Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 22
daglegtlíf Gult og glingur á páskum Páskablómið Liljurnar eru ómiss- andi um páskana og þessar potta- liljur kosta 299 á tilboði í Blómaval. Ytri potturinn fæst þar sömuleiðis og kostar einnig 299 kr. Litríkar Alls kyns páskaservíettur fást í Blómavali, þær minni kosta 399 kr. pakkinn og þær stærri 499 kr. Þessi kerti eru með 30% afslætti og kostar egglaga kertið því 664 kr. en kúlan 391 kr. Morgunblaðið/Valdís Thor Hangandi Lítil postulínsegg frá Villeroy & Boch, Kringlunni, tvö í pakka á 2.000 kr. Vasinn fæst í sömu verslun en greinarnar eru úr Blómavali. Hlýleg Tuskumús með páskahænsn í fanginu úr Sia, Laugavegi, kr. 1.760 með 20% afslætti. Sumarlegar Kotrosknar páska- kanínur sem fá sólina til að skína í forhertustu hjörtum. Fást í Blóma- vali. Stærri kostar 783 kr. og sú minni 629 kr. með 30% afslætti. |föstudagur|14. 3. 2008| mbl.is Heitfengur Þessi páskaungi heldur hita á lin- soðnu eggjunum sem verða á morgunverða- borðunum um páskana. Fæst í Pipar og salt, Klapparstíg og kostar 1.800 kr. Fágað Páskakertastjaki frá Holmgaard, kr. 4.550 kr. Fæst í Villeroy & Boch, Kringlunni. Páskaliljur, krókusar, gulir túlípanar og brumandi greinar hafalengi þótt órjúfanlegur hluti af páskahaldinu. Hins vegar eru ekkimörg ár síðan páskaskraut fór að verða áberandi í verslunum vik-urnar fyrir páska. Ef marka má úrvalið sem þar er að finna má ætla að æ fleiri skreyti híbýli sín fyrir hátíðarnar, þótt í misríkum mæli sé. Flestir láta sér nægja að koma fyrir einum og einum páskaunga eða -kanínu sem gægist ofan úr hillu eða gluggakistu. Þeir eru þó til sem taka páskaskreytingarnar með trompi, líkt og algengara er að glysgjarnir geri fyrir jól. Vissulega er fleira en ungar og kanínur sem stendur til boða vilji fólk setja páskasvip á heimilið, þótt þessar skepnur skipi víða veglegan sess í verslunum. Þar má einnig sjá alls kyns kerti og páskadúka, óróa, hreiður, kertastjaka, skálar, servíettur og hringi utan um þær, eggjahreiður, páskabjöllur og margt, margt fleira. Svo er bara spurningin hvað vekur helst páskabarnið í hverjum og einum? Strýtuhænur Fást í Pipar og salt, Klapp- arstíg. Sú stærsta kostar 950 kr., mið- stærðin er á 750 kr. og sú minnsta á 595 kr. Spaugilegar Hænustyttur úr Sia, Laugavegi. Sú stærri kostar 1.000 kr. en þær minni 792 kr. með 20% afslætti. Eggið og hænan Úr leir, fæst í Sia, Laugavegi. Doppótt hæna kostar 440 kr. og rósótt egg 280 kr. með 20% afslætti. Iðandi Efst á fætinum er gormur sem tryggir hreyfanleika þessara litríku hænsna. Kosta 895 kr. og fást í Pipar og salt, Klapparstíg. Afvelta Litlir postulínsungar frá Villeroy & Boch í Kringlunni, þrír í pakka á 1.090 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.