Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 21
AKUREYRI
Fjarðabyggð | Menningar-,
íþrótta- og ferðamálanefnd
Fjarðabyggðar hefur úthlutað 22
styrkjum til menningarverkefna
fyrir rúmar fjórar milljónir
króna. Styrkirnir eru frá 50 til
925 þúsund krónur, en sótt var
um styrki fyrir yfir fimmtán
milljónir króna. Lýsir nefndin
ánægju sinni með gróskuna í
menningarlífi sveitarfélagsins
sem fjöldi og gæði umsókna end-
urspeglar. Hæstu styrki hlaut
Sjóminjasafn Austurlands, 925
þúsund, bæjarhátíðin Franskir
dagar á Fáskrúðsfirði fékk hálfa
milljón í sinn hlut og Listasmiðja
Norðfjarðar 350 þúsund krónur.
Fé lagt í
menningu
Vopnafjörður | Á góugleði Mark-
aðsstofu Austurlands um sl. helgi
voru veittar hinar árlegu við-
urkenningar Markaðsstofunnar,
Frumkvöðullinn og Kletturinn.
Að þessu sinni hlutu Frum-
kvöðulinn hjónin Aðalsteinn Jóns-
son og Ólavía Sigmarsdóttir í
Klausturseli fyrir að sýna frum-
kvæði í uppbyggingu og rekstri
ferðaþjónustu á Jökuldal. Þau hafa
í meira en áratug rekið handverks-
gallerí og dýragarð í Klausturseli
og koma auk þess að verkefninu Á
hreindýraslóðum. Kletturinn féll í
hlut Borgfirðingsins Helga Magn-
úsar Arngrímssonar sem hefur
unnið að ferðamálum á Austurlandi
í góðan aldarfjórðung. Uppbygging
hans á Álfasteini á Borgarfirði
eystri frá 1981 var alla tíð mjög
ferðamannatengd og þegar göngu-
leiðamerkingar hófust 1996, með
stofnun Ferðamálahóps Borg-
arfjarðar, var búið að taka stefnuna
fyrir næsta áratuginn. Síðustu ár
hefur Helgi unnið að merkingu
gönguleiða og kortagerð víða um
land, m.a. í tengslum við verkefni
UMFÍ, Göngum um Ísland. Hann
hefur einnig látið til sín taka í fé-
lagsmálum og var um tíma í vara-
stjórn Markaðsstofu Austurlands.
Góugleðin var haldin í kjölfar að-
alfundar Markaðsstofunnar. Í
skýrslu framkvæmdastjóra, Kötlu
Steinsson, kom fram að umsvif
hefðu aukist á árinu. Ráðinn var
verkefnastjóri í heilsársstarf og
velta jókst þrátt fyrir að sam-
dráttur hefði orðið í tekjum vegna
færri íslenskra ferðamanna sem
lögðu leið sína um Austurland mið-
að við sumarið á undan.
Ljósmynd/MA
Kletturinn Auður Anna Ingólfsdóttir og Skúli Björn Gunnarsson (t.h.) af-
hentu Helga M. Arngrímssyni viðurkenningu Markaðsstofu Austurlands.
Markaðsstofan
heiðrar atorkufólkSeyðisfjörður | Íþróttamaður
Hugins á Seyðisfirði 2007 hefur
verið kjörinn. Fyrir valinu varð
Elmar Bragi
Einarsson.
Elmar hefur
stundað knatt-
spyrnu og
skíðaíþróttina
frá unga aldri.
Einnig hefur
hann séð um
þjálfun hjá Hug-
in. Sem knatt-
spyrnumaður og
skíðamaður er Elmar Bragi góð-
ur íþróttamaður og frábær fyr-
irmynd.
Þess má geta að Elmar Bragi
braut báða fótleggi árið 1998,
hlaut opið beinbrot á vinstri legg
og lærbrot á þeim hægri og var
samt sem áður mættur á æfingu
þremur mánuðum seinna.
Skarar fram
úr hjá Hugin
Elmar Bragi
Einarsson
Egilsstaðir | Fimleikadeild Hattar,
fyrsta austfirska félagið sem útnefnt
var fyrirmyndardeild innan ÍSÍ, hef-
ur verið starfrækt í 21 ár og eru iðk-
endur nú um 220 talsins, frá fjögurra
ára aldri til sextán ára. Fjórtán þjálf-
arar og aðstoðarþjálfarar starfa við
deildina og lögð er mikil áhersla á
góða menntun þeirra. Deildin er
löngu búin að sprengja af sér ramma
íþróttahússins á Egilsstöðum og bíða
forsvarsmenn hennar þess að vilyrði
sveitarfélagsins um byggingu fim-
leikahúss verði efnt.
Adda Birna Hjálmarsdóttir er for-
maður fimleikadeildarinnar. Hún
segir afar þröngt um starfsemi í
íþróttahúsinu og stórmál að koma
öllum iðkendum fyrir í þá tíma sem
fimleikadeildin fái úthlutað. Gríðar-
legt álag sé á þjálfurum, sem taki við
hverjum hópnum á fætur öðrum yfir
daginn. Fyrir komi að 60 börn séu í
íþróttasalnum í einu, en honum er að
jafnaði skipt í þrjú bil. Þá taki drjúgt
af úthlutuðum tíma til fimleikanna
að leggja út áhöld og safna þeim
saman aftur.
Bæjarstjórn gefi grænt ljós
„Skipuð var nefnd á vegum
íþrótta- og tómstundaráðs Fljóts-
dalshéraðs, sem fjallaði um upp-
byggingu íþróttamannvirkja og átti
að taka afstöðu til byggingar gervi-
grasvallar og fimleikahúss,“ segir
Adda Birna. „Gervigrasvöllurinn er
risinn, mjög glæsilegur leikvangur í
Fellabæ, en ekkert bólar á fimleika-
húsi, þ.e. viðbyggingu við íþróttahús-
ið á Egilsstöðum, þó bygging þess
hafi verið samþykkt af nefndinni.
Teikningar og kostnaðaráætlun
liggja fyrir, en bæjarstjórn þarf að
samþykkja bygginguna til að hafist
verði handa.“ Hún segir staðreynd
að vel menntaðir fimleikaþjálfarar
hafi áhuga á að koma austur til að
þjálfa, en aðstöðuleysi hindri. Eng-
inn möguleiki sé fyrir iðkendur sem
ná vilji langt til að æfa aukalega í
íþróttahúsinu. Metnaðarfull hug-
mynd um að stofna fimleikaakadem-
íu í samstarfi við Menntaskólann á
Egilsstöðum sé í gjörgæslu vegna
aðstöðuleysisins.
Fimleikadeild Hattar stendur á
morgun fyrir árlegu hópfimleika-
móti í íþróttahúsinu á Egilsstöðum.
Um 150 keppendur á aldrinum 9 til
16 ára koma frá Akureyri, Húsavík,
Egilsstöðum og Höfn. Upphitun
hefst kl. 09 og almenn keppni kl. 11.
Bíða ákvörðunar
bæjarstjórnar
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Fim Fimleikadeild Hattar nýtur
vinsælda og skortir betri aðstöðu.
Fimleikadeild
Hattar líður fyrir
aðstöðuskort
AUSTURLAND
ODDVITI Vinstri grænna í bæjar-
stjórn Akureyrar, Baldvin H. Sig-
urðsson, vill að kannað verði hvort
hægt sé að rifta samningi um sölu á
hlut bæjarins í Landsvirkjun til rík-
isins vegna þess að verðmæti fyrir-
tækisins hafi verið metið allt of lítið.
Samið var um söluna haustið 2006.
Á fundi bæjarráðs í gærmorgun
lét Baldvin bóka að af því tilefni að
Landsvirkjun skilaði 28,5 milljarða
kr. hagnaði á síðasta ári, vildi hann
enn og aftur mótmæla sölu Akureyr-
arbæjar á hluta bæjarins í fyrirtæk-
inu „vegna þess að ég tel að tæplega
61 milljarðs króna mat á Landsvirkj-
un hafi verið allt of lágt“. Baldvin
segir að Hitaveita Suðurnesja hafi á
svipuðum tíma verið metin á 55 millj-
arða en sé þó 80-90% minna fyrir-
tæki en LV. „Ég fer fram á að bæj-
arstjórn endurskoði þessa
sölusamninga og reyni að fá þeim rift
vegna mistaka sem hafa verið gerð á
verðmati Landsvirkjunar.“
Baldvin sagði við Morgunblaðið að
þegar fjármunir í eigu bæjarins
væru annars vegar bæri bæjar-
fulltrúum skylda til þess að vanda
sig. „Það er borðleggjandi að verð-
matið á Landsvirkjun var allt of lágt;
um það eru margir sammála. Meira
að segja Valgerður Sverrisdóttir [al-
þingismaður Framsóknarflokksins í
Norðausturkjördæmi og fyrrverandi
iðnaðarráðherra] sagði í sjónvarpi á
sínum tíma að huga ætti að einka-
væðingu Landsvirkjunar og lands-
fundur Sjálfstæðisflokksins hefur að
minnsta kosti þrisvar samþykkt að
stefna beri að því. Um leið og fyr-
irtækið fer á markað verður það
miklu meira virði.“
Á fundi bæjarráðs bókaði meiri-
hlutinn að fráleitt væri að draga þá
ályktun að afkoma Landsvirkjunar á
sl. ári sýndi að mistök hafi verið gerð
í því að selja hlut Akureyrarbæjar í
Landsvirkjun.
„Benda má á að fjármunatekjur
umfram fjármagnsgjöld námu
27.630 milljónum króna sem skýrist
aðallega af gengishagnaði af lang-
tímalánum og gangvirðisbreytingum
afleiðusamninga. Gengishagnaður-
inn og gangvirðisbreytingar eru að
mestu leyti óinnleyst og verður að
hafa það í huga við mat á afkomu fyr-
irtækisins,“ segir í bókun meirihlut-
ans.
Vill reyna að
rifta samningi
um sölu LV
Í HNOTSKURN
»Reykjavíkurborg og Akur-eyrarbær seldu ríkinu hluti
sína í Landsvirkjun á samtals
30,25 milljarða en heildarvirði
LV var metið 60,5 milljarðar.
Skrifað var undir samning um
söluna haustið 2006 og hann tók
gildi 1. janúar 2007.
»Eignarhlutur Akureyrar-bæjar í LV var 5,472% og
fékk því bærinn um 3,3 milljarða
króna í sinn hlut.
Meirihlutinn: Fráleitur málflutningur
NÝTT íslenskt leikrit, Dubbeldusch, var frumsýnt í
Rýminu á Akureyri í gærkvöldi við geysigóðar und-
irtektir gesta. Umfjöllunarefnið er að sumu leyti graf-
alvarlegt en verkið jafnframt fyndið og mikið var hleg-
ið á frumsýningunni. Höfundur verksins er Björn
Hlynur Haraldsson og hann leikstýrir sjálfur. Myndin
er tekin í búningsherbergi leikara skömmu fyrir frum-
sýninguna; frá vinstri: Hilmar Jónsson, Sveinn Ólafur
Gunnarsson, María Heba Þorkelsdóttir, Maríanna
Clara Lúthersdóttir og Harpa Arnardóttir. Uppsetning
Dubbeldusch er samstarfsverkefni Vesturports og
Leikfélags Akureyrar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Dubbeldusch fékk góðar viðtökur
ÞRISVAR á skömmum tíma hefur
verið hringt í Neyðarlínuna og beðið
um sjúkrabifreið að Glerárlaug á Ak-
ureyri en skilaboðin misfarist þannig
að bíllinn fór í öll skiptin að Sundlaug
Akureyrar. Þetta kemur fram í
Vikudegi sem kom út í gærkvöldi.
Síðasta tilvikið var um síðustu helgi.
Þá var tilkynnt um meðvitundarlaus-
an mann í Akureyrarsundlaug og
segir Þorbjörn Haraldsson slökkvi-
liðsstjóri í Vikudegi að farið hafi ver-
ið með mesta forgangi að Sundlaug
Akureyrar. Maðurinn hefur bragg-
ast að sögn Þorbjarnar og mistökin
komu því ekki að sök í þetta skipti.
„Þetta er því miður ekki í fyrsta
skipti sem svona gerist og þetta er
mjög slæmt, það er einhver brotalöm
í gangi hjá Neyðarlínunni, líklega
halda menn að einungis sé ein sund-
laug á Akureyri. Við útkall af þessu
tagi er hver mínúta dýrmæt,“ segir
Þorbjörn í Vikudegi.
Meinarðu Akureyrarlaug?
Beðið um sjúkrabíl í Glerárlaug – fór að Sundlaug Akureyrar