Morgunblaðið - 02.03.2008, Síða 72
72 SUNNUDAGUR 2. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
vissir
þú að...
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA er ástarsaga með súrsætu
eftirbragði,“ segir kvikmyndagerð-
armaðurinn Rúnar Eyjólfur Rún-
arsson um Smáfugla, stuttmynd sem
hann hefur nýlokið við. Myndin er 15
mínútna löng og
er byggð á sögu
eftir Rúnar sjálf-
an, sem hann seg-
ir að sé þroska-
saga aðalpersón-
unnar Óla. Það
eru ungir leikarar
sem fara með að-
alhlutverkin í
myndinni, þau
Atli Óskar Fjal-
arsson, Hera Hilmarsdóttir, Sig-
urður Jakob Helgason og Þórunn
Jakobsdóttir, en einnig þeir Gísli Örn
Garðarsson, Ómar Örn Hauksson og
Víkingur Kristjánsson.
Myndin var að mestu tekin á
Keflavíkurflugvelli í ágúst. „Allar
innitökurnar voru þar, og eitthvað af
útitökunum. Svo vorum við líka í
höfninni í Reykjanesbæ og í Innri
Njarðvík,“ segir Rúnar og bætir við
að hann sé ákaflega ánægður með út-
komuna. Hann gerir þó ekki ráð fyrir
að verða tilnefndur til Ósk-
arsverðlauna fyrir þessa mynd, líkt
og fyrir Síðasta bæinn sem hann
gerði árið 2004. „Nei, ég held ekki,
þeir eru svo viðkvæmir þarna í
Bandaríkjunum. Ég held að þessi
mynd hæfi þeim ekki, en það er þó
aldrei að vita,“ segir hann, en vill þó
ekki gefa upp hvað það er sem hann
telji að geti farið fyrir brjóstið á Ósk-
arsverðlauna-akademíunni.
Að moka skurð
Aðspurður segist Rúnar búast við
að Smáfuglar verði frumsýnd á ein-
hverri kvikmyndahátíðinni, en hún
verði svo örugglega sýnd í bíói hér á
Íslandi. Hann stefnir ótrauður að því
að gera mynd í fullri lengd um leið og
hann lýkur námi, en hann á eitt og
hálft ár eftir af námi sínu við danska
kvikmyndaskólann. „Ég er að vísu
alltaf að gera myndir í skólanum, en
það er bannað að sýna þær fyrir utan
skólann. Það er ekki nema ef einhver
hátíð biður sérstaklega um mynd-
irnar að þeir gefa kannski leyfi. Þetta
er hálfasnalegt, þetta er eins og að
moka skurð en svo er sett þak yfir og
enginn má koma í heimsókn og sjá
skurðinn sem maður er voðalega
ánægður með,“ segir Rúnar. „Þeir
eru að reyna að koma í veg fyrir öf-
und ef einhverjum gengur vel, en ég
skil þetta ekki alveg sjálfur. Þeir eru
að reyna að hlúa að viðkvæmum
blómum sem eiga að blómstra.“
Önnur íslensk Óskarstilnefning?
Nýjasta stuttmynd Rúnars Eyjólfs Rúnarssonar frumsýnd innan skamms
www.smafuglar.blogspot.com
Smáfugl? Ungir leikarar eru í aðalhlutverkum í nýju stuttmyndinni.
Rúnar Eyjólfur
Rúnarsson
TÓNLEIKAFERÐALAGI Bjarkar
um Asíu lýkur í dag en þá kemur
Björk fram í Shanghai Changning
Arena í Sjanghæ í Kína.
Á þessum hluta heimstónleika-
ferðarinnar sem farin er til að kynna
nýjustu plötu Bjarkar Volta hefur
tónlistarkonan komið fram á þrettán
tónleikum í sex löndum. Einum tón-
leikum varð Björk þó að aflýsa sök-
um barkabólgu en það var á Big Day
Out hátíðinni í Sydney í Ástralíu
hinn 25. janúar.
Asíuferð Bjark-
ar lýkur í dag