Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 13 ALÞINGI GÍSLI Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og sam- göngusviðs Reykjavíkurborgar segir niðurstöður úr árlegri skýrslu fuglasérfræðinga um lífríkið við Tjörnina ekki úr takti við þá þróun sem átt hafi sér stað síðustu 10-15 árin. Í skýrslunni er ástand fuglalífs- ins sagt óviðunandi og lagt til að úrbætur verði gerðar. Gísli Marteinn bendir á að í fyrra hafi borgaryfirvöld samþykkt aðgerðaáætl- un vegna málsins. Þar sé m.a. getið um að þekja hólma og eyða hvönn og að bæta úr tengingum milli friðlandsins og Vatnsmýrarinnar. Þá segir Gísli Marteinn að áætlunin snúi einnig að gróðri umhverfis Tjörnina og sílamávum. Í skýrslunni í ár er rætt um að tryggja þurfi ör- yggi andanna í friðlandinu yfir varptímann. Bent er á að varpi tjaldsins við gamla Háskólavöllinn sé jafnan spillt í kringum 17. júní en þá sé þessi hluti friðlandsins notaður sem bílastæði. Gísli Marteinn segir að sú athugasemd hafi ekki verið í skýrsl- unni í fyrra. Þá er lagt til í skýrslunni að vökt- unarmaður með Tjörninni, eða „andapabbi“, verði fenginn til þess að fylgjast með lífríkinu þar en enginn hefur unnið við það frá árinu 1985. Gísli Marteinn segir að þetta hafi verið á könnu garð- yrkjustjóra og hingað til hafi verið litið svo á að það nægði. „En ef það virðist ekki duga til munum við skoða hitt mjög alvarlega,“ segir hann. Niðurstöður í takt við þróun á fuglalífi við Tjörnina Borgin vinnur að endurbótum samkvæmt aðgerðaáætlun sem gerð var í fyrra Gísli Marteinn Baldursson 57 SÍLAMÁVAR voru svæfðir í fyrra á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborg- arsvæðinu, en um tilraun var að ræða. Svefnlyf voru hrist saman við brauðteninga og þeir lagðir á egg. Á óvart kom að einungis helmingur beit- unnar skilaði sofandi mávi. Um fjórðungur beitunnar ekki étinn og annar fjórðungur hvarf án þess að sofandi mávur fyndist. Tilraunin var gerð í Þerney á Kollafirði og í Garðaholti á Álftanesi. 57 mávar svæfðir GUÐMUNDUR H. Guðmundsson, varaformaður Samninganefndar ríkisins, kannast ekki við að kjara- viðræður við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fari hægt í gang. Haft var eftir formanni FÍH í gær að lítið hefði heyrst frá samn- inganefnd ríkisins frá því viðræ- ðuáætlun var undirrituð 29. febr- úar. Guðmundur segir að þann dag hafi verið gengið frá viðræðuáætl- unum við öll BHM-félögin. Gengið hafi verið út frá því að haldinn yrði einn samningafundur fyrir páska en ekkert nánar verið rætt um það. ,,Við höfum ekkert heyrt frá hjúkr- unarfræðingum frekar en þeir frá okkur en þeir höfðu svo samband í [gærmorgun] og það er búið að ákveða fund,“ segir hann. Samningar ASÍ-félaga hjá ríkinu renna út 1. apríl Guðmundur segir að undirbún- ingur viðræðna við hin ýmsu félög sé á svipaðri ferð. Nærtækastir séu samningar við ASÍ-félög vegna starfsmanna þeirra hjá ríkinu. Þeir renna út 1. apríl nk. eða mánuði fyrr en ýmsir samningar hjá fé- lögum opinberu starfsmannanna sem renna út í lok apríl, þ. á m. samningur hjúkrunarfræðinga. „Fundir við þau félög eru rétt að hefjast þessa dagana og ekki búið að halda nema einn fund. Það er því ekki rétt að það sé neinn drátt- ur á viðræðunum við hjúkrunar- fræðinga.“ Ekki drátt- ur á viðræð- um við FÍH MAÐUR með haglabyssu lokaði sig inni á salerni á heimili sínu í Reykja- nesbæ í gærkvöldi og hótaði að skaða sjálfan sig. Fjölskylda hans kallaði eftir hjálp lögreglu um kl. 21. Lögreglan á Suðurnesjum leitaði eft- ir aðstoð sérsveitar lögreglunnar í Reykjavík og tryggði vettvanginn í kringum húsið á meðan hættuástand varði. Að sögn lögreglunnar á Suður- nesjum ógnaði maðurinn engum. Hann kom fram nokkru síðar og var þá færður á lögreglustöðina. Maður- inn var eigandi haglabyssunnar og með leyfi fyrir henni og annarri haglabyssu. Lögreglan tók báðar byssurnar í sína vörslu. Hótaði að skaða sig ♦♦♦ ÁFRÝJUNARNEFND samkeppnis- mála hefur staðfest að Eimskip hafi framið alvarlegt brot á samkeppnis- lögum. Annars vegar með aðgerðum gegn Samskipum og hins vegar með gerð fjölmargra ólögmætra einka- kaupasamninga við viðskiptavini Eimskips. Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu 17. desember 2007 að Eimskip hefði misnotað markaðs- ráðandi stöðu sína á sjóflutninga- markaði og brotið gegn bannákvæð- um samkeppnislaga. Eimskip skaut málinu til áfrýjunarnefndar sam- keppnislaga sem kvað upp úrskurð í gær. Þar segir m.a. að áfrýjunar- nefndin hafi komist að þeirri niður- stöðu að Samkeppniseftirlitið hefði réttilega beint málinu að Eimskip. Jafnframt var staðfest að félagið væri í markaðsráðandi stöðu og hefði brot- ið gegn 11. gr. samkeppnislaga með aðgerðum sem miðuðu að því að veikja Samskip verulega og varan- lega og með gerð ólögmætra einka- kaupasamninga. Telur áfrýjunar- nefnd að um hafi verið að ræða alvarleg brot á samkeppnislögum. Áfrýjunarnefndin taldi hæfilegt að sekta Eimskip um 230 milljónir kr. sem er hæsta sekt sem nefndin hefur lagt á vegna misnotkunar á markaðs- ráðandi stöðu. Eimskip sendi frá sér yfirlýsingu í gær. Þar er því er fagnað að stjórn- valdssekt Samkeppniseftirlitsins var lækkuð um 80 milljónir. Þá er m.a. bent á að meint brot hafi átt sér stað fyrir 6-9 árum. Eins að fjölmargir samningar sem Samkeppniseftirlitið taldi ólögmæta einkakaupasamninga voru lögmætir að mati áfrýjunar- nefndarinnar. Hún taldi heldur ekki að ásetningur hefði verið hjá Eimskip um að koma keppinaut út af markaði. Samkeppnisbrot Eimskips staðfest Sekt lækkuð um 80 milljónirUNDANFARIN fjögur ár hefurNorðurál unnið að undirbúningi ál- vers í Helguvík í mjög góðu sam- starfi við sveitarfélög á svæðinu, orkufyrirtæki og opinberar stofn- anir. Norðurál hefur í hvívetna farið að lögum og reglum sem um slíkar framkvæmdir gilda og gengur und- irbúningur samkvæmt áætlun.“ Þetta kemur fram í tilkynningu sem Norðurál sendi frá sér í gær. Þar segir jafnframt að samningar hafi verið gerðir um svæði fyrir starfsemina, hafnaraðstöðu, orku og orkuflutning. Mati á umhverfis- áhrifum sé lokið, búið sé að breyta aðal- og deiliskipulagi og bæjar- stjórnir í Garði og Reykjanesbæ hafi samþykkt byggingarleyfi fyrir álverið. Vegna kæru Landverndar kemur fram að Norðurál hafi skilað um- sögnum sínum innan settra tíma- marka. Norðurál telji að vísa hafi átt kærunni frá þegar í stað þar sem álitaefnið sætti ekki kæru og kæran væri allt of seint fram komin. „Á árinu 2006 fór fram ítarlegt sam- ráðsferli vegna þessa atriðis að frumkvæði Skipulagsstofnunar með þáttöku Umhverfisstofnunar, orku- framleiðenda, sveitarfélaga og fleiri aðila. Niðurstaða þessa ferlis var að meta ekki allar framkvæmdir sam- an. Í bréfi umhverfisráðuneytisins til Norðuráls frá 22. nóvember, sem fylgdi með kæru Landverndar, seg- ir m.a.: „Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum viðkom- andi framkvæmdar, sbr. 11. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum, sætir ekki kæru til ráðherra skv. 1. mgr. 14. gr. laga um mat á umhverfis- áhrifum eins og áður sagði.“ Þar sem byggingarleyfi byggir á áliti Skipulagsstofnunar verður ekki séð að umrædd kæra hafi nein áhrif á útgáfu byggingarleyfis og hefur Norðurál því haldið áfram vinnu við undirbúning verkefnisins sam- kvæmt áætlun.“ Sagt er að frá því að orkusamn- ingar hafi verið gerðir við Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykja- víkur. Hafi þær unnið að því að upp- fylla skuldbindingar sínar um sölu á orku og sú vinna væri á áætlun. Landsnet hf. og Norðurál und- irrituðu samning um flutning raf- orku til álversins í Helguvík 3. októ- ber 2007. Landsnet hafi síðustu mánuði unnið með sveitarfélögum á Suðurnesjum og víðar að útfærslu flutningsleiða og samkvæmt upplýs- ingum Norðuráls væri sú vinna á lokastigum og ljóst að ásættanleg niðurstaða næðist. „Öll sveitarfélög á Suðurnesjum hafa lýst yfir stuðn- ingi við byggingu álvers í Helguvík. Framangreind orkufyrirtæki eru öll að vinna að undirbúningi sinna framkvæmda af fullum krafti og hafa upplýst Norðurál um stöðu þess undirbúnings. Norðurál hefur unnið með þessum fyrirtækjum í mörgum verkefnum og hefur afar góða reynslu af því samstarfi.“ Undirbúningur í Helgu- vík samkvæmt áætlun Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ÞETTA er hljómsveitarsvíta fyrir þrettán hljóð- færi og söngkonu. Verkið skiptist í þrettán þætti og ég er undir áhrifum frá mörgum stílum. Ég nota indverska tónlist, djasstónlist, hefðbundna evrópska tónlist og suður-ameríska tónlist,“ segir Andrés Ramón, nemi í tónsmíðum við Listahá- skóla Íslands, um útskriftarverkið sitt, Sögu leit- andans, sem frumflutt verður í kvöld. Andrés notar mismunandi hljóðfæri í hverjum þætti verksins sem tekur um 50 mínútur í flutn- ingi. Hann leitar víða fanga og nefnir fjöl- listamanninn Sri Chinmoy og tónskáldin Keith Jarrett og Astor Piazzola, þegar hann er inntur eftir helstu áhrifavöldum sínum. Hann iðkar jóga og heimspeki og segir að- spurður verkið sem frumflutt verður í kvöld end- urspegla áhuga sinn á jóga-fræðum, andlegum bókmenntum og indverskri heimspeki. Verkið byggist á frumsömdum söguþræði og sæki efni- við í ljóð og skrif indverskra hugsuða og rithöf- unda frá síðustu 150 árum, einkum í verk Rab- indranath Tagore, Sri Aurobindo, og Sri Chinmoy. Hóf tónlistarnám í Kólumbíu Andrés, sem útskrifast eftir þriggja ára nám í tónsmíðum í vor, fluttist hingað til lands frá Kól- umbíu þegar hann var 17 ára, eða fyrir réttum 12 árum. Hann hóf þá nám við tónlistarskóla Félags íslenskra hljómlistarmanna, FÍH, og var þá í klassískum píanóleik, ásamt djasstónlist og skyld- um fræðum. Átta ár voru þá liðin frá því hann innritaðist í nám í klassískum píanóleik í heima- landi sínu, en hann tók eina önn af námi sínu nú við Hochschule für Musik Hanns Eisler í Berlín. Andrés ber menntakerfinu hér vel söguna og segir það kost hversu greitt aðgengið sé að kenn- urum, stemningin sé heimilisleg. Spurður hvort íslenski veturinn sé honum inn- blástur segir Andrés listsköpun og skammdegið geta átt ágætlega saman. „Þetta er tíminn þegar maður fer mikið inn á við. Ég stunda sjálfur hugleiðslu og er mjög mik- ið í jógaiðkun, þannig að það fer vel saman að horfa inn á við og kafa djúpt í tónlistina,“ segir Andrés Ramón. Andrés Ramón frumflytur eigið verk á burtfarartónleikum Skammdegið og jógað veitir innblástur Morgunblaðið/Eggert Í kvöld Tónleikarnir fara fram í sal Listaháskólans á horni Klapparstígs og Skúlagötu kl. 18.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.