Morgunblaðið - 10.03.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 69. TBL. 96. ÁRG. MÁNUDAGUR 10. MARS 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
VÍÐFÖRULL VOFFI
TARA LAGÐIST Í FERÐALÖG MEÐ HÚSBÆNDUN-
UM ENDA SANNKALLAÐUR ÆVINTÝRAHUNDUR >> 17
GOSI >> 33
Allir í leikhús
Leikhúsin í landinu
Nýr A4
mars 2008
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
ÁKVÆÐI er um það í nýju kjara-
samningunum að launþegar geti ósk-
að eftir því að fá hlut launa sinna í er-
lendum gjaldmiðli og er eðlilegt að
fólk velti því
fyrir sér hver
ávinningurinn
er af því, og
jafnvel hver
áhrif geng-
issveiflna krón-
unnar verða á
laun og um leið
skattgreiðslur.
Gefum okkur
að launþegi sé
með, eða hygg-
ist taka, íbúða-
lán í evrum og sé með mánaðarlega
400 evra afborgun. Séu laun launþeg-
ans eingöngu greidd í krónum getur
afborgunin, sem hlutfall af laun-
unum, sveiflast töluvert – sem dæmi
má nefna hafi viðkomandi tekið lán í
byrjun síðasta árs hefði 400 evra af-
borgun í krónum talið numið um 37
þúsund krónum en í gær hefði sá
hinn sami þurft að greiða tæpar 42
þúsund krónur sem er 13,4% hækk-
un (taka ber fram að í þessu dæmi er
litið framhjá öllum öðrum breytum).
Skattur í krónum
Nú getur launþegi, með t.d. 300
þúsund krónur í mánaðarlaun, hins
vegar samið um að mánaðarlega séu
honum greiddar 400 evrur sem hluti
af launum. Segjum að gengi evr-
unnar þegar samningurinn er gerður
sé 95 krónur. Þá fær viðkomandi 262
þúsund í íslenskum krónum og 400
evrur í laun. Þannig hefur launþeg-
inn fest sér upphæð sem jafngildir
afborguninni af láninu og um leið
varið sig gegn sveiflum á gengi krón-
unnar því þótt evran verði dýrari
mun launþeginn engu að síður fá 400
evrur auk 262 þúsund króna í laun.
Launþeginn hefur því tryggt sig
gegn gengissveiflunni og er ávinn-
ingurinn að því leyti augljós.
Um leið hækka launin sem nemur
veikingu krónunnar og má því segja
að með því að taka hluta launa í evr-
um hafi sá hluti þeirra verið verð-
tryggður. Á móti kemur reyndar að
styrkist gengi krónunnar lækka
launin sem því nemur. Þess ber að
geta að þegar kemur að útreikningi
skatts eru allar upphæðir reiknaðar í
íslenskum krónum og því hækkar
skattgreiðslan þegar krónan veikist
og lækkar þegar hún styrkist. Við
13,4% hækkkun evru, sem nefnd er
hér að framan, hækka launin um
u.þ.b. 5.000 krónur – sé greiðslan 400
evrur – og skatturinn um 1.760 krón-
ur.
Trygg-
ing gegn
sveiflum
Ávinningur af laun-
um í erlendri mynt
BORIS Spasskí, fyrrverandi heims-
meistari í skák, sem tapaði heims-
meistaraeinvíginu í skák við vin
sinn Bobby Fischer í Reykjavík árið
1972, heiðraði minningu Fischers í
gær á 65. afmælisdegi hins látna
skákmeistara. Spasskí þótti afar
vænt um Fischer og vildi að þeir
yrðu bræður. Bobby tók þessu til-
boði á sinn sérstæða hátt sem
Spasskí fannst einstaklega eft-
irminnilegt.
Morgunblaðið/Ómar
Óskaði bræðrabanda
MIKIÐ verður um dýrðir í Ráðhúsi
Reykjavíkur í dag, mánudag, þegar
heimsþekktir stórmeistarar af eldri
kynslóðinni tefla á sérstöku minn-
ingarmóti um Bobby Fischer, fyrr-
verandi heimsmeistara í skák. Boris
Spasskí, fyrrverandi heimsmeistari,
sér um skákskýringar ásamt öðrum
snillingi, William Lombardy, sem
var kennari Fischers og síðar að-
stoðarmaður hans.
Þeir sem tefla eru stórmeistararn-
ir Portisch, Benko, Hort og Friðrik
Ólafsson.
Boris Spasskí lýsti í gær efasemd-
um um að skáklistin væri á réttri leið
með tilkomu tölva sem væru að
drepa hina klassísku skák. Hann
fæst nú við að kenna börnum skák í
Síberíu og Úralfjöllum og tekst einn-
ig á við það vandasama hlutverk að
kenna þeim að umgangast tölvur
með það fyrir augum að nota þær
sem þarfa þjóna. Þrátt fyrir svart-
sýni sína í þessum efnum segist
Spasskí, sem hættur er að tefla, lifa
sem bjartsýnismaður að eðlisfari.
Áhrifin stórkostleg
Hátíðardagskrá með skákskýring-
um, tónlistarflutningi og minningar-
erindum um Bobby Fischer var
haldin í Þjóðmenningarhúsi í gær.
Þar rifjaði Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra upp heimsmeistaraeinvígið
1972 og sagði stórkostlegt hve mikil
áhrif atburðurinn hefði haft.
Spasskí og Fischer hefðu komið
Reykjavík á kortið á margvíslegan
hátt. Augu heimsbyggðarinnar
hefðu beinst að Íslandi vegna einvíg-
isins. Enn nyti þjóðin áhrifanna.
Á hátíðardagskránni í gær var
flutt tónverk eftir 18. aldar tónskáld-
ið François-André Danican Philodor
sem var líka einn fremsti skáksnill-
ingur sinnar tíðar. Vann hann sér
það til frægðar m.a. að sigra „Skák-
tyrkjann“ sem var víðfrægt evrópskt
svindlvélmenni í skák á sinni tíð. Var
þetta í fyrsta sinn sem tónverk eftir
Philodor heyrist flutt hér á landi.
Alþjóðlega Reykjavíkurmótinu í
skák, sem hófst 3. mars, lýkur á
morgun, 11. mars. | Miðopna
Spasskí og
Lombardy
skýra skákir
UNGVERSK-
bandaríski stór-
meistarinn Pal
Benko ræddi við
Bobby Fischer,
fyrrverandi
heimsmeistara í
skák, skömmu
fyrir andlát hans
og orðaði við
hann tilboð um
að tefla við Judith Polgar, sterk-
ustu skákkonu frá upphafi, á
þriggja daga atskákmóti gegn
einnar og hálfrar milljónar dollara
(102 milljóna króna) greiðslu. Þótti
Fischer upphæðin of lág.
Benko sagði í ávarpi á samkomu
í tilefni af afmæli Fischers í Þjóð-
menningarhúsinu í gær að hann
hefði þá gert Fischer grein fyrir
því að miðað við þann fjölda skáka,
sem ætla mætti að þau myndu
tefla, mætti gera ráð fyrir því að
þessi greiðsla samsvaraði þrjú þús-
und dollurum (rúmlega 200 þúsund
krónum) fyrir hvern leik.
Þegar Fischer haggaðist ekki
spurði Benko hvað mikið þyrfti til
og svaraði hann þá tíu milljónir
dollara (um 680 milljónir króna).
Sagðist Benko þá hafa sagt að
hann teldi ólíklegt að af mótinu
yrði.
3.000 dollarar
á leik ekki nóg
Pal Benko
JOSE Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar
og leiðtogi Sósíalistaflokksins, lýsti í gærkvöldi yfir sigri í
þingkosningum sem fram fóru í gær.
„Spænska þjóðin hefur talað skýrt og ákveðið að hefja
nýtt tímabil án spennu, án átaka,“ sagði Zapatero við
stuðningsmenn flokksins í höfuðstöðvum hans í Madríd.
„Ég ætla að stjórna með það að leiðarljósi að bæta það
sem við gerðum vel og leiðrétta mistök okkar.“
Þegar 93% atkvæðanna höfðu verið talin seint í gær-
kvöldi var Sósíalistaflokknum spáð 168 sætum af 350 á
þinginu og Þjóðarflokknum 154. Sósíalistaflokkurinn fékk
164 sæti í þingkosningunum fyrir fjórum árum og þurfti
að fá 176 sæti til að ná meirihluta á þinginu. Flest benti því til þess í gær-
kvöldi að sósíalistar þyrftu aftur að leita eftir stuðningi þjóðernissinnaðra
flokka í héruðum sem berjast fyrir auknum sjálfstjórnarréttindum. | 14
Boðar „nýtt tímabil
án átaka“ á Spáni
Zapatero fagnar
kosningasigrinum.