Morgunblaðið - 10.03.2008, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MARS 2008 29
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9- 16.30, boccia kl.
10, félagsvist (4 skipta keppni) kl. 13.30.
Árskógar 4 | Baðþjónusta kl. 8.15-16, opin handa-
vinnu- og smíðastofa kl. 9-16, söngstund kl. 10.30,
félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Söguklúbburinn kl. 13.30. Al-
menn handavinna, lífsrokuleikfimi, morgunkaffi/
dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður, bútasaumur,
kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan Gull-
smára 9 er opin kl. 10-11.30. Sími 554-1226. Fé-
lagsvist í Gullsmára á mánudögum kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, kaffi-
tár kl. 13.30, línudanskennsla kl. 18, samkvæm-
isdans: byrjendur kl. 19 og framhald kl. 20.
Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi til hádegis, gler- og postulínsmálun kl.
9.30 og 13, lomber og canasta kl. 13, kóræfing kl.
17 og skapandi skrif kl. 20. Fræðsluerindi Glóðar
um mismunandi fæðufitu verður á morgun kl. 20.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postulínshópur kl.
9, ganga kl. 10 og síðan hádegisverður, handa-
vinna og brids kl. 13, félagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatns-
leikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl. 9, 9.45, 10.30,
karlaleikfimi kl. 9.30, boccia kl. 10.30, gönguhópur
kl. 11, glerskurður kl. 13, Biblíulestur kl. 13. Skrán-
ing í 5 daga Vestfjarðarferð – örfá sæti eftir.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl. 9-
16.30, Skattstofan veitir framtalsaðstoð kl. 9-14,
sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug kl. 9.50.
Frá hádegi er spilasalur opinn, kóræfing kl. 14.20.
Uppl. á staðnum og síma 575-7720.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9-16.30, út-
skurður kl. 9-12, bænastund kl. 10-10.30, hádeg-
ismatur, myndlist kl. 13-16, kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, ganga og hand-
mennt–gler kl. 10, Gaflarakórinn kl. 10.30, hand-
mennt–gler kl. 13, félagsvist kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-16 hjá
Sigrúnu, kortagerð, handstúkuprjón o.fl. Jóga kl.
9-11, Sóley Erla. Hádegisverður. Spilað kl. 13-16.
Hæðargarður 31 | Tölvukennsla, Íslands-
söguspjall, myndlist, bókmenntir, framsögn og
framkoma, Bör Börson, söngur, páfagaukar, hlát-
urhópur, Skapandi skrif, postulín, Þegar amma var
ung, hugmyndabanki, Müllersæfingar, nýstárleg
hönnun fermingarkorta, Vorferð á vit skálda o.fl.
Sími 568-3132.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthúsinu kl. 9.30-
11.30. Uppl. í síma 554-2780.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er sundleikfimi í
Grafarvogssundlaug kl. 9.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögustund og spjall
kl. 9.30, handverks- og bókastofa kl. 13, kaffiveit-
ingar. Söng og samverustund kl. 15.
Sjálfsbjörg | Brids kl. 19 í félagheimili Sjálfs-
bjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Skattstjórinn í Reykjavík veitir
framtalsaðstoð kl. 9-12. Nánari uppl. og skráning í
síma 535-2740. Hárgreiðsla kl. 9-16, handavinna
kl. 9.15-15.30, boccia kl. 11, leikfimi kl. 11.45, hádeg-
isverður, kóræfing kl. 14.30, kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðjan kl. 8.30, bók-
band og bútasaumur kl. 9, morgunstund, boccia
kl. 10, upplestur kl. 12.30, handavinna og spil kl. 13.
Uppl. í síma 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Salurinn opinn kl. 13, leikfimi kl.
13.15, boccia kl. 14. Kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Grafarvogskirkja | Ragnheiður Ríkharðsdóttir al-
þingismaður les 24. passíusálm kl. 18. TTT fyrir
10-12 ára í Grafarvogskirkju og Húsaskóla kl. 17-18.
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk kl. 20 í
Grafarvogskirkju.
Hallgrímskirkja | Bæna- og kyrrðarstund kl. 12.15.
Umsjón hefur Sigrún V. Ásgeirsdóttir.
dagbók
Í dag er mánudagur 10. mars, 70. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Jesús horfði á þá og sagði: „Fyrir mönnum eru engin ráð til þessa, en fyrir Guði. Guð megnar allt.“ (Mk. 10, 27.)
Sagnfræðingafélag Íslandsbýður til hádegisfyr-irlestrar á morgun, þriðju-dag, kl. 12.05 í fyrirlestr-
arsal Þjóðminjasafnsins. Örn
Hrafnkelsson, sagnfræðingur og
forstöðumaður handritadeildar
Landsbókasafns Íslands – Há-
skólabókasafns, mun þar flytja fyr-
irlesturinn Hver gætir hagsmuna
minna? – Um notkun og aðgengi
að einkaskjölum í Landsbókasafni.
„Hlutverk Landsbókasafns er
m.a. að safna handritum og einka-
skjölum, varðveita þau og gera að-
gengileg fyrir rannsakendur,“ út-
skýrir Örn. „Um aðgengi og
notkun á einkaskjölum gilda þó
önnur lögmál en t.d. um opinber
skjöl, og fer ég í erindinu yfir sér-
stöðu þessara skjala.“
Örn nefnir að í einkaskjalasöfn-
um sé að finna persónuleg gögn
eins og sendibréf, og að þær skoð-
anir og upplýsingar sem lýst er í
slíkum gögnum séu stundum við-
kvæmar og bréfritari hafi aldrei
ætlast til þess að bréfið yrði öllum
aðgengilegt: „Það lagaumhverfi
sem við búum við í dag gefur skýr-
ar reglur um meðferð opinberra
skjala og persónuupplýsinga, en
slíkt regluverk skortir um einka-
skjalasöfn, og þarf að skoða sér-
staklega hvort, og hvernig, megi
heimfæra ákvæði laganna yfir á
einkaskjalasöfn, og þá m.a. með
hliðsjón af lögum um friðhelgi
einkalífs, persónuvernd og æru,“
segir Örn.
Örn segir söfn þurfa að gefa því
gaum á hvaða forsendum tekið er
við gögnum til varðveislu: „Sá sem
afhendir gögnin hefur nærri fullt
frelsi um þau skilyrði sem fylgja
varðveislu gagnanna og aðgengi að
þeim. Sú vinnuhefð hefur skapast
að þegar okkur á handritadeild er
boðið skjalasafn til eignar er farið
yfir innihald safnsins og í fram-
haldinu unnið með gefanda að því
að ákveða hvernig aðgengi að
gögnunum skuli háttað, og á hvaða
forsendum.“
Með erindi sínu segist Örn ekki
síst vilja kalla eftir skoðunum og
viðbrögðum: „Mikilvægt er að
skapa umhverfi þar sem traust rík-
ir milli þess sem afhendir gögn og
þess sem varðveitir þau. Skilyrðin
þurfa að vera skýr og í samræmi
við innihald gagnanna og ekki má
gleyma að gæta hagsmuna og
einkaskoðana annarra.“
Sjá nánar á sagnfraedinga-
felag.net.
Hugvísindi | Fjallað um álitaefni við vörslu einkaskjalasafna á þriðjudag
Vandmeðfarin einkaskjöl
Örn Hrafnkels-
son fæddist í
Reykjavík 1967.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá
Flensborgarskól-
anum 1987, BA í
sagnfræði frá HÍ
1993, MA-prófi
frá sama skóla
1998 og MPA-prófi í opinberri
stjórnsýslu 2006. Örn hóf störf hjá
Landsbókasafni Íslands 1993 og
hefur verið forstöðumaður hand-
ritadeildar frá 2003. Sambýliskona
Arnar er Þórunn Njálsdóttir leik-
skólakennari og eiga þau tvö börn.
Fyrirlestrar og fundir
Styrkur | Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og að-
standenda þeirra, verður með fræðslufund í húsi Krabba-
meinsfélagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík, 11. mars kl. 20.
Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur fjallar um karlmenn
og krabbamein. Kaffiveitingar.
HUNDUR af tegundinni Bedlington Terrier sýndi nýj-
ustu strauma í hundahártískunni á Crufts-hundasýn-
ingunni í Bretlandi í gær. Sýningin hefur verið haldin
frá árinu 1891 og þykir ein sú merkasta. Ekki fer nein-
um sögum af frammistöðu hundsins en eigandinn sá
ástæðu til að verðlauna hann með rjómaís.
Reuters
Dekrað við hundspottið
FRÉTTIR
FYRSTA Opna hús skógrækt-
arfélaganna verður í kvöld,
þriðjudaginn 11. mars, og hefst
kl. 19.30 í Öskju, náttúrufræða-
húsi Háskóla Íslands í Vatnsmýr-
inni.
Þar munu Brynjólfur Jónsson
og Barbara Stanzeit segja í máli
og myndum frá hópferð til Sviss,
sem Skógræktarfélag Íslands stóð
fyrir á síðasta ári. Ferðasagan
verður rakin og sagt frá skógum
og áhugaverðum trjátegundum í
fjallahéruðum Sviss.
Opnu húsin eru hluti af
fræðslusamstarfi Skógrækt-
arfélags Íslands og Kaupþings.
Aðgangur er ókeypis og boðið
er upp á kaffi. Nánari upplýs-
ingar má nálgast á heimasíðunni
www.skog.is.
Opið hús Rætt verður um skógana í Sviss og áhugaverðar trjátegundir.
Sagt frá
hópferð
til Sviss
NEYÐARLÍNAN hefur samið við
Vodafone um að fyrirtækið veiti
Neyðarlínunni heildarfjar-
skiptaþjónustu næstu þrjú árin.
Samningur þess efnis var handsal-
aður á hálendi Íslands, samhliða
því að samgönguráðherra opnaði
fyrir GSM-þjónustu Vodafone á
Kili.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að Vodafone hafi á undanförnum
mánuðum unnið að uppbyggingu
GSM-þjónustu á svæðum þar sem
slík þjónusta hefur ekki áður verið
í boði, m.a. á hálendi Íslands. Þann-
ig hefur Vodafone tryggt viðskipta-
vinum sínum GSM-samband víðar á
landinu en aðrir. Þó skal tekið
fram, að þótt viðskiptavinir Voda-
fone geti einir nýtt sér þjónustuna
til almennra nota, þá geta allir
GSM-notendur hringt í neyðarnúm-
erið 112 og óskað eftir hjálp þar
sem GSM-samband er fyrir hendi.
Neyðarlínan veitir almenningi al-
hliða neyðarþjónustu í neyðarnúm-
erinu 112, auk þess sem hún hefur
annast rekstur stjórnstöðvar Sec-
uritas um árabil. Neyðarlínan ann-
ast rekstur vaktstöðvar siglinga,
sem áður var tilkynningarskyldan
og fjarskiptastöðin í Gufunesi.
Einnig annast Neyðarlínan rekstur
öryggisfjarskiptakerfisins Tetra.
Á fjöllum Að lokinni undirritun samningsins, f.v. Árni Pétur Jónsson, for-
stjóri Vodafone, Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar,
Dagný Halldórsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, og
Kristján L. Möller samgönguráðherra.
Neyðarlínan semur
við Vodafone