Morgunblaðið - 10.03.2008, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 10. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða frábært verð á flugsætum til Alicante 9. apríl og
frá Alicante 9. maí. Flogið er í beinu leiguflugi. Njóttu vorsólarinnar
við Alicante. Bókaðu strax og tryggðu þér sæti - takmarkaður
fjöldi sæta í boði á þessu verði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Alicante
9. apríl
frá kr. 17.990
Flugsæti - aðra leið!
Verð kr. 17.990
Netverð á mann. Flugsæti aðra leið með skötttum.
Síðustu sætin. Takmarkaður fjöldi sæta í boði.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
LOÐNUVEIÐAR standa nú sem
hæst og er veiðin á Faxaflóa. Í gær
hafði um helmingur loðnukvótans
verið veiddur, eða um 75.000 tonn.
Gera má ráð fyrir að vertíðin standi
eitthvað fram eftir mánuðinum.
„Við vorum bara að koma á
Faxaflóann og vorum að klára að
dæla fyrsta kastinu, um 350 tonn-
um,“ sagði Grétar Rögnvarsson,
skipstjóri á Jóni Kjartanssyni SU
111, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Þá voru um sjö skip á bleyðunni.
„Það eru alltaf margir á siglingu eða
að landa og allir að keppast við að
veiða fyrir hrognatöku. Loðnan
núna er alveg að detta í hrygningu.
Það er mjög stutt í það og orðið laust
í henni. Mjög góð loðna og hentar
mjög vel í hrognin. Við löndum alltaf
heima á Eskifirði, en erum reyndar í
síðasta túr. Kvótinn hjá Eskju er að
klárast og Aðalsteinn Jónsson SU á
eftir einn túr. Þá förum við á kol-
munna,“ segir Grétar.
Hann segir að verðið á hrogn-
unum sé gott núna og því sé þokka-
legt upp úr þessu að hafa.
„Bátarnir eru svolítið dreifðir um
Faxaflóann og það virðist vera nóg
enn af loðnu. Við erum hérna með
þeim syðstu. Þetta er bara eins og
maður hefur oft séð þetta áður.
Hvorki meira né minna,“ sagði Grét-
ar og var ánægður með blíðuna í
gær.
Vonast eftir vestangöngu
Skipin eru öll að veiðum úr
fremsta hluta göngunnar, en þar eru
hrognin í loðnunni mest þroskuð og
henta vel fyrir markaðinn í Japan.
Enginn er því enn að veiða úr seinni
göngunni en menn fylgjast með
henni á ferðum sínum austur og
vestur með Suðurlandinu. Enn virð-
ist ekkert bóla á vestangöngu, en
menn gera sér þó vonir um að loðnan
komi þaðan líka, en þá hrygnir hún
mest á Breiðafirðinum. Gangan að
vestan kemur venjulega seinna en sú
að austan, komi hún á annað borð.
Flotinn að veiðum á Faxaflóa
Um helmingur
loðnukvótans hef-
ur verið veiddur
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Veiðar Strákarnir á Jóni Kjartanssyni eru ánægðir með gott verð á loðnu-
hrognunum en þeir eru í síðasta túr og fara síðan á kolmunnann.
HÚN Íris Anna Gísladóttir hafði mikinn áhuga á verð-
launagripunum á Íslandsmótinu í borðtennis, sem lauk
í gær. Kannski hefur hún séð sjálfa sig í anda hampa
þeim á verðlaunapalli og viljað prófa hvernig þeir færu
í hendi en starfsmanni mótsins fannst hún aðeins of
fljót á sér. Hann hjálpaði henni við að koma bikurunum
aftur á borðið og nú er bara að bíða og sjá hvort hún Ír-
is á eftir að gera garðinn frægan á þessum vettvangi.
Morgunblaðið/hag
Gaman að fá verðlaun
RÁÐSTEFNA verður haldin í
Reykjanesbæ í sumar þar sem stefnt
verður að undirritun samninga um
jarðhitarannsóknir og tækniþróun
og um aðgerðir til að auka hlutdeild
jarðvarma í orkukerfum. Þetta kem-
ur fram í tilkynningu frá iðnaðar-
ráðuneytinu, en í síðustu viku var
fram haldið í Washington viðræðum
undir forystu Össurar Skarphéðins-
sonar iðnaðarráðherra og Alexand-
ers Karsners, aðstoðarorkumálaráð-
herra Bandaríkjanna, um samstarf í
orkumálum. Í tilkynningunni segir
að bryddað hafi verið upp á þessum
viðræðum á sl. ári í Reykjavík „og
fengu þær viðspyrnu í orkulögum
sem afgreidd voru á Bandaríkjaþingi
skömmu fyrir sl. áramót þar sem
sérstaklega er tekið fram að efla
skuli samstarf á sviði jarðhitamála
við Ísland og fleiri lönd“.
„Gríðarlegir möguleikar eru á
aukinni notkun jarðhita í Bandaríkj-
unum og talið að hægt væri að mæta
um 10% af orkuþörfinni þar í landi
með jarðhitavirkjunum.“
Orkumál
rædd vest-
anhafs
Stefnt að samningi um
jarðhitarannsóknir
HAGNAÐUR af rekstri samstæðu
Landsvirkjunar var 28,5 milljarðar
króna árið 2007, að því er fram kem-
ur í tilkynningu sem send var Kaup-
höll Íslands.
Í árslok námu
heildareignir fyr-
irtækisins 318,8
milljörðum króna
en eigið fé nam
99,2 milljörðum
króna og jókst á árinu um 28,4 millj-
arða króna.
Eiginfjárhlutfall var í árslok 2007
31,1%. Ársreikningur Landsvirkj-
unar er gerður í samræmi við al-
þjóðlega reikningsskilastaðla
(IFRS) eins og þeir hafa verið stað-
festir af Evrópusambandinu og er
þetta í fyrsta sinn sem fyrirtækið
gerir ársreikning sinn með þeim
hætti, að því er segir í tilkynning-
unni.
Heildaráhrif breyttra reiknings-
skila á eigið fé samstæðunnar eru
þau að bókfært eigið fé í ársbyrjun
2007 hækkar um 8.127 milljónir
króna eða úr 61.107 milljónum
króna í 69.234 milljónir króna.
Fram kemur í tilkynningunni að
hagnaður Landsvirkjunar jókst
samtals um 17.465 milljónir króna
miðað við fyrra ár. Aukning rekstr-
artekna var að verulegu leyti vegna
sölu til Fjarðaáls sem hófst á árinu.
Rekstrarkostnaður án afskrifta nam
6.559 milljónum króna en var 6.374
milljónir króna árið áður. Fjár-
munatekjur umfram fjármagnsgjöld
námu 27.630 milljónum króna sem
skýrist aðallega af gengishagnaði af
langtímalánum og gangvirðisbreyt-
ingum afleiðusamninga. Geng-
ishagnaðurinn og gangvirðisbreyt-
ingar eru að mestu leyti óinnleyst og
segir í tilkynningunni til Kauphall-
arinnar að hafa verði það í huga við
mat á afkomu fyrirtækisins.
Landsvirkjun
hagnaðist um
28,5 milljarða
UMFERÐARÓHAPP varð á
Reykjanesbrautinni á Strand-
arheiði rétt vestan við Kúagerði í
gærmorgun. Þar mun ökumaður
hafa sofnað undir stýri og lent utan
í sendiferðabifreið sem hann ók á
eftir, að því er sagði á vef lögregl-
unnar.
Ökumaðurinn var grunaður um
akstur undir áhrifum fíkniefna og
var hann færður á lögreglustöð til
skýrslutöku. Hann reyndist einnig
hafa verið sviptur ökuréttindum
Sofnaði undir
stýri og ók á
KRISTINN Bjarnason, framkvæmdastjóri Frjáls
fjárfestingarbankans, segir að athugun sem bankinn
hafi gert sýni að vanskil á erlendum lánum séu ekki
meiri en á öðrum lánum.
Frjálsi fjárfestingarbankinn hafði ákveðna forystu
um að bjóða almenningi hér á landi lán í erlendri
mynt. Þessar lántökur hófust að einhverju marki fyrir
um tveimur árum. Kristinn segir að bankinn hafi látið
kanna hvernig vanskil á erlendum lánum væru í sam-
anburði við önnur lán. Niðurstaðan væri sú að van-
skilin væru ekki meiri en í öðrum lánum. Hann segir
að þessi niðurstaða hafi komið sér á óvart því fyr-
irfram hefði hann gert ráð fyrir annarri niðurstöðu.
Hann segir að reynslan sýni að flestir þeirra sem fari
á annað borð í vanskil geri það stuttu eftir að lánin
hafi verið tekin.
Erlendu lánin eru jafngreiðslulán sem þýðir að af-
borganir eru stífari á fyrstu árum lántímans. Það þýð-
ir aftur á móti að fólk greiðir niður höfuðstólinn frá
fyrstu greiðslu. Eftir fjögur ár hefur lántakandi greitt
niður 10% af höfuðstólnum.
Ásta Sigrún Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafa-
stofu um fjármál heimilanna, sagði í samtali við
Fréttavef Morgunblaðsins, að vanskil vegna erlendra
lána einstaklinga væru farin að berast inn á borð til
hennar. Þá væru fyrirspurnir um lántökur í erlendri
mynt meira áberandi en áður. Hún sagði mikilvægt að
efla fræðslu um fjármál.
Þess má geta að erlend lán heimilanna nema núna
yfir 150 milljörðum en þau meira en tvöfölduðust á
síðasta ári. Erlend lán heimilanna eru því núna miklu
stærri hluti af lánum heimilanna en fyrir einu til
tveimur árum.
Vanskil af erlendum lánum
svipuð og af öðrum lánum
Morgunblaðið/Kristinn