Morgunblaðið - 14.03.2008, Page 6

Morgunblaðið - 14.03.2008, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á meðan Kárahnjúkafárið stóð sem hæst hlotnaðist undirrituðum sá heiður að halda ræðu á „æs- ingafundi“ í Borgarleik- húsinu og sagði þá meðal annars (með leyfi fundarstjóra): „Sú efnahagslega innspýting sem framkvæmdin veldur mun aðeins vara í fjögur, fimm ár, þá mun sjúklingurinn æpa sem aldrei fyrr.“ Þetta var í janúar árið 2003. Nú bið ég menn að halda ekki að ég sé að rifja þetta upp til að sýna hvað ég sé klár, heldur hitt að jafnvel maður eins og ég gat séð þetta fyrir – og þá bið ég menn jafnframt að hafa í huga að hinu öndverða var einmitt haldið fram af stjórnvöldum: að álverið á Reyðarfirði væri „once in a lifetime“, ætlað til að efna löngu gjaldfallið kosningaloforð þá- verandi formanns Framsóknarflokks- ins, framar yrði ekki hoggið í sama kné- runn, „and they lived happily ever after“. Því er ég að rifja þetta upp hér að for- sætisráðherra vor sagði einmitt í vik- unni sem leið að hann útilokaði ekki nýtt álver „til að blása í hratt kulnandi glæð- ur“ efnahagslífsins. Og stóriðjuverin bíða í röðum: Helguvík og Húsavík eru þegar farnar að máta húfurnar og Olíu- hreinsunarstöð er í startholunum þvert ofan í fyrri heitstrengingar um „stór- iðjulausa Vestfirði“. Og það þarf ekki mikinn spámann til að sjá fyrir framhaldið: spúandi verk- smiðjur hringinn í kringum landið og jafnvel enn skelfilegri er sú sýn sem þá blasir við, því í hvaða skó verður migið þegar búið er að míga í þá báða og kuld- inn fer virkilega að bíta. Verður sett ál- ver ofan á álver? Nú bið ég menn að staldra ögn við og hugleiða hvað gerist með tilkomu álvers. Staður sem hefur fengið yfir sig álver er dauðanum merktur. Menn flýta sér fram hjá. Álverið í Straumsvík er fleinn í holdi Hafnfirðinga, Hvalfjörðurinn er ekki svipur hjá sjón eftir að ál- blendiverksmiðjan var sett niður á Grundartanga og þrátt fyrir álverið á Reyðarfirði herma nýlegar fréttir að fólk haldi áfram að streyma frá Austur- landi – þvert ofan í kraftaverkið eða kannski undan því? Reyndust hin afleiddu störf eftir allt saman vera afleit störf? Og nú stendur til að bjóða einhverjum mestu umhverfistossum jarðarinnar: Rússum! að setja niður olíudrullustöð á hinum magísku Vestfjörðum, sem þó höfðu vonað að sleppa líkt og þeir sluppu við Pestina árið 1494 – einir landsmanna. Að framansögðu má vera ljóst að hér er hnípin þjóð í vanda. Og vandinn er viðhald lífsstíls þar sem við getum hald- ið áfram að vera skuldsettasta þjóð í Evrópu og haldið áfram að magna hér upp verðbólguspennu sem hótar að sópa út í hafsauga sparifé landsmanna þegar hún ríður af og keyra í enn harðari fjötra þá sem voru svo ólánsamir að taka verðtryggð bankalán. Haldið áfram að dæla erlendu vinnuafli inn í landið til að skapa óviðráðanleg félagsleg vandamál á hratt komandi tíð, manna fangelsin fyrir utan þá sem náðu að forða sér úr landi og lesa um raðnauðganir í blaðinu með morgunkaffinu. Já, en segja menn, hvað á að koma í staðinn? Þú verður að benda á eitthvað annað. En það hvarflar ekki að mér, ekki frekar en ég kæmi á slysstað þar sem vímaður ökumaður hefði velt bíln- um og bæði mig um aðstoð til að halda keyrslunni áfram. Ég myndi segja: þú ert kominn á leiðarenda, vinur, og horfa í átt að bláum sírenuljósum sem nálg- uðust óðfluga. En næsta grein gæti heitið „Allt ann- að“. PISTILL » Já, en segja menn, hvað á að koma í staðinn? Þú verður að benda á eitthvað annað. En það hvarflar ekki að mér, ekki frekar en ég kæmi á slysstað þar sem vímaður ökumaður hefði velt bílnum og bæði mig um aðstoð til að halda keyrslunni áfram. Ég myndi segja: þú ert kominn á leið- arenda, vinur, og horfa í átt að bláum sírenu- ljósum sem nálguðust óðfluga. Pétur Gunnarsson Hnípin þjóð í vanda Hljóðpistlar Morgunblaðsins Pétur Gunnarsson les pistilinn Hljóðvarp | mbl.is Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur í New York bab@mbl.is „ÍSLENSKT efnahagslíf hefur ver- ið undir álagi á undanförnum árum og það er skiljanlegt að þeir sem fylgjast með því utan frá þurfi að einhverju leyti nánari útskýringa við,“ sagði Geir H. Haarde forsætis- ráðherra, í framsögu sinni á ársfundi Íslensk-ameríska verslunarráðsins sem haldinn var í New York í gær. „Það sem kemur í ljós við nánari skoðun á þeim þáttum sem þarna koma við sögu er að margt það sem gerst hefur á sér frekar augljósar og meinlausar útskýringar,“ sagði Geir jafnframt og útskýrði í framhaldi af þessu að stór hluti viðskiptahallans á Íslandi væri til kominn vegna inn- flutnings sem tengdist byggingu virkjana og álvera og þeirri upp- byggingu væri nú meira og minna lokið. Hann sagðist sannfærður um að það ójafnvægi sem hefði verið á íslensku efnahagslífi yrði brátt úr sögunni og efnahagsumhverfið í heild yrði stöðugra. Geir vék í máli sínu sérstaklega að íslenska fjármálamarkaðnum og sagði að eitt það markverðasta í þró- un efnahagsmála á Íslandi að und- anförnu væri vöxtur fjármálageir- ans, sem nú stæði undir um 10% af landsframleiðslu miðað við 6% árið 2000. Með einkavæðingu íslensku bankanna hefðu þeir breyst úr inn- lendum stofunum með hefðbundna bankastarfsemi í sannkölluð alþjóð- leg fjármálafyrirtæki. „Þetta hefur verið kærkomin þró- un og bætt mikilvægum þætti við efnahagslífið, þætti sem stjórnvöld vilja leggja allt kapp á að viðhalda og styrkja enn frekar,“ sagði Geir og bætti því við að íslensk stjórnvöld ætluðu sér að tryggja að aðstæður fyrir áframhaldandi velgengni ís- lenska fjármálageirans yrðu áfram góðar. Hann benti á að íslensku bankarn- ir hefðu vissulega fundið fyrir svipt- ingum á alþjóðlegum fjármálamörk- uðum að undanförnu, sem hefðu meðal annars haft það í för með sér að það væri bæði erfiðara og dýrara fyrir alþjóðlega banka að verða sér úti um fjármagn. Aftur á móti væri staða bankana sterk samkvæmt ís- lenska Fjármálaeftirlitinu, sem benti m.a. til sterkrar eiginfjárstöðu þeirra og getu þeirra til að standast ströng álagspróf sem eftirlitið framkvæmir reglulega. „Það bendir allt til þess að íslensku bankarnir standi vel og ég er sann- færður um að þeir munu standa af sér núverandi storma á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.“ Forstjórar íslensku bankanna greindu frá stöðu banka sinna og hvernig þeir hygðust bregðast við þeirri niðursveiflu sem blasir við í al- þjóðlega efnahagsumhverfinu. Þeir bentu á að íslensku bankarnir stæðu á grunni alþjóðlegra viðskipta og fjárfestinga og að dreifing áhættu þegar kæmi að fjárfestingum væri umtalsverð. Þola niðursveiflu Lárus Welding lagði í máli sínu áherslu á norræna tengingu Glitnis, og þá fyrst og fremst starfsemi bank- ans í Noregi, og að norski fjármála- markaðurinn væri einn sá sterkasti sem fyrirfyndist um þessar mundir. Hann benti einnig á að Glitnir stæði á grunni fjárfestinga í tveimur geirum, sjávarútvegi og endurnýjanlegrar orku, og að hvort tveggja væru svið þar sem engin niðursveifla væri í vændum. Hreiðar Már Sigurðsson greindi frá stöðu Kaupþings m.a. banka í Evrópu og að bankinn væri þar í öðru sæti þegar kæmi að kostnaðarskil- virkni. Áhersla yrði lögð á að viðhalda þessari skilvirkni og áætlanir fyrir árið 2008 gerðu ráð fyrir hóflegum vexti bankans. Hann greindi einnig frá því að greiningar Moody’s sýndu fram á að Kaupþing gæti staðist tals- verða niðursveiflu án þess að verða fyrir verulegum neikvæðum áhrifum. Sigurjón Árnason talaði á svipuð- um nótum og Hreiðar Már þegar áætlanir fyrir árið 2008 eru annars vegar, það er að segja að Landsbank- inn stefndi að hóflegum vexti. Sigur- jón sagði að slíkt væri skynsamlegt í viðskiptaumhverfinu eins og það blasti við. Hann lagði áherslu á sterka eiginfjárstöðu Landsbankans og benti á að lausafé hefði sjaldan ef nokkurn tíma verið jafn verðmætt og nú og að verðmæti þess færi vaxandi. Bankar yrðu að átta sig á þessu og einnig þeim áhrifum sem hækkandi orkuverð hefði og þá fyrst og fremst olíuverð sem er í sögulegu hámarki. Orðrómur getur orðið að veruleika Gregory Miller, prófessor við við- skiptadeild Harvard-háskóla, fjallaði í erindi sínu um hvernig íslenskt efnahagsumhverfi kæmi fyrir sjónir utan frá og að í þeim efnum stæðu tvö lýsingarorð upp úr um þessar mund- ir, óstöðugleiki og óvissa. „Þegar utanaðkomandi aðilar líta á stöðuna sjá þeir ekki þessa núansa sem dregnir hafa verið upp hér í dag,“ sagði Miller og vísaði þá til framsagna forstjóra íslensku bank- anna. „Fólk sér mikinn vöxt og gerir ráð fyrir því að honum fylgi mikill óstöðugleiki,“ sagði Miller og bætti því við í framhaldinu að þegar fólk færi að hafa áhyggjur, drægi það sig út úr fjárfestingum. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, kynnti áætlanir Baugs um stækkun á alþjóðavettvangi og þá fyrst og fremst í Kína, á Indlandi og í Rússlandi. Hann benti á að markaðir í þessum löndum væru í örum vexti og þróun og lýsti því hvernig fyrir- tækið hygðist nýta þau tækifæri sem þar væru til staðar. Jón Ásgeir var spurður að því að lokinni framsögu sinni hvers vegna hann væri fylgj- andi aðild Íslands að Evrópusam- bandinu og hvort sú skoðun hans byggðist á viðskiptalegum forsend- um. Hann svaraði því til að eitt af helstu vandamálum Íslands í alþjóða- viðskiptum væri að fólk vissi ekki hvað væri að gerast þar. „En ef við gætum sagt að við séum hluti af ein- hverju sem fólk þekkir og skilur al- mennt, þá myndi að hjálpa okkur mikið í að sækja fram,“ sagði Jón Ás- geir. Íslensk efnahagsmál rædd við blaða- og fréttamenn Að fundinum loknum og fram eftir degi í gær veitti Geir Haarde blaða- og fréttamönnum viðtöl til að ræða stöðu íslenskra efnahagsmála. Meðal þeirra miðla sem hann ræddi við voru Financial Times, Newsweek, Business Week, Bloomberg TV og CNN. Í samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær sagðist hann finna fyr- ir miklum áhuga umræddra frétta- manna á íslenskum efnahagsmálum og íslenska fjármálamarkaðnum. „Það er ánægjulegt að sjá hversu mikill áhugi er á okkar málum,“ sagði Geir. „Að einhverju leyti er fólk með rangar upplýsingar eða gerir sér ekki réttar hugmyndir um það sem er í gangi heima og þá fær maður tækifæri til að leiðrétta það. Og einn- ig að koma á framfæri þessum al- mennu sjónarmiðum um að íslenska efnahagslífið standi mjög vel og að það gangi vel á Íslandi. Einnig það að við höfum búið til mjög samkeppn- ishæft umhverfi og bjóðum erlend fyrirtæki velkomin til Íslands til að fjárfesta. Íslensku bankarnir munu standa af sér storma á fjármálamörkuðum Geir H. Haarde forsætis- ráðherra ræddi íslenskt viðskiptalíf á ársfundi Ís- lensk-ameríska versl- unarráðsins í New York. Ljósmynd/Birna Anna Viðskipti Forystumenn í íslensku viðskiptalífi kynntu sjónarmið sín á fundinum. Á myndinni má þekkja Hreiðar Má Sigurðsson, forstjóra Kaupþings, Sigurjón Árnason, bankastjóra LÍ, og Lárus Welding, forstjóra Glitnis. Í HNOTSKURN »Auk forsætisráðherra hélduframsögur á fundinum þeir Lárus Welding, forstjóri Glitnis, Hreiðar Már Sigurðsson, for- stjóri Kaupþings, og Sigurjón Árnason, bankastjóri Lands- bankans, Jón Ásgeir Jóhann- esson, forstjóri Baugs, Gregory Miller, prófessor við Harvard há- skóla, og Torsten Slok, hagfræð- ingur hjá Deutsche Bank. »Einnig tóku til máls ÓlafurJóhann Ólafsson, formaður Íslensk-ameríska verslunarráðs- ins, sem stjórnaði fundinum, og Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, sem leiddi pall- borðsumræður. Geir H. Haarde forsætisráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.