Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þorvaldur Ein-arsson fæddist á Ormsstaðastekk í Norðfirði 16. ágúst 1919. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaup- stað sunnudaginn 9. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Einar Þórðarsson Seldal, f. 27. apríl 1869, d. 30. október 1939, og Guðbjörg Sigfúsdóttir frá Snjóholti á Eiða- þinghá, f. 25. mars 1880, d. 12. jan- úar 1925. Systkini Þorvaldar voru Þórunn Sigríður, f. 8. mars 1910, d. 18. mars 1911, Björn, f. 25. maí, d. 23. mars 1968, Guðni Þórir, f. 15. maí 1913, d. 10. september 1978, Jón Gunnþór, f. 30. júlí 1915, d. 1. febrúar 1985, og Sigfús, f. 2. júní 1917, d. 3. maí 1985. Þorvaldur kvæntist hinn 27. ágúst 1949 Rósu Sigríði Ólafs- dóttur frá Brunnum í Suðursveit, f. 15. september 1924. Þau eign- 28. nóvember 1983. 3) Jóhann Ólafur, f. 7. ágúst 1953. Sonur hans og Margrétar Barðadóttur er Barði, f. 10. september 1975. 4) Hafsteinn Smári, f. 7. júní 1957, kvæntur Ölmu Þormóðsdóttur, f. 5. mars 1961. Börn þeirra eru: a) Rósa Berglind, f. 20. ágúst 1980, sambýlismaður Bjarni Már Haf- steinsson, f. 5. janúar 1986, sonur þeirra er Hafsteinn, f. 22. sept- ember 2007, b) Þorgerður, f. 22. apríl 1986, unnusti Jóhann Guð- mundsson, f. 20. maí 1983, og c) Björn, f. 18. október 1990. 5) Guð- björg, f. 18. júlí 1959. Börn hennar og Þórodds Gissurarsonar eru: a) Þorvaldur, f. 2. ágúst 1977, kvænt- ur Ólöfu Ásu Benediktsdóttur, f. 30. janúar 1980, dóttir þeirra er Telma, f. 16. júní 2004, b) Gissur Freyr, f. 14. janúar 1980, sam- býliskona Sigrún Hólm Þorleifs- dóttir, f. 21. október 1983, sonur þeirra er Hilmir Hólm, f. 1. maí 2006, c) Sif, f. 2. október 1981, sambýlismaður Daniel Harley, dóttir þeirra er Lana, f. 16. apríl 2005, og d) Níels, f. 19. maí 1993. Útför Þorvaldar verður gerð frá Norðfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. uðust fimm börn, þau eru: 1) Einar, f. 31. janúar 1949. Börn hans og Bjarkar Bjarnadóttur, f. 23. jan. 1952, eru a) Þor- valdur, f. 28. apríl, 1980, unnusta Sigríð- ur Inga Björnsdóttir, f. 20. september 1984, og b) Sverrir Björn, f. 19. maí 1985. 2) Sigríður, f. 20. ágúst 1951. Börn hennar og Jóns Bjarna Magnússonar, f. 24. apríl, eru: a) Magnús, f. 25. apríl 1977, sambýliskona Hildur Ösp Þorsteinsdóttir, f. 29. nóv- ember 1975, dætur þeirra eru Sara Lind, f. 13. febrúar 2000, og Sunna Ösp, f. 27. janúar 2003, b) Sandra, f. 21. september 1980, sambýlismaður Peter David Lindsay Dooley, f. 5. mars 1986, dóttir þeirra er Summer Torfhild- ur, f. 20. nóvember 2007, og c) Torfhildur, f. 15. mars 1985, sam- býlismaður Róbert Richardsson, f. Elsku afi okkar. Mikið óskaplega erum við þakk- lát fyrir að hafa átt svona góðan og elskulegan afa sem við höfum allt- af getað leitað til og fundið hjá ást og umhyggju. Þú gast einnig glatt okkur með öllum skemmtilegu bröndurunum þínum. Alltaf var hægt að koma til þín og ömmu eft- ir skóla og sund og fá sér kökur og fínerí sem amma var búin að baka og spila við þig olsen, alltaf var gott að koma til ömmu og afa. En nú er sú stund runnin upp sem við höfum kviðið svo fyrir og söknum við þín svo sárt. Þú munt alltaf eiga stóran sess í hjörtum okkar. Þín afabörn, Torfhildur og Magnús. Elsku afi minn. Það er víst kom- ið að kveðjustund. Það sem gerir hana helst til erfiða fyrir mig er að ég er hinum megin á hnettinum. Er það ekki furðulegt að mér skuli hvergi hafa liðið betur en einmitt hér í Ástralíu. Hefði nú ekki verið gáfulegra að flytja aðeins nær! En þó svo að lönd og höf hafi skilið okkur að undanfarin ár hefur þú alltaf verið hjá mér, bæði í huga og hjarta, og þar muntu ávallt vera. Mín fyrstu viðbrögð þegar mamma hringdi í mig með frétt- irnar af láti þínu voru eftirsjá. Ég hugsaði með mér: Ég hefði bara átt að drífa mig austur síðastliðið sumar þegar ég kom, hvað með það þótt ég hafi stoppað stutt. En maður á ekki að lifa lífinu og iðrast endalaust, það er alltof erfitt. Ég hef ákveðið að einbeita mér að minningunum um þig frá því þegar ég var að alast upp, þær eru bæði margar og góðar. Það voru sannarlega forrettindi að fá að alast upp með þig svo ná- lægt. Það var alltaf velkomið að koma við í kaffi hjá afa og ömmu og manni tekið með opnum örmum og einhverju góðgæti. Aldrei fannst þér og ömmu ég búin að borða nóg. Það var alltaf hægt að búast við að heyra: „Hva, það er ekkert sem þú borðar.“ Afi var mikill kapalleggjari. Ég eyddi ófáum stundum með honum við eldhúsborðið á Hlíðargötu við að leggja kapal eða spila ólsen. Mér þótti það nú samt ekkert allt- af skemmtilegt þegar hann leyfði mér að vinna. Hann afi var líka skemmtilegur karl og minnisstæð- asta „galdrabragðið“ var þegar hann hélt saman lófunum og sló þeim á hné sér svo klingdi í eins og hann væri með lófana fulla af klinki. Þetta bragð brást aldrei. Ég hlakkaði svo til þess að keyra austur í sumar með fjöl- skyldunni minni og sýna þér og ömmu fallegu dóttur mína, Sum- mer, og kynna ykkur loksins fyrir unnusta mínum, Pete. Langaði að kynna með stolti hann afa minn. En helst af öllu langar mig til að sjá þig í hinsta sinn, faðma þig fast að mér, kyssa þig á kinnina og hvísla í eyra þitt: „Þú ert besti af- inn í öllum heiminum, ég elska þig.“ Guð geymi þig elsku afi. Þín Sandra litla. Nú hef ég misst góðan vin, hann afa minn, sem ég á eftir að sakna mikið. Afi var útgerðarmaður í Nes- kaupstað allt sitt líf og allt að því fiskverkandi því meðan hann hafði heilsu til var hann með einhverja aðstöðu til verkunar. Það var ekki ósjaldan sem ég fékk hringingu um að það væri sending á leiðinni sem myndi ekki þola langa dvöl á pósthúsinu. Í sendingunni var yf- irleitt hákarl, harðfiskur og salt- fiskur. Í samtölum okkar bar líka oft á góma hvort annar hvor okkar hefði frétt af einhverjum góðum hákarli. Þegar ég ólst upp á Neskaup- stað var ég tíður gestur á Hlíð- argötunni hjá afa og ömmu og þar átti maður alltaf vísan góðan stað. Afi og amma voru sérstaklega samhent hjón og saman tókust þau á við verkefni lífsins. Þau ólu upp fimm börn og hafa alla ævi stutt sína afkomendur með ráðum og dáð. Missir okkar allra er því mik- ill við fráfall afa, þó sérstaklega ömmu. Nú seinni ár heyrðumst við afi reglulega í síma eftir að ég flutti frá Neskaupstað. Það var alltaf gott að fá álit afa ef eitthvað stóð til. Yfirleitt ræddum við aðeins peningamálin og sjávarútveginn þegar við vorum búnir að fara yfir það sem skipti máli. Afi var sérstaklega barngóður og hafði mikinn áhuga á því hvort Telma væri ekki orðin stór og hvort hún hefði nokkuð hitt Hilmi frænda sinn. Þegar ég kom austur fórum við alltaf á rúntinn inn í höfn og út að vita að kíkja eftir skipum. Í þessum ferðum fórum við yfir hvernig fiskiríið væri og hvernig þetta hefði verið í gamla daga. Þegar afi kom til Reykjavíkur meðan ég var í skóla þar fórum við alltaf góðan rúnt um bæinn og fór- um í verslanir sem seldu radara, dýptarmæla og bátavélar. Þó að hann væri hættur útgerð þá var hann alltaf með hugann við hvað væri nýjast á markaðnum ef hann skyldi nú fá sér annan bát. Svo enduðum við yfirleitt á því að fá okkur kaffi og bakkelsi á Kaffi- vagninum. Afi og amma komu nokkrum sinnum norður eftir að ég flutti til Akureyrar og þar fundum við hár- karlshjall sem afa fannst mjög áhugaverður og í samtölum okkar spurði hann alltaf hvort það væri ekki mikið í hjallinum. Afi og amma voru alltaf höfð- ingjar heim að sækja og engu til sparað þegar maður kom í heim- sókn. Afi var léttlyndur og stríðinn og hafði gaman af því að fá gesti. Skemmst er að minnast stórrar af- mælisveislu sumarið 2004 þegar þau hjónin héldu upp á 85 ára af- mæli hans og 80 ára afmæli henn- ar. Ég leit upp til afa og hann hafði mikil áhrif á mig, sérstaklega varðandi menntun. Ætli hann hafi ekki séð hvað ég sá sjómennskuna í miklum ljóma – enda tók hann ekkert vel í það þegar hann var með bát að taka mig eða annan með sér á sjóinn. Afi sagði alltaf að maður þyrfti að mennta sig svo maður þyrfti ekki að þræla allt sitt líf. Hann hafði mikinn áhuga á menntun og framförum, t.d. hafði hann sérstakan áhuga á internet- inu og fékk sér ADSL-tengingu á níræðisaldri. Afi var manni andleg hvatning alla tíð. Ég er þakklátur fyrir allar þær minningar sem ég á um afa minn og kveð góðan vin með söknuði. Þorvaldur Þóroddsson. Þorvaldur Einarsson ✝ Jóhannes Sól-bjartur Sig- urbjörnsson fæddist á Flateyri við Ön- undarfjörð 5. febr- úar 1908. Hann lést á elliheimilinu Grund 27. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Sigurbjörn Vet- urliði Jóhannesson verkamaður, f. 24.4. 1884, d. 6.5. 1932, og Bergþóra Björnsdóttir hús- freyja, f. á Þingeyri 7.8. 1884, d. 25.4. 1964. Jóhannes giftist 5.9. 1931 Ágústu Skúladóttur húsfreyju í Reykjavík, f. á Seyðisfirði 26.1. 1911, d. 25.8. 1983. Foreldrar hennar voru Skúli Einarsson, f. í Mykjunesi, Holtahr.Rang., vél- stjóri á Seyðisfirði, síðar í Reykja- vík, f. 15.2. 1881, d. 27.2. 1928 og Ingibjörg Stefánsdóttir, húsfreyja í Tungu á Seyðisfirði, N-Múl., síð- ar í Selbrekkum í Reykjavík, f. í Hraunkoti í Landbroti, V-Skaft. 16.1. 1887, d. í Reykjavík 16.4. 1962. Börn Jóhannesar og Ágústu eru: 1) Ingibjörg Ólöf (Stella), f. í Reykjavík 7.10. 1931, d. 10.11. 1986, gift Finni Hermannsyni. 1963, börn þeirra eru Atli Fannar, f . 4.3. 1991 og Anja Rún f. 20.5. 1995. 2) Guðrún Jóhanna Craft, f. 27.6. 1934, d. 20.2. 1994, gift Ra- leigh Craft og eiga þau fimm börn, a) Terry, f. 23.11. 1955, sonur Ra- leigh af fyrra hjónabandi á eina dóttur, Kirsten, f. 27.3. 1992, b) Jó- hannes, f. 10.11. 1957, kvæntur Lindu Craft, f. 14.5. 1950, sonur þeirra er Jóhannes, f. 22.3. 1989, c) Karen Glori, f. 27.1. 1960, gift Ricardo Tan, f. 26.11. 1954, börn þeirra eru Derrik, f. 14.12. 1980, og Erika, f. 12.12. 1990, d) Lon, f. 26.7.1963, e) Cynthia, f. 2.5. 1969, gift Darren Farwell, f. 1.10. 1968, börn þeirra eru Shayanne, f. 26.10.1990, Stephanie, f. 29.8. 1992, Ryan, f. 21.3. 1995. 3) Skúli Sigurbjörn, f. 16.5. 1943, kvæntur Önnu Sigurðadóttur, f. 5.12. 1944, börn þeirra eru a) Ágústa, f. 17.7. 1967, og b) Óskar, f. 18.12. 1971, kvæntur Svandísi Huld Gunn- arsdóttur, f. 2.6. 1970, börn þeirra eru Kristrún Ósk, f. 23.7. 1995, Stefanía Dröfn, f. 10.7. 1997 og Gunnar Andri, f. 25.5. 2001. 4) Ágústa Sigríður, f. 20.5. 1949, gift Vilhjálmi Erni Georgssyni, f. 24.3. 1946, börn þeirra eru a) Andés Ró- bert, f. 12.7. 1972, kvæntur Heið- rúnu Jónu Ingólfsdóttur, f. 13.10. 1974, börn þeirra eru Ingólfur Örn, f. 27.11. 2001, og Kristín Erla, f. 5.5. 2003, b) Georg Alfreð, f. 18.5. 1975, kvæntur Thelmu Gunnarsdóttur, f. 15.7. 1980. Jóhannes Sólbjartur verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Eignuðust þau fimm börn, a) Ágúst, f. 8.1. 1952, kvæntur Svan- dísi Elínu Eyjólfs- dóttur, f. 29.4. 1953, d. 17.7. 1996, börn þeirra eru Elín Þóra, f. 1.9. 1972, á hún einn son, Eyrún Ásta, f. 23.9. 1976, Ágúst Finnur, f. 15.1. 1991, b) Einar, f. 18.5. 1954, kvæntur Ás- laugu Guðmunds- dóttur, f. 27.7. 1955, börn þeirra eru Finn- ur Ingi, f. 3.10. 1973, á hann tvö börn og Guðrún Andrea, f. 1.3. 1979, og á hún þrjú börn, c) Ásdís, f. 22.8. 1957, gift Bergi Inga Ólafs- syni, f. 12.7. 1958, börn Ásdísar af fyrra hjónabandi eru Jóhannes Andri, f. 5.2. 1979, og á hann einn son, Guðbjörn Ívar, f. 11.1. 1980, og á hann einn son, og Ágúst Ingi, f. 19.5. 1989, Kjartanssynir. Guð- munda, f. 29.6. 1997, og Bergdís, f. 14. 7. 1999, Bergsdætur, d) Gunn- ar, f. 8.7. 1963, kvæntur Helgu Svanlaugu Bjarnadóttur, f. 16.10. 1967, börn þeirra eru Stella Ingi- björg, f. 15.5. 1989, Gillý Ósk, f. 6.10. 2000, og Bjarni Snær, f. 6.10. 2000, e) Bjarghildur, f. 19.5. 1967, gift Skúla Bjarnasyni, f. 2.11. Jæja, elsku afi minn. Þá ertu farinn frá okkur. Þú stóðst við það sem þú sagðir: Ég verð 100 ára, svo fer ég, enda stóð allt eins og stafur í bók sem þú sagðir. Ekki var ég gamall þegar ég fór sem messagutti með þér á sjóinn, fyrsta og síðasta ferðin mín sem sjómaður, ég er enn að furða mig á því hvað einn strákur getur ælt mikið á 15 dögum, síðar fór ég vinna með þér og Sigga dæ dæ, á netaverkstæðinu hjá Hafró, það voru góðir tímar, enda lærði ég fullt af ykkur gömlu köllunum og sögurnar sem þið sögðuð um sjó- mennskuna í den gleymast ekki svo glatt. Þegar maður fer að hugsa til baka, þá er eitt sem stendur upp úr. Þú hafðir alltaf tíma fyrir mig og aldrei skiptir þú skapi eða hækkaðir róminn, og annað afi, þessu man ég eftir síðan ég var pínulítill: Kókið, maður, litlar flöskur í trékassa innI í skáp. Allt- af fékk maður kók og útlenska nammið sem þú komst með úr sigl- ingunum. Þetta var bara eins og jól nokkrum sinnum á ári; kana- sjónvarpið, já, eins gott að gleyma því ekki, kúrekaþættirnir, kafbáta- þættirnir, geimþættirnir. Vá, mað- ur, hvað var gaman. Stundum furðar maður sig á því af hverju var alltaf svona gaman þegar maður var lítill – sennilega af því að maður á frábæra fjöl- skyldu. Núna ertu kominN á leiðarenda, elsku afi, og þakka ég þér fyrir allt, við hittumst síðar, bið að heilsa ömmu, mömmu og pabba. Gunnar Finnsson. Elsku afi. Ég mun alltaf sakna þín og minnist allra þeirra góðu stunda sem við áttum saman. Ég gleymi því aldrei þegar ég kom í heimsókn á Víðmelinn til ykkar ömmu sem barn. Þá fórum við iðulega í göngu- ferð og komum við í sjoppunni þar sem þú keyptir gotterí handa okk- ur eða fórum í sunnudagsbíltúr nið- ur á höfn og komum við í Melaís- búðinni á leiðinni heim. Mér er það líka minnisstætt hvernig þú styttir þér stundir, eftir að þú hættir á sjónum, við að reikna, ég skildi aldrei sem barn af hverju þér fannst reikningur svo skemmtilegur, en endaði svo sjálf með að fara í nám þar sem reikn- ingur er undirstaðan og stór hluti. Ég man hvernig ég hélt lengi að skipstjórabúningurinn þinn væri lögreglubúningur og var sannfærð um að þú værir lögga. Það var líka huggulegt þegar þú komst reglu- lega í mat heim til mömmu eftir að amma dó. Við skemmtum okkur konunglega yfir Tomma & Jenna ásamt pabba. Mér verður alltaf minnistætt hvað þið gátuð hlegið að vitleysunni í þeim félögum. Það var yndislegt að fá að halda með þér upp á 100 ára afmælið í síðasta mánuði. Þú ætlaðir að ná þessum áfanga og það gerðir þú. En nú ertu farinn, elsku afi, eini forfaðir okkar systkinanna, og þó að það sé gott fyrir þig að vera kominn í hvíldina til Systu og mömmu og pabba og hinna sem eru farin frá okkur, þá skilur þú eftir þig stórt skarð og ég mun alltaf sakna þín. Bjarghildur. Á 100 ára afmælinu þínu þann 5. febrúar síðastliðinn var gaman að sjá hvað þú varst hress og hafðir gaman af því að hitta okkur öll. Það var sérstaklega gaman að flestallir sem eru búsettir í Am- eríku gátu komið og samglaðst með þér á afmælisdaginn þinn. Margar eru minningarnar mínar um þig frá því ég var lítil stelpa. Þá er það mér efst í minni þegar ég kom á Víðimelinn til ykkar ömmu að það var alltaf til kók í lít- illi flösku í kassa inni í fatahengi og útlenskt súkkulaði handa okkur barnabörnunum uppi í skáp. Þegar þú varst í landi þá gekkst þú alltaf fram og til baka í holinu eins og þú værir í brúnni að fylgjast með því sem var að gerast. Það sem mér finnst þó standa upp úr er að þegar þú varst á sjó og fórst í „siglingu“ þá komst þú alltaf með eitthvað gott og einnig keyptir þú fyrsta hjólið mitt sem var rautt og sér- staklega fallegt. Einnig þegar þú komst með eplin og appelsínurnar frá útlöndum sem var þá algjör munaðarvara sem mamma geymdi inni í skáp til jólanna. Sat ég fyrir utan skápinn og andaði að mér eplalyktinni en ekki fengum við epli fyrr en á jólunum. Elsku afi nú ertu kominn á leiðarenda og hvíldin kærkomin eftir langt líf. Það að hafa náð því að verða 100 ára er nokkuð sem margir geta ekki stát- að af en þú varst ákveðinn í að ná því takmarki. Elsku afi minn. Skil- aðu kveðju til þeirra sem eru farnir yfir frá okkur öllum og hafðu það gott þar sem þú ert. Ásdís Finnsdóttir. Jóhannes Sólbjartur Sigurbjörnsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.