Morgunblaðið - 02.03.2008, Page 76
SUNNUDAGUR 2. MARS 62. DAGUR ÁRSINS 2008
Heitast 2 °C | Kaldast -8 °C
Austan 8-13 m/s og
snjókoma sunnan- og
vestanlands en annars
hægari norðanátt og
él. » 8
ÞETTA HELST»
Lítið á milli handanna
Greining á tekjum aldraðra leiðir
meðal annars í ljós að um 10% fólks í
elstu aldurshópunum hafa engar líf-
eyrissjóðstekjur og meira en 60%
þeirra sem eru eldri en 85 ára eru
með innan við 50 þúsund krónur í líf-
eyrissjóðstekjur á mánuði. » 2
Sigurvegarar í tölti
Þorvaldur Árni Þorvaldsson á hin-
um stóra og mikla stóðhesti Rökkva
frá Hárlaugsstöðum sigraði í tölti í
Meistaradeild VÍS. Þorvaldur Árni
og Rökkvi hafa verið duglegir við að
sópa til sín verðlaunum en samt
aldrei áður í tölti. Sigurinn hékk
samt á bláþræði því Viðar Ingólfs-
son og Tumi frá Stóra-Hofi gáfu
þeim ekkert eftir og voru þeir hníf-
jafnir eftir úrslitin. »6
Færri reykja
Minnkandi tíðni reykinga hefur
átt sér stað í öllum aldurshópum
nema meðal þeirra allra elstu. Sam-
kvæmt niðurstöðum úr könnun Lýð-
heilsustöðvar á tíðni daglegra reyk-
inga er hún 19% þriðja árið í röð hjá
aldurshópnum 15-89 ára. »2
Gullfaxi rifinn
Byrjað verður að rífa Gullfaxa,
fyrstu þotu Íslendinga, í varahluti í
Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum í
næstu viku. Áhugamenn um flug-
sögu Íslendinga hafa haft hug á að fá
vélina til landsins en það hefur ekki
gengið eftir þar sem eigendur henn-
ar vilja fá um 80 milljónir króna fyrir
hana. »2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Hver eru þau rök?
Forystugreinar: Kúabúskapur í
vanda | Reykjavíkurbréf
Ljósvaki: Góð kilja, misjöfn gagnrýni
UMRÆÐAN»
Finna rétt starfsfólk
Stórbættar slysatryggingar
Fleiri vinna við kennslu
Alcoa veitir samfélagsstyrki
Eru sjúkraskrár LSH galopnar …?
Áfram útsala á auðlindum?
Æskulýðsstarf KFUM og KFUK
Kaffi og kruðerí
ATVINNA»
FÓLK»
Finnst gaman að búa til
börn. »67
Hinn íslenski Þursa-
flokkur kannar
möguleika á tón-
leikahaldi á nokkr-
um stöðum á lands-
byggðinni. »69
TÓNLIST»
Dreifbýlis-
þursar
FÓLK»
Erfitt að eiga foreldra
úr leikarastétt. »71
KVIKMYNDIR»
Myndin af ástarleiknum
brennd í hugann. »67
Það er súrsætt eft-
irbragð af Smáfugl-
unum, nýjustu stutt-
mynd Rúnars
Eyjólfs Rúnars-
sonar. »72
Súrsætir
fuglar
KVIKMYNDIR»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Ásdís Rán komst á toppinn í gær
2. Fyrirsæta fannst látin í Signu
3. Hafði mök við dömureiðhjól
4. Ólst ekki upp hjá úlfum
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
LOÐNUVEIÐAR hafa gengið vel eftir að þær
voru leyfðar á ný á miðvikudag, en áhersla er
lögð á frystingu og hrognatöku og þar sem
kvótinn er aðeins 100 þúsund tonn halda menn
enn aðeins að sér höndum til að freista þess að
fá sem mest verðmæti og þar með hæsta mögu-
lega verð. Eskja hf. á Eskifirði er með 8,8%
kvótans og takmarkar veiði skipa sinna.
„Hrognin eru ekki komin í sitt besta ástand
ennþá,“ segir Haukur Björnsson, framkvæmda-
stjóri Eskju. Haukur, eins og aðrir sem tengj-
ast loðnuveiðum og vinnslu, vonast til að kvót-
inn verði aukinn en hann bendir á að hver
dagur sé dýrmætur og segir að lítið þýði að
bæta við þegar vertíðin verði nánast búin.
„Hver dagur er dýrmætur og nokkrir brælu-
dagar geta rústað vertíðinni héðan í frá.“ Jón
Kjartansson kom í heimahöfn á Eskifirði um
hádegið í gær með ríflega 1.000 tonn af góðri
loðnu, sem fékkst í þremur köstum rétt austan
við Vestmannaeyjar á föstudag.
Hver dagur dýrmætur
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Verðmæti Jón Kjartansson SU kom með góða loðnu til Eskifjarðar í gær. Atli Aðalsteinsson baðar sig í henni og Sævar Guðnason fylgist með.
„ÍSLENSKI markaðurinn ger-
ir mér kleift að halda þessu
úti. Íslendingar gera sér far
um að kaupa íslenska tónlist
og styðja við bakið á henni,“
segir Baldvin Esra Einarsson
sem hyggur á landvinninga
með plötufyrirtækinu sínu.
Kimi Records þurfa þó á fjár-
sterkum aðila að halda ef út-
rásardraumar eiga að rætast.
„Maður er að taka þátt í að
koma einhverju á framfæri sem hefur tilfinn-
ingalegt gildi fyrir fólk, maður er á óbeinan hátt
að taka þátt í sköpunarferlinu og það er gefandi.
Ég sé ekki annað en að það sé þörf fyrir það sem
ég er að gera,“ segir Baldvin. | 66
Íslendingar
styðja sitt fólk
Baldvin Esra
Einarsson
„ÞEIR hafa verið að elta mig hingað og þangað
um heiminn […] og verða svo á hælunum á mér út
þetta ár,“ segir Kristinn Sigmundsson óperu-
söngvari. Þeir sem eru á eftir honum eru Frið-
þjófur Helgason og Páll Steingrímsson kvik-
myndagerðarmenn en þeir vinna nú að
heimildamynd um Kristin. Að sögn Páls verður
vinnu við myndina lokið í árslok.
Kristinn segir að í myndinni verði myndefni frá
Metropolitan-óperunni frá sýningum með honum í
haust og einnig frá Óperunni í Los Angeles, úr
uppfærslunni á Tristan og Ísold sem Kristinn
söng í fyrir skömmu. | 40
„Á hælunum á mér“
Heimildamynd um Kristin
Sigmundsson í vinnslu
Ljósmynd/Friðþjófur Helgason
Eltur Kristinn Sigmundsson óperusöngvari.