Morgunblaðið - 10.03.2008, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MARS 2008 39
Miðasala í Borgarleikhúsinu, sími 568 8000 og á midi.is
6 Strengir ehf. og Eyjólfur Kristjánsson
kynna
Fram koma:
Björgvin Halldórsson
Stefán Hilmarsson
Friðrik Ómar
Sigurjón Brink
Eyjólfur Kristjánsson
Davíð Smári
Félagar úr Gospelkór Reykjavíkur
ásamt 12 manna hljómsveit
og bakröddum
EAGLES
heiðurstónleikar
Borgarleikhúsinu 19. mars, 2008
Kynnir:
Sigmundu
r
„Eagles“
Rúnarsson
ATH!
Tvennir tónleikarkl. 20 &
22.30
EDWARD Cole (Nicholson) og Car-
ter Chambers (Freeman) lenda sam-
an í herbergi á sjúkrahúsi þar sem
þeir hafa greinst með ólæknandi
krabbamein. Annað eiga þeir tæpast
sameiginlegt. Cole er margfráskil-
inn, vellauðugur kaupsýslumaður
(hann á m.a. spítalann) sem hefur
einangrast í hroka og græðgi og var
farinn að hala inn stórfé þegar á tán-
ingsaldri. Carter er þeldökkur bif-
vélavirki sem hefur stritað allt sitt líf
til að framfleyta fjölskyldunni ásamt
hjúkrunarfræðingnum konu sinni
(Todd) og kosta börnin til náms.
Jarðbundinn skarpur karl sem
kemst fljótlega inn fyrir skelina á
Cole og bendir honum á hvernig
hann hefur málað sig út í horn í líf-
inu. „Það vill enginn deyja einn,“
segir Carter.
The Bucket list er með dauðann í
baksýnisspeglinum. Cole kemst að
því að Carter hefur engin efni haft á
því að lifa lífinu utan veggja heimilis-
ins og hann sjálfur hefur ekki haft
mikinn tíma aflögu frá auðsöfn-
uninni. Saman leggja þeir heiminn
undir einkaþotuvængi auðjöfursins,
setja óskir sínar á „móðulistann“,
þ.e. hluti sem maður vill gera áður
en haldið er yfir móðuna miklu.
Dauðvona sjúklingar eru í fljótu
bragði fráleitt burðarefni í gam-
anmynd og sjálfsagt eiga einhverjir
erfitt með að kyngja því. Það hjálpar
örugglega að hafa kynnst af eigin
raun spítalalífi, hér er gert púra grín
að hlutum sem ergja að öllu jöfnu
legufólk, eins og endalaust leiðslu-
fargan og lyfjagjafir, það er öllum
hollt að skoða slíkar aðstæður í kóm-
ísku ljósi til tilbreytingar. Vissa
sjúkdóma hefur aldrei mátt nefna
öðruvísi en undir fyrirfram skýrt
mörkuðum kringumstæðum, slíkar
bannhelgar eru mélbrotnar í The
Bucket List og það er oft af hinu
góða. Vissulega er dansað á mörkum
væmninnar og lítið gefið fyrir raun-
veruleikann á köflum, hann verður
einfaldlega að sniðganga í myndum
sem þessari.
Það sem upp úr stendur er nýstár-
leg sýn á vandmeðfarið efni og frá-
bær leikur gamlingjanna tveggja
sem lóðsa áhorfandann yfir ambögur
handritsins og úr verður skrítnasta
gamanmynd ársins með sínum kost-
um og göllum. Mikilvægi góðrar vin-
áttu og fjölskyldubanda vegur
þungt, líkt og heiður og lífsgleði. Ef
grannt er skoðað er persóna Carters
mun betur unnin og trúverðugri, þar
er heilsteyptur karl á ferð – að því
undanskildu að slíkur einstaklingur
er ekki líklegur til að hlaupa frá
konu og fjölskyldu á banabeðnum.
Eyða dýrmætum síðustu vikum lífs-
ins í heimsreisu og lystisemdir, eða
hvað? Cole virðist frekar hannaður
að kunnri kvikmyndaímynd Nichol-
sons. Besta mynd Reiners í áraraðir,
en það segir reyndar ekki mikið.
Umhverfis jörðina með
eilífðina á hælunum
Sjúklingar Jack Nicholson og Morgan Freeman í Móðulistanum.
KVIKMYND
Sambíóin
Leikstjóri: Rob Reiner. Aðalleikarar: Jack
Nicholson, Morgan Freeman, Sean Ha-
yes, Beverly Todd. 100 mín. Bandaríkin
2008.
Móðulistinn – The Bucket List
bbbnn
Sæbjörn Valdimarsson
BRESKI dæg-
urlagasöngv-
arinn Robbie
Williams, sem fór
víst ekkert alltof
glaður frá Ís-
landi um árið,
heldur því fram
að í þrígang hafi
hann séð fljúg-
andi furðuhluti. Í útvarpsviðtali í
Bretlandi mun hann hafa sagst ætla
að hætta að syngja til að helga sig
rannsóknum á verum utan úr
geimnum.
Hann var drengur þegar hann sá
fljúgandi furðuhlut í fyrsta skipti
og í annað skiptið sá hann fyr-
irbærið fyrir ofan hótel í Holly-
wood.
„Ég lá í sólstól úti um nóttina.
Fyrir ofan mig birtist ferkantaður
hlutur sem sveif þögull áfram og
skaust svo burtu,“ sagði hann.
Síðast þegar Williams sá fljúg-
andi furðuhlut stóð hann úti á svöl-
um við svefnherbergið sitt og hafði
nýlokið við að semja lag um sam-
band við geimverur. Stór, gylltur
hnöttur lýsti allt upp á svölunum,
að hans sögn.
Williams sagðist einnig trúa á
drauga og bætti svo við: „Fólk held-
ur eflaust að ég sé brjálaður og ég
er það.“
Williams sér
fljúgandi
furðuhluti
HIN siðavanda
og vel látna leik-
kona Julie And-
rews, sem er nú
72 ára gömul,
mun greina frá
því í æviminn-
ingum sínum,
sem koma senn á
markað, að hún
sé ávöxtur ástarsambands sem
móðir hannar átti utan hjónabands.
The Sunday Times segir frá þessu
um helgina.
Stjarnan úr Mary Poppins mun
segja frá því að Barbara móðir
hennar átti ástríðufullt ævintýri
með „manni við fallegt stöðuvatn
nærri Walton-On-Thames“.
Á þeim tíma var móðir Andrews
gift handavinnukennaranum Ted
Wells, sem Andrews taldi vera föð-
ur sinn. Hún komst að sannleik-
anum á unglingsárunum en hélt
honum leyndum í 58 ár.
Andrews lýsir í minningunum til-
finningunum þegar hún, 14 ára
gömul, hitti raunverulegan föður
sinn.
„Ég man að ég fann fara á milli
okkar rafstraum sem ég gat ekki
útskýrt,“ skrifar hún.
Ávöxtur
framhjá-
halds