túlkun sína á Edith Piaf í La
Vie en Rose. Enska leik-konan Tilda Swinton
fékk verð-laun fyrir bestan leik í auka-hlutverki
í Michael Clayton. Spán-verjinn Javier Bardem
þótti bestur í auka-hlutverki sem morð-óður
þurs í No Country For Old Men eftir
Coen-bræður. Mynd þeirra bræðra var valin
besta myndin, þeir bræður saman besti
leik-stjórinn, hand-rit myndarinnar það besta
sem byggt var á áður út-gefnu efni og
kvikmynda-takan í myndinni þótti sú besta.
Alþjóð-legur
Óskar
Reuters
Bestu leikararnir: Daniel Day-Lewis, Tilda
Swinton, Marion Cotillard og Javier Bardem.
Hinn íslenski Þursaflokkur þykir ein besta rokk-sveit
Íslands-sögunnar. Þursarnir sneru aftur hinn 23. febrúar og
héldu 30 ára afmælis-hljóm-leika í Laugardals-höllinni ásamt
Caput-hópnum.
Tónlistar-gagnrýnandi Morgun-blaðsins, Orri Harðarson,
sagði hljóm-leikana hafa verið framúr-skarandi góða og
full-komna á köflum.
Þrusu-góðir Þursar
Árvakur/Eggert
Landsliðs-þjálfari ráðinn
Guðmundur Þórður
Guðmundsson var í vikunni
ráðinn landsliðs-þjálfari í
handknatt-leik. Hann er að
koma í þriðja skipti til starfa
hjá HSÍ vegna lands-liðsins.
Guðmundur tók við þjálfun
lands-liðsins 2001 þegar
Þorbjörn Jensson hætti sem
landsliðs-þjálfari eftir HM í
Frakklandi – og hann hætti
síðan sem landsliðs-þjálfari
eftir Ólympíu-leikana í Aþenu
2004. Guðmundur var svo
aðstoðar-maður Alfreðs
Gíslasonar, fyrr-verandi
landsliðs-þjálfara,
2006-2007.
Meistarar í fyrsta sinn
Snæfell úr Stykkishólmi og
Grindavík urðu á
sunnu-daginn bikar-meistarar
í körfu-knattleik. Snæfell
vann Fjölni úr Grafar-vogi í
karla-flokki, 109:86. Í
kvenna-flokki lagði Grindavík
að velli Hauka úr
Hafnarfirði77:67. Þetta er
fyrsti bikar-meistara-titill
beggja liða.
Íþróttir
Árvakur/Kristinn Ingvarsson
Guðmundur Þórður
Netfang: auefni@mbl.is