Morgunblaðið - 10.03.2008, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MARS 2008 35
TÖLVULEIKIR»
SKOTLEIKURINN Army of two er
ný hugmynd frá Electronic Arts. Í
leiknum er notast við vefspilun eða
tvo spilara í einu til þess að koma
tveimur málaliðum á áfangastað og
sýna þannig fram á það að samvinna
virkar betur en að skjóta blint út í
bláinn.
Söguþráðurinn fjallar um tvo mála-
liða, Tyson og Elliot, sem vinna fyrir
„öryggisfyrirtæki“ sem sendir þá inn
á stríðssvæði til þess að hreinsa til.
En það er einhver innan þessa fyr-
irtækis með óhreint mjöl í pokahorn-
inu og félagarnir verða varir við það
að ekki er allt með felldu.
Í leiknum er aðaláhersla lögð á
samvinnu tveggja spilara en einnig er
hægt að spila einsamall. Það er mikill
munur á þessum tveimur valflokkum
því ef þú spilar einn þarftu að stóla á
gervigreind tölvunnar til að hjálpa
þér og þá lendir þú í vandræðum.
Fyrst þarf maður að venjast því að
skjóta ekki út í loftið og vonast til
þess að drepa sem flesta og það getur
tekið smátíma. Markmiðið er að ná
athygli óvinarins svo að félagi þinn
geti óséður murkað úr þeim lífið.
Gallinn er hins vegar sá að í eins
manns spilun er félagi þinn ekkert
sérlega gáfaður og á það til að vera
drepinn aftur og aftur sem gerir leik-
inn afar pirrandi.
En þegar tveir spila í einu verður
leikurinn nokkuð góður. Hægt er að
spila í einni tölvu eða tengja tvær
saman í gegnum netið, nú eða spila
við ókunnuga úti í heimi. Í þessu
formi skilar leikurinn sér eins og
hann á að vera, sérstaklega ef menn
kunna að spila hann almennilega.
Menn verða að skipuleggja árásir og
vinna vel saman ef verkefnið á að
heppnast. Það eru nokkrar aðferðir
til þess að vekja athygli óvinarins á
manni og þar á meðal selja skotvopn-
in sín fyrir gull og demanta. Fyndinn
fídus en ekkert sérstaklega nauðsyn-
legur.
Grafíkin í leiknum er mjög góð, að-
alpersónurnar eru sérstaklega vel
hannaðar og allt umhverfi er sann-
færandi skítugt og vel úr garði gert.
Hljóðvinnslan er einnig mjög góð og
nær að fanga mann með raunveruleg-
um umhverfishljóðum og leikararnir
ofleika ekki allt of mikið.
Ef þessi leikur væri einungis eins
manns leikur yrði hann ekki langlífur
en netspilunin á eftir að fjölga líf-
dögum hans töluvert, svo framarlega
sem EA heldur mönnum við efnið.
GOD of war-leikirnir hafa verið
skraufjaðrirnar í hatti Playstation
2 síðan leikirnir komu fram á
sjónarsviðið og sýndu hvað vélin
hafði fram að færa. Nú sýna fram-
leiðendur nýjasta leiksins hvers
megnug lófatölvan PSP er með
þessum frábæra leik sem fellur
vel inn í seríuna þótt hann bjóði
ekki upp á miklar nýjungar í spil-
un.
Spartverjinn Kratos er reiður
eins og venjulega og maukar alla
sem verða á vegi hans. Leið hans
liggur frá borginni Attica að
hellum nokkrum og alla leið niður
til vítis þar sem hann þarf að taka
stóra ákvörðun um örlög mann-
kyns og sjálfs sín.
Hér er allt til staðar sem við
höfum áður kynnst í leiknum en á
hinn bóginn er fátt nýtt að finna.
Líkt og áður safnar maður orku-
boltum sem auka styrk vopna en
vandinn er sá að maður fær bara
eitt annað aukavopn og aðeins
nokkra galdra til að leika sér með.
Þar að auki er maður frekar fljót-
ur að komast á fullan styrk vegna
þess hve auðvelt er að finna orku-
boltana. Það gerir leikinn ef til vill
aðeins of auðveldan og maður er
frekar fljótur að klára hann.
Framleiðendum tekst vel að flytja
stjórnunina yfir á PSP-tækið og
takka-hjakkið virkar vel, þótt það
geti orðið þreytandi á endanum.
Grafíkin sýnir ótvírætt hvað
þessi litla græja getur gert og hún
stendur sig mjög vel, og án þess
að hiksta þegar mikið er að gerast
á skjánum.
Tónlistin er frábær og öll hljóð-
vinnsla vel úr garði gerð og mæli
ég með að menn noti heyrnartól
því að hátalaratítlurnar á græj-
unni sjálfri höndla ekki allan
þennan bassa og drunur.
Þetta er frábær leikur fyrir
PSP-aðdáendur og aðdáendur God
of War-leikjanna. Hann sýnir að
PSP er frábær og frekar vanmetin
græja og þeir sem eiga nýju PSP
Slim-vélina geta tengt hana við
sjónvarp og spilað leikinn þannig.
Komdu smá
Grikkja í lóf-
ann þinn
Ómar Örn Hauksson
TÖLVULEIKIR
PSP
Ready at dawn
God of war: Chains of Olympus
Spilun Grafík Hljóð PATAPON er furðulegur fýr. Svona
blanda af Loco Roco, Parappa the
rapper og Dance dance revolution.
Þetta er leikur sem krefst þess að
maður haldi takti til þess að litli
þjóðflokkurinn þinn haldi velli í bar-
áttu sinni við óvinaheri. Patapon-
fólkið álítur þig guð, guð sem drífur
þau áfram með hröðum takti spil-
uðum á hina heilögu trommu. Flokk-
urinn er að leita að einhverjum
leyndardómsfullum hlut sem finna
má við endamörk heimsins og það er
þitt að koma honum þangað. Á leið-
inni berst hann við óvini, veiðir sér
til matar og tekst á við hinar og
þessar hindranir. Leikurinn er al-
gjörlega einstakur og ólíkur öllu
öðru sem maður hefur séð áður.
Það er reyndar svolítið skrítið að
PSP-vélin skuli hafa verið valin sem
vettvangur leiksins því að þetta er
leikur sem hefði sómt sér vel með al-
vöru trommum, eins og í Rock Band
eða álíka leikjum.
Leikurinn spilast nokkuð vel en
maður verður að læra vel á hann í
fyrstu til þess að geta haldið athygl-
inni við spilunina og haldið takti.
Maður slær mismunandi takt til
þess að fá leikmennina til að vinna
ákveðin verk, labba, berjast, veiða
og svo framvegis. Það er svo undir
manni komið að muna eftir öllum
töktunum til þess að koma Patapon-
fólkinu á áfangastað.
Í byrjun getur leikurinn verið
djöfullega erfiður því að hann á það
til að trufla mann í taktinum með
aukahljóðum. En þetta kemur að
lokum og brátt er maður farinn að
skipa hinum og þessum til með takt-
inn að vopni.
Grafíkin er algjörlega frábær; ein-
föld tvívíð grafík, skýr og vel hönnuð
og gerir leikinn einstakan í útliti.
Persónurnar eru sýndar í einföldum
formum en virka mjög vel þrátt fyrir
það.
Hljóðvinnsla er mjög góð, sem er
náttúrlega nauðsynlegt í leik sem
þessum, en hátalarar PSP-
vélarinnar henta ekkert sérstaklega
vel. Eins og LocoRoco verður þessi
leikur vanabindandi og maður finnur
að maður sækir í hann aftur og aftur
– eins og með alla góða leiki.
Í takt við
tímann
Ómar Örn Hauksson
TÖLVULEIKIR
PSP
SCE
Patapon Spilun: Grafík: Hljóð: Tveir á
toppnum
Ómar Örn Hauksson
TÖLVULEIKIR
PS3
EA Games
Army of two Spilun: Grafík: Hljóð: