Morgunblaðið - 10.03.2008, Síða 30
30 MÁNUDAGUR 10. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HVERNIG ÁTTI ÉG AÐ VITA AÐ ÉG
ÆTTI AÐ HAFA HLJÓÐ Á MEÐAN
BALLETTSÝNINGUNNI STÆÐI?
AF HVERJU MEGA ÁHORFENDURNIR
EKKI TAKA SMÁ ÞÁTT Í SÝNINGUNNI?
LÍTUR ÚT FYRIR AÐ
LITLA, LJÓTA ANDAR-
UNGANUM HAFI VERIÐ
HLEYPT Á SVANAVATNIÐ
HALTU
ÞÉR SAMAN
HÆTTU
ÞESSU! ÞAÐ
ER ERFITT
AÐ KUNNA
EKKI AÐ
MALA
MAMMA, VISSIR ÞÚ AÐ Í
GEIMNUM VIRKAR
ÞYNGDARAFLIÐ EINS OG
GEIMURINN
VÆRI
FLATUR OG
MJÚKUR
ÞUNGIR HLUTIR EINS OG
PLÁNETUR SÖKKVA Í YFIR-
BORÐIÐ OG ÞEGAR EITTHVAÐ
Á LEIÐ HJÁ EINS OG TIL
DÆMIS LJÓS VELTUR LJÓSIÐ
Í ÁTTINA AÐ HOLUNNI Í
GEIMNUM SEM PLÁNETAN BJÓ
TIL. LJÓSIÐ ENDURVARPAST
ÞVÍ AF ÞYNGDARAFLINU
TALANDI UM
ÞYNGDARAFL... ÉG HELTI
NIÐUR KÖNNU AF SAFA
ÞEGAR ÉG RANN Á
HJÓLASKAUTUNUM MÍNUM
HVERNIG GETA BÖRN VERIÐ
SVONA KLÁR EN SAMT
SVONA VITLAUS?
HVERNIG
FINNST ÞÉR
NÝJA
HEIMILIÐ?
ÉG HELD AÐ VIÐ HÖFUM
GERT MISTÖK. FÓLKIÐ Í
HVERFINU ER ALLT OF
ÓKURTEIST
AF HVERJU
SEGIR ÞÚ
ÞAÐ?
ÞEGAR FÓLKIÐ Í HVERFINU BAUÐ
OKKUR VELKOMIÐ SAGÐI ÞAÐ AÐ
VIÐ VÆRUM EKKI VELKOMIN
DRÍFÐU ÞIG GRÍMUR, Í DAG
ER FYRSTI DAGURINN ÞINN
Í NÝJA HLÝÐNISSKÓLANUM!
ÉG
FER
EKKI
FET!
AF HVEJRU
EKKI? ÞETTA
ER MJÖG
GÓÐUR OG
ÞEKKTUR
HLÝÐNISSKÓLI!
MÉR FINNST ÉG
VERA FEITUR Í
SKÓLABÚNINGNUM
ÞETTA VAR FLOTT HJÁ MÖMMU ÞINNI.
HÚN VAR ROSALEGA FLJÓT AÐ FINNA SÉR
ÍBÚÐ EFTIR AÐ HÚN KOM HINGAÐ
ÞAÐ LÍTUR EKKI ÚT
FYRIR AÐ VIÐ ÞURFUM
AÐ HAFA MIKLAR
ÁHYGGJUR AF HENNI
EFTIR ALLT SAMAN
NEMA
VIÐ
VILJUM...
KLUKKAN ER
ORÐIN TÍU HVAR
GETUR HÚN VERIÐ!
ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI AÐ MAÐURINN
ÞINN HAFI GLEYMT MYNDAVÉLINNI
SINNI HEIMA!
Á MEÐAN ER
DR. OCTOPUS AÐ
FREMJA RÁN Í
GÖTUNNI!
ÉG VIL KÓNGULÓARMANNINN ÞESSI MAÐUR VEIT
HVERNIG Á AÐ NÁ
SÉR Í ATHYGLI
dagbók|velvakandi
Hinn þögli faraldur
í Reykjavík
SKELFILEGUR innbrotafaraldur
hefur tröllriðið Reykjavíkursvæðinu
hér í vetur. En svo virðist sem ekk-
ert megi tala eða skrifa um það í fjöl-
miðlum. Hverjum er verið að hlífa?
Fyrir þrem vikum var brotist inn
hjá mér og öllum verðmætum stolið.
En ég veit um þrjú önnur innbrot í
einbýlishús þennan sama dag eða
morgun, því öll innbrotin voru fram-
in fyrir hádegi. Þetta eru árrisulir
menn, en fyrsta verk þeirra er víst
að setja öryggiskeðjurnar á hurð-
unum fyrir svo enginn vaði nú inn á
þá að störfum. Svo fara þeir út um
bakdyr og kemst húsráðandi ekki
inn nema hafa verið svo forsjáll að
hafa lykil t.d. að þvottahúsi á sér.
Eitt enn hefur vakið athygli mína,
hvort það sé tilviljun að húsráðendur
í tveim húsum voru á leið til útlanda
daginn eftir? Og þar með var allur
gjaldeyririnn og ferðagögn tekin. Er
það tilviljun að þegar útlendingar
fóru að bera út blöð og vinna við
sorp og keyra út pitsur, og höfðu þar
með góða aðstöðu til að kynna sér
hlutina, varð breyting?
Af tilviljun fannst götukort af
hverfi hér í Reykjavík þar var búið
að setja x við öll þau hús sem hundar
voru í. Björn Bjarnason ráðherra og
lögreglan hafa undanfarin ár haft
áhyggjur af að austur-evrópska
mafían myndi ná hér fótfestu. En
þegar mafian virðist vera komin og
búin að ná fótfestu, þá loka yfirvöld
augunum.
Björn Bjarnason ráðherra virðist
einn örfárra ráðamanna gera sér
sterka grein fyrir að aðgát skuli
höfð, en hann þarf eitthvað að rúlla
yfir lög og reglugerðir. Það er hlegið
að lögum á Íslandi, bara játa strax
og þú ert laus. Í versta falli að vera
sendur í lúxusvistun á Litla-Hrauni
segja þeir.
Íslendingar, vöknum, vöknum,
látum ekki glæpagengi yfirtaka
landið. Við erum það lítil þjóð að
þingmenn, lögregla og almenningur
geta tekið saman höndum og flokkað
strax svörtu sauðina frá og sent þá
úr landi. Hlúum að hinum sem við
bjóðum velkomin, en frumskilyrði er
að læra málið.
Hvergi í nágrannalöndum okkar
fengi þetta fólk vinnu t.d. á sjúkra-
húsum, verslunum eða veitinga-
húsum nema geta gert sig skilj-
anlegt á tungumálinu.
P.S. Tek það skýrt fram að ég hef
ekkert á móti erlendu fólki.
Þorbjörg.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
VEIÐIBÚÐIN í Hafnarfirði er vel í sveit sett, rétt við Lækinn. Hér er Björn
Rúnarsson verslunarstjóra að fylgjast með viðskiptavini prófa veiðistöng.
Morgunblaðið/Golli
Eru þeir að fá’ann?
FRÉTTIR
INDVERSKUR jógameistari og
munkur, Swami Ashutosh Muni að
nafni, býður til námskeiðs í Íþrótta-
húsinu á Varmá í Mosfellsbæ helgina
14.-16. mars. Hann kemur hingað á
eigin kostnað fyrir tilverknað ís-
lenskra jógakennara sem numið hafa
fræðin hjá honum á Indlandi.
Námskeiðið í Mosfellsbæ verður
öllum opið og mun fólk eiga kost á
því að sitja það allt eða einungis
hluta þess. Það stendur frá kl. 19 á
föstudeginum til kl. 14 á sunnudag-
inn. Aðgangseyrir verður í samræmi
við það sem hver og einn gestur telur
sig aflögufæran um.
Að sögn Kristbjargar Krist-
mundsdóttur jógakennara, sem er
meðal þeirra sem standa að komu
Ashutosh Muni til landsins mun
hann leiðbeina fólki um þá grunn-
krafta sem ráða ríkjum í lífi þess,
hvernig þeir virka og hvernig þá má
virkja. Þá mun hann fræða fólk um
leiðina til innri friðar og sannrar
hamingju og hvernig skapa á frið-
sælt og kærleiksríkt líf í nútímasam-
félagi.
Hann er menntaður sem læknir,
ayur-vediskur læknir og sálfræðing-
ur, en stórum hluta ævi sinnar hefur
hann varið í að öðlast andlegt frelsi.
M.a. var hann 27 ár í einangrun frá
umheiminum, þar af í algjörri þögn í
tvö og hálft ár við ástundun jóga og
hugleiðslu.
„Hann geislar af kærleika og
krafti og vill leiðbeina og styðja við
alla þá sem leita andlegs frelsis og
hugljómunar,“ segir Kristbjörg, sem
fór með nemendur sína til Indlands
að hitta hann í janúar síðastliðinn.
Laugardagskvöldið 15. mars verð-
ur frítt inn fyrir alla, bæði gleði, dans
og söngur frá kl. 19-21, þar sem m.a.
jógamöntrur verða kyrjaðar og ynd-
isleg söngkona tekur lagið.
Jógaveisla í Mosfellsbæ
AÐALFUNDUR Krabbameins-
félags Reykjavíkur verður haldinn
miðvikudaginn 26. mars 2007. Fund-
urinn verður í húsakynnum félagsins
í Skógarhlíð 8 og hefst kl. 20.00, að
því er segir í tilkynningu.
Að loknum hefðbundnum aðal-
fundarstörfum flytur Eiríkur Jóns-
son, yfirlæknir á þvagfæraskurð-
deild Landspítalans, erindi sem
hann nefnir „Að hafa val um meðferð
vegna krabbameins í blöðruháls-
kirtli“. Val á erindi tengist átaki sem
Krabbameinsfélagið stendur fyrir í
mars um „Karlmenn og krabba-
mein“ (www.karlmennogkrabba-
mein.is).
Kaffiveitingar verða í boði á fund-
inum og eru nýir félagsmenn vel-
komnir.
Rætt verður um
blöðruhálskrabbamein