Morgunblaðið - 10.03.2008, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MARS 2008 21
fylgdi honum til Reykjavíkur 1972.
Hann rifjaði upp að íslenska lögreglan
hefði reyndar ekki áttað sig á að Fischer
væri með aðstoðarmann með sér.
Skömmu eftir að þeir stigu út úr flugvél-
inni hefði Fischer því verið settur inn í
lúxusbíl en Lombardy mátti þakka fyrir
að sleppa ómeiddur úr þvögunni – og
fékk ekki far með lúxusbílnum.
„Ég kenndi Bobby frá því hann var ell-
efu og hálfs árs gamall,“ sagði Lombardy
í fréttasamtali við Morgunblaðið. „Ég var
eini raunverulegi kennarinn hans. Hann
fékk leiðbeiningar hjá hinum og þessum
en þeir sem komu þar við sögu voru ekki
raunverulegir kennarar.
Þegar Bobby kom í skákklúbb Man-
hattan árið 1954 hafði ég nýverið unnið
fylkismeistaratitilinn, þá aðeins 16 ára
gamall. Ég var fimm árum og þremur
mánuðum eldri en Bobby og ég var
undrabarnið en hann var aðeins smá-
strákur,“ sagði Lombardy.
En upp frá þessu tókst með þeim ævi-
löng vinátta.
Hann sagði að andlát Fischers hefði
verið allt að því ástæðulaust og fregnin
hefði valdið sér hugarangist. „En það var
afar erfitt að fá hann til að huga að heils-
unni. Hann hafði ekki trú á læknum,
fannst þeir rukka of mikið og að rann-
sóknir væru dýrar. Hann hafði að vísu
rétt fyrir sér þar en það þýðir samt ekki
að maður eigi að ganga svo langt að snið-
ganga alla umönnun. Maður verður að
finna einhvern milliveg. Bobby var
hraustur frá náttúrunnar hendi en eng-
inn er samt svo hraustur að hann geti
endalaust staðið af sér slæma meðferð.
Þegar fram líða stundir og við vanrækj-
um heilsuna – sem er hluti af slæmri
meðferð, þá hnignar manni og það var
víst það sem gerðist,“ sagði Lombardy.
„Að mínu mati ætti að minnast hans
fyrir þrautseigju hans [á skáksviðinu] og
vinnusemi. Hann gerði allt sem ég lagði
fyrir hann og það var makalaust hvað
hann var fljótur að læra, drengurinn.“
ngu Bobbys Fischers á 65. afmælisdegi hins látna meistara
g Marina Spasskí ásamt Boris, manni sínum. Þá koma stórmeistararnir Vlastimil Hort, Pal Benko, Lajos Portisch,
u í dag í Ráðhúsinu, og loks William Lombardy sem annast skákskýringar í félagi við Boris Spasskí.
Morgunblaðið/Ómar
Fögnuður Össur Skarphéðinsson og Júlíus Vífill Ingvarsson fögnuðu Spasskí vel.
besti og tefldi betur en ég“
Benko þakkaði Íslend-
rskap í garð Ungverja.
Minning Stórmeistarinn Lajos Portisch
flytur tölu um hinn látna meistara.
Vinur Boris Spasskí lagði áherslu á vin-
semd Bobbys Fischers í erindi sínu.
Meistarar Friðrik Ólafsson stórmeistari heilsar Guðna Ágústssyni þingmanni sem
náði jafntefli við meistarann haustið 1995. Meistari Boris Spasskí er í forgrunni.
Skákdrottning Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir kynnti Skákminjasafn Íslands
argrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður tók við innrömmuðum ein-
orgunblaðsins frá 1972 úr hendi Karls Blöndals aðstoðarritssjóra
gekk í gegnum á síðustu æviárum
sínum,“ sagði Geir en hann var
blaðamaður á Morgunblaðinu þeg-
ar einvígið var háð og skrifaði
fréttir af mótinu í blaðið.
Augu heimsins beindust að
landinu og íbúunum
„Á margvíslegan hátt settu Boris
Spasskí og Bobby Fischer Reykja-
vík á kortið með einvíginu. Augu
heimsins beindust að Íslandi og
fóru að taka eftir þessu litla landi
og áhugaverðum íbúum þess. Ég
tel að enn í dag séum við að upp-
skera af þeirri athygli sem við
fengum. Á vegferð okkar við að
byggja upp ímynd þjóðarinnar og
afla henni viðurkenningar hafa
skákmenn haft mikilvægu hlut-
verki að gegna.“
vík á kortið
aðið/Ómar
rde er
JÚLÍUS Vífill Ingvarsson, formað-
ur menntasviðs Reykjavík-
urborgar, tilkynnti í gær að Skáka-
demía Reykjavíkur yrði sett á
laggirnar 26. mars næstkomandi.
Síðastliðið haust samþykkti borg-
arráð Reykjavíkur tillögu borg-
arstjóra um að borgin yrði stofn-
aðili að skákakademíunni og veitti
næstu fjögur árin 5 milljónir króna
til starfseminnar á ári
Júlíus Vífill sagði markmiðið að
Reykjavík yrði höfuðborg skáklist-
arinnar árið 2010. Akademíunni
væri ætlað að starfa með grunn-
skólunum, styrkja skáksamfélagið
og starfa náið með Skáksambandi
Íslands.
„Það eru 15 þúsund börn í grunn-
skólum Reykjavíkur og við ætlum
að ná til þeirra allra,“ sagði Júlíus
Vífill. Með sterkri skákhefð, vax-
andi skákáhuga með fulltingi einka-
geirans væru borgaryfirvöld sann-
færð um að setja mætti markið
hátt.
Júlíus Vífill sagði skák frábæran
leik fyrir börn til að byggja upp
sjálfsmynd og sjálfstraust og mik-
ilvægt væri að kynna skák fyrir
börnum. Skólasérfræðingar hefðu
einnig bent á að skákiðkun yki
lestrargetu barna, stærðfræðileikni
þeirra og loks sköpunarhæfni.
Viðamiklar rannsóknir víða um
lönd sýndu jafnframt að skákíþrótt-
in tæki öðrum greinum fram við að
auka námsgetu barna í nánast
hverju sem væri.
„Skákin er öflugt kennslutæki
því hún leggur grunn að svo mörgu
síðar á lífsleiðinni.“
Skákin byggir upp sjálfsmynd barna
Morgunblaðið/Ómar
Kennslutæki Skákiðkun eykur lestrargetu barna, stærðfræðileikni
þeirra og loks sköpunarhæfni, sagði Júlíus Vífill Ingvarsson.