Morgunblaðið - 10.03.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.03.2008, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Júlíus Kannabis Maðurinn var fyrir dómi sýknaður af ákæru um fíkniefnabrot HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef- ur sýknað karlmann af ákæru um fíkniefnabrot, en á heimili mannsins fundust 25 kannabisplöntur og smá- vegis af tóbaksblönduðu kannabis- efni. Líta verður svo á að dómurinn hafi ekki talið vinnubrögð lögreglu fullnægjandi. Maðurinn leigði íbúð í fjölbýlishúsi í Hveragerði og með henni geymslu í kjallara hússins. Í mars á síðasta ári, þegar hann staddur erlendis, hafði maðurinn samband við leigjendur sína og bað þá um að opna geymsl- una manni sem nálgast þyrfti þar varning. Leigendurnir tóku þá eftir því að dyrnar höfðu verið brotnar upp, auk þess sem búið var að hólfa geymsluna af. Kölluðu þau til lög- reglu. Lögreglan fann þar kannabis- plönturnar – sem vógu alls tæp þrjú grömm – og leitaði í framhaldinu í íbúð mannsins. Þar fannst 0,43 grömm af tóbaksblönduðu kannabis- efni. Maðurinn neitaði sök og kvaðst hafa nýtt ræktunarbúnað, þ.e. gróð- urhúsalampa og sjálfvirkt vökvunar- kerfi, í geymslunni fyrir tómata- rækt. Hann kvaðst einnig hafa farið til útlanda einni og hálfri viku fyrir húsleitina, þá hefði engin ræktun verið í gangi. Fleiri höfðu auk þess lykil að íbúðinni. Ekki þótti hægt að sakfella manninn þar sem ekki fór fram lögreglurannsókn á innbroti í geymsluna, né hvort stærð plantn- anna gæfi vísbendingu um annað en að þeim hafi verið plantað eftir að maðurinn fór utan. Sagðist rækta tómata en ekki kannabis MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MARS 2008 11 FRÉTTIR          Fimmtudaginn 13. mars 2008 kl. 12:00 - 17:00 H A G V Ö X T U M L A N D A L L T R Á Ð S T E F N A S A M T A K A A T V I N N U L Í F S I N S - H Ó T E L B O R G A R N E S I 12:00 - 13:00 Skráning og hádegisver›ur 13:00 - 17:00 Hagvöxt um land allt: Áherslur SA kynntar Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA Fró›leg erindi og fyrirspurnir - umræ›ur og kaffispjall Árni Gunnarsson, Flugfélagi Íslands. Erna Indriðadóttir, Alcoa Fjarðaáli. Kjartan Ólafsson, Háskólanum á Akureyri. Gu›mundur Heiðar Gunnarsson, Matís. Sveinn Hjörtur Hjartarson, LÍÚ. Magnús Ásgeirsson, Atvinnuflróunarfélagi Eyjafjar›ar. Sigrí›ur Margrét Gu›mundsdóttir, Landnámssetrinu. Gylfi Arnbjörnsson, ASÍ. Jóhannes Jónsson, Bónus. Rá›stefnustjóri: Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA Nánari dagskrá og skráning á vef SA – www.sa.is MILLI 200-300 manns mættu á upp- boð í Saltfélaginu á föstudagskvöld og keyptu hekluð brjóst fyrir um eina milljón krónur. Brjóstin sem boðin voru upp voru búin til í aðdrag- anda sýningarinnar Gyðjan í vélinni sem Vatnadansmeyjafélagið Hrafn- hildur setti upp síðasta sumar. 25 handverkskonur á aldrinum 18-88 ára hekluðu um 250 brjóst en þau voru af öllum gerðum, sem áttu það sameiginlegt að hafa verið unnin og gefin af hlýjum hug og hendi kvenna. Þessari gjöf fleytti Vatnadansmeyja- félagið Hrafnhildur áfram, brjóstin lifa sem listmunir og fjármunirnir sem söfnuðust voru gefnir til Fiðrildaátaks UNIFEM, sem lauk um helgina. Við hinn enda ferilsins njóta konur í Líberíu, Súdan og Lýð- veldinu Kongó góðs af en þar mun styrkurinn verða nýttur til að berj- ast gegn ofbeldi gegn konum. Hekluð brjóst seld fyrir milljón GUÐLAUGUR Þór Þórðarson heil- brigðisráðherra opnaði með form- legum hætti svonefnt Þekking- artorg á heilbrigðissviði við athöfn sem fram fór á Háskólatorgi Há- skóla Íslands sl. fimmtudag. Þekkingartorgið er vefsvæði þar sem aðildarstofnanir og sérfræð- ingar þeirra geta miðlað þekkingu, verkefnum og upplýsingum sín á milli og átt umræðu um heilbrigð- ismál. Samkvæmt upplýsingum Há- skóla Íslands er því ætlað að styðja rannsóknir, þróun og samvinnu á sviði heilbrigðisþjónustu. Þekking- artorgið er samstarfsverkefni Há- skóla Íslands, heilbrigðisráðu- neytis, Tryggingastofnunar, Landspítala, fjármálaráðuneytis, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landlæknisembættis, Lýð- heilsustöðvar, Lyfjastofnunar og Háskólans á Akureyri. Þekkingar- torg heilbrigð- ismála opnað Morgunblaðið/Frikki Athöfn Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra opnar torgið við hátíðlega athöfn í H.Í. ÞAÐ hefur ekki farið framhjá landsmönnum að læknir er ekki lengur á sjúkrabíl 701, neyðarbíl slökkviliðsins. Hið nýja fyrirkomu- lag hefur sætt harðri gagnrýni og sögðu margir unglæknar á LSH upp störfum sínum í kjölfar þess- arar ákvörðunar sem tekin var í hagræðingar- og sparnaðarskyni meðal annars. En nú hefur málið fengið nýtt sjónarhorn sem vonandi sættir hin ólíku sjónarmið. „Stefnumótabifreið“ af Volvogerð „Við hjá slysa- og bráðasviði LSH höfum fengið heimild hjá heil- brigðisráðuneyti til kaupa á svo- kallaðri „stefnumótabifreið“, sem verður Volvo-skutbíll,“ segir Már Kristjánsson, sviðsstjóri lækninga á Landspítala. En hverju breytir þetta? „Við höfum þá tækifæri til að senda lækni frá bráðadeildinni beint á vettvang í völdum tilfellum. Tilvikum eins og þegar um endur- lífgun er að ræða eða einhver er stórslasaður og fyrirsjáanlegt er að sá slasaði verður lengi á slysvett- vangi vegna þess að hann er fastur í bílflaki eða undir öðru fargi.“ Hvenær kemur bíllinn? „Rauði krossinn, sem er rekstr- araðili bifreiðarinnar, er búinn að fá hana og er að útbúa hana sér- staklega í þetta hlutverk, m.a. með tilliti til forgangsaksturs en auk þess eru einföld lækningatæki í bif- reiðinni. Þessi bifreið er þó ekki hugsuð til sjúkraflutninga heldur sem farartæki læknis.“ Á þetta sér fyrirmynd erlendis? „Já, sérstaklega í Evrópu, þetta tíðkast bæði í Danmörku, Þýska- landi, Spáni og víðar.“ Leysir þetta að þínu mati þetta erfiða mál? „Ég hygg að með til- komu „stefnumótabifreiðarinnar“ og breyttu skipulagi á vinnulagi innan slysadeildar muni allir aðilar geta við unað. Við erum alltaf að hugsa um öryggi sjúklinganna og við teljum að með þessu fyrirkomu- lagi sé það varðveitt.“ „Stefnumótabíll“ kemur með lækni á vettvang! Morgunblaðið/Ómar Neyðarflutningur Verið er að útbúa svokallaða „stefnumótabifreið“ en hana mun læknir nota er hann fer á vettvang í völdum tilvikum ENGIN fagleg rök eru fyrir því að ákvörðun um að læknir sé ekki lengur í áhöfn neyðarbíls leiði til dauðsfalla á höfuðborgarsvæðinu, segir landlæknir, Sigurður Guð- mundsson, á heimasíðu embættis- ins. „Í þá tæpa tvo mánuði sem liðnir eru frá því að breyting þessi tók gildi hafa sjúkraflutningar og við- brögð við bráðavanda á höfuðborg- arsvæðinu gengið vel. Læknir hef- ur verið kallaður út að meðaltali einu sinni á sólarhring, í samræmi við verklagsreglur, en snúið við áð- ur en á útkallsstað kom í um það bil helmingi þeirra tilvika. Vel er fylgst með ferli og árangri flutn- inga á hverjum degi og sérstök út- tekt verður gerð innan tíðar á fyrstu vikum og mánuðum eftir breytingarnar. Landlæknir hefur stutt þessar breytingar og faglegar forsendur þeirra enda verður ekki séð að ör- yggi sjúklinga sé stefnt í hættu með þeim,“ segir landlæknir. Breytingin tekist vel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.