Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 36
✝ Elías Val-geirsson fædd- ist á Kjalvegi í Nes- hreppi á Snæfellsnesi 3. febrúar 1912. Hann lést á heimili sínu, Dalbraut 27, hinn 5. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Valgeir Narfi Guðbjörnsson, f. 13.2. 1890, d. 1.10. 1917, og Sigríður J. Bjarnadóttir, f. 16.11. 1882, d. 2.5 1964. Systkini Elíasar voru Gunn- ar Valgeirsson, f. 16.1. 1913, d. 9.1. 2001 og Valentína Valgeirs- dóttir, f. 29.6. 1914, d. 29.1. 1939. Hinn 19. 5 1934 kvæntist Elías Helgu Valdimarsdóttur, f. 24.9. 1916, d. 6.3. 1996. Börn þeirra eru: 1) Magdalena Sigríður, kaup- maður í Reykjavík, f. 23.11. 1938, gift Theodór S. Marinóssyni, framkvæmdarstjóra í Reykjavík, f. 7.8. 1932, þau eiga 3 börn, 7 barnabörn og 1 barnabarnabarn. 2) Sigurður Rúnar, iðnfræðingur, f. 3.4. 1942, kvæntur Eddu Svein- björnsdóttur bankastarfsmanni, meðeigandi rafmagnsverkstæðis Rafafls og verslunarinnar Raf- orku í Reykjavík 1942-49, verk- stjóri Rafmagnsveitna ríkisins, m.a. við Andakíslárvirkjun og Laxárvirkjun 1950-54, rafveitu- stjóri Snæfellsnesveitu 1954–72 og aðalbirgðavörður RARIK 1972–82. Elías æfði og keppti í fimleikum og sundi á sínum yngri árum og vann til verðlauna í þeim greinum, þá keppti hann í knattspyrnu og var mikill KR- ingur alla tíð. Hann fór í sund- laugar næstum daglega allt til dauðadags og var gerður heið- ursfélagi í pottormum sem var óopinber klúbbur í Sundlaugum Reykjavíkur. Hann sat í stjórn Félags íslenskra rafvirkja, í stjórn Lúðrasveitarinnar Svans, Hann var fyrsti formaður Leik- félags Ólafsvíkur, söng í kirkju- kór Ólafsvíkur og félagi í Rót- arýklúbbi Ólafsvíkur, söng með Kór eldri borgara í Reykjavík og var gerður að heiðursfélaga þar, söng lengi með RARIK-kórnum í Reykjavík. Elías var sæmdur gullmerki Félags íslenskra raf- virkja fyrir 25 ára starf og gull- merki frá RARIK fyrir 30 ára starf. Útför Elíasar fer fram frá Ár- bæjarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. þau eiga 3 börn og 10 barnabörn. Fyrir átti Sigurður Rúnar einn son og á hann 4 börn. 3) Hannes, f. 11.9. 1943, d. 19.4. 1947. 4) Valdimar, sjúkraliði og vél- stjóri, f. 1.2. 1951, kvæntur Hong Shen, f. 3.10. 1963. Valdi- mar á eina dóttur frá fyrra hjónabandi. Elías ólst upp í Reykjavík frá 1917 eða eftir að faðir hans lést auk þess sem hann var í sveit á sumrin fram yfir ferm- ingu, fyrst á Kjalvegi, eitt sumar á Malarifi, síðan á Gröf í Eyr- arsveit, þá að Vatnsenda við Reykjavík og loks að Ánastöðum á Mýrum. Á unglingsárunum starfaði Elías við saltfiskbreiðslu í Reykjavík og vann á Eyrinni. Þá var hann hjálparkokkur á botn- vörpungnum Þórólfi. Elías stund- aði nám við Iðnskólann í Reykja- vík 1929–33 og við rafmagnsdeild Vélskólans 1949–52. Elías stund- aði rafvirkjastörf í Reykjavík eft- ir sveinsprófið til 1951. Hann var Elskulegur tengdafaðir minn hefur nú kvatt þennan heim. Minningarnar hrannast upp í hug- anum, þær eru nú ófáar þegar maður hugsar til baka. Elías aðeins 96 ára, kom keyrandi flestalla morgna, oft áður en við hjón- in vonum komin á fætur, til að drekka með okkur morgunkaffið. Þá var hann oft búinn að keyra um bæinn og skoða hvað væri að gerast í Reykja- vík, því alltaf er verið að byggja ný stórhýsi. Hann fór oft um hafnar- svæðið til að fylgjast með skipunum. Hann var farinn að tala um að bráð- um yrði hann að hætta að keyra bíl- inn, þá yrði mikið frá honum tekið því í sundlaugar varð hann að komast á hverjum degi, en hann var einn af pottormunum svokölluðu. Íþróttir voru hans líf og yndi, hann fylgdist með öllum íþróttaviðburðum, var mikill KR-ingur. Elías var mikill söngmaður, söng í mörgum kórum, var alls staðar dáður af félögum sínum og vinum því hann var sérlega glaðlyndur, alltaf í góðu skapi en stóð fast á sinni meiningu sérstaklega þegar talið barst að póli- tík. Hann hafði þá skoðun að allir ættu að vera góðir og hafa það jafn- gott. Það á eftir að verða mikil breyt- ing og söknuður í lífi okkar hjónanna þegar enginn Elías kemur í morgun- kaffi og kvöldmatinn til okkar í Vorsabæ því nú er hann hættur að keyra. Blessuð sé minningin um góðan tengdaföður. Theodór S. Marinósson. Nú er elsku Elli afi sofnaður sínum hinsta svefni. Elli afi var alveg einstakur maður. Hann var alltaf svo glaður og ánægð- ur með alla. Hann var afskaplega stoltur af okkur barnabörnunum og börnunum okkar einnig. Hann fylgd- ist vel með okkur öllum og reyndi að taka þátt í því sem hann gat í lífi okk- ar. Það var ótrúlega mikið áfall að fá símhringingu um það að afi væri dá- inn. Þó hann væri kominn á háan ald- ur var hann svo hress að ég var alveg viss um að hann yrði allavega 100 ára. Það er ekki oft sem maður heyrir um 96 ára mann sem keyrir enn bíl, syng- ur í kór, fer í hverri viku á ball og er nánast hættur að nota gleraugu. En nú er hann farinn og minningarnar hrannast upp um allar góðu stund- irnar sem ég átti með afa. Ég man þau skipti þegar ég var lítil stelpa og fékk að fara með afa í sund, við fórum í útiklefann og afi fór alltaf í kalda sturtu. Afi var virkur alþýðubandalags- maður og á hverju ári var farið í rútu- ferð um landið. Afi bauð mér iðulega með og ég naut þess að vera með hon- um, við sungum í rútunni og hann var hrókur alls fagnaðar. Ef mann lang- aði í fjörugar umræður við afa þá fór maður að ræða pólitík. Afi hafði mikl- ar skoðanir á þjóðmálunum alveg fram á síðasta dag. Hann þoldi ekki misrétti og hans draumur var sá að allir hefðu það gott og að engum væri mismunað. Honum líkaði ekki græðg- in og yfirgangurinn sem margir stjórnast af. Enda var hann alltaf boðinn og búinn til að rétta hverjum sem var hjálparhönd. Afi gladdist alltaf mjög þegar við komum í heimsókn til hans. Hann kynnti okkur stoltur fyrir öllum sem hann mætti á ganginum á Dalbraut. Yfirleitt hittum við hann þó hjá mömmu því hann var alltaf á ferðinni og erfitt að hitta á hann heima hjá sér. Þegar Marel Snær var 1 árs í pöss- un hjá mömmu kom afi á hverjum degi til þeirra og þeir fóru í gönguferð meðfram Elliðaánum. Þeir spjölluðu og sungu, stoppuðu við steininn og settust á bekkinn. Afi talaði við snáð- ann eins og jafnaldra og býr dreng- urinn enn að þeim orðaforða sem hann lærði af langafa. Toppurinn var þó alltaf sá að fá að sitja með langafa við stýrið og keyra hring neðst í göt- unni. Afi var mikill KR-ingur og að sjálf- sögðu kenndi hann stráknum að syngja ,,Áfram KR“. Það var frekar neyðarlegt að fara út í búð með snáð- ann þar sem við bjuggum í hverfi Fylkis og hann söng hástöfum ,,Áfram KR“ en þetta þótti afa skemmtilegt. Já, minningar um góðar stundir eru óteljandi margar og við erum svo afar þakklát fyrir þær allar. Síðasta ferðin okkar var á Snæfellsnesið þar sem afi fékk að sýna okkur niðjunum æskustöðvar sínar og starfsvettvang til margra ára. Hann naut ferðarinn- ar út í ystu æsar og það gerðum við einnig. Nú söknum við afa en höldum í minningarnar. Afi sefur með ömmu og bíður þess að Jesú komi og veki þau. Þá hittumst við aftur og njótum þess að vera sam- an um eilífð. Við biðjum Guð að gefa okkur öll- um styrk í sorginni. Við kveðjum góðan mann með þakklæti fyrir allt. Steinunn, Örn, Marel og Jón Steinar. Elsku afi, nú ert þú farinn, eftir eru minningar um þær stundir sem við áttum, þær nú ekki fáar. Það var allt- af svo gott að vera hjá þér og ömmu í Ólafsvík, ég var hjá ykkur hvert sum- ar og sem unglingur kom ég og vann í frystihúsinu. Það var góður tími. Þú varst að vinna uppi á fjöllum og niðri á stöð. Þú elskaðir að synda og vera úti í sólinni og afi var kominn í stutt- buxur um leið og sólin sást. Svo flutt- ust þið suður, ég fór í Vogaskólann. Þá kom ég í Efstasundið. Við spjöll- uðum og þú sagðir mér frá þegar þú varst lítill drengur búinn að missa pabba þinn og mamma þín var með þrjú lítil börn og ekki mikið til. Þú sagðir þetta líka oft þegar Teddi minn var að vinna með pabba sínum. „Þetta gat ég aldrei“, en ég skynjaði þann söknuð sem þú hafðir. Þú varst svo blíður og hlýr, elsku afi, þegar langamma veiktist byggðir þú við húsið svo hún gæti verið hjá ykkur, þú hugsaðir um hana af þvílíkri hlýju. Þegar ég sagði ykkur að ég ætti von á okkar fyrsta barni var gleðin mikil, þú varst svo mikill barnakarl. Þú varst í Hveragerði á heilsuhælinu þegar Halldóra fæddist og enginn trúði því að þú værir að verða langafi svona ungur, en þú leist alltaf svo vel út að allir héldu að þú værir tíu til fimmtán árum yngri en þú varst. Þú varst líka fljótur upp á fæðingardeild að sjá hana Halldóru og halda á henni. Þú varst svo stoltur langafi. Þegar Elín mín fæddist varð ég veik en þú og amma komuð til mín á hverj- um degi og hjálpuðuð mér. Amma var þá orðin slöpp svo það varst þú sem hugsaðir um Elínu, settir hana út í vagni og fórst í göngutúra. Þú og Elín áttuð góðar stundir á svölunnum í Hraunbænum, þið spjölluðuð og borðuðuð harðfisk, svo fórstu með hana og kynntir fyrir fólkinu í húsinu og sagðir alltaf:„Þetta er hún Elín, langafastelpan mín.“ Þegar þú varðst áttræður fórstu í hjartaaðgerð en þú varst snöggur að ná þér, kominn í sund og út að labba á engum tíma. Hreyfingin var þér mik- ilvæg, eins og fótboltinn, sannur KR- ingur. Söngur var líka mikill þáttur í lífi þínu, kórarnir sem þú varst í og fé- lagskapurinn, bæði í Rarik-kórnum og kór eldiborgara. Fyrir tólf árum misstir þú hana ömmu, ástina í lífi þínu, eftir sextíu og tveggja ár hjóna- band. Þá misstir þú mikið og sökn- uðurinn var mikill en lífið varð halda áfram. Þú fluttist á Dalbrautina, þú varst alltaf kátur og hress og í góðu skapi, allir vissu hver Elías var, bæði starfsfólk og íbúar, þú fórst í morg- ungöngur á hverjum morgni, fórst í bíltúra til mömmu í kaffisopa, sund eftir hádegi og þú hélst uppi stemmn- ingunni. Síðastliðið sumar fórum við á Snæfellsnesið í hópferð og þú sagðir okkur alla söguna frá því að þú varst lítil drengur á Kjalveg og um upp- vaxtarárin. Eins sagðir þú okkur frá öllum virkjunum og vinnu í Ólafsvík, þetta var ógleymanleg ferð og þakka ég fyrir hana, þér fannst þetta svo gaman. Elsku afi, þú kvaddir okkur á þinn einstaka máta á þrekhjólinu í leikfimi. Ég þakka að hafa átt þig sem afa og við söknum þín mikið, en nú ertu hjá ömmu og Hannesi. Takk fyrir allt. Þín dótturdóttir, Guðrún H. Theodórsdóttir. Elsku Elli afi. Það er sárt að sakna þín og erfitt að hugsa til þess að við eigum ekki eftir að hittast oftar hjá ömmu Siddý eða mæta þér í umferðinni á gula bílnum og heyra Jón Andra kalla: „Þarna er Ella afa bíll!“ En ég veit að þú ert kominn á góðan stað og kominn til ömmu Helgu. Minningarnar streyma um hugann þegar ég hugsa til þín um stundirnar sem við áttum saman í Efstasundinu og Árbænum og þegar þú og amma Helga pössuðuð okkur þegar Elín systir var lítil. Alltaf varstu svo glaður og hress! Úti á svöl- um í sólbaði hvort sem það var vetur eða sumar og með harðfisk í kassan- um. Alltaf var afi á hraðferð, alltaf svo mikið að gera í félagslífinu, missti ekki af neinu þar né ef eitthvað var að gerast í boltanum í sjónvarpinu eða á vellinum hjá KR enda gamall KR- ingur og ekki fannst þér leiðinlegt að ég skyldi ná mér í harðan KR-ing enda gátuð þið Gunni talað saman um boltann og rafmagnið sem þið áttuð sameiginlegt. Allar þessar minningar og fleiri til mun ég geyma um þig í hjarta mínu og aldrei gleyma enda eru það að fá að eiga þig sem langafa, 96 ára í fullu fjöri, alltaf brosandi og syngjandi viss forréttindi. Einnig var ég svo heppin að gera þig að langa- langafa. Elsku afi, takk fyrir allar þær stundir sem við áttum saman. Halldóra, Gunnar og Jón Andri. Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni, veki þig með sól að morgni. Farðu í friði, vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni, svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Halldóra Jónsdóttir. Ég var svo lánsamur sem barn að fá oft að dvelja í Ólafsvík hjá afa og ömmu í risastóra húsinu þeirra með móann á bakvið sem náði lengst upp að jökli. Afi sat oft við eldhúsglugg- ann sem sneri út að sjó og hlustaði á hádegisfréttirnar sem voru honum ómissandi. „Fylgistu ekkert með, drengur,“ heyrði ég oft í gegnum tíð- ina. Svo var spennandi að fara í raf- veituhúsið við stífluna. Þar var mikill hávaði og mælarnir margir en hann var rafveitustjórinn. Á 70 ára afmælisdeginum, en þá var hann búsettur í Efstasundi, var haldin mikil veisla. Þangað kom Rússi nokkur með stóra gjöf handa afa. Það heillaði mig að þeir skyldu hafa mun- að eftir vini sínum á slíkum tímamót- um. Á unglingsárunum eyddi ég góð- um tíma með afa við að hjálpa honum að klæða húsið sitt og ræða pólitík. Afi hafði þá trú að heimurinn yrði betri ef menn sameinuðust um sterk- an leiðtoga sem stjórnaði öllu, allir ættu allt saman og enginn hefði meira en hann nauðsynlega þyrfti. Að græða á náunganum væri bannað. Þetta viðhorf hans mótaðist af átak- anlegri bernsku hans. En afi var svo lánsamur að eiga konu sem sá til þess að þau komust vel af fjárhagslega. Stundum var ég ekki sammála afa og lét hann heyra það, þá glumdi í ömmu eða mömmu: „Vertu ekki að æsa hann afa þinn upp.“ Þegar afi kom úr fyrstu heimsókn sinni til Sovét sálugu sagði hann frá dýrðinni í fyrirheitna landinu. Jólin 1991 samhryggðist ég afa þegar síð- asti foringinn féll og fyrirheitna land- ið var leyst upp. Draumurinn búinn. Þetta var líka dapur dagur fyrir mig. Það slökknaði á afa. Skoðanir hans höfðu þó áhrif á ungan huga þótt afi ætti erfitt með að trúa því. Stuttu eftir andlát ömmu kom afi, þá 85 ára, með okkur fjölskyldunni til Suður-Frakklands. Þetta var góð ferð. Sumarið 2006 fóru niðjar afa í rútu- ferð í kringum Snæfellsnes, sem var sá landshluti sem afi var sérstaklega vel kunnugur. Þetta var fróðleg ferð með afa sem fararstjóra. 88 ára gamall endurnýjaði afi bílinn sinn. Hann var orðinn þreyttur á handskiptingunni. Afi hafði not fyrir ökuskírteini til dauðadags. Hann var hamingjusamlega kvæntur svo eftir var tekið, í tæp 62 ár. Þvílík tryggð og ást sem afi bar til ömmu. Þarna voru greinilega ást- fangnir einstaklingar. Ég spurði ömmu hvað hún hefði eiginlega verið að hugsa að gifta sig svona ung, eða 17 ára. Hún svaraði: „Ég veit það ekki, ég var bara svo heppin að þetta var hann afi þinn.“ Afi byggði við húsið í Efstasundi svo að tengdamóðir hans gæti búið hjá þeim. Hjúkrunarheimili var ekki á dagskrá. Amma og afi önnuðust hana en hún dó skömmu seinna. Þá var húsið orðið of stórt og því selt. Afi söng alla ævi, var jákvæður og félagslyndur. Frá æsku byggði hann upp sterkan líkama og lét sólina ekki framhjá sér fara. Hann var reglusam- ur og hófsamur. Afi stundaði íþróttir og synti til hinsta dags. Hann mætti reglulega í heita pottinn í Laugar- dalnum á morgnana til að spjalla við félagana. Það má nú segja að afi hafi verið iðinn í líkamsræktinni því hann skildi við okkur á þrekhjóli. Guð blessi minningu hans. Elías Theodórsson. Elsku afi Elías. Þú varst að gera það sem þú elsk- aðir, þú varst hjóla á æfingahjólinu þegar þú kvaddir þennan heim. Þú hefðir ekki getað fengið betri dauð- daga. Þú naust lífsins alveg fram á síðustu sekúndu og náðir að verða 96 ára, elsku afi. Það var svo gaman að fá þig í heim- sókn til okkar í Noregi. Þú hoppaðir út í ískaldan sjóinn í júní, lást úti í sól- baði og hjálpaðir okkur með börnin. Þú fórst með okkur í garðpartí og vaktir mikla athygli hjá vinum okkar, þeim fannst þú svo hress og kátur. Á kvöldin sátum við og spiluðum á spil. Það var svo gott að hafa þig hjá okkur afi. Við áttum svo góðar stundir sam- an. Við sem ætluðum að bjóða þér til okkar til Svíðþjóðar í sumar í nýju íbúðina okkar við sjóinn og fara með þér í bátsferðir. Þú hefðir haft svo gaman af því, elsku afi. Ég man svo vel fyrir 3 árum þegar við komum til Íslands. Þá komstu til mín og sagðir við mig hreykinn: „Nú er ég búinn að henda gleraugunum og stafnum mínum, Helga.“ Þá varst þú 93 ára og búinn að fara í augnaðgerð. En nú ertu kominn til elsku Helgu ömmu. Þú saknaðir hennar nú mikið. Þess vegna varðstu alltaf að vera á ferðinni til þess að dreifa huganum. Þú talaðir oft um ömmu, hvernig þið hittust, hvernig lífið ykkar var og ég man að amma sagði við mig að þið fór- uð alltaf sátt að sofa. Það er góð lífs- regla! Ég er svo glöð að börnin okkar Daniel Andri, Soffia Rún og Sara Lind hafi náð að kynnast þér svo vel afi. Þau voru alltaf mjög stolt þegar þau voru að segja vinunum frá sínum flotta afa sem synti á hverjum degi og var svo sprækur og hress. Soffía vinkona mín lýsti þér svo vel þegar ég sagði henni að þú hefðir kvatt þennan heim. „Ég man sko al- veg eftir honum afa þínum. Hann var svo sætur og alltaf svo hress á líkama og sál. Ég fór oft með þér að heim- sækja hann þegar við vorum í Versló, hann tók alltaf svo agalega vel á móti okkur.“ Þú sagðir mér oft sögur frá lífinu þínu afi. Það var gaman að hlusta á þig. Þú hafðir upplifað bæði sorg og gleði. Þú misstir pabba þinn ungur, bara 5 ára, bróðir þinn var settur í fóstur og svo dó systir þín ung. Sonur þinn Hannes dó í bílslysi bara 4 ára gamall. Þú sagðir mér hvernig þú og Helga amma hittust, hún var bara 16 og þú 20 ára. Amma sagðist hafa náð Elías Valgeirsson 36 FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Langafi minn. Ég vissi þetta en mér datt það ekki í hug núna. Því níutíu og sex ára ertu og ég sakna þín eins og þú saknar mín. Ég græt í skólanum og græt heima. Það er eins og þú sért í hjarta mínu. Birta Þöll Sveinbjörnsdóttir. HINSTA KVEÐJA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.