Morgunblaðið - 10.03.2008, Síða 32
Dauðvona sjúklingar
eru í fljótu bragði
fráleitt burðarefni
í gamanmynd … 39
»
reykjavíkreykjavík
Vorið er í augsýn og því er hryllilegherþjálfun tekin föstum flugutökumá hverjum morgni í Þrekhúsinu;ekki seinna vænna ef stelpa ætlar að
spóka sig um Austurvöll í mínípilsi í sumar. Að
lokinni þjálfun er svo volgu lýsinu sporðrennt
ofan í sveittan skrokkinn með hálfum lítra af
bjúglosandi birkisafablöndu. En þótt líkaminn
sé í hers höndum er andinn frjáls eins og
fluga… og andanum verður að sinna með nær-
ingarríku sósíal-lífi með tilheyrandi barhoppi
og tilbehör. Á slaginu sex á föstudaginn fór
fluga í fylgd tveggja nautnaseggja á 101 hótel
til að fá sér einn eftir vinnu, eins og vandaðir
drykkjusiðir Íslendinga gera ráð fyrir. Þarna á
hóteli höfðingjanna er nefnilega kúltíveringin í
hávegum höfð; þar sitja langleggjaðar dömur
með rándýrt hvítvín í glösum og stúdera
jakkafötin sem ganga hjá. Dálítið öðrvísi en á
lastabælinu Ölstofunni síðar sama dag þar sem
krumpaðir blaðamenn og aðrir wannabe-
bóhemar suðuðu syndsamlega í kór við aðrar
bar- og dægurflugur. Ólafur Haukur Sím-
onarson rithöfundur og Siggi Sigurjóns
Spaugstofumaður sögðu hvor öðrum brandara
fyrir utan Íslensku óperuna á fimmtudagseft-
irmiðdaginn þegar fluga þeysti hjá á harða-
spretti á eftir söngvaranum Birni Jörundi sem
sló ekki af fyrr en hann var kominn í Pizza-
verksmiðjuna í Lækjargötu, sem er reglulegur
viðkomustaður kyntröllsins í dag. Enda var
uppi á Birni typpið í Egilshöll á laugardags-
kvöldið þar sem árshátíð Landsbankans var í
fullu fjöri, keyrð áfram af honum, Páli Óskari,
Dívunum og Ceres 4.
… Borgarbragur á bæjarstjóra þótt eigi
á Lloyds-skóm sé …
Fjöllistamaðurinn fallegi Jón Sæmundur
Auðarson opnaði sýninguna „Undraverður
rafmagnaður talandi hellir“ á laugardaginn í
Gallerí 101 á Hverfisgötunni. Hluti af heillandi
vinnustofu Nonna var í galleríinu og í verkum
af ýmsu tagi beraði sig undirvitund lista-
mannsins, umvafin áhrifum búddisma, Jesú,
reykelsum og rokki. Borgarbragurinn í
Reykjavík var svipmikill í hádeginu á föstu-
daginn þegar kaupsýslukapparnir stikuðu um
miðbæinn á stífbónuðum lakk- og Lloyds-
skóm í leit að góðum latte og prótínstykki. Svo
klukkan eitt, eins og hendi væri veifað, hurfu
miðbæjarmöppudýrin inn á skrifstofurnar. En
fyrir utan Kaffi París stóð hugsandi á svip óð-
alsbóndinn úr Kópavogi, Gunnar Birgisson
bæjarstjóri, skammt frá skemmtistaðnum
Óðali. Hann var ekki á Lloyds-skóm.
Morgunblaðið/hag
Sigurður A. Magnússon rithöfundur og Krist-
ín Guðnadóttir ræddu saman.
Ólafur Gunnarsson rithöfundur og Ólafur
Lárusson myndlistarmaður tóku verkin út.
Kristín Ólafsdóttir og Hannes Halldórsson
heilsuðu upp á listamanninn.
Páll Heiðar Jónsson og Karel Örn Einarsson
voru meðal gesta Sigurðar.
Matthildur Maríasdóttir og Ólafía Hrönn
Jónsdóttir leikkona.
Morgunblaðið/Eggert
Krummi í Mínus, Guðmundur Helldriver og
Bogi Reynisson kvöddu Jakobínurínu.
Sigrún Eiríksdóttir og Ester Bíbí Ásgeirs-
dóttir voru á tónleikunum.
Elsa Mjöll, Katarína Mogensen og Sigurður
Kristinsson voru við kveðjustundina.
Þórir Sturluson, Axel Árnason og Hrannar
Ingimarsson ræddu saman.
Elsa María Blöndal og Henrik Baldvin
Björnsson voru í góðum gír.
Flugan
… Jesú, reykelsi og
rokk …
… Pizzaverksmiðjan er reglulegur
viðkomustaður kyntröllsins …
Sigurður G. Valgeirsson, djasstrommari með
meiru, og Valgerður Stefánsdóttir.
Þorsteinn J. Vilhjálmsson og sonur hans,
Fylkismaðurinn Tómas J. Þorsteinsson.
Samstarfsmennirnir Þorsteinn J., Hjörtur
Svavarsson og Brian Fitzgibbon.
Morgunblaðið/Ómar
Birgir Snæbjörn Birgisson, Margrét Lísa
Steingrímsdóttir og Sigrún Sigvaldadóttir.
» Piltarnir í Jakobínurínukvöddu aðdáendur sína með
stæl. Singapore Sling og
Mammút komu einnig fram.
» Listmálarinn góðkunni,Sigurður Örlygsson, opnaði
sýningu, sem hann tileinkar
konum, í Listasafni ASÍ.
» Þorsteinn J. frumsýndi heimildakvikmyndina The Bohemiansum söngglaða Íra í Hafnarhúsinu á föstudagskvöldið.