Morgunblaðið - 10.03.2008, Qupperneq 34
34 MÁNUDAGUR 10. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
■ Fim. 13. mars kl. 19.30
Páskatónleikar
Söngsveitin Fílharmónía og evrópskir einsöngvarar í fremstu röð
taka þátt í flutningi Þýskrar sálumessu eftir Johannes Brahms,
eins mesta snilldarverks kórbókmenntanna.
Hljómsveitarstjóri: Johannes Fritsch
Einsöngvarar: Dorothee Jansen og Terje Stensvold
Kór: Söngsveitin Fílharmónía
Kórstjóri: Magnús Ragnarsson
■ Lau. 15. mars kl. 17.00
Kristallinn – kammertónleikaröð í Þjóðmenningarhúsinu
Kvartett fyrir endalok tímans eftir Messiaen er eitt áhrifaríkasta
snilldarverk tuttugustu aldarinnar.
■ Lau. 29. mars kl. 14.00
Maxímús Músíkús - Tónsprótatónleikar
Músin Maxímús Músíkus villist inn á æfingu og tónleika hljóm-
sveitarinnar. Tónleikar í tilefni af útkomu samnefndrar barnabókar
Hallfríðar Ólafsdóttur flautuleikara með myndum eftir Þórarin Má
Baldursson víóluleikara.Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
ÞAÐ voru mikil læti – frábær
stemning,“ sagði einn gesta á
kveðjutónleikum hljómsveit-
arinnar Jakobínurínu á skemmti-
staðnum Organ á laugardags-
kvöldið. Einnig tróðu upp
hljómsveitirnar Singapore Sling
og Mammút.
Húsfyllir var á tónleikunum og
greinilegt að margir vildu njóta
þess að sjá ungu piltana í Jak-
obínurínu, sem margir höfðu
spáð vegferð undir bjartri frægð-
arsól, syngja sitt síðasta á sviði.
Þeir eru orðnir þreyttir á rútu-
ferðalögum, innantómum kynn-
ingarviðtölum og félagsskap, sem
sumir segja að hæfi ekki óhörðn-
uðum unglingum.
Innifalin í aðgöngumiðanum á
tónleikana var breiðskífa Jak-
obínurínu, The Last Crusade – og
heitið kannski táknrænt fyrir
þessa síðustu tónleika.
Morgunblaðið/Eggert
Hættir Söngvari Jakobínarínu liggur flatur, alveg búinn eins og sveitin öll.
Í sviðsljósinu Jakobínarínar buðu upp á rokkaða keyrslu.
Jakobínarína hætti með látum
Tár og sviti Piltarnir í Jakobín-
arínu voru ekkert að slá af.